Tuesday, December 18, 2012

Próflok og rauður varalitur

Ég er komin í kærkomið jólafrí. Tilfinningin var góð eftir síðasta prófið í morgun, mig langaði helst til þess að faðma prófvörðinn þegar að ég afhenti honum prófið en ég lét það vera. Ég dreif mig út í bíl og fór í Smáralind til þess að kaupa mér varalit. Ég var aldeilis  búin að lofa sjálfri mér varalit eftir prófin. Keypti mjög fallegan  rauðan varalit í Make Up Store, China Red heitir liturinn og mikið sem ég er ánægð með hann.Þjónustan í Make Up Store er algjörlega frábær svo ég mæli með að þið farið þangað fyrir jólin ef ykkur vantar snyrtivörur.  

Þegar heim var komið þá byrjaði ég auðvitað á því að setja á mig varalit, því ekki get ég byrjað á jólaþrifunum öðruvísi en með varalit. Það er afar sérkennilegt hvað jólaþrifin eru ekki jafn heillandi núna og þau voru í gær þegar að ég var að lesa fyirr prófið. 

Í kvöld þá kemur systir mín og hennar fjölskylda  heim frá Noregi svo ég fæ að knúsast í litlu strákunum mínum. Það verður það allra besta. Dagurinn í dag er ansi ljúfur.

Nú ætla ég hins vegar að vinda mér í blessuð þrifin, við heyrumst kæru vinir.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Monday, December 17, 2012

JólaPavlova

Pavlova er dásamleg marensterta með rjómakremi og ferskum berjum. Tertan heitir Pavlova til heiðurs rússnesku ballet stjörnunni, Önnu Pavlova. Árið 1926 þá dansaði hún bæði í Ástralíu og í  New Zealand og þar var þessi dásamlega terta fundin upp.

Pavlova hentar mjög vel sem eftirréttur og í raun hvenær sem er. Hún er mjög einföld og er alltaf sérlega bragðgóð. Hægt er að nota hvaða ber sem er, fer allt eftir smekk hvers og eins.   
 Daim súkkulaðið gegnir lykilhlutverki í JólaPavlovunni því ég er viss um að við getum flest verið sammála um að smá súkkulaði sé nauðsynlegt eftir jólamatinn.

Ég vona að þið njótið vel og ég mæli með að þið prufið þessa tertu.
Jóla Pavlova

MARENSBOTNAR

6 Stk eggjahvítur
300 g sykur
1 ½ tsk mataredik
1 tsk vanilla extract eða dropar
Salt á hnífsoddi

Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum
og þeytið vel á milli. Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar
marensinn er orðinn stífur. Teiknið hring á bökunarpappír, u.þ.b. 24 cm í þvermál, og smyrjið marens á pappírinn. Bakið marensinn við 100° Cí 90 mín. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið marensinn kólna íalla vega 3 klst í ofninum. (mamma benti mér á að það væri best að geyma marensinn yfir nótt í ofninum sem og ég gerði)

Rjómakrem með Daim

200 ml rjómi
2 – 3 msk flórsykur
Eitt stórt Daim-súkkulaðistykki

Léttþeytið rjóma og bætið flórsykri út í á meðan þeytt er. Saxið

súkkulaðistykkið ansi smátt, blandið súkkulaði varlega saman við rjómann með sleif. Setjið rjómakremið á tertuna og skreytið kökun  með allskyns berjum,  dreifið nokkrum myntulaufum yfir berin. Sigtið smávegis af flórsykri yfir 

Einföld, dásamleg og svo sannarlega mikið augnyndi. 

xxx
Eva Laufey Kjaran

Sunday, December 16, 2012

Bollakökur með súkkulaðiís og piparmyntusmjökremi

Ég og amma bökuðum ljúffengar bollakökur fyrr í vikunni. Ég var búin að sjá á netinu uppskriftir af bollakökum með ís og mér fannst það virkilega spennandi, þess vegna varð ég að prufa að baka slíkar kökur. Ég valdi Gott súkkulaðiísinn í kökurnar. Hann er að mínu mati ótrúlega góður og bragðmikill, ég vildi hafa mikið súkkulaðibragð af kökunum og því hentaði ísinn vel í baksturinn.  Auðvitað áttu kökurnar að vera svolítið jólalegar svo svo ég gerði piparmyntusmjörkrem því ég tengi piparmyntu alltaf við jólin. 

