Showing posts with label Salöt. Show all posts
Showing posts with label Salöt. Show all posts

Friday, April 29, 2016

Tryllingslega gott humarsalat með mangósósu

Þetta humarsalat er sannkallað lúxussalat þegar við viljum gera sérlega vel við okkur. Ég gjörsamlega elska þetta salat og gæti borðað það í öll mál... en þið vitið, maður borðar víst ekki humar í öll mál :) Ég hvet ykkur til þess að prófa það og þá sér í lagi ef þið eigið von á góðum gestum, þá er bókað mál að þið sláið í gegn. 

Humarsalat með mangósósu og ristuðum furuhnetum

Einföld matreiðsla 
Áætlaður tími frá byrjun til enda: 40 mínútur 
Fyrir 3-4 
  • Gott salat t.d. klettasalat og lambhagasalat
  • 1 askja kirsuberjatómatar
  • 1 askja jarðarber ca. 10 stk
  • ½ melóna (má vera hvaða tegund sem er)
  • 1 mangó
  • ½ rauðlaukur
  • ½ rauð paprika
  • 600 g humar, skelflettur
  • smjör
  • ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif
  • ½ chili
  • 1 tsk fersk smátt söxuð steinselja
  • 1 poki furuhnetur

Aðferð:
  1. Skerið öll hráefnin smátt niður og blandið saman í skál eða leggið á fat.
  2. Skolið humarinn vel og þerrið, steikið upp úr olíu og smjöri ásamt pressuðum hvítlauk, smátt skornu chili og ferskri steinselju. 
  3. Steikið humarinn í 3 – 4 mínútur. Setjið humarinn þá strax yfir salatið.
  4. Sáldrið ristuðum furuhnetum yfir í lokin ásamt nokkrum skeiðum af sósunni.

Hvítlaukssósa með mangó
  • 1 dós sýrður rjómi
  • ½ mangó
  • 2 msk majónes
  • 1 hvítlauksrif
  • ¼ rautt chili
  • salt og pipar
  • 1 tsk hunang

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefni í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Gott er að kæla sósuna í hálftíma áður en þið berið hana fram. 

Njótið vel. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 

Thursday, March 17, 2016

Æðislegt andasalat með ristuðum valhnetum, perum og geitaosti.



Í þætti kvöldsins lagði ég áherslu á rétti sem tilvalið er að elda um páskana. Þetta andasalat með steiktum perum, stökkum valhnetum og geitaosti er yfirgengilega gott. Andabringur eru auðvitað algjört sælgæti og eru frábærar í salöt, páskamaturinn þarf alls ekki að vera þungur í maga og tilvalið fyrir þá sem kjósa léttari rétti að bera þennan rétt fram um páskana. 

Andasalat með stökkum valhnetum og geitaosti

  • 2 andabringur
  • 1 poki klettasalat
  • 1 granatepli
  • 2 perur
  • 1 tsk ólífuolía
  • 1 tsk smjör
  • Handfylli ristaðar valhnetur
  • Geitaostur, magn eftir smekk
  • Salatdressing
  • 1 tsk rauðvínsedik
  • 1 dl jómfrúarolía
  • 2 skallottulaukar
  • 1 tsk dijon sinnep
  • Salt og pipar


Aðferð:
  1. Skerið aðeins í andabringurnar og steikið á pönnu. Kryddið bringuna til með salti og pipar og steikið bringurnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Setjið andabringurnar í eldfast mót og inn í ofn við 180°C í 8 - 10 mínútur. Eins og með allt kjöt er mikilvægt að leyfa því að hvíla í fáeinar mínútur áður en það er skorið, en það kemur í veg fyrir að safinn leki út og kjötið verði þurrt. 
  2. Skerið perur í sneiðar og steikið upp úr olíu og smjöri í 1-2 mínútur á hvorri hlið.
  3. Þurristið valhnetur á pönnu. 
  4. Útbúið franska salatdressingu, saxið niður skallottulauk mjög smátt og setjið í skál. Blandið jómfrúarolíu, sinnepi og rauðvínsediki saman við og hrærið vel í dressingunni.
  5. Veltið kálinu upp úr dressingunni og leggið salatið á fat, raðið perum yfir, skerið andabringuna í sneiðar og leggið yfir, myljið geitaosti, sáldrið valhnetum og dreifið granateplum yfir salat í lokin. 
  6. Berið strax fram og njótið vel. 


Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 

Saturday, September 5, 2015

Sesar Salat með ljúffengri hvítlaukssóu


Sesar salat

Þetta salat er eitt vinsælasta salat í heimi og er það ekki að ástæðulausu. Kjúklingur, stökkt beikon, gott kál og annað ljúfmeti saman í eitt. Sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana! Við byrjum á því að útbúa sósuna sem fylgir salatinu. 


Hvítlaukssósa

1 dós sýrður rjómi
1 tsk dijon sinnep
2 – 3 tsk majónes
1 tsk hvítvínsedik
1 tsk sítrónusafi
salt og pipar
2 hvítlauksrif
50 – 60 g nýrifinn parmesan ostur

Aðferð:

Maukið allt saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Geymið í kæli áður en þið berið fram með salatinu.

Salatið.

3 kjúklingabringur, skornar í teninga 
Ólífuolía
Salt og pipar
Kjúklingakrydd
100 g beikon
Kál, magn eftir smekk (helst Romain salat)
1 agúrka
10 kirsuberjatómatar

Aðferð:

Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið upp úr olíu, kryddið til með salti, pipar og kjúklingakryddi.  Steikið beikonið á annarri pönnu eða steikið í ofni. Saxið kálið smátt og dreifið á fat. Skerið agúrkuna, tómatana og beikonið í litla bita og dreifið yfir kálið. Því næst bætið þið kjúklingabitunum og brauðteningunum yfir salatið. Í lokin rífið þið duglega af parmesan osti yfir allt salatið og ekki spara ostinn!

Hvítlauksbrauðteningar

Hvítt brauð
1 dl Ólífuolía
Salt og pipar
2 Hvítlauksrif

Aðferð:


Blandið saman olífuolíu, pressuðum hvítlauk, salti og pipar í skál. Skerið brauðið í teninga og veltið þeim upp úr hvítlauksolíunni. Leggið brauðteningana á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 180°C í nokkrar mínútur eða þar til þeir eru gullinbrúnir og stökkir.

Njótið vel. 

Fylgist endilega með Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:50. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verlslunum Hagkaups. 

Thursday, July 30, 2015

Brakandi ferskt humarsalat


Stærsta ferðahelgi ársins framundan og eflaust margir að velta fyrir sér matnum um helgina, að minnsta kosti er ég að spá í því en ég er svosem alltaf að spá í mat. Ég grillaði humar í lokaþætti Matargleði Evu sem sýndir voru á Stöð 2 í vor og útbjó þetta gómsæta humarsalat sem ég mæli með að þið prófið.  Þetta er auðvitað sælkerasalat fyrir þá sem vilja gera vel við sig og það er ekki vitlaust að fá sér glas af góðu hvítvíni með. Einfalt, fljótlegt og ofboðslega gott. 


Hvítlaukshumar á salatbeði 
600 – 700 g humarhalar 
100 g smjör 
3 hvítlauksrif
1 rautt chili, fræhreinsað
Handfylli steinselja 
Börkur af hálfri sítrónu 
Skvetta af hvítvíni 
Safi af hálfri sítrónu 
Salt og pipar 

Hitið smjör í potti. Saxið niður hvítlauk, chili og steinselju og bætið út í smjörið. Sjóðið í smástund við vægan hita. 

Takið pottinn af hitanum og undirbúið humarinn. 

Mér finnst ágætt að nota álform þegar ég er að grilla humar en þið getið auðvitað sett hann beint á grillið.

Klippið humarhalana og hreinsið görnina úr, ekki taka humarinn alveg úr skelinni heldur leyfið honum að hanga föstum á halaendanum. Það er best að gera þetta við vaskinn áður en þið farið með humarinn út. 

Dreifið smjörsósunni yfir humarhalana og hellið hvítvíni yfir og kreistið hálfa sítrónu í lokin.
Kryddið til með salti og pipar. 
Það er ágætt að leyfa humrinum að standa í ca. 30 mínútur áður en þið setjið hann á grillið en þannig nær hann að marinerast fullkomlega. 

Grillið humarinn á háum hita í nokkrar í ca. 5 – 6 mínútur. 
Berið fram með hvítlaukssósu og fersku salati. Sagði einhver meiri hvítlauk? Já, takk. 

Hvítlaukssósa

150 ml sýrður rjómi 
2 hvítlauksrif
Salt og pipar
Safi úr hálfri sítrónu 

Setjið sýrða rjómann í skál, bætið maukuðum hvítlauknum út í ásamt sítrónusafanum, salti og pipar. Blandið öllu vel saman og það er ágætt að leyfa sósunni að jafna sig í ísskáp í hálftíma til klukkustund áður en þið berið hana fram með humrinum. 
Skerið niður gott grænmeti og ávexti og leggið humarhalana yfir og njótið með hvítlaukssósunni góðu.




Njótið vel. 

Ég vona að þið eigið góða helgi með fólkinu ykkar og munið að fara varlega í umferðinni. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 


Tuesday, June 9, 2015

Sjúklega gott og hollt laxasalat


Ég elska fisk og gæti borðað hann hvern einasta dag, hann er ekki bara ljúffengur heldur er hann einnig mjög hollur. Í kvöld langaði mig í eitthvað létt og gott og þá var laxasalat fyrir valinu. Það er tilvalið að nota fiskmeti í salöt og þetta salat á eftir að koma ykkur á óvart. Einfalt, fljótlegt og afar gott bæði fyrir líkama og sál. 



Laxasalat með jógúrtdressingu


  • fyrir þrjá til fjóra

ólífuolía
smjör
1 stór sæt kartafla eða tvær meðalstórar
500 g lax, beinhreinsaður
salt og nýmalaður pipar
tímían
1 poki gott salat t.d. spínat eins og ég notaði í kvöld
ferskt dill
sítróna
ristaðar pekanhnetur
fetaostur

Aðferð:

  1. Afhýðið kartöfluna og skerið í litla bita, kryddið til með salti og pipar og leggið í eldfast mót. Hellið smá olíu yfir og bakið í ofni við 180°C í 30 - 35 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn. 
  2. Skerið laxinn í jafn stóra bita
  3. Hitið olíu á pönnu, steikið laxinn í 2 - 3 mínútur á hvorri hlið. Kryddið til með salti, pipar og tímían. Þegar það er ca. 2 mínútur eftir af eldunartímanum er gott að bæta smjörklípu út á pönnuna. 
  4. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar þá dreifið þið smátt söxuðu dilli yfir þær og kreistið smá sítrónusafa yfir í lokin. 
  5. Blandið spínati, kartöflum, laxi, fetaosti og pekanhnetum vel saman í skál og berið fram með jógúrtsósunni góðu. (uppskrifin er hér að neðan)



Einföld og góð dillsósa


  •  Þessi sósa hentar með flestum fiskréttum en dill og fiskur passa mjög vel saman. 

2 dl grískt jógúrt frá MS
1 hvítlauksrif
handfylli dill
salt og nýmalaður pipar
skvetta af hunangi
skvetta af sítrónusafa

Aðferð:

  1. Maukið allt saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél, geymið í kæli áður en þið berið fram með salatinu. 







Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

Bon Appétit!

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir