Thursday, May 9, 2013

Sumarsæla á Akranesi.

 Akranes skartar sínu fegursta í dag, ég vaknaði snemma og ætlaði aldeilis að skrifa á fullu en gat ómögulega verið inni á meðan veðrið er svona gott. Ég fór því með Hadda í Kalla bakarí sem er frábært bakarí hér á Skaganum. Þegar þið komið upp á Skaga í sumar þá mæli ég með að þið farið í Kalla bakarí og fáið ykkur kringlu, kókómjólk og gamaldags kleinuhring. Ég hef fengið mér þessa þrennu frá því að ég var mjög lítið og það var algjör nauðsyn að nesta sig upp í Kalla bakarí áður en maður fer á Langasand. Ef þið hafið ekki komið upp á Skaga þá vitið þið kannski ekki af perlunni okkar, sem er Langisandur.

 Dásamleg strönd og svæðið í kring er frábært.  Aggapallur er í sérlegu uppáhaldi og ég tók nokkrar myndir áðan til þess að sýna ykkur þessa sælu sem er að finna á Skaganum. 





 Á Aggapalli er hægt að kaupa veitingar á sumrin, vöfflurnar með rjómanum eru í mínu uppáhaldi. 
 Sjáið þið þetta útsýni? Þarna beint á móti er Reykjavíkin. 
 Það er mikið og gott skjól á pallinum, tilvalið að koma hingað með vinum og njóta þess að sitja í sólinni. 

Það er meiriháttar lúxus að vera á Skaganum á svona dögum. Ég mæli nú með því að þið takið rúnt upp á Skaga í sumar, ekki nema 40 mínútur að keyra úr Reykjavík. Hér er glæsilegt tjaldsvæði, frábær golfvöllur (hef ég heyrt, ég hef ekki vit á golfi), Akrafjallið okkar fína, skógræktin okkar, góðir matsölustaðir, Langisandur, Aggapallur og svo mætti lengi telja. Svo er líka mikið fjör að kíkja á fótboltaleiki, ÍA ætlar að taka deildina með trompi í sumar. Sjáiði bara til! 

Njótið dagsins kæru vinir og kíkið fljótlega upp á Skaga í huggulegheitin. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, May 7, 2013

Súkkulaðimoli sem fær þig til að brosa.


Ó súkkulaði, elsku súkkulaði. Ég á mjög erfitt að standast þá freistingu  að fá mér einn súkkulaðibita á kvöldin, sama hvað ég reyni og segi við mig sjálfa að nú fái ég mér ávöxt í staðinn þá veit ég ekki fyrr en ég er komin með súkkulaðistykki upp í munninn eða búin að klára Nóa Kropps pokann. Súkkulaði er einmitt aðal atriðið í þessari færslu, ég ætla að deila með ykkur uppskrift ef uppskrift má kalla að einföldum en stórkostlega góðum súkkulaðibitum. Ég segi það og skrifa að þetta eru með betri súkkulaðimolum sem ég hef smakkað. 

Ég mæli með að þið prófið, þá sérstaklega með kvöldkaffinu eftir góða máltíð. 


Gómsætur súkkulaðimoli með hnetusmjöri. 

100 g 70% súkkulaði
1 msk. Kókosolía
Hnetusmjör, magn eftir smekk
Kókosmjöl

 1. Bræðið súkkulaði og kókosolíu yfir vatnsbaði. 

 2. Setjið 2 msk af bræddu súkkulaði í bollakökuform, setjið síðan eina teskeið af hnetusmjöri ofan í og að lokum 1 msk af súkkulaði yfir. 

Ég fékk fjóra væna súkkulaðibita en ef ég ætti t.d. klakaform þá hefði ég gert minni og þá fleiri. Ég sáldraði smá kókosmjöli yfir og það kom mjög vel út. 

Setjið súkkulaðibitana í frystinn í lágmark klukkustund áður en þið njótið þeirra. 

 Kvöldkaffið mitt hefur sjaldan verið eins ljómandi gott. Það góða við þessa súkkulaðibita er að einn - tveir molar eru alveg nóg. Það er ekki eins og með blessaða Nóa Kroppið, ég get ekki hætt fyrr en pokinn er búinn. 


Ég mæli með að þið prófið þessa einföldu og dásamlegu súkkulaðimola kæru vinir. Ég vona að þið eigið eftir að njóta þeirra. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Monday, May 6, 2013

Mánudagsmorgun


Ný vika, ný verkefni og tækfæri. Eftir tvo góða kaffibolla er ég orðin mjög klár í þessa viku og búin að skipuleggja hana vel og vandlega. Ég er að klára hugmyndavinnuna fyrir bókina og þetta er svei mér þá að smella, svona hér um bil. Nú er bara að prófa sig áfram í tilraunastarfsemi í eldhúsinu... sem er nú ekki leiðinlegt. Ég ætla að halda áfram því ég var búin að lofa mér sundferð um tíuleytið ef vel gengur, veðrið er nú algjört æði. 

Ég vona að þið eigið ljúfan mánudag framundan. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, May 5, 2013

Frábært kvöld með yndislegum vinum.


Vinir gefa lífinu lit, svo mikið er víst. Ég átti stórgott kvöld með bestu vinum mínum um helgina, við elduðum saman og þegar ég segi að við elduðum þá meina ég að Eva og Stefán elduðu ofan í okkur ljómandi gott satay kjúklingasalat sem okkur þykir svo gott. Að vísu átti þetta að vera fundur fyrir Danmörku ferðina en það var lítið fundað. Það styttist í að við förum til Kaupmannahafnar og þar ætlum við m.a. að fara á Beyonce tónleika. Ég get ekki beðið, ég hlakka svo óskaplega til að fara út og vera úti með vinum mínum... og já ég hlakka líka rooosalega mikið til að sjá Beyonce. 

 Salatið er ferlega gott og ég mæli með að þið prófið. Eva og Stefán bættu við einu mangó og einum rauðlauk. salatið varð enn betra fyrir vikið. 
 Eva blandaði handa okkur sumardrykk og það var auðvitað skálað!
 Við tókum okkur góðan tíma fyrir myndatöku, mjög mikilvægt. haha.
 Fríða, Stefán Jóhann, Eva og Agla. Ótrúlega fallegir og vel gerðir einstaklingar. 


 Það var mikið hlegið og ég gat ómögulega verið venjuleg á myndunum. 
Þessa mynd stal ég af honum Stefáni, hann tók þessa mynd á símann sinn. 

Ég er endurnærð eftir að hafa hlegið mikið með vinum mínum um helgina, það verður mjög mikið að gera hjá mér í maí en það gerði gæfumuninn að byrja mánuðinn á því að hitta þessa góðu vini mína. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Mjúkir kanilsnúðar með dásamlegum glassúr.


Mjúkir kanilsnúðar með glassúr lífga upp á tilveruna, ég segi það og skrifa. Það er eitthvað svo ómótstæðilega gott við þessa snúða og heimilið ilmar svo vel á meðan bakstrinum stendur. Ég tengi þessa snúða alltaf við eina skemmtilega minningu frá því að ég bjó í Noregi. Bakkelsið í Noregi er ekkert sérlega spennandi og norðmenn eru ekki mikið að dúllast í bakstri, þess vegna lá mér lífið á þegar mamma bakaði þessa gómsætu snúða að fá vinkonur mínar til þess að koma í smakk. Þegar  snúðarnir voru tilbúnir þá hljóp ég út í næsta hús og þar voru nokkrar vinkonur mínar sem ég bauð að koma með mér heim og smakka snúðana, þegar heim var komið sátu tveir yngri bræður mínir og þeirra vinir í essinu sínu með súkkulað út á kinn og aðeins tveir snúðar eftir. 

Ég man það svo sterkt því ég var svo aldeilis vonsvikin að geta ekki gefið öllum vinkonum  snúð, við skiptum þó þessum tveimur snúðum á milli okkar og þær voru sammála um að þetta væru bestu snúðar sem þær höfðu smakkað. Íslenska stúlkan var mjög montin og brosti út í eitt með súkkulaði út á kinn. 


Mjúkir kanilsnúðar með súkkulaðiglassúr. 