Kökurnar komu vel út og þau sem smökkuðu voru ánægð með þær,  þannig ég mæli með að þið prufið og ég vona að þið verðið líka ánægð. Sunnudagur til baksturs, það er sko ávísun á huggulegheit. 
Súkkulaðibollakökur með súkkulaðiís
Um það bil 20 - 22 bollakökur

200 g smjör, við stofuhita
4 egg 
3 dl sykur
5 dl hveiti 
1 tsk vanillusykur
2 tsk lyftiduft
4 dl Gott súkkulaðiís
150 g súkkulaðihnappar 

Aðferð:
1. Þeytið saman sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós, ca. 4 - 5 mínútur. 
2. Bætið einu og einu eggi saman við 3. Súkkulaðiísinn girnilegi, bætið honum saman við eggjablönduna og hrærið vel saman við. 
4. Sigtið þurrefnin saman og bætið við blönduna 5. Bætið súkkulaðihnöppum saman við með sleif
6. Skiptið deiginu niður í pappaform og setjið inn í ofn við 200°C í 15 - 20 mínútur.
  ATH. Að ofnar eru mismunandi svo fylgist vel með kökunum. Stingið pinna í kökurnar og ef pinninn kemur hreinn út þá eru kökurnar tilbúnar. 

Kælið kökurnar mjög vel áður en þið skreytið þær með kreminu.
Piparmyntusmjörkrem
Ég er mjög hrifin af piparmyntu og þetta var í fyrsta sinn sem ég prufaði að gera piparmyntusmjörkrem, ég nota piparmyntu extract sem fæst m.a. í Hagkaup og í Kosti. En þið getið auðvitað notað piparmyntudropa en að mínu mati er extractinn mun betri og bragðmeiri. 

230 g smjör, við stofuhita
5 dl flórsykur
2 - 3 tsk piparmyntu extract 
2 msk mjólk

Aðferð 

Blandið flórsykrinum og smjörinu vel saman í nokkrar mínútur, bætið því næst piparmyntu og mjólkinni saman við. Smakkið ykkur til, það er auðvitað mikilvægt. 

Ég notaði 1M stút frá Wilton til þess að sprauta kreminu á kökurnar. 
Fallegar bollakökur. Ég lét nokkur jarðaber ofan á hverja köku og sigtaði smávegis af flórsykri yfir. 
Það kom ánægjulega á óvart að hafa ísinn með, ég var mjög ánægð með útkomuna. 

Jólakökur sem bíða eftir jólunum. Að mínu mati gera kökur heimilið enn hlýlegra. 

Ég vona að þið eigið ljúfan sunnudag framundan kæru vinir og ég mæli með að þið setjið upp svuntuna og hefjið bakstur. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Saturday, December 15, 2012

Göngutúr í kuldanum

Það er fátt betra en langur göngutúr í kuldanum þegar orkan er sérlega léleg og lestrarbugun á hæsta stigi. Eftir göngutúrinn þá fórum við á Garðakaffi hér á Skaganum og hlýjuðum okkur yfir heitu súkkulaði og fengum okkur ljúffenga eplaköku. 
 Nú eru örfáir dagar í próflok og örfáir dagar í að fjölskyldan mín komi heim. Ég á mjög erfitt með einbeitingu því ég er verulega spennt. Ég og litlu strákarnir mínir ætlum að baka frá okkur allt vit og dúllast fram eftir öllu. Það verður sko huggulegt. 

