Showing posts with label Forréttir. Show all posts
Showing posts with label Forréttir. Show all posts

Wednesday, June 6, 2012

Bakaðar paprikur fylltar með grænmeti og kúskús


Bakaðar paprikur fylltar með grænmeti og kúskús

2 rauðar paprikur. Ýmist skornar í tvennt og stilkurinn látinn halda sér eða bara lokið skorið af. Mikilvægt að fræin séu fjarlægð. 
1/2 kúrbítur, skorinn litla bita
6 - 8 kirsuberjatómatar, skornir í litla bita
1/2 græn paprika, fræhreinsuð og skorinn í litla bita
4 - 5 sveppir, skornir í litla bita
1 tsk karrý
1 - 2 msk ólífuolía
80 - 100 g fetaostur
100 g kúskús
Rifinn ostur, hér um bil 1 msk yfir hverja papriku
Salt og nýmalaður pipar
1 - 2 msk fersk krydd t.d. graslaukur, basilika eða rósmarín.

Það er um að gera að nota það grænmeti sem þið eigið inn í ísskáp, það er hægt að nota hvaða grænmeti sem er. Um að gera að prufa sig áfram. 

 Aðferð

Hitið ofninn í 200°C. Skolið allt grænmeti vel og fræhreinsið. Sjóðið kúskús samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. 
Blandið  grænmetinu, fetaostinum og kúskúsinu saman í skál, kryddið vel með karrý, salti og pipar. Deilið grænmetisblöndunni jafnt niður á paprikurnar. Stráið rifnum osti yfir og dreypið olíunni líka yfir þær. Inn í ofn í 25 - 30 mín við 200°C. 

Þegar paprikurnar eru komnar út úr ofninum er gott að saxa ferskar kryddjurtir og strá yfir. 

Það er hægt að bera paprikurnar fram sem forrétt, aðalrétt eða bara sem meðlæti. 
Mjög sniðugt að bæta t.d. kjúkling eða hakki við, tilvalið að nota afganga í þennan rétt.











Dásamlega safaríkar og góðar. Mjög góð máltíð, létt og fín. 

Ég vona að þið eigið gott kvöld framundan. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, April 1, 2012

Bruschetta með tómötum


Í dag var bröns hjá mömmu. Brauð, ostar, allskyns álegg, ávextir og svo kanillengja með kaffinu. 
Ég lagaði bruschettu með tómötum. Fersk og dásamlega góð! Mér finnst bröns með þessu ívafi heldur betri heldur en sá með ensku ívafi.

Bruschetta, hráskinka með melónu, brauð með ítölskum ostum og grænmeti. 
Ljúúúúffeng byrjun á góðum sunnudegi. 

Uppskrift dagsins er því Bruschetta með tómötum

5 stórir tómatar
3 – 4 Hvítlauksrif
2 msk. Olífu Olía
2 tsk. Balsamik Edik
8 – 10 Basilikkulauf
Salt og pipar

1 msk. Olía
Fínt snittubrauð

 1.       Hitið vatn að suðu, skerið þrjá tómata í helming. Setjið þá ofan í sjóðandi vatn í um það bil 30 sekúndur, takið þá síðan upp úr og þerrið vel. 
Saxið tómatana smátt ásamt fersku tómötunum sem fóru ekki ofan í pottinn.
2.       Saxið basillaufin smátt. Náið ykkur í stóra skál, blandið tómötum og basillaufum saman.
3.       Bætið olíunni og edikinu saman við og blandið vel.
4.       Setjið hvílauksrifin í hvítlaukspressu og látið saman við tómatblönduna.
5.       Salt og pipar að vild, svolítið duglega af salti.
6.       Inn í ísskáp á meðan að þið steikið brauðið.
7.       Skerið brauðið í u.þ.b. 1 ½ cm þykkar sneiðar
8.       Hitið olíuna á pönnu og steikið  brauðsneiðarnar í henni þar til þær eru léttbrúnaðar.
9.       Brauðið fer svo á disk og setjið um það bil eina góða matskeið af tómamauki á hverja brauðsneið, smá salt og pipar og vel af ferskum parmesan.
Osturinn setur punktinn yfir i-ið.















 Bruschetta er sérlega góð. Léttur réttur sem á alltaf vel við! 



Ég vona að þið hafið það huggulegt.

xxx


Eva Laufey Kjaran

Sunday, March 18, 2012

Aspas og parmaskinka

Ég er sérstaklega hrifin af aspas. Mér finnst hann góður ofan á pítsu, í súpu, í brauðréttum og hvaðeina! 

Alla vega finnst mér  hann ljúffengur! Ég prufaði ansi góðan aspas rétt um helgina, hann heppnaðist mjög vel. Ég hef séð réttinn í ótal mörgum blöðum og matreiðsluþáttum. Hann er víst sérlega góður með hollandaise sósu og borin fram sem forréttur. 
 Við borðuðum hann þó sem meðlæti með nautakjöti. 

Aðferð

Byrjið á því að skræla neðri hlutan af aspasinum og sjóðið hann í saltvatni í fjórar mínútur. Þerrið hann vel og vefjið parmaskinkusneiðum í kringum. 
Ég lét eina sneið af parmaskinku í kringum tvo aspasstöngla. 

Penslið smá ólífuolíu yfir og stráið salt&pipar yfir. 

Inn í ofn við 210°C í 10 mínútur. 

Stráið rifnum parmesan ost yfir og smá ólífuolíu þegar að hann er kominn út úr ofninum.

Stökkur aspas með parmaskinku og parmesan osti. 

Ótrúlega gott! Næst ætla ég að prufa að hafa þennan rétt sem forrétt og hafa hollandaise sósu með.
Það verður svo sannarlega í bráð vegna þess að þetta var ljómandi þá meina ég ljómandi gott.




Nautakjöt, smjörsteiktir sveppir, aspas vafin í parmaskinku, hvítlaukschili kartöflubátar og salat. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Friday, December 23, 2011

Hráskinka með klettasalati og melónum,

 Það er einn forréttur sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, einfaldur en ferlega bragðmikill og góður.

Hráskinka með klettasalati, melónu, steiktu brauði og maldon salti. (Punkturinn yfir i-ið væri svo rifinn parmesan ofan á) Þetta er ótrúlega einfalt og fljótlegt. Ég lét hráskinkuna fyrst á diskinn, skar melónur í litla bita og dreifði yfir, hreinsaði klettasalatið vel og lét það ofan á, lét svo aðeins fleiri melónur og svo steikta brauðið (Tók venjulegt heilhveitibrauð, skar hliðarnar af og barði brauðið niður þar til það var orðið alveg flatt, lét olíviu olíu á pönnu og kryddaði með salt og pipar, lét það vera á pönnunni þar til þetta var orðið vel ristað og fín.)

Hefði ég ekki gleymt að kaupa parmesan þá fengi hann að vera efst.

Skvetta af olivíu olíu (Líka hægt að nota hvítlauksolíu eða pestó/sem búið er að blanda saman við olíu svo það verði ansi þunnt) Síðast en ekki síst maldon salt og smá pipar. 

Kjörin forréttur til þess að hafa um hátíðarnar

xxx

Eva Laufey Kjaran