Thursday, August 23, 2012

Vinningshafinn í gjafaleiknum er...



Það var hún Bryndís (bro11@hi.is) sem vann gjafabréfið í þetta sinn.
 Innilega til hamingju með gjafabréfið Bryndís og njóttu vel.

Alls tóku 305 manns þátt í gjafaleiknum. Þúsund þakkir fyrir þáttökuna. Ansi skemmtilegt :-) 

Ég mæli þó innilega með því að þið farið og eigið notalega kvöldstund með ykkar fólki á Reykjavík Restaurant. Góður matur og góður félagsskapur er uppskrift að ansi yndislegu kvöldi. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Thursday, August 16, 2012

Sólskin

 Vaknaði í morgun við sólskin! Það var ansi ánægjulegt. Ég og vinkonan mín hún Oddný fórum í lunch á Garðakaffi, mjög huggulegt kaffihús hér á Akranesi. Mæli innilega með því!
Fengum okkur dýrindis Garðaloku og gott kaffi, sátum úti og sóluðum okkur.

En nú er komið að því að huga aðeins að garðinum, þessi arfi reitir sig ekki sjálfur. 

Ég vona að þið eigið góðan dag í sólinni. 


 Oddný er í algjörum sérflokki, svo mikið yndi.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, August 15, 2012

Banana ís


Banana hamingja


Þessi ís er af einföldustu gerð, nákvæmlega eins og við viljum hafa það. 
Bananar eru guðdómlegir, hægt að nota þá í allt. Ég sá skemmtilega uppskrift af banana ís og ákvað að slá til og prufa. Þessi ís kom mér skemmtilega á óvart, bragðgóður og ferskur. 

1 banani, skorinn í litla bita og frosinn
1/2 tsk vanilla extract 
1/2 dl mjólk

Frosin bláber, skraut
Rifið dökkt súkkulaði, skraut

Ég skar niður banana og lét í frysti í nokkrar klukkustundir, mjög sniðugt ef þið eigið banana sem eru að verða frekar brúnir að skera þá í litla bita og setja í frysti.
Agalega þægilegt að nota þá til þess að laga ís, í booztinn eða í baksturinn. 

En að máli málanna , allt er sett í blandara í nokkrar mínútur, þegar þetta er orðið silkimjúkt þá er ísinn klár. Ég bætti nokkrum bláberjum og reif niður dökkt súkkulaði til þess að hafa ofan á ísnum. Það var ansi gott! Svo hef ég heyrt að það sé gott að setja hnetusmjör saman við ísinn.

 Möguleikarnir eru margir! Hvet ykkur til þess að prufa. 




Hægt er að borða þennan ís með góðri samvisku.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, August 14, 2012

Gjafaleikur - Restaurant Reykjavík


Ég held að það sé fátt huggulegra en að klæða sig upp og fara fínt út að borða með góðu fólki. 
Að gera sér almennilegan dagamun og njóta. 

Restaurant Reykjavík er glæsilegur veitingastaður í hjarta borgarinnar. 
Húsið var byggt árið 1863 svo það má með sanni segja að þetta sé veitingastaður með sál. 

Það ættu allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi á glæsilega matseðlinum. Hvort sem það er í hádeginu eða að kvöldi til. Ég er handviss um að við eigum nokkra sumardaga eftir og þá er nú huggulegt að sitja úti á pallinum og snæða ljúffenga máltíð með góðu fólki. 

Þið lesendur góðir eigið möguleika á að næla ykkur í gjafabréf að andvirði 15.000 kr. á veitingastaðnum Restaurant Reykjavík. 

Það sem þið þurfið að gera til þess að eiga möguleika á því að næla í gjafabréfið er að skrifa nafn og netfang fyrir neðan færsluna í athugasemdakerfið og gefa blogginu "like" á facebook. Ef þið hafið nú þegar gefið blogginu "like" þá er nóg að setja nafn og netfang í athugasemdakerfið. 

Ég dreg vinningshafann út þann 23. Ágúst

Ég hvet ykkur til þess að taka þátt, gjafabréfið er svo sannarlega málið fyrir þá sem vilja hafa það huggulegt á góðum stað í hjarta borgarinnar. 



xxx

Eva Laufey Kjaran


Monday, August 13, 2012

Hollar smábitakökur


Smábitakökur í hollari kantinum 

Ég geri mér stundum smábitakökur í hollari kantinum, sérstaklega þegar skólinn er að byrja. Agalega gott að grípa þessar kökur með sér í morgunsárið. Þær eru líka ferlega sniðugar sem millimál. Ég geri þær voða sjaldan eins, nota bara það sem ég á til heima hverju sinni. Þessi uppskrift heppnaðist ágætlega og ég er ánægð með kökurnar. Prófaði í kaffitímanum eina köku með osti og það var ansi ljúffengt, svo það má með sanni segja að þessar kökur eiga alltaf vel við :-) 

En hér kemur uppskriftin, ca 12 kökur. 

2 bananar, stappaðir
1 bolli döðlur, skornar í litla bita og lagðar í bleyti í 1 - 2 mín.
2 bollar haframjöl
1 msk gróft hnetusmjör
1 1/2 msk hörfræ
Smá sjávarsalt og kanil
1 tsk olía

Þessu er öllu blandað vel saman í skál, látið blönduna standa í um það bil 10 mínútur og mótið síðan litlar kúlur, setjið kúlurnar á bökunarpappír í ofnskúffu. Inn í ofn við 180°C í 18 - 20 mínútur. Þá ættu kökurnar að vera tilbúnar. 

Stundum læt ég gróft kókosmjöl (1/2 bolla)og kókosólíu (1 msk), sleppi þá hnetusmjörinu og saltinu. Svo er nú hægt að bæta söxuðu dökku súkkulaði saman við, það er ansi ljúffengt. 