Á morgun læt ég inn uppskrift af dásamlegum súkkulaðibollakökum með piparmyntukremi. Ég ætlaði að vera búin að setja hana inn en dagurinn hljóp frá mér. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Thursday, December 13, 2012

Sheperd's Pie

Shepherd's Pie er einn af þekktustu réttum Breta. Ég get ekki sagt að bresk matargerð heilli mig svakalega mikið en þessi réttur hefur svo sannarlega heillað mig. Þegar að ég bjó í Bretlandi þá labbaði ég oft framhjá matsöluskála sem seldi margar gerðir af bökum. Í hádeginu þá sat ég stundum á bekk  og fylgdist með mannfjöldanum sem myndaðist fyrir framan þennan litla matsöluskála sem einungis seldi bökur í take-away. Ég pældi mjög mikið í því hvað væri svona sérstakt við þessar bökur því fyrir mér voru þær ekkert svakalega spennandi.

Ég ákvað einn daginn að prufa eina böku á köldum degi, því þetta er svo sannarlega matur sem yljar manni á köldum dögum. Bakan smakkaðist dásamlega og nú nærri þremur árum síðar þá er ég loksins búin að elda hana hér heima fyrir, með ágætum árangri. Bakan smakkaðist dásamlega og ég fór aftur til Bretlands í huganum í eitt augnablik. 

Ég fann þessa uppskrift á netinu en breytti henni svolítið, það er hægt að bæta við bökuna allskyns grænmeti og kryddum. Ég mæli með að þið skoðið ykkur um á netinu, það eru til ótrúlega margar útfærslur af þessum rétt. 

Sheperd's Pie
Þessi uppskrift miðast á við þrjá til fimm manns.

500 g nautahakk
ólífuolía
3 gulrætur
1 meðalstór laukur
3 hvítlauksgeirar
4 tsk tómatpúrra
1 1/2 dl rauðvín
2 dl kjúklingasoð (soðið vatn + kjúklingateningur)
væn skvetta af Worchestershiresósu
2 tsk rósmarín
nokkur lárviðarlauf
salt og nýmalaður pipar

 1. Hitið olíu á pönnu og steikið hakkið, kryddið til með salti og pipar. 
 2. Rífið niður gulrætur, hvítlauk og lauk með rifjárni. 3. Bætið öllu öðru saman við og blandið þessu mjög vel saman. Smakkið ykkur auðvitað til. 
 4. Leyfið þessu að malla við vægan hita í 10 - 15  mínútur, ég blanda lárviðarlaufum saman við en tek þau svo í burtu þegar að ég læt hakkblönduna í eldfast mót. 
5. Kartöflumúsin gegnir lykilhlutverki í þessum rétt. Mér finnst best að gera karöflumús í hrærivél. 

Kartöflumús með Parmesan

750 g kartöflur
2 eggjarauður
duglega af salti og pipar
60 g rifinn parmesan ostur
2 msk smjör
smá skvetta af mjólk

Sjóðið kartöflur og afhýðið. Setjið allt saman í hrærivél og hrærið vel saman í 2 - 3 mínútur. Þá ætti kartöflumúsin að vera klár. 
 6. Setjið hakkblönduna í eldfast mót. 7. Setjið karöflumúsina ofan á hakkblönduna.

 8. Smyrjið vel yfir hakkblönduna 9. Sáldrið að lokum duglega af ferskum parmesan ost yfir.
Setjið réttinn inn í ofn við 180°C í 20 - 25 mínútur. 
 Lyktin er dásamleg af þessum rétt. Mér finnst þessi réttur svo heimilislegur og algjörlega réttur sem maður á að njóta á köldum vetrardögum. Það er virkilega auðvelt að útbúa þennan rétt og ég er handviss um að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með að prufa hann. 
 Berið réttinn fram með fersku salati og ef til vill góðu rauðvínsglasi.

Ég vona að þið njótið vel kæru vinir. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Jólaklipping

Nú er ég búin að fara í jólaklippingu hjá Svavari mínum. Hann fékk að ráða og ég er ansi ánægð með hárið. Reyndar er ég nú alltaf ánægð með hárið mitt hjá honum, hann er snilli.  Ég ætla að njóta þess að vera með ofur hreint og fínt hár í dag því ég næ aldrei, þá meina ég aldrei að gera hárið mitt jafn fínt og það er eftir að maður er nýkomin úr klippingu. 

Eitt próf eftir og ég hlakka svakalega mikið til að klára þessa prófatörn.
Dagurinn í dag er tileinkaður huggulegheitum, já það má alveg eiga huggulega daga í prófatíð. Bakstur með ömmu og matur með yndislegu fólki í kvöld. Ljómandi fínt plan! 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, December 12, 2012

Yfirkokkur á Hótel Rangá deilir ljúffengum uppskriftum


Haraldur Sæmundsson yfirkokkur á Hótel Rangá var svo yndislegur að deila með mér og lesendun mínum uppskriftum af réttum  sem hann ætlar að matreiða um jólin.  Haraldur er skagamaður og meira ljúfmenni hef ég sennilega ekki kynnst. Hann er virkilega fær kokkur og matarástin er allsráðandi hjá þessum unga manni. Hann hefur síðustu þrjú árin eldað fyrir Hjálpræðisherinn í Reykjavík á aðfangadagskvöld. 

Í ár ætlar hann að matreiða ljúffenga rétti fyrir fjölskyldu sina og ætlar bjóða upp á pönnusteiktan humar með hvítlauksrjómasósu og  í aðalrétt ætlar Haddi að bjóða upp á Hreindýr og gæs, borið fram með smjörsteiktu smælki, villisveppasósu og rótargrænmeti. Hann kýs að hafa réttina einfalda en matarmikla þegar hann eldar fyrir fjölskylduna. Í eftirrétt ætlar fjölskyldan að gæða sér á Toberone ís sem móðir hans býr til fyrir hver jól. Hann var svo elskulegur að deila með okkur jóla seðlinum sínum. 

Pönnusteiktir humarhalar með hvítlauksrjómasósu


Humarhalarnir eru skornir í tvennt og brúnaðir upp úr smjöri. Þeir eru síðan teknir af pönnuni og settir til hliðar . Síðan er um 250 ml af hvítvíni hellt á pönnuna og það soðið niður um 2 / 3. Þá er söxuðum hvítlauk bætt útí og í kjölfarið eru 200 ml af rjóma hellt á pönnuna og er rjóminn einnig soðinn niður um 2 /3. Því næst er klípu af smjöri bætt út í sósuna og þá er humrinum bætt aftur út í og þetta allt hitað saman. Í lokin er smá saxaðri steinselju stráð yfir ásamt safa úr hálfri sítrónu.
Borið fram með heitu brauði

Hreindýr og gæs borið fram með smjörsteiktu smælki , villisveppasósu og rótargrænmeti

600 gr gæsabringa
600 gr Hreindýra fille
Smjör
Salt og pipar

Aðferð:
Hreindýrið og gæsin hreinsuð. Gæsin er síðan brúnuð upp úr smjöri  á sjóðandi heitri pönnu og síðan  krydduð með salti og pipar. Gæsin er síðan sett í eldfastmót og kláruð í ofninum á 200 gráðum í 7 mín. Á meðan gæsin hvílir í ofninum er hreindýrið pönnusteikt eins og gæsin. Því næst er svo smá rauðvíni hellt á pönnuna til að ná að leysa  upp allt bragðið og búa til smá villisoð.

Meðlæti:
600 gr smælki kartöflur
300 gr rótargrænmeti
600 gr  flúðasveppir

Aðferð:

Kartöflurnar eru soðnar upp úr vel söltu vatni og síðan settar í eldfastmót með miklu smjöri og smá hvítlauk og eldað í ofni á 80 gráðum í 45 mínutur (gott að dreifa smá grófu salti yfir kartöflurnar áður en þær eru bornar fram )
300 gr af flúðasveppum eru saxaðir niður og steiktir á pönnu uppúr hvítlaukssmjöri.  Mjög gott er að strá smá steinselju yfir til fá fallegri liti og betra bragð.
Hin 300 gr af sveppunum eru skornir í báta og eldaðir upp úr olíu á 180 gráðum í 40 mín. Síðan eru sveppirnir þerraðir og settir í matvinnsluvél með klípu af smjöri og smá salti og pipar. Sveppirnir eru maukaðir alveg þangað til sveppamaukið fær silkimjúka áferð.
Rótargrænmetið samanstendur af gulrótum, seljurót og sætum kartöflum. Allt grænmetið er skorið í hæfilega stóra bita og soðið í brimsöltu vatni í 2 mínutur og síðan snögg kælt í klaka vatni, með þessu næ ég  að viðhalda bæði lit og bragði grænmetisins. Grænmetið er síðan steikt á pönnu upp úr smjöri, hvítlauk og slettu af hvítvíni.



Villisveppasósa 


Salt og nýmulinn svartur pipar

Kjötkraftur

50 g smjör

25 g þurrkaðir villisveppir

250 g sveppir

4 dl rjómi

1 dl vatn


Sósu aðferð:
Leggið villisveppina í bleyti í volgt vatn og látið standa í 15 mínútur. Saxið sveppina og villisveppina, setjið á pönnu og brúnið í smjörinu og kryddið með salti og pipar. Síðan er rjóma og vatni bætt í og  suðan látin koma upp.  Hrærið vel í. Hægt að bragðbæta með kjötkraftinum sem þið fenguð af pönnunni ef með þarf.


Ég er algjörlega heilluð af þessum réttum og ég hlakka til að prufa þá.
 Ég vona að þið njótið vel kæru lesendur og þúsund þakkir elsku Haddi fyrir að deila þessum uppskriftum með okkur. 


xxx



Eva Laufey Kjaran
  

Tuesday, December 11, 2012

..vika eftir

 Ég greip með mér sushibakka af Tokyo sushi í gær eftir prófið hjá mér, fór heim og kom mér vel fyrir til þess að hefja lestur fyrir næsta próf og naut þess að borða dásamlegt sushi. 

Sumsé, lítið að gerast í mínu lífi annað en próflestur en eftir viku þá er ég búin og þá kemur fjölskyldan mín heim frá Noregi. Ég er eins og smábarn ég hlakka svo til. Hlakka til eiga notalegar stundir með fjölskyldunni og baka með litlu strákunum mínum. Svo er margt skemmtilegt í vændum og nóg að gerast framundan, þannig ég er ofurspennt að klára þessi próf. 

Ég vona að þið hafið það gott kæru vinir

xxx

Eva Laufey Kjaran

Friday, December 7, 2012

Jólagjafahugmyndir - Iittala

Iittala er í sérlega miklu uppáhaldi hjá mér. Ég tók þá ákvörðun fyrir þremur árum að byrja að safna glösum frá þeim. Ég heillaðist mjög af þeirra hönnun, hún er mjög stílhrein og falleg að mínu mati. Gæðavörur á fínu verði. Ég hef fengið tvö og tvö glös í jóla-og afmælisgjafir og nú loks get ég boðið nokkrum í drykk með þessum fallegu glösum.
 Þessar vörur eru svo sannarlega tilvaldar í jólapakkann og hér eru nokkrar hugmyndir. 

Essence Carafe 100 cl clear Decanter Decanter 190 cl
1. Essence karafla. Verð: 8900 kr.       2. Decanter karafla, ég á þessa og er alsæl með hana. Verð: 9800 kr. 


Essence Red wine 45 cl  4 pcsKivi Votive 60 mm sand
3. Essence vínglös. Verð fyrir tvö glös um 4900 kr. 
4. Kivi kertastjakar, fáanlegir í mörgum litum. Kemur mjög falleg birta frá þeim verð frá 2480 kr.
Kastehelmi Cake stand 315 mm clear Mariskooli Bowl 155 mm rose olive
5. Ótrúlega fallegur Kastehelmi kökudiskur á fæti (31.5 cm) verð: 9850 kr. 6. Þessar skálar eru að mínu mati ótrúlega fallegar, koma í mörgum litum. Ég á nokkrar glærar og nota þær mjög mikið. Verð frá 3700 kr. 

Alvar Aalto Collection Bowl 50 x 195 mm light blue Alvar Aalto Collection Serving platter 355 x 436 mm oak

7. Aalto trébretti, stórt.Verð : 14.650          
8. Aalto skálar, eru fáanlegar í mörgum litum. Ég nota mínar skálar mikið, undir sósur, nammi, nasl og meira til. Verð frá 3280 kr. 

Ég er mjög ánægð með þá hluti sem ég á og hlakka til að eignast fleiri í komandi framtíð. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Thursday, December 6, 2012

Kjúklingur í pestójógúrtsósu með ofnbökuðu grænmeti

 Okkur ömmu langaði í eitthvað voðalega gott í gærkvöldi, eitthvað einfalt og gott. Við drifum okkur út í Krónu um kvöldmatarleytið. Við stóðum lengi hjá kjötborðinu, skoðuðum úrvalið fram og tilbaka með tilheyrandi valkvíða. Að lokum þá gripum við pakka af kjúklingabringum með okkur , þá var bara spurningin hvernig við ætluðum að matreiða kjúklinginn. Við vorum ekki lengi að ákveða okkur, kjúklingabringur í pestó er í miklu eftirlæti hjá okkur báðum svo við ákváðum að hafa þann rétt í matinn með smá breytingum. Við gripum rautt pestó, fetaost, grískt jógurt og allskyns grænmeti með okkur líka.
Þá gátum við loksins drifið okkur heim að elda!  

Kjúklingur í pestójógúrtsósu með ofnbökuðu grænmeti.
Uppskrift miðast á við 3 - 4.

1 pakki kjúklingabringur (3 - 4)
1 krukka rautt pestó
3 msk grískt jógúrt
2 msk fetaostur 
1 msk olían af fetaostinum
salt og pipar

Aðferð 
 1. Blandið pestóinu og jógúrtinu saman í skál             2. Bætið fetaostinum og olíunni saman við.
 4. Skolið kjúklingabringurnar og skerið þær í tvennt. Kryddið þær til með salti og pipar. Leggið kjúklingabringurnar í eldfast mót og dreifið pestóblöndunni yfir. 

5. Setjið kjúklingaréttinn inn í ofn við 180°C í 35 - 40 mínútur. 
 Ofnbakað grænmetið í álpappír
Þið getið auðvitað notað hvaða grænmeti sem er, en ég mæli hiklaust með því að baka grænmetið í álpappír í ofni. Grænmetið var silkimjúkt og var mjög bragðgott.
Það grænmeti sem ég notaði að þessu sinni : 

1 rauð paprika
1/2 spergilkálshöfuð
4 - 5 gulrætur
1/4 púrrulaukur
1 msk fetaostur
smjörklípa

Aðferð. 
Skerið grænmetið mjög smátt niður og dreifið á álpappír, setjið fetaost saman við og smá smjörklípu. Það er auðvitað hægt að nota olíu í staðinn fyrir smjör en við amma kusum smjörið að þessu sinni. Kryddið til með salti og pipar. Brjótið álpappírinn saman og passið að hann sé alveg lokaður. 
Inn í ofn við 180°C í 35 - 40 mínútur. 
 Ilmurinn af matnum var dásamlegur og bragðið ekki síðra. Berið réttinn fram með einföldu salati og ef til vill hrísgrjónum. Pestósósan var mjög góð og ég mæli svo sannarlega með að bæta gríska jógúrtinu saman við, vanalega þá hef ég bara notað pestó og fetaost en sósan verður betri og þykkari með því að bæta jógúrtinu saman við. Amma var mjög ánægð með matinn og ég var virkilega sæl með það. Það er svo gaman að elda fyrir ömmu, hún hefur eldað fyrir mig svo marga góða rétti í gegnum árin svo það er sérdeilis skemmtilegt að elda fyrir hana. 
 Ég naut þess að borða góðan mat og eiga huggulegt kvöld með ömmu minni Stínu. 
Hún er búin að vera á fullu í bakstrinum fyrir jólin og ég fékk dásamlegar smákökur í eftirrétt, reyndar er það nú alltaf þannig hjá ömmu að áður en maður veit af þá eru komnar ótrúlega margar sortir af góðgæti fyrir framan mann og amma stendur yfir og segir manni að fá sér. Þá auðvitað hugsa ég um hvað ég eigi það nú skilið þrátt fyrir sífellt kökuát.
Get nú ekki neitað henni ömmu...

Ég vona að þið eigið ljúfan fimmtudag kæru vinir

xxx

Eva Laufey Kjaran