Monday, May 16, 2011
Sunday, May 15, 2011
Ljúf helgi
Þessi helgi er búin að vera aðeins of hugguleg, í gær var uppáhaldið mitt og yndi, semsé júróið! Ég var samt ekki ánægð með úrslitin - en ég er þó handviss um að við sigrum að ári. :o) Ég fékk góða gesti og það var fyrir öllu að hafa gaman með góðu fólki...
Í dag á hann Steindór Mar afmæli, ég fékk hann næstum því í afmælisgjöf, því ég ætla að verða árinu eldri á morgun :) Í tilefni dagsins þá sló Maren upp afmæliskaffi í skógræktinni, grill og muffinspartí. Veðrið er líka búið að vera yndislegt svo það er ekki annað hægt en að smæla.
Friday, May 13, 2011
Tartalettur
Tartalettur - eitt af því besta sem ég fæ. (fylltar með allskyns góðgæti) Vinkona mín hún Fedda kom mér á lagið með ostafylltum tartalettum - það var ást við fyrsta smakk. Þær eru hreinlega of góðar til þess að vera sannar.
Ég varð að deila þessum ástarblossa með ykkur..
Ég var að gera uppskrift fyrir ca. 30 tartalettur og ég notaði:
1x Camenbert
1x Piparost
1x Hvítlauksost
Matreiðslurjómi - ca. heill peli.
Þetta er láta malla vel saman á vægum hita, tekur svolítinn tíma en það er vel þess virði.
Ein askja af sveppum og tvær paprikkur. Skorið smátt og steikt í smá stund á pönnu.
Svo þegar að osta-sósan er klár þá er grænmetið skellt ofaní og þetta látið malla í smá stund.
Svo er bara að fylla tartaletturnar vel og vandlega... og skella þessu svo inn í ofn í ca. 5-10 mín.
Svo er ótrúlega gott að hafa eðal-syltetöj með
Monday, May 9, 2011
Sunnudagur til sælu
Átti ansi lovlí dag í gær. Fór m.a. út að borða með Dísu og Birki (skötuhjúum) Djók, en samt ekki djók. Þau eru það en þau vita bara ekki af því. ...Veðrið var líka svo yndislegt í gær, og í dag að vísu líka.
Það verður allt svo miklu auðveldara og skemmtilegra þegar að veðrið er betra, eruð þið ekki sammála?
Sunday, May 8, 2011
Friday, May 6, 2011
Hollt dipp og súkkulaðihjúpuð jarðaber.
Gott dipp og súkkulaðihjúpuð jarðaber. Fátt um betra!
Uppskrift af ótrúlega góðu dippi.
1x stór kotasæludós
1x mild salsasósa
1x rauð paprika
1x græn paprika
3/4 af ágúrku
2x tómatar
1x rauður laukur
That's it!
Kotasælan neðst - salsasósan yfir - og svo grænmetið ofaná, fallegir litir og ljúffengt með hrökkbrauði eða snakki svona þegar að maður vill gera vel við sig :o)
Ég valdi mér gott súkkulaði - siríus auðvitað! Bræddi súkkulaðið yfir vatnsbaði og klæddi svo jarðaberin í súkkulaðiklæðin.
Góða helgi allir saman, gerið eitthvað skemmtilegt! Ég ætla allavega að hafa það huggó með yndislegum vinkonum í kvöld og í fyrramálið fer ég í reynsluflug númer tvö til Frankfurt. Þannig þetta stefnir allt í sérdeilis fína helgi :o)
Thursday, May 5, 2011
Smælaðu framan í heiminn og þá mun heimurinn smæla framan í þig
Hvernig er annað hægt en að vippa sér út í sólbað í smá stund þegar að veðrið er svona yndislegt....
Wednesday, May 4, 2011
Lunchtime
Lagaði mér ansi gott pasta í hádeginu - mjög simpúlt.
Heilhveitipasta - spínat og ferskur mozzarella (mig vantaði sárlega kirsuberjatómata, þeir verða memm næst)
Pasta soðið - spínatið svo hitað aðeins og ferskur mozzarella... Salt&pipar auðvitað líka! og ólífuolía.
Tuesday, May 3, 2011
Sumarsæla
Jumm to the Í. Vaknaði við sólargeislana í morgun sem var dásamlegt - dreif mig út á pall með skólabækurnar og naut þess að sitja úti í blíðunni. Svo var auðvitað skellt sér í sund með fögrum píum og í lunch með Helenu minni. Lövlí byrjun á góðu sumri.
Vonandi eruð þið búin að eiga yndislegan dag - njótið þess að vera til í þessu góða veðri!
mmmm... cesar salat á Kaupfélaginu!
Sumarkveðja frá stelpunni sem fékk far í sundi ( mynd kemur síðar) Djók!.
Subscribe to:
Posts (Atom)
