Showing posts with label Jól. Show all posts
Showing posts with label Jól. Show all posts

Sunday, December 20, 2015

Ris a la Mande


Ris a la Mande er einn af mínum eftirlætis eftirréttum og nauðsynlegt að bera hann fram um jólin. Það kannast nú sennilega flestir við þennan eftirrétt og er hann mjög vinsæll á mörgum heimilum, enda er það enginn furða - hann er einstaklega góður. Rjómakenndur grautur með berjasósu og stökkum möndlubitum, þarf ég nokkuð að segja meira? 

Ég vona að þið njótið vel. 


Ris a la Mande 

Grauturinn:
  • 2 1/4 dl grautargrjón 
  • 1 L nýmjólk 
  • 1 -2 vanillustangir 
  • smá salt 
  • 50 g hvítt súkkulaði 
Aðferð: 

  1. Penslið pott með smá smjöri en það kemur í veg fyrir að grjónin og mjólkin brenni við. 
  2. Hellið mjólkinni í pottinn og leyfið suðunni að koma upp, bætið þá grjónunum út í pottinn og hrærið vel í.
  3. Kljúfið vanillustöngina í tvennt, skafið fræin innan úr og setjið í pottinn. 
  4. Sjóðið grautinn við vægan hita í 35 - 40 mínútur. Hrærið af og til í pottinum, það er mjög auðvelt að brenna grautinn við og þess vegna þarf að fylgjast vel með. 
  5. Þegar grauturinn er tilbúinn bætið þið smátt söxuðu hvítu súkkulaði saman við og hrærið, súkkulaðið bráðnar í grautnum og gefur honum einstaklega fallega áferð. En auðvitað megið þið sleppa súkkulaðinu ef þið viljið. (en hver vill sleppa súkkulaði?);)
  6. Kælið grautinn mjög vel áður en þið útbúið Ris a la Mande. Best er að gera grautinn deginum áður og þá kólnar hann í rólegheitum yfir nótt. 
Ris a la Mande 

  • 1 skammtur grautur (uppskriftin hér að ofan)
  • 200 ml rjómi 
  • 2 msk flórsykur 
  • 100 g möndlur, hakkaðar og ristaðar
  • kirsuberjasósa 
  • fersk kirsuber 
Aðferð: 

  1. Þeytið rjóma og bætið flórsykrinum saman við. 
  2. Blandið rjómablöndunni saman við grautinn með sleikju. 
  3. Hakkið möndlur, ristið þær og kælið. Þegar þær eru kaldar þá bætið þið þeim við grautinn, mér finnst ágætt að setja 70% í grautinn en geyma 30% af möndlunum til skrauts. 
  4. Hellið nú grautnum í fallega skál eða skálar. Ég keypti tilbúna kirsuberjasósu sem mér þykir einstaklega góð og hellti yfir grautinn. Sáldraði möndlum yfir og skreytti með nokkrum ferskum kirsuberjum. 
  5. Kælið grautinn áður en þið berið hann fram.
Algjört lostæti! 






Ég vona að þið eigið góðan sunnudag með fólkinu ykkar kæru lesendur. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefni sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Friday, December 11, 2015

Bestu smákökur ársins á einum stað


Smákökusamkeppni KORNAX hefur verið haldin í aðdraganda jólanna undanfarin ár og ég hef verið svo heppin að fá að dæma í keppninni síðastliðin tvö ár.  Í keppninni keppa áhugabakarar um besta jóla smákökuna og það er hreint ótrúlegt hvað það eru margar ómótstæðilegar kökur í keppninni, það er ekki auðvelt að dæma í keppni sem þessari skal ég ykkur segja. Ég fékk leyfi til þess að birta nokkrar uppskriftir sem ég mæli með að þið prófið, ég er sífellt að leita að góðum smáköku uppskriftum fyrir jólin og hér eru þrjár uppskriftir sem stóðu upp úr í smákökukeppninni í ár og því tilvalið að baka þær fyrir jólin og njóta. 

1.sæti:  Steinakökur. Höf: Andrea Ida Jónsdóttir 
  
2. sæti: Pipplingar. Höf: Ástrós Guðjónsdóttir
 3.sæti: Heslihnetu karamellu kökur. Höf: Lilly Aletta Jóhannsdóttir.
 


Njótið vel. 
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni sem notuð eru í þessar uppskriftir fást í verslunum Hagkaups.


Sunday, December 6, 2015

Smákökur með súkkulaði- og pekanhnetum



Gleðilega aðra aðventu kæru lesendur. Mikið vona ég að helgin ykkar hafi verið uppfull af notalegheitum með fjölskyldu og vinum. Ég hef lítið sinnt blogginu að undanförnu en ég er búin að vera í prófum og lítill tími gefist fyrir bakstur og eldamennsku. En nú verð ég dugleg að setja inn jólalegar uppskriftir fyrir ykkur. 

Í gær bakaði ég til dæmis þessar ofur góðu smákökur með súkkulaði- og pekanhnetum, ég er svakalega mikið fyrir hnetur en þið getið auðvitað skipt þeim út fyrir meira súkkulaði ef þið eruð ekki jafn hrifin af hnetum og ég.  Uppskriftin er frekar stór og notaði ég einungis 1/4 af deiginu, ég frysti rest og get þá alltaf skorið það deig í bita og skellt inn í ofn þegar kökulöngunin kemur upp. Kökurnar hjá mér eru frekar stórar en það er bara smekksatriði. Ég mæli með að þið prófið þessar og vonandi smakkast þær vel. 


Smákökur með súkkulaði- og pekanhnetum

  •  230 g smjör 
  • 180 g púðursykur frá 
  • 180 g ljós púðursykur 
  • 2 egg
  • 320 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft 
  • 1 tsk matarsódi
  • 100 g pekanhnetur
  • 300 g súkkulaði, ég notaði bæði suðusúkkulaði og dökka súkkulaðihnappa
  • 1 tsk vanilludropar 


Aðferð: 
  1. Hitið ofninn í 180°C. 
  2. Þeytið sykur og smjör þar til blandan verður létt í sér, bætið eggjum saman við. Einu í einu. 
  3. Bætið þurrefnum saman við eggjablönduna og hrærið, skafið einu sinni til tvisvar sinnum meðfram hliðum á skálinni og haldið áfram að hræra. 
  4. Saxið niður pekanhnetur og súkkulaði, setjið saman við ásamt vanillu og blandið vel saman með sleikju. 
  5. Mótið kúlur með teskeiðum eða matskeiðum, setjið kökurnar á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 180°C í 10 - 12 mínútur 
  6. Bræðið gjarnan súkkulaði og sáldrið yfir kökurnar í lokin. 
Njótið strax og þá helst með ísköldu mjólkurglasi. 












Upplagt að pakka deiginu inn í plastfilmu og geyma í frysti ef þið viljið ekki baka allt í einu. 







Aðventuknús frá mér til ykkar.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.