Deig:
700 - 800 g hveiti
100 g sykur
1 tsk vanillusykur
2, 5 tsk þurrger
250 ml mjólk
70 ml ljós olía
2 egg 
1 tsk salt

Fylling:
50 g sykur
100 g smjör
2 - 3 msk kanill. 

Aðferð: 

Öllum þurrefnum í deigið er blandað vel saman, bætið vökvanum saman og hnoðið vel. Breiðið röku viskustykki yfir skálina og látið deigið hefast í 30 - 40 mínútur. Á meðan að við bíðum eftir deiginu þá getum við útbúið fyllinguna. Hitið smjörið í potti, passið að bræða það ekki alveg og bætið sykrinum og kanil saman við.

Þegar deigið hefur hefað sig er það flatt út og smurt með fyllingunni. Deiginu er svo rúllað út og skorið í hæfilega marga snúða. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu, raðið snúðunum á pappírinn og leggið viskustykki yfir þá, rakt viskustykki. Leyfið þeim að standa í 30 mínútur áður en þeir fara inn í ofn. 

 Þessi mynd fangar mjög huggulega stemmningu, ég bakaði þessa snúða fyrr í vikunni og þá var grenjandi rigning úti en inni var mjög notalegt. 

Bakið snúðana við 170°C í 13 - 15 mínútur. 
 Á þessum tímapunkti er mjög erfitt að standast þá freistingu að fá sér einn snúð, ég stelst alltaf í einn áður en ég læt á þá glassúr. Það er eiginlega skylda að drekka ískalda mjólk með. 
 Súkkulaðiglassúr. 

100 g smjör, brætt
300 g flórsykur
1 tsk vanillusykur
50 g kakó
3 msk sterkt uppáhellt kaffi
1 msk mjólk

Þessu er öllu blandað vel saman og smurt á snúðana, ég sáldraði smá kókosmjöli yfir nokkra snúða og það kom mjög vel út. 




Ískalt mjólkurglas og nýbakaðir snúðar með glassúr, þessir snúðar voru ekki lengi að hverfa á nokkrum klukkustundum. Ég fékk 16 snúða úr uppskriftinni og þeir voru mjög ljúffengir. Þetta er mjög klassísk uppskrift og það eiga flestir uppskriftir sem hafa fylgt fjölskyldum í áraraðir, mér þykir svo vænt um svona uppskriftir sem fara með mann í smá ferðalag. Eins og t.d. þessir snúðar fara alltaf með mig í ferðalag í eldhúsið í krúttlega rauða húsinu sem við bjuggum í, þegar ég ákvað að það væri snjallræði að bjóða norðmönnum loksins upp á almennilegt bakkelsi. 

Ég vona að þið njótið dagsins og ég mæli auðvitað með að þið prófið þessa uppskrift sem er svo afskaplega einföld og góð. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Thursday, May 2, 2013

Lax í suðrænni sveiflu.


Ég elska fisk og þá sérstakleg lax, það er hægt að elda hann á svo marga vegu og hann er alltaf góður. Ég tíndi til það sem ég átti í ískápnum og úr varð lax í suðrænni sveiflu með léttri sósu. Ég borðaði yfir mig og gott betur en það en mér leið afskaplega vel eftir þessa máltíð, létt máltíð sem fangar augað og kitlar bragðlaukana.

 Mæli með fiskveislu  handa fjölskyldu og vinum um helgina. 


Lax í suðrænni sveiflu.  

500 g laxaflök
1 dl sojasósa
1 dl olía
2 cm engiferrót
1/2 chili, fræhreinsað
1 msk ferskur koríander, smátt saxaður
sesamfræ
salt og pipar, magn eftir smekk

 Aðferð:
Roð og beinhreinsið laxaflökin, skerið fiskinn niður í álíka stóra bita. Afhýðið engifer, fræhreinsið chili og saxið smátt. Setjið engifer, chili, kóríander, sojasósu, salt, pipar og olíu í matvinnsluvél og maukið. Leggið laxabitana í eldfast mót og setjið maukið á laxinn, leyfið þessu að standa í 30 mínútur í kæli. Snöggsteikið fiskinn á pönnu, í eina mínútu á hvorri hlið. Sáldrið sesam fræjum yfir fiskinn og setjið fiskinn inn í ofn við 180°C í 8 - 10 mínútur. 

Litríkt og stórgott mangósalsa.

Þetta mangósalsa hentar afskaplega vel með öllum fisk.  Mér finnst í raun óþarfi að vera með hrísgrjón eða kartöflur með þessum rétti. Þetta meðlæti eitt og sér er alveg nóg og er ótrúlega ferskt og gott. Ég mæli svo sannarlega með að þið prófið ykkur áfram með þessa uppskrift og bætið því sem að ykkur finnst gott í blönduna. 


1 ferskt mangó í teningum

1 meðalstór finsaxaður rauðlaukur
1/2 agúrka, smátt skorin
10 kirsberjatómatar, smátt skornir
1 msk fínsaxaður kóríander
1 meðalstór lárpera
Safi og rifinn börkur af 1/2 lime (límónu)
1 tsk gróft salt (ég mæli með Saltverks salti)
Ferskmalaður svartur pipar, magn eftir smekk


Blandið öllu sem er í uppskriftinni vel saman og geymið í kæli í 30 mínútur.

Létt sósa með kóríander. 

1 lítil dós sýrður rjómi (ég nota stundum létt AB mjólk) 
safi og rifinn börkur af 1/2 lime (límónu)
1 msk smátt saxaður kóríander
2 pressuð hvítlauksrif
1 tsk hunang
salt og pipar, magn eftir smekk

Þessu öllu hrært vel saman, einfaldara verður það ekki. 





Þessi réttur er mjög einfaldur og mjög ljúffengur, ég á eftir að elda hann oft í sumar. Hlakka til að draga grillið fram og þá verður grillaður lax á boðstólnum. Ég mæli svo sannarlega með að þið prófið þennan fiskrétt kæru vinir. Hann færir ykkur örlítið nær sumrinu, sem virðist ekki ætla að láta sjá sig strax.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, May 1, 2013

Lífið Instagrammað.

 1. Lærdómshuggulegheit í bústað. 
2. Skrifaði undir útgáfusamning að matreiðslubók.:))
 3. Elsku besti afi Allan átti afmæli í síðustu viku. 
4. Vinkonur á konukvöldi á Akranesi. 
 5. Fór í sumarbústað með frábærum vinum. Grilluðum, drukkum gott vín og höfðum gaman. Mikið sem ég er rík að eiga svona góða og skemmtilega vini. 
6. Við Þingvallavatn. 
 7. Ýsa í sannkölluðum sparibúning, uppskriftin kemur inn á bloggið á næstu dögum. 
8. Í dag fórum við að skoða íbúðir í Vesturbænum og keyptum okkur auðvitað ís í ísbúð Vesturbæjar. Planið er að flytja suður með haustinu, það verður skemmtilegt að prófa. 

Þið getið auðvitað fylgst með mér á Instagram, þið finnið mig þar undir evalaufeykjaran. 

  Ég vona að þið hafið átt góðan dag og eigið enn betra kvöld í vændum. Hér er chili marineraður lax að fara inn í ofninn og auðvitað deili ég þeirri uppskrift með ykkur ef rétturinn bragðast vel.

Njótið kvöldsins kæru vinir. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Monday, April 29, 2013

Mánudagsfjör.

Helgar rósirnar mínar sem eru svo fallegar. 

Þá er ný vika gengin í garð, ég hef það á tilfinningunni að þetta verði góð vika. Það boðar alltaf gott að vakna við það að sólin skín í gegnum gluggann. Það er vika síðan að ég skrifaði undir minn fyrsta útgáfusamning og það er ekki langt í að ég skili bókinni frá mér. Þessi vika verður tileinkuð skrifum og prufum í eldhúsinu, það eru algjör forréttindi að fá að gera það sem manni þykir skemmtilegast. Að því sögðu þá ætla ég að hita mér meira kaffi og spýta í lófana, þessir kaflar skrifa sig ekki sjálfir. 

Ég vona að þið eigið ljúfa viku framundan kæru vinir. 

xxx

Eva Laufey Kjaran