Saturday, October 22, 2011

Ég elska kökur og ég elska að baka þær. Þetta er gott ástarsamband. 

Laugardagsnammið, frönsk súkkulaðikaka. Uppskrift er að finna hér til hliðar í "bakstursást". 

Fæ yndislegar vinkonur í mat, vinkonur sem ég hitti alltof sjaldan og því hlakka ég ansi mikið til. 

xxx




Friday, October 21, 2011


Helgin er gengin í garð. Mér finnst alltaf vera föstudagur - vísbending um að tíminn sé ansi fljótur að líða. Tók smá kvíðkast í dag, ekkert agalega mikið eftir af skólanum og það styttist óðum í blessuð prófin. 

Ég er komin í náttfötin mín, reyndar er ég löngu komin í þau.. hér var pöntuð pítsa og haft það kósí fyrir framan sjónvarpið. Huggulegur föstudagur.
 Bakstur, lærdómur, dúlluheit með litlu strákunum mínum, göngutúrar, kaffiboð og matarboð með góðum vinkonum. Svona lítur dagskrá helgarinnar út, lövlí.

Ég hef gert það að vana mínum undanfarið að kaupa rósir á föstudögum, fallegt að eiga fín blóm um helgar. Gefa heimilinu fallegan lit..

Njótið helgarinnar elskur xxx

Thursday, October 20, 2011

Fiskrétturinn hennar mömmu

Þennan bragðmikla, litríka og ljúffenga fiskrétt gerði mamma mjög oft þegar ég var yngri. Við systkinin nutum þess virkilega að borða hann og það var hart barist um síðasta bitann. Þetta var vinsæll réttur sem allir kunna að meta. 

Fiskrétturinn hennar mömmu 
  • 1 msk ólífuolía 
  • 800 g fiskur t.d. ýsa eða þorskur
  • 1 grænt epli
  • 1 rauðlaukur
  • 1 rauð paprika
  • 1 græn paprika 
  • 4 gulrætur
  • 1/2 spergilskálshöfuð
  • 150 g rjómaostur
  • 1 - 2 msk karríduft
  • 100 g rifinn ostur 
  • salt og nýmalaður pipa, magn eftir smekk 
Aðferð: Hitið olíu á pönnu við vægan hita, skerið grænmetið smátt og steikið í 2 - 3 mínútur. Bætið rjómaostinum við og kryddið með karrí, salti og pipar. Blandið öllu vel saman og leyfið þessu að malla við vægan hita í fimm mínútur. Skolið ýsubitana vel og raðið þeim í eldfast mót. Hellið grænmetisblöndunni yfir og sáldrið að endingu rifnum osti út á réttinn. Bakið við 190°C í um 25 - 30 mínútur. Berið fiskréttin fram með hrísgrjónum og fersku salati. 


 Grænmetið skorið smátt og steikt á pönnu í smá stund upp úr olíu. 







Einfalt - fljótlegt og ljúffengt! Ég segi það og skrifa. Veisla fyrir bragðlaukana! 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Að hlakka til

Í hverri viku þá reyni ég að skipuleggja eitt kvöld með manni mínum til þess að gera eitthvað skemmtilegt. Brjóta aðeins upp hversdagsleikann.. Ég er þannig að ég verð að hlakka til einhvers, annars verð ég ómöguleg.  Að setja upp á sig spari andlitið og gleyma lærdómnum í bili...

Í gær fórum við Haddi ásamt vinafólki okkar út að borða og á tónleika. Yndislegir  styrktar-og minningartónleika sem við fórum á. Hver tónlistarsnillingurinn á fætur öðrum. Algjörlega frábært. 

xxx



Spasslið.. 
 Uppáhaldið mitt þessa dagana. Mythic olía, hentar ótrúlega vel handa þeim sem eru með þurrt hár. Lyktar líka vel sem er plús! Gefur hárinu gott líf...


Nauðsyn. Að smella sér í betri skóna,.

xxx

Tuesday, October 18, 2011

Að gera vel við sig á þriðjudagskvöldi



 Ég veit fátt betra en nýbakaðar smákökur og ískalda mjólk, gerir líka lesturinn á kvöldin þeim mun skemmtilegri. 

Hnetusmjör  + möndlur + súkkulaðibitakökur. Ég á eftir  að finna gott orð yfir þessa dásemd, þessar kökur voru ljúffengar og mæli ég hiklaust með því að þið prufið..
En hér kemur uppskriftin.. 

165 gr. Hveiti
1/2 tsk. Matarsódi
1/2 tsk. Salt 
175 gr. Smjör við stofuhita 
115 gr. Sykur
115 gr. Púðursykur
4 msk. Hnetusmjör (ég notaði gróft frá Sollu) 
1. Egg 
1. Tsk. Vanilludropar eða vanillusykur
150 gr. Súkkulaðidropar
50 gr. Hakkaðar möndlur

Byrjuð á því að stilla ofninn á 190° 



 Næsta skref er að blanda saman smjörinu, sykrinum og hnetusmjörinu í um það bil fjórar mín. Eftir fjórar mín bætum við einu eggi saman við og blöndum í fimm mín. 


 Fallegt. Súkkulaði &  möndlur 

 Hveitinu, saltinu, vanilludropunum og matarsódanum er bætt saman við og blandað vel saman í nokkrar mín. 

 Síðast en ekki síst bætum við súkkulaðinu og möndlunum saman við með sleif.. 

 Sjá hvað þær eru sætar.. inn í ofn í 8 - 10 mín við 190°C



Góð kvöldhressing Ég naut þess að borða þær með ískaldri mjólk. 

Góða nótt kæru lesendur


xxx

Sunday, October 16, 2011

Huggulegheit í bústað


Helgin var draumur í dós. Fór í bústað ásamt vinum mínum og við höfðum það virkilega huggulegt. 
 Ég er heppin að eiga svona yndislega vini :) 

  Spenntir vinir fyrir bröns. 

 Hreinn unaður þessi bröns. 

 Rúntur í sveitinni endaði í myndatökum. Fyrsta kríli bíóklúbbsins 20 vikna. Við erum mjög spennt. 

 Lærdómur



 Kaffitími fyrir skólabörnin

 Mmm eplakaka. 

 Sesar salat. 



Friday, October 14, 2011

B-in þrjú og Eva

Matarboð með góðum vinum er eitt af því yndislegasta sem ég veit um.
 Í gærkvöldi bauð ég bestu vinum mínum í mat. Við hittumst sjaldan öll saman og þegar að það gerist þá er ansi gaman hjá okkur. Við höfum verið góðir vinir frá því að við vorum lítil, og þó höfum líka verið óvinir í gamla daga og það sanna dagbækur Dísu. En þó svo að við hittumst sjaldan þá erum við alltaf jafn góðir vinir, þannig er besti vinskapurinn. Mér þykir svakalega vænt um þau.





Búið að dekka borðið og fínar rósir fá að njóta sín
Eyjan komin í betri skó, gestirnir alveg að fara að koma.

Hvítlauksbrauðin að búa sig undir ferð í ofninn..
Maturinn kominn úr ofninum, lasagne.
Frönsk súkkulaðikaka í eftirrétt með berjum og rjóma..

Kátir vinir

xxx

Wednesday, October 12, 2011

Kósíheit á miðvikudegi



Hundleiðinlegt veður úti, kalt, rigning og rok. Frá því að ég vaknaði þá hefur mig langað að skríða upp í sófa og það var það nákvæmlega sem ég gerði eftir að ég kom heim úr skólanum. Inn í sólstofu, að dúlla mér við að lesa matreiðslublöð við kertaljós. Ooog með gott kaffi auðvitað! Fæ til mín góða gesti í mat annað kvöld og er því að vinna í því að ákveða hvað ég ætla að gefa þeim að borða. Huggulegheit svona áður en lærdómurinn hefst þetta kvöldið. Mæli með því að þið hoppið aðeins upp í sófa, kveikið á kerti og lesið bók/blöð eða bara eitthvað sem ykkur langar og hlustið á veðrið.. ég er að segja ykkur að það er fátt jafn kósí. Ég ætla allavega að sitja hér pínu lengur og njóta...

xxx

Tuesday, October 11, 2011

Fiskibollur og AB mjólk


Fiskibollur. Mér finnst þær ansi góðar, að vísu gerir enginn betri bollur en amma Stína .Mmm, þær eru dásamlegar. 
Í kvöld var fiskibollukvöld. Haddinn minn borðar þær og það gleður mig mjög svo mikið þegar að hann borðar matinn minn. Pínu matvandur greyið. Erfitt fyrir sælkerann að skilja fólk sem er matvont, en en það gleður mig þegar að hann borðar það sem ég býð upp á. :o) En ég hafði nóg af fersku grænmeti með til þess að fá smá orku í líkamann, finn á mér eins og undarleg pest sé að læðast að mér og þá er ekkert annað í stöðunni en að byrgja sig upp af grænmeti og vítamínum. Ég prufaði smá twist í kvöld. 

Skar niður  brokkólí, agúrku og epli. Blandaði því saman í skál og hellti létt AB mjólk yfir, eitt hvítlauksrif, salt og pipar. 
Fínasta salat/dressing. Ég hef gaman að því að prufa mig áfram með AB mjólk. Holl og góð, passar við hvað sem er. Gefur matnum ferskleika! 

Lærdómur og hlaup í kvöld, of fallegt veður. Ekkert betra fyrir líkama og sál en útihlaup í fallegu veðri. 

xxx

Saturday, October 8, 2011

Rjómaostasúkkulaðibitaoreo smákökur

Á laugardögum þá elska ég að dúlla mér aðeins í eldhúsinu. Í raun elska ég að dúlla mér í eldhúsinu alla daga , en sérlega á laugardögum. Þá hef ég meiri tíma og þá baka ég oftast eitthvað sem ég er búin að þrá alla vikuna að smakka.. Ég elska Oreo kex, ég elska smákökur og ég elska að hafa rjómaost í smákökur svo ég bakaði rjómaostasúkkulaðioreo smákökur. 




Uppskrift:

110 g smjör, við stofuhita 
100 g rjómaostur (Philadelphia) 
225 g sykur
180 g hveiti
100 g súkkulaðidropar
1 tsk. vanilla extract eða vanillusykur
1 pakki Oreo kex

Smjör og rjómaostur blandað saman þar til að það er orðið vel fluffy, tekur um 8 mín.
Sykrinum er síðan blandað saman við í 3 mín og því næst hveitið og vanilludropar. 
Þessu blandað vel saman í nokkrar mín. 
Síðan blandar maður súkkulaðidropunum saman við varlega með sleif. 

Ég kramdi oreo-kexin og setti þau í sér skál. Lagaði fínar kúlur og rúllaði kúlunum uppúr kexinu. 

Inn í ofn við 190°C í 15 mín. (Ég bræddi hvítt súkkulaði og lét smá ofan á) 








Njótið

Thursday, October 6, 2011

Haustið er svo sannarlega komið og kuldinn fylgir líka með. Haustið ber með sér mikla fegurð, litirnir í kringum okkur eru stórkostlegir. Ég ætla að taka myndir um helgina af fallega Skaganum í haustlitum.. 
Mikið um lærdóm. Próf á mánudaginn og hnúturinn í maganum vex, en en en. Ég skil meira í dag heldur en í gær svo vonandi kemur þetta hægt og bítandi. Dagarnir eru langir og mikill lærdómur. En tíminn er fljótur að líða og áður en ég veit af verð ég komin í jólakjólinn.

En þegar að dagarnir eru langir og strangir þá er nauðsyn að brjóta þá svolítið upp, í gærkvöldi fór ég með yndislegri vinkonu á sushitrain og áttum við góða stund saman. Gott spjall og gott sushi, ég segi það og skrifa það er dásemd. Í kvöld náði ég svo smá deiti með manni mínum, það var kósí og nauðsyn að eiga eitt deit í viku. Ljúft og gott! 

Föstudagur á morgun, það er alltaf föstudagur. Tíminn flýgur - var ég búin að minnast á það? 

xxx


Ég dreymi um yndislega daginn sem ég og Haddi áttum í Versölum í sumar.


Tuesday, October 4, 2011

Súkkulaðiappelsínuostasmákökur með hvítu súkkulaði

 Ég trúi ekki á "one moment one the lips forever on your hips".
 Því maður getur vel tekið sér göngutúr eftir góðar kökur og maður man alltaf eftir góða bragðinu ef vel tekst. Því er nauðsyn fyrir allar sálir að sykra sig upp af og til.
 Í kvöld ákvað ég að prufa smákökur sem ég hef verið að hugsa um frá því að ég sá uppskrift af þeim, þær lukkuðust býsna vel og mæli ég hiklaust með því að þið spreytið ykkur.
 Ég elska að mynda matinn minn, ferlið frá smjörbitanum yfir í fallegar kökur er svo fallegt.

Uppskrift:

110 gr. Smjör (mjúkt)
100 gr. Rjómaostur (ég notaði philadelphia)
225 gr. Sykur
1tsk. Vanilludropar eða sykur. 
180 gr. Hveiti
100 gr. Súkkulaðibitar
100 gr. Haframjöl
1 Appelsína


 Byrjum á því að setja smjör og rjómaost í hrærivél þar til það verður orðið fluffy. Tók um það bil 8 mín að vera fluffy hjá mér. 


 Þegar að deigið er orðið fluffy þá er sykrinum bætt saman við, hrært í 3 mín. 


Svona á deigið að líta út þegar að það er tilbúið 



Hveitinu, haframjölinu og vanilludropum bætt saman við og þessu blandað varlega saman. 


Súkkulaðinu bætt saman við.. 

 Og síðast en ekki síst, rifinn börkur af 1 appelsínu. 

Þá er deigið tilbúið 


Inn í ofn við 190°C í 13 - 15 mín. 


Fallegar. 


Ég hitaði smá hvítt súkkulaði og skreytti kökurnar, það er eitthvað við hvítasúkkulaðið sem gerir allt miklu betra. Rjómaostur, appelsínubragð og hvítt súkkulaði. Jummí. 





Ótrúlega gott með ískaldri mjólk. Þessa uppskrift ætla ég svo sannarlega að gera aftur, reglulega einfalt og fljótlegt. Agalega gott xxx