Monday, July 16, 2012

Djúsí ananas eftirréttur


Þessi eftirréttur er algjör sumarsnilld, einfaldur og ljúffengur. 


6- 8 sneiðar ferskur ananas
4 msk smjör, brætt
3 msk púðursykur
1 tsk kanill
Hitið grillið eða pönnuna , skerið ananasinn í sneiðar. Blandið smjörinu, púðursykrinum og kanil saman. Penslið ananasinn með kanilblöndunni og grillið/steikið  þá í svolitla stund. Setjið ávextina á álbakka ef þið ætlið að grilla þá og látið þá bakast aðeins lengur.
 Berið ananasinn fram með ís, súkkulaði-eða karamellusósu og stráið ef til vill smá kókosmjöli yfir eða hnetum. Ferlega gott! Ég mæli með að þið prufið. 

Ég vona að þið hafið átt góðan dag í sólinni

xxx

Eva Laufey Kjaran

Saturday, July 14, 2012

Boston


Boston 

Ég fór í fyrsta skipti til Boston um daginn. Borgin er ansi hugguleg, róleg og fín. Mjög evrópuleg að mínu mati. Veðrið var ansi ljúft og það var gaman að rölta um borgina í sumarkjól. Ég fór ásamt samstarfsfólki mínu í "duck tour" um borgina, það er ansi skemmtileg leið til þess að skoða þessa fallegu borg. Bíll sem keyrir og siglir, það var fjör. Mæli með því að þið skellið ykkur í slíka ferð um borgina ef þið eruð á leiðinni til Boston. 

Ég hefði svo sannarlega viljað vera lengur en vonandi fer ég þangað fljótlega aftur. 

 Á hótelinu í sumarsælunni 

 Stundum að gera vel við sig í mat, tacos. 
 Gott veður, nammigóður drykkur frá starbucks, smá búðarrölt og huggulegheit. 
Fólk að kæla sig niður í hitanum. 

Ansi góð ferð! 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Friday, July 13, 2012

Sushi kvöld


Í vikunni þá gerðum við vinkonurnar sushi og áttum ansi gott kvöld saman. Það er lang skemmtilegast þegar að allir dúlla sér saman við að gera matinn. Við borðuðum á okkur gat og meira til, drukkum smá vín og höfðum gaman. 


 Ferskur lax, túnfiskur, krabbi og rækja. 
 Stelpurnar mjög duglegar og einbeittar að skera. 




 Agla og Erna ánægðar með matinn






 Tempura rúllur. Ein rúlla með lax og hin með rækju. Dásamlega gott, það er svolítið þannig að allt sem er djúpsteikt er gott. 
 Spicy tuna rúlla, uppáhalds. Ég var þó ekki alveg hundrað prósent ánægð með rúlluna, fyrsta skipti sem ég prufaði að búa til hana þannig ég ætla að búa hana til fljótt aftur og þá læt ég uppskrift fylgja. 
Ferskur túnfiskur, graslaukur, spicy mayo, masago og gúrka spila lykilhluverk í rúllunni :) 




 Sætar vinkonur mínar

Ljómandi gott sushi og gott kvöld. 

Ég vona að þið eigið góða helgi 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, July 11, 2012

Orku boozt

Orkuboozt dagsins, grænn og góður. Ljúffeng byrjun á deginum
 Handfylli spínat, 1/4 mangó, 1/2 banani, 1 msk hörfræ, rifinn engiferrót og 200 ml kókosvatn. 

Mikið er veðrið gott! Ég elska það. Nú ætla ég að koma mér vel fyrir á pallinum með eina bók áður en ég fer í vinnuna, Boston í dag. 

Ég vona að þið eigið góðan dag í blíðunni

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, July 10, 2012

Brokkolísúpa

Það jafnast fátt á við góða og matarmikla súpu á köldum dögum. Þessi súpa er bæði svakalega einföld og góð. Ég mæli hiklaust með að þið prófið. 

Spergilkálssúpa

  • 250 g spergilkál
  • 2 stórar kartöflur, um 350 g
  • 2 hvítlauksgeirar
  • ½ laukur
  • 1,3 l vatn
  • 1 grænmetisteningur
  • 1 og ½ kjúklingateningur
  • 1 msk olía
  • 1 msk smjör
  • Salt og nýmalaður pipar



Hráefnið góða 


 Skerið laukinn og hvítlaukinn smátt, hitið olíuna í potti og mýkið laukinn.


 Bætið síðan vatninu og teningum saman við , leyfið því að malla í nokkrar mínútur.

 Skerið kartöflurnar og brokkolíið í litla bita og setjið saman við súpuna. Kryddið til með salti og nýmöluðum pipar.




 Látið suðuna koma upp og leyfið súpunni að malla í 20 – 25 mínútur. 
Ilmurinn um heimilið verður dásamlegur.

 Slökkvið síðan undir pottinum og maukið grænmetið með töfrasprauta (ef þið eigið ekki töfrasprauta þá er hægt að setja súpuna í blandara og mauka grænmetið þannig) þegar grænmetið er orðið vel maukað setjið þá pottinn aftur á helluna við vægan hita


 Ég bætti 1 msk af smjöri saman við í lokin sem að mínu mati gerir súpuna betri.

Kryddið til með salti og pipar ef þess þarf. Súpan er þá klár og ég mæli með því að strá rifnum ost yfir súpuna þegar hún er borin fram.

 Einfalt ostabrauð

Með súpunni þá var ég með bakað ostabrauð af einföldustu gerð.

Samlokubrauð
Ostur
Olía
Salt og nýmalaður pipar



 Hitið ofninn í 200°C. Skerið skorpuna af venjulegu samlokubrauði, rífið niður ost og setjið á brauðið. Stráið olíu yfir brauðsneiðarnar og kryddið með hvítlaukssalti og pipar. Inn í ofn í 2 – 3 mínútur.


Ljúffeng máltíð sem er einföld og ódýr. 





Ég vona að þið eigið góðan dag 

xxx

Eva Laufey Kjaran