Sesar salat 
Hvítlaukssósa 
1 dós sýrður rjómi 
1 tsk dijon sinnep 
2 – 3 tsk majónes 
1 tsk hvítvínsedik 
1 tsk sítrónusafi 
salt og pipar 
2 hvítlauksrif 
50 – 60 g nýrifinn parmesan ostur 
Aðferð: 
Maukið allt saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Geymið
í kæli áður en þið berið fram með salatinu. 
Salatið.
3 kjúklingabringur, skornar í teninga  
Ólífuolía
Salt og pipar 
Kjúklingakrydd
100 g beikon
Kál, magn eftir smekk (helst Romain salat)
1 agúrka 
10 kirsuberjatómatar 
Aðferð:
Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið upp úr olíu,
kryddið til með salti, pipar og kjúklingakryddi.  Steikið beikonið á annarri pönnu eða steikið
í ofni. Saxið kálið smátt og dreifið á fat. Skerið agúrkuna, tómatana og
beikonið í litla bita og dreifið yfir kálið. Því næst bætið þið
kjúklingabitunum og brauðteningunum yfir salatið. Í lokin rífið þið duglega af
parmesan osti yfir allt salatið og ekki spara ostinn! 
Hvítlauksbrauðteningar
Hvítt brauð
1 dl Ólífuolía 
Salt og pipar
2 Hvítlauksrif 
Aðferð: 
Blandið saman olífuolíu, pressuðum hvítlauk, salti og
pipar í skál. Skerið brauðið í teninga og veltið þeim upp úr hvítlauksolíunni.
Leggið brauðteningana á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 180°C í nokkrar
mínútur eða þar til þeir eru gullinbrúnir og stökkir. 
Njótið vel. 
Fylgist endilega með Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:50. 
xxx


 
 
No comments:
Post a Comment