Showing posts with label Marengs. Show all posts
Showing posts with label Marengs. Show all posts

Friday, April 1, 2016

Pavlova með ástaraldin- og mangósósu



Pavlova með ástaraldin- og mangósósu

Marensbotn

  • 6 Stk eggjahvítur
  • 300 g sykur
  • 1 ½ tsk mataredik
  • 1 tsk vanilla extract eða dropar
  • Salt á hnífsoddi
Aðferð:

  1. Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli. 
  2. Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marensinn er orðinn stífur. 
  3. Teiknið hring á bökunarpappír, u.þ.b. 24 cm í þvermál, og smyrjið marens á pappírinn. Bakið marensinn við 100° C í 90 mín. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið marensinn kólna íalla vega 3 klst í ofninum ef þið hafið tíma til.
Krem:

  • 1 dós kókosmjólk (frosin)

Aðferð: 

  1. Frystið kókosmjólkina í 40-60 mínútur. 
  2. Setjið hana síðan í skál og þeytið þar til áferðin verður rjómakennd.
  3. Dreifið kreminu vel yfir kökuna og setjið vel af ástaraldin sósunni yfir og skreytið með ferskum berjum.
Ástaraldin- og mangó sósa

  • 4 ástaraldin
  • Safi úr hálfri appelsínu
  • 2-3 tsk flórsykur
  • 1 mangó
Aðferð:

  1. Skafið kjötið úr ástaraldinávextinum og setjið í pott ásamt appelsínusafa og flórsykri. Leyfið sósunni að ná suðu og hrærið vel í. 
  2. Skerið mangóið í litla teninga og bætið út í sósuna. Kælið sósuna vel áður en þið hellið henni yfir kökuna.
Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld á Stöð 2. 

Njótið vel.

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.



Tuesday, December 22, 2015

Marengskaka með daimkremi og ferskum hindberjum


Ég deildi nokkrum uppskriftum í Nýju Lífi fyrir jólin þ.á m. uppskrift að marengsköku sem fær mig alltaf til að brosa. Já, brosa.. ég elska góðar marengskökur og þær eru svo einfaldar sem er alltaf plús. Ég geri yfirleitt botninn kvöldinu áður og leyfi botninum að kólna yfir nótt, svo skelli ég góðu rjómakremi yfir og skreyti fallega. Einfaldara verður það varla! Það er upplagt fyrir ykkur sem eruð að gera jólaísinn og notið eflaust bara rauðurnar að geyma eggjahvíturnar og búa til marengs til að eiga um jólin, það eru allir svo hrifnir af marengskökum og gott að eiga nokkra botna í frystinum. 



Marengshreiður með súkkulaðirjóma og ferskum berjum 

Botn:
  • 6 eggjahvítur
  • 150 g sykur
  • 150 g púðursykur
  • 1 tsk mataredik
  • 1 tsk vanilla extract (eða dropar)
  • salt á hnífsoddi 

Aðferð: 

Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli. Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marensinn er orðinn stífur. Teiknið hring á bökunarpappír, u.þ.b. 24 cm í þvermál, og smyrjið marens á pappírinn. Bakið marensinn við 100° Cí 90 mín. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið marensinn kólna  í að minnsta kosti 3 klst í ofninum.

Rjómakrem með Daim 

  • 200 ml rjómi
  • 2 – 3 msk flórsykur
  • 1 tsk vanilla extraxt eða drooar
  • 100 g Daim súkkulaði
  • Fersk ber
  • Dökkt súkkulaði

 Aðferð: 

Þeytið rjóma, bætið flórsykri og vanilla út í á meðan þeytt er. 
Saxið Daim súkkulaðið afar smátt og blandið saman við með sleikju. Setjið rjómablönduna yfir marengsbotninn og skreytið kökuna að vild með ferskum berjum. Saxið niður dökkt súkkulaði og sáldrið yfir kökuna í lokin. 




