Showing posts with label Partíréttir. Show all posts
Showing posts with label Partíréttir. Show all posts

Friday, June 10, 2016

Tryllingslega góð ostaídýfa




Nú eru eflaust margir að skipuleggja EM kvöld með vinum og fjölskyldunni, mér fannst þess vegna tilvalið að deila með ykkur uppskrift að æðislegri ídýfu sem ég fæ ekki nóg af. Ég elska ost og hann fer með aðalhlutverk í þessari sósu, það er nauðsynlegt að nota Cheddar ostinn en hann gefur sósunni mikið bragð og er einstaklega fallegur á litinn. Það tekur enga stund að útbúa sósuna og ég þori að veðja að þið eigið eftir að slá í gegn með því að bjóða upp á hana með góðu snakki. Ég mun tvímælalaust gera sósuna aftur og aftur!  En hér er uppskriftin, ég vona að þið njótið vel. 


Æðisleg ostaídýfa borin fram með Doritos flögum

Hráefni:
  • 1 msk ólífuolía
  • 1 laukur
  • 1 rautt chili
  • 1 rauð paprika
  • 2 msk smátt saxað kóríander
  • 1 poki rifinn ostur
  • 125 g hreinn rjómaostur
  • 450 g Cheddar ostur
  • 1 - 2 dl rjómi (jafnvel meiri ef ykkur finnst ídýfan of þykk)
  • ½ - 1 tsk cayenne pipar
  • salt og pipar
  • 1 poki Doritos

Aðferð:
  1. Hitið olíu á pönnu eða í potti. 
  2. Saxið lauk, chili og papriku smátt og steikið upp úr olíunni í 1 – 2 mínútur eða þar til laukurinn verður glær.
  3. Rífið niður cheddar ostinn og bætið út í pottinn ásamt öðrum hráefnum.
  4. Leyfið ostinum að bráðna í rólegheitum, bætið vökvanum saman við í nokkrum pörtum. Byrjið á því að setja minna en meira.
  5. Hrærið stöðugt í sósunni og smakkið ykkur til með salti, pipar og cayenne pipar.
  6. Þegar þið eruð ánægð með þykktina þá getið þið borið sósuna fram með góðu snakki.




Njótið vel. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 



Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.