Showing posts with label Út að borða. Show all posts
Showing posts with label Út að borða. Show all posts

Tuesday, October 20, 2015

Mæli með.... Public House


Ég elska að fara út að borða og njóta í góðra vina hópi. Úrvalið af góðum veitingastöðum er gott og það er svo gaman að fara út að borða, allir staðir troðfullir af fólki og miðbærinn iðar af mannlífi. Ég og vinkona mín hún Dísa fórum út að borða á Public House og mamma mía hvað við fengum góðan mat. Bragðlaukarnir dönsuðu hreinlega... já við erum ekkert að skafa af því. Við fórum í óvissuferð og fengum að smakka það besta af matseðlinum, mitt uppáhald var Faux pizza sem er Japönsk gyoza pizza með geitaosti. Algjört lostæti! 

Við sátum í nokkrar klukkustundir, borðuðum, drukkum hvítvín og spjölluðum. Ég mæli með að þið farið á Public House, maturinn og þjónustan til fyrirmyndar og verðlagið gott fyrir budduna. Að fara í fín föt, setja á sig varalit og eiga notalega kvöldstund með vinum er hreint út sagt dásamlegt... já þetta er alveg nauðsynlegt að gera vel við sig af og til.

Ég ætla í samstarfi við Public House að gefa heppnum lesenda gjafabréf fyrir 2 í óvissuferð fyrir sælkera. Eina sem þið þurfið að gera er að skrifa nafn og netfang í athugasemd fyrir neðan þessa færslu. Dregið verður út á föstudaginn.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir





Tuesday, August 14, 2012

Gjafaleikur - Restaurant Reykjavík


Ég held að það sé fátt huggulegra en að klæða sig upp og fara fínt út að borða með góðu fólki. 
Að gera sér almennilegan dagamun og njóta. 

Restaurant Reykjavík er glæsilegur veitingastaður í hjarta borgarinnar. 
Húsið var byggt árið 1863 svo það má með sanni segja að þetta sé veitingastaður með sál. 

Það ættu allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi á glæsilega matseðlinum. Hvort sem það er í hádeginu eða að kvöldi til. Ég er handviss um að við eigum nokkra sumardaga eftir og þá er nú huggulegt að sitja úti á pallinum og snæða ljúffenga máltíð með góðu fólki. 

Þið lesendur góðir eigið möguleika á að næla ykkur í gjafabréf að andvirði 15.000 kr. á veitingastaðnum Restaurant Reykjavík. 

Það sem þið þurfið að gera til þess að eiga möguleika á því að næla í gjafabréfið er að skrifa nafn og netfang fyrir neðan færsluna í athugasemdakerfið og gefa blogginu "like" á facebook. Ef þið hafið nú þegar gefið blogginu "like" þá er nóg að setja nafn og netfang í athugasemdakerfið. 

Ég dreg vinningshafann út þann 23. Ágúst

Ég hvet ykkur til þess að taka þátt, gjafabréfið er svo sannarlega málið fyrir þá sem vilja hafa það huggulegt á góðum stað í hjarta borgarinnar. 



xxx

Eva Laufey Kjaran


Thursday, April 19, 2012

Sumardagurinn fyrsti

 Sumardagurinn fyrsti hófst með lestri fyrir blessuð prófin en um kaffileytið þá tók ég fagnandi á móti sumrinum ásamt vinkonum mínum og litla vini mínum honum Rúrik.
Við prufuðum nýja kaffimatseðilinn á Galító og allt var rosalega gott.
Virkilega skemmtilegt eftirmiðdegi.

En nú hefst hagfræðifjör á ný.
Ég vona að þið hafið átt ljúfan dag.

Gleðilegt sumar.




 Fallegar systur. Saga Dís og Hekla María.


Yndislegi Rúrik og Helena.
 Ansi flottar mæðgur.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Saturday, December 3, 2011

Þrír Frakkar

Í kvöld þá fórum við  Haddi ásamt vinafólki okkar út að borða á veitingastaðinn Þrír Frakkar. Þetta var í fyrsta skipti sem ég hef komið þangað og ég var ótrúlega ánægð með kvöldið. Fallegur og heimilislegur veitingastaður, góð þjónusta, fjölbreyttur matseðill þar sem rík áhersla er lögð á sjávarfang. 

Ég tók fáeinar myndir af öllum þeim ljúffengu réttum sem við fengum að prófa. 

 Í forrétt fengum við að smakka á öllum smáréttum sem í boði eru á matseðlinum.
 Hval, lunda, hreindýrapaté, makríl og túnfisk.

Ég verð að viðurkenna að þetta er líkast til ekki eitthvað sem ég myndi vanalega panta mér, alltaf föst í því sama en ég varð fyrir óvæntri ánægju með matinn. Ég var sérlega hrifin af lundanum, ég var að smakka hann í fyrsta sinn og hann var mjög góður. 

 Þetta er nú dásemdin ein. Ferskur kræklingur, sem týndur var um hádegi í dag.
Í hvítvínshvítlaukssósu. Gómsætt!



 Fyrsti aðalrétturinn af þremur voru heilsteikt sítrónukrydduð Rauðsprettuflök með kaldri Wasabi sósu.

 Annar aðalrétturinn var smjörsteikt lúðuflök með humar í humarsósu. (Mitt uppáhald þetta kvöldið)

 Þriðji aðalrétturinn var ferskur léttsteiktur Blá-ugga Túnfiskur með soya-smjörsósu og wasabi kartöflumús.

 Eftirrétturinn dásamlegi.. Skyr Brulée, vanilluís og frönsk súkkulaðikaka. Ómæ ómæ, ég þarf nú varla að lýsa því hvað þetta var ljúft. Myndin talar sínu máli. 

 Södd og afskaplega sæl með gott kvöld. 



Frábært kvöld, sérlega góður staður sem ég mæli hiklaust með að þið prófið. Þetta er veitingastaður með sál og þangað ætla ég svo sannarlega aftur að fara sem fyrst 

Ég vil þakka Eyþóri matreiðslumanni sérlega fyrir okkur. 

xxx

Eva Laufey

Sunday, November 20, 2011

Rjómalagaður laugardagur.

Í gær var svo sannarlega rjómalagaður laugardagur. Ég fór í jólabrunch með vinkonum mínum á Nítjándu, þar borðaði ég yfir mig af ljúffengum kræsingum og hafði það notalegt í góðum félagsskap. Seinna um daginn fórum við Haddi út að borða með vinafólki okkar og svo að sjá uppistand með þeim Pétri Jóhanni og Þorsteini Guðmunds. Algjör snilld sú sýning. Svo lá leiðin upp á Skaga í pæjupartí og á ball með Páli Óskari. Jeremías hvað þetta var skemmtilegur dagur. Eins og ég sagði hér áður, rjómalagaður.

xxx












Friday, November 4, 2011

Ó svo yndislegur dagur í borginni.



Jómfrúin í hádeginu. Betra verður það ekki.
Maren Rós fjörug á fertugsaldri.
Elsku amman mín
Móðir mín fallega.
Mæðgur aðeins að rökræða hver ætti að taka reikninginn eins og gerist stundum. 

xxx