Friday, October 12, 2012

Spínat-og ostafyllt cannelloni.



Þegar að ég kom heim úr skólanum í gær þá þráði ég eitthvað gott í matinn. 
Ég elska pasta og því var dásamlegur pastaréttur fyrir valinu. Spínat- og ostafyllt canelloni. Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá Mareni systur minni og það hefði verið ansi gott að fá hana til mín í mat. En því verr og miður þá býr hún í útlandinu. Ég borðaði þó algjörlega fyrir hennar hönd í gær og gott betur en það. Mikil ósköp sem það er gott að borða pasta sem er fyllt með allskyns góðgæti. 

Þessi dásamlegi réttur á rætur sínar að rekja til Ítalíu, en ekki hvað? Ítölsk matargerð heillar mig hvað mest og því væri það algjör draumur í dós að heimsækja Ítalíu einn daginn. Matarferð til Ítalíu er svo sannarlega á draumalistanum. 

Þessi réttur er ótrúlega einfaldur og fljótlegur. Ég mæli því hiklaust með að þið prufið hann um helgina. 
Spínat- og ostafyllt cannelloni. 
Fyrir u.þ.b. þrjá til fjóra

500 g kotasæla
200 g spínat
1 msk ólífuolía
3 msk basilika, smátt söxuð
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
3 – 4 msk rifinn parmesan ostur
Rifinn mozzarella ostur 
Tómata passata frá Sollu ca. Hálf krukka
3/4  dós af söxuðum tómötum frá Heinz, með hvítlauk, oreganó og basiliku.
2 tsk tómatpúrra
Salt og nýmalaður pipar

(á myndinni er chili en ég ákvað að nota það ekki að þessu sinni) 


  1.        Hitið olíu á pönnu við vægan hita. Saxið hvítlaukinn smátt og setjið hann á pönnuna, rétt til þess að mýkja laukinn.

 2.        Bætið spínatinu saman við og leyfið því að malla á pönnunni í tvær mínútur, hrærið lauslega í á meðan.  Kryddið til með salt og pipar. 
 3.        Setjið kotasælu í skál bætið spínat (þerrið spínatið vel áður), basiliku og dásamlegum rifnum parmesan osti saman við.


 4.        Blandið þessu vel saman með og smakkið  ykkur til með salti og pipar.

 5.        Sjóðið lasagneplöturnar eða pastarörin samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, aðskiljið plötur eða rör og setjið til hliðar undir rakan klút. Ég notaði ferskar lasagneplötur að þessu sinni.

        Setjið 2  - 3 msk af fyllingu á hverja plötu. Ég var með sex plötur og því var ég með sex rúllur. Ef þið viljið minni rúllur þá skerið þið plöturnar til. 

6. Rúllið hverri plötu varlega upp, Þekjið botninn á eldföstu móti með sósunni og raðið rúllunum í eldfasta mótið.

Sósan er af einföldustu gerð. 

- Setjið tómata passata, söxuðu tómatana og tómatpúrru  í pott, hitið sósuna við vægan hita í örfáar mínútur. Bætið smá basiliku saman við, kryddið til með salti og pipar. Ég lét sósuna i blandara til þess að hafa hana silkimjúka en það er líka ansi gott að hafa tómatbita í sósunni. Svo þetta er aljört smekksatriði. 


 Hellið sósunni yfir, því meiri sósa því betri verður rétturinn að mínu mati

 7. Dreifið rifnum mozzarella osti yfir réttinn og smávegis af rifnum parmesan osti.

8. Inn í ofn við 180°C í 25 - 30 mínútur. Eða þar til osturinn er orðinn gylltur og fínn.


 Augnyndi. Ilmurinn af réttinum er dásamlegur. 
Pasta, flæðandi ostur og góð sósa. Betra verður það varla. 

 Berið fram með fersku salati og ef til vill snittubrauði. Þetta er án efa réttur sem fær öll andlit til þess að brosa, það er ekkert betra en að sjá bros á fólki þegar að það er ánægt með mat og að heyra "mmm" er náttúrlega punkturinn yfir i-ið.


Ég vona að þið eigið dásamlega helgi framundan og njótið þess að gera vel við ykkur í mat og drykk. 

Góða helgi kæru vinir 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, October 10, 2012

Chia-grautur.

Uppáhaldið mitt í morgunsárið er án efa hafragrautur. 
Ég lét  chia-fræ út í grautinn minn í morgun og ég var mjög ánægð með útkomuna, grauturinn varð mun betri fyrir vikið.

1 dl haframjöl
1 dl vatn
1 1/2 dl mjólk
1 msk chia fræ
kanill, magn eftir smekk
smá salt

Öllu blandað saman í pott og hitað við mjög vægan hita þar til grauturinn hefur þykknað, hrærið vel í á meðan. Ég lét chia-fræin í bleyti í 10 mínútur áður en ég lét þau í pottinn. 

Ég borðaði minn graut með bláberjum og smá agavesírópi. Mæli með að þið prufið.


xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, October 9, 2012

Litlar bláberjaostakökur

 Ostakökur eru hvers manns hugljúfi og eiga alltaf vel við. Ostakökur er svolítið þungar í maga að mínu mati svo þessi stærð er algjör draumur, sérstaklega ef þið berið kökurnar fram í veislum. Þá er nóg af plássi í maganum fyrir hinar kræsingarnar. 

Hægt er að  nota hvaða ber sem er í þessa uppskrift t.d. bláber, jarðarber, kirsuber eða rifsber, það fer allt eftir smekk hvers og eins. Þessi uppskrift er að bláberjaostakökum.


Litlar bláberjaostakökur

Botn: 
250 g Lu Bastogne kex
130 g smjör, brætt

Myljið kex í matvinnsluvél, blandið smjöri saman við og þrýstið svo kexblöndunni niður í bollakökuform. Í hvert form fer u.þ.b. 1 1/2 msk. af kexblöndu 

Fylling:
180 g hvítt súkkulaði
130 ml rjómi
500 g rjómaostur, hreinn
2 dl sykur
2 egg
1 tsk. vanilla extract eða vanilludropar
250 g bláber

Hitið ofninn í 150°C. Bræðið hvítt súkkulaði í rjóma við vægan hita, leggið súkkulaðiblönduna til hliðar þegar súkkulaðið er orðið silkimjúkt og kælið. Setjið rjómaost, sykur, egg og vanillu í hrærivélaskál og blandið vel saman. Bætið súkkulaðiblöndunni rólega saman við í u.þ.b. þremur skömmtum þegar ostablandan er orðin mjúk og slétt. Hrærið rólega saman. Blandið ferskum bláberjum varlega saman við. Setjið ostablönduna ofan á kexblöndun í bollakökuformunum, u.þ.b. 2 - 3 msk. í hvert form magnið fer eftir stærð formsins, passið bara að hafa þær allar jafnar.

Bakið kökurnar í miðjum ofni í 25 - 30 mínútur. Kælið kökurnar alveg áður en þið berið þær fram. 


Það er ansi gott að þeyta rjóma og setja smávegis ofan á hverja köku ásamt ferskum bláberjum.

Þessar kökur eru án efa í miklu uppáhaldi hjá mér og ég mæli með að þið prufið.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, October 7, 2012

Lífið Instagrammað


 1. Frosin vínber, uppáhalds nammið. 2. Morgunkaffið ljúfa

 3. Hádegislúxus á Akureyri 4. Eftir ráðstefnuna þá var voða gott að fá sér svona fínan kokteil á Strikinu og borða ljómandi góðan mat með skemmtilegu fólki.

 5. Stúdentar í fjörinu 6. Stefán Jóhann tók auðvitað lagið á Akureyri og var stjarna kvöldsins á Götubarnum.


7. Venner for livet

Ótrúlega skemmtileg og fræðandi helgi að baki. Það er langt síðan að ég hef hlegið jafn mikið, lúxusinn að eiga svona skemmtilega vini. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Friday, October 5, 2012

Kjúklingur í pestósósu með Tagliatelle


Þessi vika leið nú ansi hratt enda var svolítið mikið að gera, þegar að ég kom heim úr skólanum þá langaði mig flesta daga í eitthvað ofureinfalt og fljótlegt. Þessi kjúklingaréttur er að mínu mati alltaf góður. Pasta, kjúklingur, fetaostur og kirsuberjatómatar saman í eitt. Útkoman verður dásamleg, veisla fyrir bragðlaukana ef svo má að orði komast.

Kjúklingur í pestósósu með Tagliatelle 

  1. Uppskriftina af kjúkling í pestó finnið þið hér það eina sem ég breytti var að nota grænt pestó í stað þess að nota rautt pestó. 
  2. Sjóðið tagliatelle samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. 
  3. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn skerið hann í litla bita (ef þið viljið) blandið pestósósunni sem er í fatinu við Tagliatelle. Leggið Tagliatelle á disk, leggið kjúklinginn ofan á, skerið nokkra kirsuberjatómata og setjið saman við réttinn, ferskri steinselju er að lokum dreift yfir. 
Ég hvet ykkur til þess að prufa réttinn. Einfaldur, fljótlegur og ótrúlega bragðmikill. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Mangó Boozt

 Eins og ég hef nú sagt við ykkur áður þá er ekkert betra en gott boozt í morgunsárið. Í morgun þá gerði ég mér mangó boozt sem er að mínu mati svakalega gott. 

Mangó boozt 

1 bolli frosið mangó, í litlum bitum
1 banani
1 msk haframjöl
1/2 msk hörfræ
3 msk vanilluskyr
engiferrót, rifinn
1 - 2 bolli appelsínutrópí

Allt sett í blandarann í nokkrar mínútur. Ég vil hafa mitt boozt svolítið þykkt en þið getið auðvitað bætt við meiri safa ef þið viljið hafa það heldur þynnra. 


Mæli hiklaust með að þið prufið og njótið. 

Það er föstudagur í dag! Uppáhalds dagurinn minn í vikunni. 

Ég er að fara til Akureyrar í dag og verð þar yfir helgina á ráðstefnu stúdentahreyfinganna á Íslandi. 
Ég hef ansi góða tilfinningu fyrir helginni, það er alltaf svo gaman að koma til Akureyrar. 

Góða helgi kæru vinir

xxx

Eva Laufey Kjaran

Thursday, October 4, 2012

Morgunkaffið


Sit hér, drekk morgunkaffið og fer vefsíðu morgunrúntinn. Morgunkaffið skiptir mig ansi miklu máli, ég er svo innilega ánægð þegar ég get verið í smá rólegheitum í morgunsárið.  Ég nýt þess að botn að drekka kaffið hægt á meðan ég les fréttir og fer bloggrúntinn minn.

Mig langar að mæla með Expresso Pasero kaffinu frá Te og Kaffi. Mjög bragðgott og kraftmikið kaffi. Virkilega gott. 

Ég vil helst drekka kaffið mitt úr stórum bollum og ég fékk þessa fallegu bolla í Söstrene Grene á ansi góðu verði. Litirnir eru bjútíful og það er ansi gott að drekka kaffið úr þeim. 


Nú er klukkan átta og ég fer að leggja af stað suður í skólann, ætla aðeins að fara yfir verkefni dagsins sem er þónokkur. Vikan líður svo hratt og helgarfríið er að skella á. 

Ég vona að þið eigið góðan dag kæru vinir

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, October 3, 2012

BABYSHOWER




Ég og vinir mínir héldum babyshower fyrir vinkonu okkar í ágúst. Vinkona mín átti von á stúlku sem þýddi að bleikt þema réð ríkjum í veislunni eins og sjá má á þessum myndum. Babyshower eða gjafaveislur eru veislur sem haldnar eru til heiðurs tilvonandi mæðrum. Líkt og nafnið gefur til kynna þá er hugmyndin með slíkri veislu að móðirin tilvonandi sé böðuð í gjöfum. Fáar veislur eru eins skemmtilegar þar sem vinirnir leggja allir hönd á plóg til þess að undirbúa veislu fyrir vinkonu sem á von á sínu fyrsta barni. 

Mikil stemmning skapast og eftirvænting ríkir í vinahópnum eftir litla krílinu. Oftar en ekki snýst umræðan um taubleyjur, ungbarnasund og það sem viðkemur barninu og vinkonur skipast á ýmsum sniðugum ráðum. 

Litlar samlokur 

Það er nauðsyn að bjóða upp á brauðmeti sem er ekki sætt með öllum hinum sætu kræsingunum. Litlar samlokur henta svo sannarlega vel í veislur. Þær eru ansi fallegar og sérlega bragðgóðar. 
Hér eru tvær hugmyndir að fyllingum í litlar samlokur. Notið gott samlokubrauð, helst alveg hvítt. Leggið brauðsneiðar saman með fyllingu á milli og skerið skorpuna utan af, skerið samlokurnar í fjóra bita í kross. 

Fylling 1: Camenbert, klettakál, rautt pestó og kirsuberjatómatar.

Fylling 2: Hunangsskinka, ostur, dijon-sinnep, klettakál og rjómaostur.

Þessir skór eru svo ótrúlega krúttlegir. 

Bleikt límonaði

Ansi svalandi, stelpulegur og skemmtilegur drykkur sem hentar vel sem fordrykkur. 

1/2 l vatn
1 dl sítrónusafi
1/2 l trönuberjasafi
1-2 msk. agave síróp
1/4 l rauður kristall plús

Blandið öllu nema kristal vel saman, hrærið vel í og setjið í könnu. Hellið blöndunni í glös og fyllið upp með kristal. Fallegur og ljómandi góður drykkur. 


Bleikur draumur 

Þar sem það var nú lítil stelpa á leiðinni hjá vinkonu okkar þá var nú tilvalið að baka bleikan draum. Þessi kaka er reglulega góð með hindberjakremi á milli og hvítu súkkulaðikremi ofan á. Það er fallegt að skreyta kökuna með rósamynstri og sömuleiðis að dreifa ferskum rósablöðum á kökudiskinn. 

HÉR  sjáið þið hvernig þið gerið rósir á köku. 

Botnar: 

115 g smjör, við stofuhita
450 g sykur
435 g hveiti
1 tsk salt
3 tsk lyftiduft
3 1/2 dl ískalt vatn
2 tsk vanilla extract eða vanilludropar 
4 eggjahvítur
bleikur matarlitur

Hitið ofninn í 180°C. Þeytið sykur og smjör þar til blandan verður létt og loftkennd. Sigtið hveiti, salt og lyftiduft saman a.m.k. þrisvar sinnum, bætið saman við eggjablönduna og blandið vel saman. Bætið vatni, vanillu og bleikum matarlit út í. Stífþeytið eggjahvítur og blandið þeim síðan varlega saman við deigið með sleikju þar til deigið verður samfellt og kekkjalaust. Smyrjið tvö kökuform, skiptið deiginu á milli þeirra og jafnið það út. Bakið botnana í 30-35 mínútur. Takið formin út úr ofninum og látið þá kólna dálítið áður en þeim er hvolft á bökunargrind. Leyfið botnunum að kólna alveg áður en fylling og krem er sett á þá. 

Hindberjakrem á milli 

4 dl rjómi 
1 msk flórsykur
100 g hindber

Þeytið rjóma og bætið flórsykri saman við í lokin, merjið berin saman með gaffli og bætið maukinu rólega saman við rjómann með sleikju. Smyrjið kreminu á milli botnanna. 

Hvítt súkkulaðikrem. Uppskrift finnið þið HÉR þið þurfið að tvöfalda uppskriftina til þess að skreyta bleika drauminn. Það þarf svolítið mikið krem á þessa dásemd. 

Kakan er svo sannarlega augnyndi og bragðast ansi vel. Hún er sérlega góð með þeyttum rjóma.


Litlu atriðin skipta nú miklu máli. 

Kökupinnar 

Kökupinnar eru algjör augnyndi og henta bæði sem borðskraut og veitingar. 

1 ljós kökubotn
4 msk. vanillubúðingur, einnig má nota venjulegt kökukrem
150 g hvítt súkkulaði, brætt við mjög vægan hita yfir vatnsbaði 
kökupinnar
matarlitur
skraut eftir smekk

Tætið kökubotn niður í skál og bætið vanillubúðingi saman við. Það getur verið að þið þurfið meiri búðing eða krem, notið eins mikið af búðingnum og þarf til að búa til þykka blöndu. Mótið litlar kúlur úr blöndunni þegar hún er orðin hæfilega þykk, takið kúfaða teskeið af blöndunni og mótið fallega kúlu úr því. 

Raðið kúlunum á disk. Bræðið svolítið af súkkulaði, bara nokkur grömm og dýfið toppnum á pinnunum ofan í, stingið þeim svo inn í kúlurnar. 

Geymið kökupinnana í frysti í ca. 15 mínútur. Hitið súkkulaði yfir vatnsbaði á meðan, hjúpið svo kúlurnar með bræddu súkkulaði og skreytið eftir smekk. Að þessu sinni var bleikum matarlit bætt við hvíta súkkulaðið þar sem bleikt þema réð ríkjum. 

Hekla og Edit, glæsilegar mæðgur. 


Fríða hélt á Rúrik  sem er yngsti prinsinn í hópnum á meðan Hekla steig sín fyrstu skref. 


Þessi krútt eru svo dásamleg. Elsku Hekla og Rúrik minn á spjallinu. 

Einlæg, falleg og öðruvísi veisla. Sterk hefð er fyrir veislum af þessu tagi í Bandaríkjunum og við hér á landi ættum að taka Kanann til fyrirmyndar. Virkilega skemmtilegt. 

Hvet ykkur eindregið til þess að halda babyshower ef það er von á kríli í vinahópnum. Svo hvet ég ykkur auðvitað til þess að prufa uppskriftirnar sem eru hér fyrir ofan, hvort sem þið haldið babyshower eður ei. Það er alltaf tilefni fyrir góðar kökur og allskyns góðgæti. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Monday, October 1, 2012

Takk kæru þið!


Halló október!

Ég var virkilega hamingjusöm þegar ég var að skoða heimsóknarfjöldann fyrir septembermánuð, bloggið fékk 60.500 heimsóknir í september og gleður það mig svakalega mikið. Þúsund þakkir þið góða fólk fyrir að skoða síðuna mína. =)

Annars er ég ljómandi spennt fyrir vikunni, ansi margt skemmtilegt á döfinni. Dagbókin er þétt og markmið vikunnar auðvitað á sínum stað. 

Ég vona að þið eigið góðan dag og ljúfa viku framundan

xxx

Eva Laufey Kjaran