Marengshreiður með súkkulaðirjóma og ferskum berjum 

Botn:
  • 6 eggjahvítur
  • 150 g sykur
  • 150 g púðursykur
  • 1 tsk mataredik
  • 1 tsk vanilla extract (eða dropar)
  • salt á hnífsoddi 

Aðferð:

Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli. Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marensinn er orðinn stífur. Teiknið hring á bökunarpappír, u.þ.b. 24 cm í þvermál, og smyrjið marens á pappírinn. Bakið marensinn við 100° Cí 90 mín. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið marensinn kólna  í að minnsta kosti 3 klst í ofninum.

Rjómakrem með Daim 

  • 200 ml rjómi
  • 2 – 3 msk flórsykur
  • 1 tsk vanilla extraxt eða drooar
  • 100 g Daim súkkulaði
  • Fersk ber
  • Dökkt súkkulaði

 Aðferð: 

Þeytið rjóma, bætið flórsykri og vanilla út í á meðan þeytt er.
Saxið Daim súkkulaðið afar smátt og blandið saman við með sleikju. Setjið rjómablönduna yfir marengsbotninn og skreytið kökuna að vild með ferskum berjum. Saxið niður dökkt súkkulaði og sáldrið yfir kökuna í lokin.





Njótið vel kæru lesendur.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefni sem notuð voru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 

Saturday, December 12, 2015

Ísterta með After Eight súkkulaði



Í vikunni kom út hátíðarbæklingur Hagkaups og þar má finna ljúffengar uppskriftir fyrir jólin. Kalkúnn, önd, nautakjöt og miklu meira í fallegu blaði sem þið getið skoðað hér.  Ég er að minnsta kosti búin að velja nokkra rétti sem mig langar að prófa núna um jólin en ég er til dæmis ein af þeim sem er aldrei með það sama á aðfangadag og nýt þess að prófa eitthvað nýtt og gott. Í blaðinu má finna nokkrar uppskriftir eftir mig, þar á meðal after eight ísterta sem fangar bæði augað og leikur við bragðlaukana. Ég elska þessa tertu og hlakka til að bjóða fjölskyldunni upp á hana um jólin. Tilvalin sem eftirréttur eða þá með kaffinu yfir hátíðarnar <3 


After eight ísterta 


Botnar

    4 eggjahvítur
    4 dl púðursykur

Aðferð: 

Stillið ofn á 110°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu eða bökunarpappír í botninn á tveimur 22 cm lausbotna formum og smyrjið hliðarnar með smjöri. Þeytið eggjahvíturnar og bætið sykri saman við í smáum skömmtum. Stífþeytið þar til blandan hreyfist ekki til í skálinni sé henni hvolft. Skiptið marengsblöndunni á bökunarpappírinn eða í formin og bakið í 1 ½ klst við 110°C.

Ís fyllingin 

    500 ml rjómi
    2 eggjarauður
    4 tsk flórsykur
    1 tsk vanillusykur eða dropar
    200 g after eight súkkulaði

Ofan á 

Suðusúkkulaði 
Fersk ber 


Aðferð:  Þeytið eggjarauður og flórsykur saman þar til eggjablandan verður ljós og létt. Þeytið rjóma og bætið eggjablöndunni varlega saman við rjómann með sleif ásamt vanillu. Í lokin fer súkkulaðið út í rjómablönduna. Setjið kremið á milli botnanna og ofan á.  *Best er að setja plastfilmu í formið en þannig er betra að ná kökunni upp úr forminu og sömuleiðis er gott að nota smelluform. 

Kakan fer inn í frysti í nokkrar klukkustundir og þegar þið berið hana fram er gott að bræða suðusúkkulaði yfir vatnsbaði og dreifa yfir kökuna. Skreytið hana svo með ferskum berjum og saxið niður meira súkkulaði og skreytið - það er aldrei nóg af súkkulaði!





Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Öll hráefni sem notuð voru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.