Showing posts with label MS. Show all posts
Showing posts with label MS. Show all posts

Thursday, October 20, 2016

Fagurbleikur og bragðgóður


Fagurbleikur og bragðgóður boozt er fullkomin byrjun í góðu brönsboði. Á tyllidögum má svo fara alla leið og fylla drykkinn upp með kampavíni. Virkilega frískandi og góður drykkur sem tekur enga stund að búa til og allir elska. 

Bleika dásemdin

  • 1 bolli frosin jarðarber 
  • 1 bolli frosin hindber 
  • 1 bolli klakar 
  • 4-5 góðar matskeiðar af grísku jógúrti 
  • 1 banani 
  • Appelsínusafi, magn eftir smekk
  • Smá skvetta af hunangi 
Aðferð: Setjið allt í blandarann í 2-3 mínútur eða þar til drykkurinn er silkimjúkur. Berið strax fram og njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin sem voru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.



Wednesday, October 5, 2016

Súper gott kjúklinga Enchiladas með Mexíkó osti





Kjúklinga Enchiladas með Mexíkó osti 
  • Ólífuolía
  • 1 rauðlaukur
  • 1/2 rautt chili
  • 1 rauð paprika
  • 1 græn paprika
  • 2 hvítlauksrif 
  • salt og pipar
  • 2 kjúklingabringur 
  • 1 dós niðursoðnir tómatar 
  • 1 msk tómatpúrra
  • 1 mexíkóostur 
  • 1 dl vatn
  • Kóríander 
  • Tortilla kökur
  • Rifinn mozzarella
  • Sýrður rjómi 
  • Salsa 
Aðferð: 

  1.  Hitið olíu á pönnu, skerið niður grænmetið. 
  2.  Steikið laukinn í smá stund, bætið paprikum og chili út á pönnuna. 
  3. Pressið hvítlauksrif og bætið þeim einnig út á pönnuna. 
  4. Steikið kjúklingabringurnar á annarri pönnu eða eldið í ofni við 180°C í 20 mínútur. Kryddið bringurnar með kjúklingakryddi. Rífið bringurnar niður og bætið út á pönnuna. 
  5. Hellið tómötum og tómatmauki saman við. 
  6. Kryddið til með salti, pipar og smátt söxuðum kóríander. 
  7. Skerið mexíkó ostinn í litla bita eða rífið niður, setjið ostinn á pönnuna og hrærið. 
  8. Bætið smávegis af vatni saman við og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur.
  9. Setjið tortillakökur í eldfast mót, fyllið þær með kjúklingablöndunni og rúllið upp. 
  10. Sáldrið rifnum mozzarella osti yfir, ég reif einnig niður eina stóra mozzarella kúlu yfir. Það kom mjög vel út.
  11. Bakið við 180°C í ca. 20 - 25 mínútur eða þar osturinn er gullinbrúnn. 
  12. Berið fram með sýrðum rjóma, salsa, ferskum kóríander og gjarnan nachos flögum. 



Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

Wednesday, June 15, 2016

Þjóðhátíðarkökur

Á föstudaginn ættum við öll að fagna þjóðhátíðardeginum okkar með pompi og prakt, það er heldur betur tilvalið að fá fjölskyldu og vini heim í stórar hnallþórur og kampavín. Ég ætla að minnsta kosti að baka og fá til mín góða gesti, byrja daginn heima á kökum og rölta svo í bæinn. Fyrir nokkrum árum gerði ég þjóðhátíðarboð fyrir Gestgjafann og mér fannst það ótrúlega gaman, aldrei að vita nema veisluborðið verði svona á föstudaginn! 

Súkkulaðibomba með rice krispies og súkkulaðikremi. Algjört sælgæti!
Vanilludásemd með rjómaostakremi, einföld og virkilega ljúffeng.
Kókosbolludraumur með nóg af ferskum berjum. 
Sítrónukaka með léttu kremi, ferskum berjum og flórsykri. 

Njótið vel. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Öll hráefnin í þessar uppskriftir fást í verslunum Hagkaups. 

Monday, June 13, 2016

V I K U S E Ð I L L

Laxasalatið sem ég elska er frábær byrjun á vikunni. Allt sem mér þykir gott í einu salati, hollt og fáránlega ljúffengt. 
Á þriðjudaginn ætla ég að elda vængi og fá fólk til mín í mat, að sjálfsögðu ætlum við að horfa á leikinn á meðan. Klístraðir vængir og góður félagsskapur, það klikkar ekki. 
Mexíkóskt salat með stökkum kjúkling er hrikalega gott og einfalt. Ég þori að veðja að allir í fjölskyldunni eiga eftir að elska þennan rétt. 
Matur er á korteri er algjör snilld og þessi réttur er einn af þeim. Súpergott kjúklingapasta með heimagerðu spínat-og basilíkupestói. 
17.júní er á föstudaginn og því tilefni til þess að gera vel við sig í mat. Nautalund með bernaise eða piparostasósu slær alltaf í gegn á mínu heimili. Hrikalega gott!
Helgarbaksturinn er þessi ómótstæðilega marengskaka með kókosbollum og karamellukremi. Algjör bomba sem enginn fær nóg af. 

Ég vona að þið eigið góða viku framundan. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefnin í þessar uppskriftir fást í verslunum Hagkaups.

Sunday, June 12, 2016

Þjóðhátíðarkakan 2016





Á morgun hefst sannkölluð þjóðhátíðarvika, svei mér þá. Á þriðjudaginn keppir Ísland sinn fyrsta leik á evrópumótinu og ættum við að sjálfsögðu að baða okkur í fánalitunum. Á föstudaginn er svo þjóðhátíðardagurinn okkar 17.júní og á hverju ári þá baka ég þjóðhátíðarköku. Í ár er það þessi ljúffenga vanillukaka með rjómaostakremi með keim af sítrónu, skreytt með berjum að sjálfsögðu. 

Það er þess vegna miklu meira en tilvalið að skella í þessa einföldu og góðu köku í vikunni, hóið í fjölskylduna og vini og bjóðið heim í kökupartí. Það ætla ég svo sannarlega að gera! Hér kemur uppskriftin og ég vona að þið njótið vel. 



Vanillukaka með ljúffengu rjómaostakremi 

  • 200 g flórsykur
  • 200 g smjör, við stofuhita
  • 2 egg 
  • 230 g Kornax hveiti 
  • 1 tsk lyftiduft 
  • 2 tsk góð vanilla t.d. vanilla extract 
  • 1 1/2 dl sjóðandi heitt vatn 
  • Safi og börkur úr hálfri sítrónu

Aðferð:
  1. Hitið ofninn í 175°C. 
  2. Hrærið flórsykri, smjöri og eggjum saman í 2 - 3 mínútur eða þar til blandan verður orðin létt og ljós. 
  3. Bætið hveiti og lyftidufti út í blönduna og hrærið vel. 
  4. Hellið vanillu,vatni, sítrónusafa og berki saman við í lokin og hrærið vel eða þar til deigið verður slétt og silkimjúkt. 
  5. Smyrjið hringlaga form og hellið deiginu í formið, bakið við 175°C í 30 mínútur. 
Kælið kökuna á meðan þið útbúið kremið. 

Rjómaostakrem 

  • 230 g smjör, við stofuhita 
  • 500 - 600 g flórsykur 
  • 2 tsk vanilla 
  • 100 g hvítt súkkulaði 
  • 125 g hreinn rjómaostur frá MS
  • 1 msk sítrónusafi 
Aðferð: 

  1. Þeytið saman smjör, flórsykur og rjómaost í nokkrar mínútur eða þar til blandan verður silkimjúk. 
  2. Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði og bætið út í ásamt vanillu og sítrónusafa.
  3. Þeytið kremið þar til það verður mjúkt, það tekur um það bil 3  - 4 mínútur. 
  4. Setjið kremið í sprautupoka og sprautið á milli botnanna og ofan á kökuna. 
  5. Skreytið kökuna gjarnan með ferskum berjum og sáldrið svolítið af flórsykri yfir 
Ath! Gott er að geyma kökuna í kæli í svona 1 - 2 klst áður en þið berið hana fram en þá er betra að skera kökuna þar sem kremið hefur þá stífnað örlítið. 



Ég vona að þið njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups

Föstudagspizzan að hætti Ingibjargar Rósu


Og hjartaði mitt bráðnaði gjörsamlega. Við byrjuðum helgina á pizzabakstri og þetta var í fyrsta sinn sem Ingibjörg Rósa hjálpaði mömmu sinni, þetta verður okkar fasti liður á föstudögum. Matargerðin verður milljón sinnum skemmtilegri þegar maður fær svona góða aðstoð og mér þótti svo ánægjulegt að sjá hvað litlan mín naut sín. Hún er að verða tveggja ára í júlí og allt í einu er hún orðin svo fullorðin, farin að tala mikið og skipa okkur foreldrum sínum fyrir hægri vinstri haha.

Í fyrsta pizzabakstrinum okkar saman þá bökuðum við einfalda pizzu sem allir á heimilinu geta borðað, margarita var á boðstólnum en móðirin fékk að lauma hráskinku á sinn hluta. Við elskum þessa pizzu og sérstaklega pizzabotninn, mjög einfaldur og allir geta bakað hann. Svo er hægt að bæta öllu því sem hugurinn girnist ofan á pizzuna, fer allt eftir smekk hvers og eins.


Föstudagspizzan að hætti Ingibjargar Rósu 


Pizzadeig 


  • 2 1/2 dl volgt vatn 
  • 3 tsk þurrger 
  • 2 tsk hunang 
  • 2 msk ólífuolía 
  • 400 g Brauðhveiti frá KORNAX 
  • Einn skammtur pizzasósa, við notum oft hakkaða tómata eða tómatmauk
  • Rifinn mozzarella ostur og pizzaostur í bland
  • Pipar
  • Hráskinka
  • Gott salat
  • Parmesan ostur 
Aðferð: 
  1. Leysið gerið upp í volgu vatni og það er afar mikilvægt að gerið sé volgt. 
  2. Bætið hunangi saman við og hrærið vel í. 
  3. Þegar byrjar að freyða í skálinni er gerið klárt. Blandið olíu og hveitinu saman við í hrærivélaskál. Þið getið auðvitað hnoðað deigið í höndunum en mér finnst langbest að nota hnoðarann á hrærivélinni, það ferli tekur um það bil 4 - 6 mínútur. Deigið er tilbúið þegar það er orðið að kúlu og klístrast ekki við hrærivélaskálina. 
  4. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefa sig í klukkustund. 
  5. Fletjið deigið út og smyrjið deigið með pizzasósu. 
  6. Setjið það álegg sem þið viljið nota ofan á og bakið pizzuna við 220°C 7 - 10 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn. 
  7. Berið pizzuna gjarnan fram með hráskinku, góðu salati og nýrifnum parmesan osti. 


Sjáið bara hvað hún er sæt og glöð!! 

Best í heimi. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups