Thursday, April 19, 2012
Vinningshafinn í gjafaleiknum...
Sumardagurinn fyrsti
Sumardagurinn fyrsti hófst með lestri fyrir blessuð prófin en um kaffileytið þá tók ég fagnandi á móti sumrinum ásamt vinkonum mínum og litla vini mínum honum Rúrik.
Við prufuðum nýja kaffimatseðilinn á Galító og allt var rosalega gott.
Virkilega skemmtilegt eftirmiðdegi.
En nú hefst hagfræðifjör á ný.
En nú hefst hagfræðifjör á ný.
Ég vona að þið hafið átt ljúfan dag.
Gleðilegt sumar.
Gleðilegt sumar.
Fallegar systur. Saga Dís og Hekla María.
Yndislegi Rúrik og Helena.
Ansi flottar mæðgur.
xxx
Eva Laufey Kjaran
Wednesday, April 18, 2012
Að slá um sig
Í dag náði ég að hitta dásamlega vini, borða með þeim og hlæja mikið.
Það er nauðsyn að hitta góða vini! Sérstaklega á meðan próflestri stendur, gefur manni auka kraft í að lesa fleiri blaðsíður. Hlátur og gleði hafa góð áhrif á heilann!
Ég og Guðrún Selma nutum þess að borða Sushi í hádeginu, förum reglulega á sushi deit og það er alltaf jafn huggulegt og skemmtilegt.
Ég og Stefán Jóhann kíktum á búlluna eftir að hafa kíkt í útgáfuteitið hennar Sólveigu. Hún var að gefa út bókina Korter og ég hlakka ótrúlega mikið til að lesa þá bók.
Huggulegur dagur og sólin skein.
Sumarið kemur á morgun, ég ætla að vakna snemma og taka vel á móti því.
xxx
Eva Laufey Kjaran
Tuesday, April 17, 2012
17.04.12
Ég ætlaði bara rétt að minna ykkur á gjafaleikinn ég dreg út þann 19.apríl.
Ég er með fiðrildi í maganum. Ný verkefni í dag sem ég er spennt að takast á við en á sama tíma pínulítið nervös.
Ég vona að þið eigið ljúfan dag
xxx
Eva Laufey Kjaran
Monday, April 16, 2012
Good morning!
Mánudagur. Ný vika, spennandi vika!
Ég vaknaði eftir snooze stríð og sá að sólin skein, hamingja. Ég útbjó mér góðan morgunmat, drakk gott kaffi og fór í gegnum fréttasíður. Mér finnst agalega huggulegt á byrja daginn nákvæmlega svona.
Ég bakaði brauð í morgun, stútfullt af kornum. Uppskrift kemur inn á bloggið í vikunni. Það tók mig líklega styttri tíma að baka brauðið en að fara út í búð og kaupa brauð.
Dagurinn í dag fer í lærdóm, útihlaup og bakstur í kvöld. Ég er mjög spennt fyrir bakstrinum því ég ætla að prufa nýja rétti. Þið fáið auðvitað uppskrift af þeim réttum þegar þar að kemur.
Létt ab mjólk með agave, hörfræjum, ástaraldin og jarðaberjum. Nýbakað brauð smá smjöri, eggjum, papriku og pipar.
Ég vona að þið hafið það gott í dag.
xxx
Eva Laufey Kjaran
Saturday, April 14, 2012
Oreo Cupcakes
12 Dásamlegar Oreo cupcakes
125 gr. Smjör
2 dl. Sykur
2 Egg
1 dl. Mjólk
3 dl. Hveiti
1,5 tsk. Lyftiduft
1 tsk. Vanillusykur (Eða vanilla extract)
50 gr. Oreo kexkökur, mulið í grófa bita.
1. Hrærið saman í hrærivél smjöri og sykri, blandið síðan einu og einu eggi út í.
3. Bætum einu og einu eggi saman við, gott að hræra fyrsta eggið saman við í tvær mínútur og bæta síðan hinu við.
4. Blandið þurrefnum saman í aðra skál þ.e. hveiti, vanillusykur og lyftiduft. Sigtið þrisvar til fimm sinnum í gegnum sigti.
5. Síðan er hveitiblöndunni og mjólkinni blandað saman við smjörblönduna, smátt og smátt.
Eftir nokkrar mínútur verður áferðin silkimjúk og þá er tími til að blanda oreo kökunum saman við í hér um bil eina mínútu eða svo.
Dásamlegt deig!
Þá er að setja deigið í bollakökuform og inn í ofn við 200°C í 20 mínútur.
Tilbúnar og fallegar. Kælið kökurnar vel áður en þið setjið krem ofan á.
Þessi grænu form eru keypt í Hagkaup og eru ótrúlega góð. Stór og góð. En ég ákvað að skipta um form að loknum bakstrinum vegna þess að mér fannst hvít form koma betur út, þ.e.a.s. fallegra myndefni. En það skiptir náttúrlega engu máli hvaða form þið notið, kökurnar smakkast alltaf jafn vel.
Þessi grænu form eru keypt í Hagkaup og eru ótrúlega góð. Stór og góð. En ég ákvað að skipta um form að loknum bakstrinum vegna þess að mér fannst hvít form koma betur út, þ.e.a.s. fallegra myndefni. En það skiptir náttúrlega engu máli hvaða form þið notið, kökurnar smakkast alltaf jafn vel.
Ég notaði mjög einfalt krem sem kom nokkuð vel út.
2 dl. Rjómi
2 1/2 msk. Flórsykur
1/2 tsk. Vanilla extract
6 Oreo kexkökur
Byrjum á því að þeyta rjómann, bætum vanillu extract og flórsykrinum saman við í pörtum.
Ég sigtaði mulið oreo út í kremið sem fór á nokkrar kökur. Þið sjáið á myndunum að þær eru dekkri.
Ég sigtaði mulið Oreo yfir allar kökurnar og braut nokkrar kökur og notaði sem skraut.
Reglulega góðar og einfaldar kökur. Að mínu mati getur ekkert klikkað sem inniheldur Oreo.
Beauties
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran
Friday, April 13, 2012
Taco-og fajita.
Í vikunni þá var taco-og fajita í matinn. Mikil ósköp sem mér finnst það gott. Einfalt, fljótlegt og bragðmikið. Mér finnst agalega gott að nota hakk, kjúkling eða fisk þegar að ég er með þetta í matinn.
Upplagt að hefja góða helgi með góðum mat.
Góða helgi og njótið ykkar um helgina.
Ég minni svo á gjafaleikinn í færslunni fyrir neðan.
xxx
Eva Laufey Kjaran
Subscribe to:
Posts (Atom)
