Wednesday, December 28, 2011

Vanillubomba með ferskum jarðaberjum.


Ég elska vanillukökur og geri reglulega vanillumúffur. Ég ákvað því  að prufa að útbúa vanilluköku með vanillukremi. Kakan var reglulega góð með ferskum jarðarberjum.

Vanillubomba, hér kemur uppskrifin.

5 Eggjahvítur
180 ml. Mjólk
3 tsk. Vanillu extract (Eða vanilludropar)
285 gr. Hveiti
350 gr. Sykur
3 msk. Maizena mjöl
20 gr. Lyftiduft
170 gr. Smjör
1/2 tsk. Salt




Byrjum á því að stilla ofninn á 180°C. Tökum síðan til hráefnið og hefjum huggulegheitin.

Sigtum hveitið, saltið, lyftiduftið og maizena mjölið. Fimm sinnum í gegnum sigtið.

Þarna var ég búin að sigta fimm sinnum og hveitiblandan aldeilis létt og fín.

Pískum léttilega eggjahvíturnar, mjólkina og vanillu extractinn saman.


Blöndum hveitiblöndunni og sykrinum saman í tvær mínútur í hrærivélinni. 


Bætum einum og einum smjörbita saman við. Munið að hræra þessu saman á lágum hraða svo hveitið fari ekki út um allt. 

Svona lítur deigið út þegar að það er tilbúið að fá til sín eggjablönduna.
 Bætum henni saman við í þremur pörtum. 

Blöndum þessu vel saman í nokkrar mínútur. 

Mmm, þetta deig er svo dásamlega gott!

Inn í ofn við 180°C í 25 - 30 mínútur. 

Á meðan að kakan er í ofninum þá einbeitum við okkur að kreminu góða. 

Vanilla Frosting.

7 Eggjahvítur
5 dl. Sykur
Fræin úr einni vanillustöng

Setjum eggjahvíturnar, sykurinn og fræin í skál. Setjum vatn í pott og bíðum þar til suðan kemur upp þá skellum við skálinni ofan í og byrjum að hræra. 

Þetta tekur nokkrar mínútur og maður þarf að vera duglegur að hræra vel í allan tímann. 

Um leið og kremið verður orðið fluffy þá tökum við skálina af hellunni og setjum kremið í hrærivélina.

Hrærum og hrærum þar til skálin verður orðin köld, því kremið er verulega heitt. Tekur um það bil 6 -7 mínútur að verða klárt. 

Jarðaberin sætu 
Nú eru kökurnar tilbúnar og ilmurinn um heimilið yndislegur

Kremið tilbúið svo nú er bara að bíða eftir að kökubotnarnir kólni vel. 

Svo er það bara að setja kremið á kökuna.





Ljúf og góð vanillubomba. 

Ég skreytti svo kökuna með ferskum jarðaberjum og reif niður smá súkkulaði.

(Ég mæli  með því að stappa 50 gr. af ferskum jarðaberjum eða hindiberjum saman við kremið sem þið ætlið að hafa á milli botnana. ) Ég held að það gæti verið algjört æði.

Um að gera að prufa allt mögulegt því möguleikarnir eru endalausir. 



Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Jólamyndataka hjá Edit.

Við systkinin fórum í myndatöku fyrir jólin hjá henni Edit. Hún er sko algjör snilli :o)






xxx
Eva Laufey Kjaran

Sunday, December 25, 2011

Dásamlegur tími


 Gleðileg jól


 Þessi bið er ansi erfið

 Þetta er besta súpan sem ég veit um. Jólasúpa mömmu. 

 Ég er með sérþarfir á jólum, mamma eldar handa mér purusteik á meðan að hinir borða hamborgarahrygg.

Kaffi og konfekt. 

Ótrúlega sæl og þakklát með kvöldið. Naut þess að vera með fjölskyldunni og tengdafjölskyldunni á þessu fallega kvöldi. 

Ég vona að þið eigið yndislegar stundir um jólin.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Saturday, December 24, 2011

Gleðileg jól

Ég óska ykkur gleðilegra jóla kæru lesendur og farsældar á nýju ári.Vonandi verður árið 2012 ykkur öllum gjöfult og gott.
Ég vona að þið eigið yndislegar stundir yfir hátíðirnar með ykkar fólki.


Jólaknús 

Eva Laufey Kjaran


Friday, December 23, 2011

Skötupartí

Skötuveisla hjá ömmu og afa í kvöld. Nú eru jólin að koma! Ég fæ mér alltaf skötu, ég viðurkenni að ég fæ mér hana bara til þess að vera með. Hún er þó ágæt blessunin, kannski ekkert sú besta en alls ekki sú versta. Lyktin er líka svo dásamleg að ég vil helst ekki fara í sturtu.

Ég á eftir tvær gjafir. Ég byrjaði þó á gjafakaupum í sumar, ætlaði nú aldeilis að vera sniðug og vera búin með þetta fyrir jólin. En eins og gerist nú stundum þá bíður maður með eitthvað fram að síðustu stundu, en ég þykist vita að fleiri eru í sömu sporum og ég. Það eru allavega nógu margir niðri í bæ að klára kaupin :o)
Ég ætla að klára þessar gjafir og kíkja svo aðeins á kaupfélagið með góðu fólki yfir góðum kakóbolla eða rauðvínsglasi, kannski ég fái mér bæði. Hvur veit! 


Laufabrauðin yndislegu í fallega boxinu sem afi smíðaði. 


Maren og Daníel í stuði. 

Skatan komin á borðið og lyktin var unaðsleg.

Rósa Allans með tökin á hreinu eins og venjulega.


Amma mín og ég, lyktin var pínu óbærileg svona nálægt pottunum.

Fallegar mæðgur.
Sigurrós, Sesselja Laufey og amma Stína.



xxx
Eva Laufey Kjaran