Showing posts with label Pönnukökur. Show all posts
Showing posts with label Pönnukökur. Show all posts

Sunday, September 25, 2016

Easy like sunday morning


Nýbakaðar pönnukökur, dásamlegur kaffiilmur, fólkið mitt og fullkomið haustveður, bara ef allir sunnudagar væru svo fullkomnir. Og já hreint heimili, ég segi ykkur þetta satt. Svona dagar eru afskaplega notalegir og því er nauðsynlegt að njóta þeirra. Ég elska pönnukökur eins og þið hafið eflaust tekið eftir í gegnum tíðina og í morgun þá prófaði ég að sleppa súrmjólkinni sem ég er vön að nota í pönnukökurnar og útkoman var ansi ljúffeng og verð ég að deila uppskriftinni með ykkur. Það má nú kannski fylgja sögunni að ástæðan fyrir því að ég sleppti súrmjólkinni er einfaldlega vegna þess að ég var of löt til þess að skjótast út í búð, there i said it. 

Pönnukökurnar runnu ljúft niður með bönunum, sírópi, súkkulaðismjöri og ferskum bláberjum. Virkilega gott og einfalt! Ég setti inn aðferðina á Snapchat og þið getið fylgt mér þar ef þið viljið, notendanafnið er evalaufeykjaran. 

Annars hef ég saknað þess óskaplega að blogga reglulega og ég vona að þið fyrirgefið mér bloggleysið, ástæðurnar eru nokkrar en nú er verið að vinna í því fyrir mig að smíða nýtt og endurbætt blogg sem fer í loftið í október, planið var að það færi í loftið í september en stundum breytast plönin og þá er bara í fína lagi að blogga hér á meðan. Ég er orðin ansi spennt fyrir nýju útliti en ég er búin að vera með þetta blogg nánast óbreytt í útliti í fimm ár - aldeilis kominn tími á breytingar!

Ég hef aðeins verið að bardúsa frá því síðast, en við Haddi giftum okkur í sumar, fluttum upp á Akranes, ég kláraði bókina mína, byrjaði í skólanum og er nú að byrja í tökum á nýjum þáttum sem kallast Ísskápastríð. Það er semsagt alveg nóg að gera sem er mjög ánægjulegt og ég hlakka til að deila þessu öllu með ykkur sem fyrst,  en byrjum á þessum ljúffengu pönnukökum sem þið eruð enga stund að skella í. 




Amerískar pönnukökur með öllu tilheyrandi 

Fyrir 3 - 4 

Hráefni: 
  • 270 g Kornax hveiti 
  • 2 tsk lyftiduft 
  • 2 tsk vanilludropar 
  • salt á hnífsoddi 
  • 3 msk sykur 
  • 2 stór egg eða 3 lítil 
  • 280 ml mjólk 
  • 4 msk brætt smjör + meira til steikingar  

Aðferð: 

Sigtið saman þurrefnin í skál. Pískið egg og mjólk í annari skál þar til eggjablandan verður ljós, bræðið smjör og hellið því út í eggjablönduna og hrærið. Hellið vökvanum og sykrinum saman við hveitiblönduna og hrærið þar til deigið verður silkimjúkt. Leyfið deiginu að standa og taka sig í svolitla stund áður en þið steikið það, á meðan getið þið til dæmis lagt á borðið. 

Bræðið smávegis af smjöri á pönnu og steikið pönnukökurnar í 1 - 2 mínútur á hvorri hlið, eða þar til þær eru gullinbrúnar. Berið pönnukökurnar fram með allskyns góðgæti en mér finnst þær æðislegar með bönunum, bláberjum og sírópi. Algjört lostæti! 














Ingibjörg Rósa fagnar sunnudag lúxusnum. 

Einn koss fyrir morgunmatinn bætir og kætir. P.s. Já, ég ætti að vera með tískublogg. Ég átta mig á því núna. Haha!













Namm hvað þetta var gott. Mæli innilega með þessum pönnsum, þið eigið pottþétt eftir að gera þær aftur og aftur. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin sem voru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 


Friday, May 27, 2016

Bananapönnukökur með sírópi

Æ það er í alvöru talað eitt það besta að byrja daginn á pönnukökubakstri, það gerist eingöngu á frídögum og ég nýt þess í botn. Uppskriftin hér fyrir neðan er ótrúlega einföld og þægileg, sem er plús. Við viljum ekkert flækja hlutina snemma á morgnana. Ég bæti stundum bönunum út í deigið og mér þykir það æðislega gott, en auðvitað má sleppa því eða bæta einhverju öðru góðu út í deigið. 

