Monday, March 19, 2012

Fiskur í Raspi


Ég elska fisk og mér finnst voðalega gaman að elda hann.
Ég prufaði öðruvísi aðferð með fisk í raspi.

Spínat-spergilskáls rasp

2 Lófar spínat
2/4 Spergilkálshöfuð
1 Hvítlauksgeiri
100 gr. Rasp
2 msk. Fetaostur
1 msk. Olía
Safi og rifinn börkur úr 1/2 Lime
Salt & pipar að vild!

Allt saman í matvinnsluvél í fáeinar mínútur.

1 egg og mjólk pískuð saman, fiskurinn settur ofan í vökvann og svo ofan í rasp-skálina.

Síðan steikjum við hann á pönnu upp úr olíu eða smjeri, mér finnst alltaf gott að steikja upp úr olíu og  setja smá smjör með.













Mjög góður fiskur með fersku salati og jógúrtsósu.
Njótið vel!

xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, March 18, 2012

Aspas og parmaskinka

Ég er sérstaklega hrifin af aspas. Mér finnst hann góður ofan á pítsu, í súpu, í brauðréttum og hvaðeina! 

Alla vega finnst mér  hann ljúffengur! Ég prufaði ansi góðan aspas rétt um helgina, hann heppnaðist mjög vel. Ég hef séð réttinn í ótal mörgum blöðum og matreiðsluþáttum. Hann er víst sérlega góður með hollandaise sósu og borin fram sem forréttur. 
 Við borðuðum hann þó sem meðlæti með nautakjöti. 

Aðferð

Byrjið á því að skræla neðri hlutan af aspasinum og sjóðið hann í saltvatni í fjórar mínútur. Þerrið hann vel og vefjið parmaskinkusneiðum í kringum. 
Ég lét eina sneið af parmaskinku í kringum tvo aspasstöngla. 

Penslið smá ólífuolíu yfir og stráið salt&pipar yfir. 

Inn í ofn við 210°C í 10 mínútur. 

Stráið rifnum parmesan ost yfir og smá ólífuolíu þegar að hann er kominn út úr ofninum.

Stökkur aspas með parmaskinku og parmesan osti. 

Ótrúlega gott! Næst ætla ég að prufa að hafa þennan rétt sem forrétt og hafa hollandaise sósu með.
Það verður svo sannarlega í bráð vegna þess að þetta var ljómandi þá meina ég ljómandi gott.




Nautakjöt, smjörsteiktir sveppir, aspas vafin í parmaskinku, hvítlaukschili kartöflubátar og salat. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, March 14, 2012

Norge

 Mikil ósköp sem það var gott að komast í foreldrakot og hitta yndislegu fjölskyldu mína í gær. Og mikið er gaman að vera komin til Noregs aftur.

Níu ár frá því að ég flutti heim til Íslands,  níu ár.
Asskoti sem tíminn er fljótur að líða. 
Ég ætla að vera hér í Noregi í nokkra daga, mjög huggulegt umhverfi. Ég ætla að njóta þess að vera í faðmi fjölskyldunnar, borða góðan mat, leika við strákana mína og hitta gamla vini. 



Ég og strákarnir mínir höfðum það huggulegt í kaffitímanum og bökuðum kókos jógúrtkökur 

Elsku mamman mín og Daníel Mar.

Ég vona að þið hafið átt ljúfan dag.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, March 13, 2012

Vinningshafinn í gjafaleiknum.

 
Það tóku alls 381 þátt i gjafaleiknum. 

Sigurvegarinn að þessu sinni er

Ragnhildur Ragnarsdóttir
Netfang:raggaragg@hotmail.com

Hennar athugasemd var nr.47

Til hamingju þú hefur unnið gjafabréf fyrir tvo í þriggja rétta máltíð á Hótel Rangá.

  Þúsund þakkir fyrir góða þáttöku.
 Ég kem svo sannarlega til með að hafa fleiri leiki svo það er um að gera að fylgjast vel með blogginu.


Hafið það sem allra best.
 



 xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, March 11, 2012

Mini-ostakaka


Ég er ansi hrifin af ostakökum og skyrkökum. 

Famelían ætlar að koma til mín í kvöld og langaði mig til þess að bjóða þeim upp á eitthvað gott, eitthvað sem tekur ekki mikinn tíma til þess að laga og er tiltölulega einfalt. 
Ég ákvað að laga þessar mini-ostakökur því mér finnst þær bæði svakalega góðar og fallegar að bera fram. 

Mjög einföld og fljótleg uppskrift. 

Þessi uppskrift er fyrir 4 - 5 manns. 

Uppskrift

140 gr. Digestive kexkökur
50 gr. Lu Bastogne kexkökur
120 gr. Smjör, brætt. 
1 msk. Púðursykur
25 gr. Flórsykur
200 gr. Philadelphia rjómaostur/ Eða vanilluskyr
120 gr. Rjómi
120 gr. Dökkt súkkulaði, brætt. 
Fræ úr 1/2 vanillustöng
1 tsk. Vanilla Extract
Fersk ber að eigin vali, ég notaði hindber í þetta sinn. 
Hvítt súkkulaði til skreytingar

Aðferð 

  1. 1. Kex, púðursykur og smjör sett í matvinnsluvél þar til þetta verður orðið að fínni blöndu líkt og sést á mynd hér fyrir neðan. 
  2. Þeytið rjóma,bætið flórsykrinum, vanillu fræjum og vanilla extract saman við. Ég lét rjómablönduna í aðra skál í augnablik á meðan að ég lét rjómaostinn í hrærivélina í smá stund, svo blandaði ég rjómablöndunni saman við rjómaostinn. Blandið þessu vel saman í hrærivél í um það bil tvær mínútur. 
  3. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. 
  4. Þá er að finna til skálar, mér finnst þó ansi lekkert að bera kökuna fram í fallegum glösum. Hæfilega mikið í hverju glasi vegna þess að oft vill maður bara smá sætt eftir þunga máltíð. 
  5. Kexblandan fer fyrst í glasið, svo vel af ostablöndunni, ein skeið af bræddu súkkulaði, smá kex ofan á, aðeins meiri ostablanda, aftur smá súkkulaði og síðan  fersk ber. Rífum svo niður hvítt súkkulaði á toppinn. Það gefur eftirréttinum extra gott bragð. 
  6. Það er hægt að bera kökuna strax fram en ég mæli þó með því að hún verði í kæli í 2 - 3 klst áður en þið berið hana fram. 
Ég vona að þið njótið vel. Ég er mjög spennt að fá mér þennan eftirrétt í kvöld. 















Það væri nú ekkert fjör ef við hefðum ekki eftirrétti. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Saturday, March 10, 2012

Það er ekki skylda að við séum sammála í einu og öllu en við eigum að bera virðingu hvort fyrir öðru.


Ég hef verið að velta fyrir mér Facebook undanfarið í ljósi þess að svo margir tala um það hvar  við eiginlega værum ef ekki væri fyrir Facebook.

Auðvitað er þetta frábær miðill að mörgu leyti, auðveldar samskiptin og öflugur auglýsingamiðill.
Virðing í garð annarra er þó lítil á Facebook, að því leytinu að hver og einn þykir öðrum betri. Fólk keppist um að deila fréttum, það er ekkert að því að deila fréttum en fólk lætur oft sínar sterku skoðanir fylgja með,  sömuleiðis hvað varðar stöðuuppfærslur.

Það er ekki skylda að við séum öll sammála í einu og öllu en við eigum að bera virðingu hvort fyrir öðru. Aðgát skal höfð í nærveru sálar, mér finnst þessi setning eiga vel við þar sem alltof margir deila skoðunum sínum  á þann máta sem ekki er við hæfi að mínu mati.   

Fólk ætti að vera meðvitað um það sem það segir á internetinu. Það er ekki hægt að skýla sig á bakvið tölvuna. 
Mér finnst eins og fólk geri sér ekki grein fyrir skrifum sínum oft á tíðum, því það er alveg jafn þýðingarmikið að skrifa á netinu og að segja það beint við manneskjuna. 

Ég hef verið óþægilega oft vitni af því á Facebook að fólk þurfi að skýla sig á bakvið tölvuna í þeim tilgangi að rífa aðrar manneskjur niður og að upphefja sjálfan sig á kostnað annarra. Þetta kallast á góðri íslensku heigulskapur. 

 Það sem þú segir á netinu stendur. Hvort sem þú eyðir því út eður ei,  það sem þú skrifar á netinu gildir.  

Tökum ábyrgð á því sem við setjum á netið, hugsum fyrst, skrifum svo. Einblínum á það sem gott er –  það er ferlega leiðinlegt að fylgjast með þessum dómsal sem Facebook er meira og meira að verða að. 

Við erum ekki dómarar, það gera allir mistök, ég geri mistök og þú gerir mistök.

 Í fyrsta lagi  er enginn klárari en annar, það er ósköp hættulegt fyrir þann einstakling sem lítur þannig á sig að vera með gjörsamlega allt á hreinu og að aðrir sem eru honum ekki sammála séu eintómir vitleysingar. 

Ég held að það sé hættulegt fyrir hvern og einn einasta að telja sig vera betri en annar.

Í öðru lagi hafa allir þann rétt að trúa á sig og sínar skoðanir. Það er enginn ein skoðun réttmætari en önnur. Við þurfum að læra að virða aðrar skoðanir í stað þess að lítillækka þær manneskjur sem eru ekki sammála okkar eigin skoðunum.  

Gagnrýnin hugsun er mikilvæg, við erum oft fljót að taka okkur afstöðu án þess að vita meira um málið.

Laugardagshugleiðing  Evu sem er komin með leið á leiðindum. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, March 6, 2012

Grænt ofurboozt











xxx

Eva Laufey Kjaran

Gjafaleikur


Mér finnst fátt skemmtilegra en að klæða mig upp og fara fínt út að borða ásamt manni mínum, fjölskyldu eða vinum. Að borða á góðum stað og vera í góðum félagsskap er algjör draumur í dós.

Mér þykir mjög vænt um heimsóknirnar sem ég fæ á bloggið og mig grunar að við eigum það öll sameiginlegt að þykja gott að borða góðan mat.


Ég ákvað því að vera með smá leik þar sem þið lesendur góðir hafið kost á því að næla ykkur í gjafabréf fyrir tvo í þriggja rétta máltíð á Hótel Rangá.


Hótel Rangá var nýverið nefnt eitt af 100 bestu hótelum í Evrópu af Sunday Times í Bretlandi.

Huggulegt hótel sem er þekkt fyrir hlýlega gistiaðstöðu, frábæra þjónustu og sælkera mat.





Algjörlega málið fyrir þá sem vilja hafa það huggulegt á góðum stað í yndislegu umhverfi.


Það sem þið þurfið að gera til þess að eiga möguleika á því að næla ykkur í gjafabréfið er að skrifa nafn og netfang fyrir neðan færsluna í athugasemdakerfið og gefa blogginu eitt like á Facebook.
Ef þið hafið nú þegar gefið blogginu like þá er nóg að setja bara nafn og netfang í athugasemdakerfið.


Ég dreg vinningshafann út þann 13.mars og þið hafið því viku til þess að taka þátt í leiknum.


Ég vona að sem flestir taki þátt því þetta er svo sannarlega huggulegur vinningur.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, March 4, 2012

Bláberja cupcakes


 Ef það er eitthvað sem ég gæti borðað alla daga þá eru það þessar ljúffengu bláberja cupcakes.
Þær eru ferlega fljótlegar og eiga alltaf vel við.

Hér kemur uppskriftin fyrir ca. 12 cupcakes.

280 gr. Hveiti 
1 tsk. Lyftiduft
1 tsk. Salt
115 gr. Púðursykur
2 egg
150 gr. Bláber (Frosin eða fersk)
250 ml. Mjólk
85 gr. Brætt smjör
1 tsk. Vanilla Extract
Rifinn börkur af einni sítrónu

Aðferð

Byrjum á því að stilla ofninn á 200°C.

Sigtið saman hveiti, lyftiduft og salt í stóra skál. Bláberjum og sykrinum er síðan bætt saman við varlega með sleif. Finnum okkur aðra skál, pískum eggin og bætum mjólkinni, smjörinu, vanillu extract saman við.   
Blöndum því næst eggjablöndunni saman við þurrefnin og blöndum því vel saman. 
Síðast en ekki síst bætum við sítrónubörknum við.
Þessu er síðan öllu blandað svakalega vel saman og beint í falleg cupcakesform.


Inn í ofn við 200°C í 20 mínútur. 


 Fallegar bláberja cupcakes. 
Ég mæli með að þið prufið þessa uppskrift. 

Ég vona að þið eigið ljúfan dag.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Hamingja


 Þann 1. mars kom litli strákurinn hennar Öglu vinkonu minnar í heiminn. 
Hann er yndislegur lítill prins. Ég er svo montin af nýja vini mínum að ég gæti sprungið. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Thursday, March 1, 2012

Marsmánuður

Kaffið dásamlega gerir daginn alltaf betri.

Ég varð hálf fúl út í veðrið í gær, ég var búin að bjóða vorið velkomið og þá fór að snjóa.
Þetta veðurfar, þetta veðurfar.

En nú er Mars kominn og mikið sem ég er ánægð með það. Nú er ekki svo langt í sumarið ljúfa sem ég held að við séum farin að þrá. 

Og þó, ég held ég eigi nú eftir að sakna þess að bölva veðrinu í morgunsárið.

Ég vona að þið eigið ljúfan dag og ég vona líka að þetta sé síðasti snjódagurinn okkar.

Á næstu dögum ætla ég að vera með smá leik hér á blogginu svo endilega fylgist með.

xxx

Eva Laufey Kjaran sem þráir sól