Showing posts with label Smákökur. Show all posts
Showing posts with label Smákökur. Show all posts

Friday, December 11, 2015

Bestu smákökur ársins á einum stað


Smákökusamkeppni KORNAX hefur verið haldin í aðdraganda jólanna undanfarin ár og ég hef verið svo heppin að fá að dæma í keppninni síðastliðin tvö ár.  Í keppninni keppa áhugabakarar um besta jóla smákökuna og það er hreint ótrúlegt hvað það eru margar ómótstæðilegar kökur í keppninni, það er ekki auðvelt að dæma í keppni sem þessari skal ég ykkur segja. Ég fékk leyfi til þess að birta nokkrar uppskriftir sem ég mæli með að þið prófið, ég er sífellt að leita að góðum smáköku uppskriftum fyrir jólin og hér eru þrjár uppskriftir sem stóðu upp úr í smákökukeppninni í ár og því tilvalið að baka þær fyrir jólin og njóta. 

1.sæti:  Steinakökur. Höf: Andrea Ida Jónsdóttir 
  
2. sæti: Pipplingar. Höf: Ástrós Guðjónsdóttir
 3.sæti: Heslihnetu karamellu kökur. Höf: Lilly Aletta Jóhannsdóttir.
 


Njótið vel. 
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni sem notuð eru í þessar uppskriftir fást í verslunum Hagkaups.


Sunday, September 20, 2015

Brjálæðislega góðar súkkulaðibitakökur á 20 mínútum



Helgin hefur verið frekar róleg á þessu heimili og 'to do' listinn minnkaði ekkert, það freistaði miklu meira að hanga á kaffihúsum, lita, baka eða taka leggju með Ingibjörgu Rósu en að mála vegg, setja upp gardínur og þið vitið.. allt sem verður að gerast strax, helst í gær. Stundum er bara alveg ágætt að taka rólega daga og plana ekki yfir sig, 'to do' listinn fer ekkert en tíminn er núna til að njóta með fólkinu okkar. Ég þarf að minnsta kosti að minna sjálfa mig á það af og til, það þarf ekkert alltaf allt að vera samkvæmt planinu og það er bara fínt að taka letidaga. 

Og fyrst við erum byrjuð að tala um letidaga þá verð ég að deila með ykkur uppskrift að einstaklega gómsætum súkkulaðibitakökum sem eru bæði mjög einfaldar og fljótlegar. Tilvalið á letidögum já eða bara þegar okkur langar í eitthvað gott. Mæli með að þið prófið þessar og ég vona að þið njótið vel.



Súkkulaði- og hafrakökur 

  • 200 g smjör, við stofuhita
  • 2,5 dl púðursykur
  • 3 Brúnegg
  • 2 tsk vanilla (extract, dropar eða sykur)
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt 
  • 5 dl Kornax heilhveiti
  • 4 dl haframjöl
  • 150 g súkkulaði
Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C.

1. Þeytið saman smjör og sykur þar til blandan verður létt.
2. Bætið einu og einu eggi saman við og þeytið vel á milli. 
3. Blandið þurrefnum og vanillu saman og þeytið. 
4. Saxið súkkulaði og blandið við með sleikju. 
5. Mótið kökurnar með matskeiðum og setjið á pappírsklædda ofnplötu. 
6. Bakið við 180°C (blástur) í 10-12 mínútur. Kælið í örlitla stund áður en þið berið kökurnar fram. Njótið með ísköldu mjólkurglasi. 









Ég vona að þið eigið gott sunnudagskvöld í vændum. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.




Friday, December 12, 2014

Glútenfríar piparkökur, þessar klassísku og góðu.


Piparkökur eru þær jólasmákökur sem ég tengi hvað mest við jólin. Lyktin af þeim er svo góð og jólaleg, Það er fastur liður hjá mér að baka gómsætar piparkökur fyrir jólin. Þessi uppskrift er að glútenfríum piparkökum en þið getið auðveldlega notað venjulegt hveiti ef þið viljið það frekar. Það er ágætis ráð að setja hveitið út í deigið smám saman, um leið og deigið er orðið slétt og þétt þá er það tilbúið. Það gæti verið að þið þurfið minna af venjulegu hveiti en þið prófið ykkur bara áfram. Þessar eru svakalega góðar og ég mæli með að þið prófið þessa uppskrift og fáið svo fjölskyldu og vini til þess að skreyta kökurnar með ykkur. 


Glútenfríar piparkökur
  • 150 g smjör, við stofuhita
  • 1 dl síróp
  • 2 dl sykur
  • 1 dl rjómi eða mjólk
  • 2 tsk. Kanill
  • 1 tsk. Negull
  • ½ tsk. Engifer
  • ¼ tsk. Hvítur pipar
  • 1 tsk. Vínsteinslyftiduft
  • 450 – 550 g fínt Fínax mjöl

Aðferð: Hitið smjör, síróp og sykur í potti við vægan hita. Þegar sykurblandan fer að þykkna takið þið pottinn af hellunni og kælið í smá stund og bætið rjómanum út í. Hellið blöndunni í stóra skál og sigtið þurrefnin út í, það er gott að geyma smá hveiti sem þið bætið við smám saman en deigið er tilbúið þegar það er orðið slétt og þétt. Því næst er plastfilma er sett yfir skálina og deigið geymt í kæli í nokkra klukkustundir helst yfir nóttu.

Hnoðið deigið smávegis og fletjið út með kökukefli. Það er alltaf gott að strá svolítið af hveiti á borðið áður en þið fletjið deigið út, það kemur í veg fyrir að deigið festist við borðið. Piparkökurnar eru mótaðar með piparkökuformum. Bakið kökurnar við 175°C í um það bil 10 mínútur.

Kælið kökurnar og skreytið gjarnan með glassúr. Ég sáldraði flórsykri yfir nokkrar kökur en ég ætla að skreyta restina af kökunum í desember með litlum frændum sem eru að koma heim frá Noregi. Það er miklu skemmtilegra að skreyta kökurnar í góðum félagsskap. 






xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir