Sunday, October 17, 2010

Brööööööööööööns

Það sem ég elska við helgar... eða eitt af því sem ég elska við helgar er helgarbröns! Er svo heppin að eiga góða systur sem að bauð uppá ansi ljúffengt bröns í morgun... sérdeilis gott að starta deginum á eðal brönsi og rúsínan í pylsuendanum voru vöfflurnar sem voru í dessert með rjóma og heitri karmellusósu... og auðvitað heitt kakó með rjóma..

Nú sit ég södd og sæl við lestur...




Ég er ekkert svo mikið að blogga um mat er það nokkuð???




Tuesday, October 12, 2010

Ein múffa á dag kemur skapinu í lag!

Jæja! Þá er sinna þessu blessaða bloggi :o)
London var yndisleg – einsog við mátti búast. Ég og Maren systir flugum saman og hittum restina af famelíunni í London (þau flugu frá Noregi) ansi indælt að hitta þau einsog alltaf.
Gátum ekki verið heppnari með betra veður – alveg yndislegt, sól og hiti allann tímann. Ég elskaði það að vera í kjól/stuttbuxum og bara í þunnri peysu með! Enginn 66° norður úlpa!
Ég elska London/Bretland – klisjukennt en.. mér líður meira einsog ég sjálf þegar að ég er þar, finnst best að dunda mér ein, sitja tímunum saman á kaffihúsum með góða bók eða tímarit, í þæginlegum fötum.. og án þess að hafa áhyggjur af einu né neinu. Vera bara ein í aragrúunni af fólkinu – enginn að pæla í neinum nema sjálfum sér. Mér líður allavegana mjög vel þar og hlakka til að fara út aftur. En mér líður líka voðalega vel hér heima... og heima er best. Þannig er það bara.
Það var MIKIÐ borðað „ein múffa á dag kemur skapinu í lag“ hlegið, verslað og fyrst og fremst notið þess að vera í fríi með fjölskyldunni. Þrátt fyrir að samviskubitið varðandi lærdóminn nagaði mig pínulítið – en las þó eitthvað. Ooog lífið er núna – bækurnar fara ekki neitt en tækifærið á að vera með fjölskyldunni í fríi þykir mér mikilvægara =) Pabbi gamli varð líka fimmtugur á meðan að við vorum úti
Eeeeen núna er upplestrarfrí svo ég geri ekki mikið meira heldur en að læra og hugsa um hversu ljúft það var í London – og hvað ég hlakka til jólanna! Yes u heard me..... alltaf gott að hlakka til einhvers.
En ég ætla að láta þetta nægja í bili – landsleikurinn stendur jú yfir og Ronaldo að gera landann kreisí. Verður maður ekki að fylgjast með þessu og styðja okkar stráka... áfram Ísland!
Eva
 

 



Friday, October 1, 2010

Bentu á þann sem að þér þykir bestur...




Eftir fjóra daga þá verð ég í Lundúnum með famelíunni... og ég hlakka ekkert lítið til.
Er búin að vera að vafrast tiltölulega mikið um á fatasíðum... einsog gengur og gerist á maður það til í detta þangað inn og láta sig dreyma... OG fyrir stelpur einsog mig sem eru kjólasjúúúkar þá eru til svo mikið af fallegum kjólum núna.

Fallegir litir, rómantískir, mjög kvenlegir og penir kjólar út um allt.. Og mig langar svo í marga marga...



H&M - pæjulegur kjóll
Elska þennan lit og sniðið H&M
Sérstakur litur, en samt fallegur og fallegt snið. H&M
Haustlegur H&M
Dáldið öðruvísi en ótrúlega sætur H&M
Bjútíful - Warehouse
Warehouse - mjög smart
Elskar ermarnar - Warehouse
Sætur peysukjóll úr Warehouse

Kjólarnir væru líka voða fínir við voða fína skó t.d. þessa hér fyrir neðan

Jimmy Choo €655.00

Nú þarf ég bara að fara út í sjoppu og kaupa mér einn lottómiða og þá er þetta mögulega komið.





Again...and again

Ég er komin aftur....ég fæ svo góða útrás við að blogga svo ég ætla að halda því áfram, svo finnst mér þetta dálítið gaman líka. :)

Á þessu bloggi þá ætla ég að skrifa um allt á milli himins og jarðar...

Takk fyrir innlitið....

Föstudagskveðja (ójá - í dag er sko föstudagur)

Eva L

Wednesday, February 3, 2010

Little Britain =)


Í tilefni þess að ég er hérna í útlandinu þá ætla ég að blogga örlítið á meðan....Ég er semsé í málanámi og að vinna í Englandi, verð hérna næstu fjóra mánuðina.

Við Kristín komum til Lundúna s.l. sunnudag tókum síðan lestina til Bournemouth.. sváfum ansi vært allt ferðalagið og vorum endurnærðar þegar við loks komum heim til fjölskyldunnar sem við búum hjá þessa vikuna á meðan að við erum í Bournemouth. Fjölskyldan er ansi ljúf, þau eru tvö hjónin, eiga tvö börn og tvo hunda. Svo eru sjö aðrir einstaklingar frá ýmsum löndum sem búa hér á okkar aldri. Svo þetta er ansi fjörugt heimili. :o)

Við byrjuðum í skólanum á mánudaginn, við erum í fámennum bekk. Erum sjö talsins en það er eiginlega bara betra, erum svona hægt og rólega að kynnast. Kennarnir eru heldur friský og fyndnir.

Svo höfum við bara verið að skoða okkur um hérna í Bournemouth, ótrúlega sætur bær og sennilega mjög næs að vera hérna á sumrin. Veðrið hefur þó verið mjög gott, var sól á mánudaginn, rigning í gær og mjög fínt í dag. Ágætlega hlýtt og notalegt.=)


Ég og Kristín erum ógurlegir snillar þegar að kemur að því að brúka bússinn hérna.. Í gær tókum við vitlausan strætó í skólann og komum þar að leiðandi hálftíma of seint í skólann... og í dag tókum við aldeilis aftur vitlausan búss og rúntuðum um í tæpar tvær klukkustundir. En fengum þó smá "tour" um bæinn... klapp fyrir okkur.

Um helgina þá höldum við til Oxford.. við byrjum báðar að vinna í næstu viku. Ég á kaffihúsi og Kristín á hóteli. Ég hlakka mikið til þess að flytja inn í herbergið mitt - hlakka reyndar líka til þess að sjá í hvernig húsi ég kem til með að búa í. Ég og Kristín búum samt saman - við leigjum sitthvort herbergið. En það verður fínt að koma öllu í röð og reglu. :o)

Í dag náði ég þó að setja persónulegt met í möffins-áti takk fyrir pent. Get ómögulega staðist bluberrymuffins. Vandræðalegt nokk.

En núna á eftir er pub-kvöld með skólanum svo það er vísast til að fara að sjæna sig smávegis. Ég kem til með að henda einni og einni færslu hingað inn við tækifærið.

Þangað til - heeeejdå!