Showing posts with label Huggulegheit. Show all posts
Showing posts with label Huggulegheit. Show all posts

Saturday, February 25, 2012

Íslensk náttúrufegurð

 Íslensk náttúrufegurð er einstök. 
Þegar við Haddi erum á Hvolsvelli Þá förum við vitaskuld á rúntinn, sveitarúntur er huggulegur.
Umhverfið er dásamlegt í sveitinni.
Við stoppuðum hjá Seljalandsfossi, mikil ósköp er fossinn fagur.





xxx

Eva Laufey Kjaran

Monday, February 6, 2012

Happiness in a bowl


Vanilluís og frosin hindber á góðu mánudagskvöldi

xxx

Eva Laufey Kjaran

Friday, February 3, 2012

Hér líður mér vel.


 Ég gæti eytt öllum heimsins tíma í að fletta í gegnum matarbækur og matarblöð. Ég er búin að skoða allar þær bækur sem ég á ótrúlega oft en ég fæ aldrei nóg af þeim. Í dag er ég búin að vera svolítið þreytt, stalst í höfuðborgina í gær. Síðasti kosningadagurinn og ég varð að vera með, vel þess virði. Þannig að ég er búin að vera ósköp róleg hér heima við í dag, fékk ömmu mína og Silju í kaffi í morgun sem var ansi ljúft. 

Veðrið er búið að vera sérlega fallegt í dag og ég stefni að því að fara í smá göngutúr um helgina ef veðrið helst svona fínt. Ég lofaði sjálfri mér því fyrir viku þegar að ég lá inni á spítalanum að ég ætlaði að njóta næstu helgar mun betur og ég verð nú að standa við það. Þessi helgi fer í huggulegheit og matargerð. Á morgun verður mexíkönsk matargerð, ætla m.a. að prufa að laga tortillur frá grunni svo það verður skemmtilegt að prufa. Ætla sömuleiðis að prufa að elda nautalundir í fyrsta sinn, ég verð með móður mína í beinni svo mikið er víst. Þannig það verða eflaust margar mataruppfærslur á þessu bloggi um helgina. 

Ég vona að þið njótið helgarinnar og hafið það sem allra best. 



xxx

Eva Laufey Kjaran

Thursday, December 15, 2011

Morgunkaffi

Fékk til mín góða gesti í morgunkaffi. Yndislegar vinkonur.
 Mjög gott að hefja daginn á góðu spjalli og góðu kaffi :) 

 Hekla María yndislega

 Helena og Edit 


Ó svo gaman að leika við bumbulínu.



Njótið þess að vera til á þessum yndislega árstíma.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, November 13, 2011

Sunnudagur til sælu.

Sunnudagar eru notalegir.. þessi helgi er líka búin að vera ansi hugguleg. 
Í gærkvöldi var Take Away og vidjó.
Í morgun vaknaði ég seint, rölti út í bakarí í þessu yndislega veðri og keypti smá gotterí með morgunkaffinu.  Ég held að ég sé ekki búin að gera mikið annað þessa helgi en að borða. Planið fyrir daginn í dag er að skjótast í höfuðborgina og klára hópaverkefni, síðan langar mig virkilega til þess að fara að hlaupa í þessu fína veðri. 

Ég vona að þið njótið dagsins því það ætla ég svo sannarlega að gera. 

xxx







Tuesday, September 13, 2011

 


Lærdómurinn verður mun skemmtilegri með góðri vinkonu og súkkulaðihjúpuðum jarðaberjum. Maður má nú lyfta sér upp svona í tilefni þriðjudags.. 



Monday, September 12, 2011

Jómfrúin


 Ég held mikið upp á jómfrúnna. Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að fara þangað í lunch - þar fer ég reglulega með einhverjum úr famelíunni í lunch. Ég er vanaföst og fæ mér alltaf það sama. 1/2 sneið með lambakjöti og 1/2 með camenbert, beikoni og allskyns góðgæti.  Delish! Ef þið hafið ekki nú þegar prufað jómfrúnna þá mæli ég eindregið með því að þið skellið ykkur.



 Uppáhalds. 

 Mamma og eggin hennar. 

 Ég og amman mín, yndislegasta manneskjan í mínu lífi. 

....ásamt mömmunni minni. Þær eru langbestar.



xxx

Thursday, August 11, 2011




Að njóta þess að drekka gott kaffi og lesa morgunblaðið. 

My time.

Thursday, July 28, 2011

Nú er ég komin í sæluna á Hvolsvelli. Mikil ósköp sem ég elska að koma hingað, færist yfir mig svo mikil ró í hvert skipti sem ég er hér. Í dag er ég bara búin að hafa það huggulegt, lúra, fara í labbitúr og svo elduðum við lambahrygg og amma hans Hadda kom til okkar í mat. Kertaljós, góður matur og góður félagsskapur. Ansi notalegt - enda þurfa batteríin að vera vel hlaðin fyrir helgina. Á morgun förum við yfir til Eyja. Ég er orðin ansi spennt - fer með svo skemmtilegu fólki að þetta stefnir allt í ljómandi fína helgi. Eitt er þó víst, að ég kann ekki að pakka. Er komin með alltof mikið af dóti sem ég ætla að drösla með mér yfir. En allur er varinn góður, betra að hafa of mikið en of lítið. :-)

Í dag gerði ég kjarakaup að mínu mati. Er búin að vera að spá í lopapeysum en ekki fundið fínt snið sem mig langar í, en ég kíkti í smástund í Mýrina í kringlunni áður en við lögðum í hann til Hvolsvallar í morgun og þá blasti við mér sérdeilis falleg peysa. Farmers Market peysa - dásamlega falleg og hlý. Ég var þó í valkvíðahnút í búðinni enda svo mikið af fallegum peysum og vörum í þessari búð.

En þessi hér fyrir neðan varð fyrir valinu :)


..Góða helgi elsku þið, sjáumst í Eyjum!

Sunday, July 17, 2011

Dásamlegir dagar á Skipaskaga

Akranes er búið að skarta sínu fegursta í þessu yndislega veðri undanfarna daga...

Ooog þá er bara eitt í stöðunni að njóta þess! Kíkja á Langasand, vaða í sjónum og fara síðan í sólbað á Aggapalli sem er staðsettur fyrir ofan Langasand. Þar eru sólbekkir og algjört skjól fyrir sóldýrkendur :) Svo er náttúrlega ansi indælt að kíkja í sund og fá sér ís eftir á.

Hljómar það ekki bara dásamlega??? Allir á Skagann

XXX




Saturday, May 28, 2011

Morgunstund gefur gull í mund

Það skiptir ótrúlega miklu máli hvernig við förum af stað á morgnana, það segir nánast alveg til um dagsformið hjá okkur. Ég elska morgna þegar að ég þarf ekki að borða,klæða, sjæna mig í hvelli. Þá verð ég hrikalega stressuð og tek stressið með mér út í daginn.

Að vakna of seint.. er það leiðinlegasta sem kemur fyrir mig. Dagurinn verður öfugsnúinn, sérlega ef maður sefur yfir sig í vinnu, tíma osfv. Hræðilega pirrandi.

Ég ELSKA dúllu morgna, þegar að ég get borðað hafragrautinn minn í ró og næði, lesið blöðin, drukkið góðan safa og gott kaffi og dúllerast fram eftir öllu.

Ég fékk fyrstu flugskrána í gær fyrir júnímánuð. Fer m.a. til New York og Seattle. Gisti þar og fæ loksins að fara til Bandaríkjanna. Hef aldrei komið þangað, þannig það verður mikil upplifun.
Ég er allavega mjög spennt fyrir sumrinu. Hef góða tilfinningu fyrir þessu. :o)

Njótið helgarinnar - því það ætla ég svo sannarlega að gera.