Showing posts with label Eftirréttir. Show all posts
Showing posts with label Eftirréttir. Show all posts

Monday, February 22, 2016

Vikumatseðill


Vá hvað það var yndislegt að fara út í daginn í morgun um níuleytið og finna fyrir sólinni, dagurinn er að lengjast og það gleður mig. Mjög góð byrjun á vikunni myndi ég segja og orkan er tífalt meiri, ég er að segja ykkur það satt. Ég ákvað að því tilefni já eða bara afþví bara að skella í vikuseðil og með honum vona ég að þið fáið hugmyndir að kvöldmat út vikuna, 

Best finnst mér að byrja vikuna á góðum fisk og get ég lofað ykkur því að þessi einfalda og bragðgóða uppskrift á eftir að slá í gegn, virkilega góður lax með blómkálsmauki. 

Matarmikil og ljúffeng brokkólísúpa sem yljar að innan verður á boðstólnum á þriðjudaginn. 

Á miðvikudaginn er tilvalið að skella í þetta æðislega mexíkóska salat með stökkum kjúkling og lárperusósu. 

Þessi ljómandi fíni mangó fiskréttur er einn af mínum eftirlætis fiskréttum, djúsí og ferlega góður.

Föstudagar eru pizzadagar í mínum bókum og ekkert er betra en mexíkósk pizza með þunnum og stökkum botni. Namm!
Um helgar er nauðsynlegt að gera vel við sig í mat og drykk, nautalund með bernaise eða piparostasósu er ávallt uppskrift að hamingju.

Helgarbaksturinn er möndlukakan hennar mömmu sem ég elska og fæ ekki nóg af. 

Ég vona að þið hafið fengið hugmyndir að vikumatseðlinum og ég vona að þið eigið stórgóða viku framundan. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni sem eru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 




Tuesday, December 22, 2015

Hugmyndir að eftirréttum




















Njótið vel kæru lesendur. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessar uppskriftir fæst í verslunum Hagkaups. 




Súkkulaði panna cotta með heitri berjasósu



Ítalir eru ekki eingöngu þekktir fyrir gott pasta og góðar pizzur en eftirréttirnir þeirra eru guðdómlegir. Einn af mínum eftirlætis eftirréttum er súkkulaði Panna Cotta með berjasósu, þið getið auðveldlega skipt dökka súkkulaðinu út fyrir hvítt súkkulaði. Mér finnst mjög fínt að bera fram þennan eftirrétt í veislum, sér í lagi vegna þess að ég get gert hann kvöldinu áður og það minnkar stressið sem kemur stundum upp þegar von er á mörgum í mat. Það er nefnilega svo fínt að undirbúa nokkra rétti fyrirfram og þessi er einmitt þannig að hann er betri því lengur sem hann fær að vera í kælinum, upplagt að gera hann kvöldinu áður og leyfa honum að jafna sig í rólegheitum yfir nótt. 

Sannkölluð súkkulaðisæla sem allir elska. 

 Súkkulaðibúðingur með heitri berjasósu

  • 500 ml rjómi

  • 150 g suðusúkkulaði 
  • 2 msk sykur
  • fræin úr 1 vanillustöng 

  • 2 plötur matarlím

Aðferð: 

Leggið matarlímsblöð í kalt vatn í 4 – 6 mínútur.
Á meðan hitið þið rjóma að suðu og bætið súkkulaði saman og bræðið í rólegheitum.
Hrærið í á meðan og þegar súkkulaðið er bráðnað bætið þið sykri og vanillu saman við,  í lokin kreistið þið vökvann frá matarlímsblöðum og hrærið út í vanillublönduna.
Hellið í skálar og geymið í kæli að minnsta kosti í tvær til þrjár klukkustundir, best  yfir nótt. 


Heit berjasósa með vanillu 
  • 3 dl bláber 
  • 3 dl hindber 
  • 2 dl sykur 
  • safinn og börkur af hálfri appelsínu 
  • ½ tsk kanill
  • fræin úr 1 vanillustöng  
Aðferð: 

Setjið öll hráefnin í pott og náið upp suðu, leyfið sósunni að malla í 3 – 5 mínútur. Berið fram með súkkulaðibúðingnum og njótið vel. 


Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

Wednesday, October 14, 2015

Brjálæðislega gott karamellupopp

Popp með saltaðri karamellusósu  

Á þriðjudögum er ég með innslög í Íslandi í dag þar sem ég elda rétti sem allir ættu að geta leikið eftir. Í gær var ég til dæmis með rétti sem tilvalið er að borða þegar við horfum á sjónvarpið. Auðvitað kom popp fljótlega upp í huga þegar ég var að plana hvað ég ætti að hafa í innslagi kvöldsins. Ég held að popp sé alveg skothelt sjónvarpssnarl og hvað þá ef við ‘pimpum’ það aðeins upp með djúsí saltaðri karamellusósu. Svona í alvöru talað þá er þetta eitt það besta sem ég hef smakkað, ég fæ ekki nóg af þessu poppi og hvet ykkur til þess að prófa þessa einföldu og ljúffengu uppskrift.


Söltuð karamellusósa

100 g sykur
3 msk smjör
½ - 1 dl rjómi (má vera meira ef þið viljið þynnri sósu)
Sjávarsalt

1 poki popp eða einn meðalstór pottur af poppi

Aðferð: Setjið sykurinn á pönnu og bræðið hann við vægan hita. Gott er að hafa ekki of háan hita og fara hægt af stað. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er þykk og fín. Í lokin bætið þið saltinu saman við. 

Hellið sósunni yfir poppið, mér finnst best að gera það í skál og færið síðan poppið yfir í aðra skál sem þið ætlið að bera það fram í. Einfalt, fljótlegt og sjúklega gott.



Njótið vel kæru vinir. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 


Tuesday, October 13, 2015

Súkkulaðibúðingur með ástaraldin


Ég er algjör nautnaseggur og elska að útbúa gómsæta eftirrétti, það er alltaf pláss fyrir smá eftirrétt eftir góða máltíð. Ítalskur vanillubúðingur með hvítu súkkulaði og ástaraldin er einfaldur og virkilega bragðgóður eftirréttur sem ég útbý reglulega. Hvítt súkkulaði, vanilla og ástaraldin passa svo vel saman og þetta er algjör veisla fyrir bragðlaukana. Að minnsta kosti fæ ég ekki nóg af þessum eftirrétt og mæli hiklaust með að þið prófið. 

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

Thursday, September 24, 2015

Tryllingslega gott karamellupæ


Í síðasta þætti af Matargleði útbjó ég þetta tryllingslega góða karamellupæ sem er bæði fáránlega einfalt og fljótlegt. Ég kaupi yfirleitt karamellusósuna tilbúna í krukku en sósan fæst meðal annars í Hagkaup. Einnig er hægt að sjóða sæta niðursoðna mjólk í 2 - 3 klst en mjólkin breytist í ljúffenga karamellusósu. Þegar þið hafið ekki þessar 2 - 3 klst þá er í góðu lagi að kaupa hana tilbúna.. ég segi ykkur það satt. Ég elska að eiga nokkrar uppskriftir sem eru það einfaldar að ég get skellt í eina köku hvenær og hvar sem er. Ég mæli hiklaust með að þið prófið þessa um helgina, hún er æði. Var ég búin að segja æði? Ok. Nú er ég hætt. 

Karamellupæ með þeyttum rjóma og dökku súkkulaði 

Botn:
  • 250 g Digestive kexkökur
  • 150 g smjör
  • 2 tsk sykur
  • 50 g súkkulaði


Fylling:
  • 2 krukkur Dulce de leche karamellusósa (ca. 500 - 600 g samanlagt) 
  • 2 bananar
  • 200 ml rjómi
  • 1 tsk vanillusykur
  • 50 g súkkulaði

Aðferð:
  1. Setjið kex, smjör, sykur og súkkulaði í matvinnsluvél. Hellið blöndunni í hringlaga form helst lausbotna og þrýstið kexblöndunni í formið og upp með hliðum á forminu.
  2. Kælið botninn í hálftíma áður en þið setjið fyllinguna í hann.
  3. Fyllið botninn með karamellunni, skerið banana í sneiðar og raðið þeim yfir karamelluna. Þeytið rjóma með smá vanillusykri og dreifið yfir pæið.
  4. Saxið dökkt súkkulaði og sáldrið yfir. Kælið pæið mjög vel áður en þið berið það fram. 
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2. 

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.