Amerískar pönnukökur með bönunum

Hráefni 
  • 1 egg
  • 5 dl KORNAX hveiti 
  • 3 tsk lyftiduft 
  • 1/2 tsk. Salt
  • 3 msk. Smjör ( brætt)
  • 4 dl. Mjólk (Ef ykkur finnst deigið of þykkt þá bætið þið meiri mjólk út í)
  • 1 tsk vanillusykur
  • 1 banani 
Aðferð:
  1. Sigtið saman hveiti, lyftidufti og salt í skál.
  2. Bræðið smjör, leggið til hliðar og kælið.
  3. Hrærið mjólk og eggjum saman í annarri skál.
  4. Setjið mjólkurblönduna út í hveitiblönduna og hrærið vel saman. 
  5. Bætið smjörinu saman við í nokkrum pörtum og hrærið vel á milli.
  6. Bætið vanillusykrinum saman við í lokin. 
  7. Skerið banana í bita og bætið bitunum út í deigið.
  8. Hitið smjör á pönnu og steikið pönnukökurnar á báðum hliðum þar til þær verða gullinbrúnar. 
 Ég skar niður meiri banana og fersk jarðaber og lét ofan á, hellti smávegis af sírópi yfir og sáldraði að lokum flórsykri yfir. 

 Ég mæli með Maine Maple Syrup frá Stonewall Kitchen, ótrúlega bragðgott siróp.


xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Saturday, October 24, 2015

Íslenskar pönnukökur með Nutella og bönunum


Í morgun langaði mig svo í pönnukökur og auðvitað skellti ég í þessar einföldu og bragðgóðu pönnsur sem flestir kannast við. Íslenskar pönnukökur eru virkilega góðar og hægt að bera þær fram á ýmsa vegu t.d. með morgunkaffinu, í kaffitímanum með sultu og rjóma og svo í eftirrétt með ferskum berjum, súkkulaðisósu og ís. Það tekur enga stund að búa til ljúffengar pönnukökur og ilmurinn sem fer um heimilið er dásamlegur. Svona eins og að koma heim til ömmu á sunnudegi, það er nú ekkert sem toppar það. Amma hans Hadda bakar bestu pönnukökur sem ég hef smakkað og hún hefur gefið mér góð ráð varðandi pönnukökubaksturinn og pönnukökurnar mínar eru strax betri eftir að ég fór að hennar ráðum. Ömmur eru gull. 


Íslenskar pönnukökur

ca. 18 - 20 pönnukökur
  • 2 Brúnegg
  • 1 dl sykur 
  • 3 dl Kornax hveiti 
  • 1 tsk lyftiduft 
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1/2 tsk kardimommudropar 
  • smá salt 
  • 3 msk brætt smjör
  • 4 - 5 dl mjólk, eða eftir þörfum 

Aðferð: 

1. Þeytið egg og sykur saman í hrærivél þar til eggjablandan verður létt og ljós. 
2. Bætið þurrefnum saman við og hrærið, hellið vanillu, kardimommudropum, smjöri og mjólk saman við varlega. 
3. Hrærið í deiginu með sleif á  þessu stigi, mér finnst það langbest en þá get ég betur stjórnað áferðinni á deiginu. Pönnukökudeigið á að vera þunnt og þið getið prófað að steikja eina pönnuköku, ef ykkur finnst hún of þykk þá bætið þið einfaldlega meiri mjólk saman við þar til þið eruð ánægð. 

Berið pönnukökurnar strax fram og þá gjarnan með Nutella og bönunum eins og ég fékk mér í morgun. Annars finnst mér fátt betra en pönnukökur með sultu og rjóma. Ójá, ég gæti haldið áfram að telja upp möguleikana en nú er komið að ykkur að prófa og ég vona að þið njótið vel. 




xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.


Sunday, April 19, 2015

Amerískar súkkulaðipönnukökur með ristuðum pekanhnetum


Amerískar pönnukökur hafa lengi verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér og í morgun ákvað ég að breyta aðeins uppskriftinni sem ég nota yfirleitt. Aðal breytingin er sú að ég bætti kakó út í deigið og smá kanil, nú eru þetta þess vegna súkkulaðipönnukökur. Þær eru algjört lostæti og sérstaklega með ristuðum pekanhnetum. Ég mæli með að þið prófið þessar einföldu og bragðgóðu pönnukökur. 

Amerískar súkkulaðipönnukökur
  • 5 dl Kornax hveiti
  • 2 tsk lyftiduft 
  • 2 msk kakó 
  • 1 tsk kanill
  • 1 Brúnegg
  • 2 dl ab mjólk 
  • 2 - 3 dl mjólk
  • 1 msk sykur
  • 1 tsk vanilla extract eða vanilludropar
  • 2 msk brætt smjör 
Aðferð: 


  1. Blandið þurrefnum saman í skál.
  2. Pískið eitt egg og mjólk saman. 
  3. Hellið eggjablöndunni saman við þurrefnin og bætið ab mjólk og vanillu út í deigið. 
  4. Blandið vel saman með sleif og bætið bræddu smjöri og sykri út í lokin. 
  5. Það er ágætis regla að geyma deigið í 30 - 60 mínútur áður en þið steikið pönnukökurnar en þið steikið þær upp úr smjöri á pönnu í nokkrar mínútur eða í um það bil 2 mínútur á hvorri hlið. 

Berið fram með ristuðum pekanhnetum og góðu sírópi. 

Bon appétit!

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir