Showing posts with label Smábitakökur. Show all posts
Showing posts with label Smábitakökur. Show all posts

Sunday, September 20, 2015

Brjálæðislega góðar súkkulaðibitakökur á 20 mínútum



Helgin hefur verið frekar róleg á þessu heimili og 'to do' listinn minnkaði ekkert, það freistaði miklu meira að hanga á kaffihúsum, lita, baka eða taka leggju með Ingibjörgu Rósu en að mála vegg, setja upp gardínur og þið vitið.. allt sem verður að gerast strax, helst í gær. Stundum er bara alveg ágætt að taka rólega daga og plana ekki yfir sig, 'to do' listinn fer ekkert en tíminn er núna til að njóta með fólkinu okkar. Ég þarf að minnsta kosti að minna sjálfa mig á það af og til, það þarf ekkert alltaf allt að vera samkvæmt planinu og það er bara fínt að taka letidaga. 

Og fyrst við erum byrjuð að tala um letidaga þá verð ég að deila með ykkur uppskrift að einstaklega gómsætum súkkulaðibitakökum sem eru bæði mjög einfaldar og fljótlegar. Tilvalið á letidögum já eða bara þegar okkur langar í eitthvað gott. Mæli með að þið prófið þessar og ég vona að þið njótið vel.



Súkkulaði- og hafrakökur 

  • 200 g smjör, við stofuhita
  • 2,5 dl púðursykur
  • 3 Brúnegg
  • 2 tsk vanilla (extract, dropar eða sykur)
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt 
  • 5 dl Kornax heilhveiti
  • 4 dl haframjöl
  • 150 g súkkulaði
Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C.

1. Þeytið saman smjör og sykur þar til blandan verður létt.
2. Bætið einu og einu eggi saman við og þeytið vel á milli. 
3. Blandið þurrefnum og vanillu saman og þeytið. 
4. Saxið súkkulaði og blandið við með sleikju. 
5. Mótið kökurnar með matskeiðum og setjið á pappírsklædda ofnplötu. 
6. Bakið við 180°C (blástur) í 10-12 mínútur. Kælið í örlitla stund áður en þið berið kökurnar fram. Njótið með ísköldu mjólkurglasi. 









Ég vona að þið eigið gott sunnudagskvöld í vændum. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.




Friday, July 10, 2015

Himneskar súkkulaðibitakökur.


Súkkulaðibitakökur

Stundum þá fæ ég mikla kökuþörf, einsog gengur og gerist á bestu bæjum. Þá er virkilega gott að henda í eina létta súkkulaðibitaköku uppskrift. Ég prufaði nýja tegund af kökum sem að mínu mati eru virkilega góðar. Nýbökuð súkkulaðibitakaka og ískalt mjólkurglas, það er sko sannarlega einföld hamingja. Það er líka sérlega gott ef maður er í miklu stuði að tvöfalda eða þrefalda uppskriftina, pakka deiginu sem þið ætlið ekki að nota í plastfilmu og láta inn í frysti. Þá er svo ansi fínt að grípa til ef kökuþörfin kallar skyndilega eða þið fáið góða gesti í heimsókn. 

Ég mæli með því að þið prufið þessa uppskrift. Þið getið líka bætt hnetum við eða því sem ykkur dettur í hug.

Súkkulaðibitakökur

u.þ.b. 14 - 16 fremur stórar kökur


220 g Kornax hveiti
200 g smjör
2 Brúnegg
100 g haframjöl 
150 g sykur
100 g púðursykur
150 g dökkt súkkulaði
100 g hvítt súkkulaði
2 tsk vanilla extract (eða vanilludropar)
1 tsk matarsódi

Aðferð:

1. Þeytið sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. 
2. Bætið næst eggjum saman við, einu og einu í senn. 
3. Blandið því næst öllu saman við eggjablönduna með sleif, hrærið vel í blöndunni en varlega. 
4. Kökudeigið á að vera svolítið gróft, það gerir haframjölið. 
5. Mótið kökurnar með msk ef þið viljið hafa þær fremur stórar. Hitið ofninn í 180°C og bakið kökurnar í 12 - 15 mínútur. 

Bræðið hvítt súkkulaði og dreifið yfir kökurnar þegar þær koma út úr ofninum. 













xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 


Friday, November 30, 2012

Dásamlegar súkkulaðibitasmákökur


Súkkulaðibitakökurnar hennar mömmu. Þessar kökur hefur mamma mín alltaf bakað fyrir jólin og auðvitað hef ég staðið mig ofsalega vel í gegnum árin að borða þær. Kökurnar eru virkilega einfaldar og það tekur enga stund að skella í eina uppskrift. 
Ég mæli því hiklaust með að þið setjið upp svuntuna og vindið ykkur í baksturinn.

Súkkulaðibitakökur
300 g smjör, við stofuhita
2 egg 
200 g sykur
200 g púðursykur
500 g hveiti
2 tsk lyftiduft
2 tsk matarsódi
150 g súkkulaði, smátt saxað 
1 tsk vanilludropar - eða möndludropar


Aðferð: 

Þeytið sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. Bætið næst eggjum saman við einu og einu í senn, blandið því næst öllu öðru saman við og hrærið við miðlungshraða í nokkrar mínútur. Kökudeigið á að vera mjög þykkt, það er gott að klára að hræra það saman með sleif í lokin. 

Mótið kökurnar með tsk eða msk, þið ráðið auðvitað stærðinni. Hitið ofninn í 180°C og bakið kökurnar í 12 - 15 mínútur. 
Ilmurinn um heimilið er dásamlegur á meðan bakstrinum stendur, það er fátt huggulegra en að hafa smákökur í ofninum. Það getur verið strembið að bíða eftir þeim. Þær eru vissulega bestar nýkomnar úr ofninum og auðvitað verður ískalt mjólkurglas að fylgja með. 
Ég bræddi ca. 50 g af súkkulaði yfir vatnsbaði og dreifði yfir kökurnar, ég stráði að lokum smá kókósmjöli yfir þær og það kom sérlega vel út. Smökkuðust mjög vel að mínu mati. 
Ég gæti nú haldið endalaust áfram að skrifa um þessar gómsætu kökur en skólabækurnar kalla á mig þannig ég læt þetta gott heita í bili en hlakka til að deila með ykkur fleiri uppskriftum af mínum eftirlætis smákökum fyrir jólin.

Ég vona að þið eigið ljúft kvöld í vændum kæru vinir

xxx

Eva Laufey Kjaran 

Monday, August 13, 2012

Hollar smábitakökur


Smábitakökur í hollari kantinum 

Ég geri mér stundum smábitakökur í hollari kantinum, sérstaklega þegar skólinn er að byrja. Agalega gott að grípa þessar kökur með sér í morgunsárið. Þær eru líka ferlega sniðugar sem millimál. Ég geri þær voða sjaldan eins, nota bara það sem ég á til heima hverju sinni. Þessi uppskrift heppnaðist ágætlega og ég er ánægð með kökurnar. Prófaði í kaffitímanum eina köku með osti og það var ansi ljúffengt, svo það má með sanni segja að þessar kökur eiga alltaf vel við :-) 

En hér kemur uppskriftin, ca 12 kökur. 

2 bananar, stappaðir
1 bolli döðlur, skornar í litla bita og lagðar í bleyti í 1 - 2 mín.
2 bollar haframjöl
1 msk gróft hnetusmjör
1 1/2 msk hörfræ
Smá sjávarsalt og kanil
1 tsk olía

Þessu er öllu blandað vel saman í skál, látið blönduna standa í um það bil 10 mínútur og mótið síðan litlar kúlur, setjið kúlurnar á bökunarpappír í ofnskúffu. Inn í ofn við 180°C í 18 - 20 mínútur. Þá ættu kökurnar að vera tilbúnar. 

Stundum læt ég gróft kókosmjöl (1/2 bolla)og kókosólíu (1 msk), sleppi þá hnetusmjörinu og saltinu. Svo er nú hægt að bæta söxuðu dökku súkkulaði saman við, það er ansi ljúffengt. 

Ég mæli allaveganna með því að þið prufið. 













Ég vona að þið séuð búin að eiga góðan mánudag 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, July 24, 2012

Súkkulaðibitakökur með hvítu og dökku súkkulaði.


Súkkulaðibitakökur

Stundum þá fæ ég mikla kökuþörf, einsog gengur og gerist á bestu bæjum. Þá er virkilega gott að henda í eina létta súkkulaðibitaköku uppskrift. Ég prufaði nýja tegund af kökum sem að mínu mati eru virkilega góðar. Nýbökuð súkkulaðibitakaka og ískalt mjólkurglas, það er sko sannarlega einföld hamingja. Það er líka sérlega gott ef maður er í miklu stuði að tvöfalda eða þrefalda uppskriftina, pakka deiginu sem þið ætlið ekki að nota í plastfilmu og láta inn í frysti. Þá er svo ansi fínt að grípa til ef kökuþörfin kallar skyndilega eða þið fáið góða gesti í heimsókn. 

Ég mæli með því að þið prufið þessa uppskrift. Þið getið líka bætt hnetum við eða því sem ykkur dettur í hug.

Súkkulaðibitakökur

u.þ.b. 14 - 16 fremur stórar kökur


220 g hveiti
200 g smjör
2 egg
100 g haframjöl 
150 g sykur
100 g púðursykur
150 g dökkt súkkulaði
100 g hvítt súkkulaði
2 tsk vanilla extract (eða vanilludropar)
1 tsk matarsódi

Aðferð:

Þeytið sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. Bætið næst eggjum saman við, einu og einu í senn. Blandið því næst öllu saman við eggjablönduna með sleif, hrærið vel í blöndunni en varlega. Kökudeigið á að vera svolítið gróft, það gerir haframjölið. Endilega smakkið ykkur til með deigið, það þykir mér best. 

Mótið kökurnar með msk ef þið viljið hafa þær fremur stórar. Hitið ofninn í 180°C og bakið kökurnar í 12 - 15 mínútur. 

Skreytið kökurnar ef til vill með smá bræddu súkkulaði. 















Fallegar og fínar kökur. 

xxx

Eva Laufey Kjaran