Við Haddi erum fyrir austan í sælunni og erum búin að eiga ansi ljúfan laugardag. Veðrið er voðlega fínt, það er auðvitað svolítið kalt en nauðsynlegt að fara aðeins út og hressa upp á sig.
|  | 
| Nauðsynlegt að príla svolítið og auðvitað þumalinn upp fyrir því. | 
|  | 
| Nú er ég gengin 21 viku með litlu dömuna okkar og ég nota hvaða tækifæri sem er og held utan um stækkandi maga sem ég er svo ánægð með og pósa fyrir myndavélina ;) | 
|  | 
| Haddi minn sætur og fínn við Seljalandsfoss. | 
|  | 
| Já, það var svolítið kalt en fallegt var það. | 
|  | 
| Kaffitími hjá ömmu hans Hadda, pönnukökur með rjóma og sultu. Það allra besta. Ég held svei mér þá að það sé fátt sem slær þessm pönnukökum við. 
 Njótið helgarinnar - það er eina vitið.
 
 xxx
 
 Eva Laufey K. Hermannsdóttir
 | 
 
Til hamingju með dömuna, gaman að vita hvaða kyn maður gengur með ;)
ReplyDeleteB.kv.
Takk fyrir Ástríður. Já það er voða gaman, við gátum allavega ekki beðið ;)
Delete