Ég mæli allaveganna með því að þið prufið. 













Ég vona að þið séuð búin að eiga góðan mánudag 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Reyðarfjörður


Um helgina þá skrapp ég til Reyðarfjarðar,  það eru tæplega sex ár frá því að við fjölskyldan fluttum þaðan svo það var kominn tími til að heimsækja bæinn.
Reyðarfjörður er einn fallegasti bær á Íslandi og ég hvet ykkur til þess að heimsækja bæinn. Bærinn er svo vinalegur og fallegur.

Ég prísa mig sæla að hafa fengið að búa þar í nokkur ár. Það var ótrúlega gott að hitta  vinkonur mínar, rifja upp gamla tíma, ótrúlega skemmtilega tíma! Þó svo að margt hafi breyst á þessum árum þá fannst mér einsog ég hefði átt heima þar alla mína tíð, svo gaman var að hitta vini mína aftur.

Veðrið var stórkostlegt þessa helgina. Þegar að ég kom á föstudaginn þá var sólskin og 26°C hiti! Ég var í sérlega góðu yfirlæti hjá vinkonum mínum alla helgina, vorum í sólbaði, borðuðum góðan mat og höfðum það ótrúlega gaman. Vel lukkuð helgi!

 Ég hlakka til að fara þangað aftur sem fyrst, læt nú ekki sex ár líða aftur!



Ég og Ragna mín skáluðum fyrir góða veðrinu
Bergey mín töfraði fram þetta ljúffenga sumarsalat.

Sátum úti á palli í hitanum langt fram á kvöld og spjölluðum.




Vinkonur á Reyðarfirði. 

Virkilega góð helgi og ég heppin að eiga svona yndislega vini.

xxx

Eva Laufey Kjaran

Friday, August 10, 2012

Föstudagspizza með kjúkling

Í dag er föstudagur og því tilvalið að gera vel við sig og baka gómsæta pizzu í kvöld. 
Ég prófaði mig áfram með kjúkling, BBQ sósu og rauðlauk í þetta sinn. Ég smakkaði svipaða pizzu hjá vinkonu minni fyrir nokkrum árum og hef eiginlega ekki hætt að hugsa um hana síðan, svo ég ákvað að prófa. Pizzan kom bara vel út og smakkaðist ansi vel. 



Pizza með BBQ kjúkling 

Speltbotn

250 g grófmalað spelt
1 tsk lyftiduft
1 tsk sjávarsalt
2 tsk kryddblanda (oreganó, basilika ofl.)
1 msk ólífuolía
200 g volgt vatn

Blandið saman spelti, lyftidufti, kryddblöndunni og saltinu. Bætið síðan volgu vatni og ólífuolíunni saman við og hnoðið. Stráið smá hveiti á borðið og fletjið deigið þunnt út. Það er líka gott að setja fyrst bökunarpappír svo deigið rifni nú ekki þegar þið setjið það í ofnskúffu (hef lent nokkrum sinnum í því) . Þá er deigið tilbúið og þið getið byrjað að dúllast við pizzugerð. 

BBQ kjúklingur 

2 kjúklingabringur
5 - 6 msk Honey Hickory BBQ sósa
Rauðlaukur
Salt og nýmalaður pipar
Ólífuolía

Skerið kjúklingabringurnar í litla bita, hitið olíu á pönnu og setjið kjúklinginn á pönnuna. Steikið í smá stund við vægan hita, bætið rauðlauknum og BBQ sósunni saman við. Leyfið þessu að malla í 5 - 7 mínútur, passið að hræra af og til í þessu. Stráið salti og nýmöluðum pipar yfir að vild! 

Setjið kjúklingablönduna á speltdeigið, stráið ferskum mozzarella ost yfir og inn í ofn við 180°C í 12 - 15 mínútur, eða þar til skorpan er orðin stökk og osturinn bráðnaður. 

Skerið í sneiðar og berið strax fram. Ég mæli með að gera einfalt salat með pizzunni, klettasalat, kirsuberjatómatar og ferskur mozzarella gera pizzuna enn betri.









Fátt betra en góð pizza á góðu kvöldi. 




Ég vona að þið eigið góða helgi 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, August 7, 2012

Top of the morning to ya



Fjórar morgunvaktir að baki þessa helgina og næturflug í nótt. Það má með sanni segja að það hafi verið fjör hjá mér um helgina, en ég var einmitt ein af þeim fimm sem voru á Akranesi um helgina. Ég gafst upp á því að vera á netinu þar sem annar hver vinur minn á facebook henti inn myndum af fjörinu í Eyjum eða á Ísafirði. 

Þar sem netið var ekki í boði, þá voru það blessuð húsverkin sem biðu. Ég náði að sortera fataskápinn, taka almennilega til, horfði á ÓL (húsverk) meira en góðu hófi gegnir, það var komið út í það að amma var að hvetja mig til þess að byrja að æfa fimleika. Ég gæti þetta sko alveg ef ég byrjaði að æfa núna. Þannig ég dreif mig bara út að hlaupa í staðinn, til að koma í veg fyrir að ég færi að skrá mig í fimleika. Ég náði þó að bæta hlaupatímann minn svo ég var ansi ánægð með það, toppurinn á helginni minni :) 

Ég naut þess í morgun að borða morgunmat í rólegheitunum, það eru ekki mikil rólegheit að vakna klukkan fjögur fyrir morgunvaktir og byrja á því að setja í sig rúllur. 
Létt AB-mjólk með múslí og smá agave sírópi. Ein snilld sem mig langar til þess að mæla með, gulrótarsafinn frá Sollu. Orkubomba! Eitt glas með morgunmatnum og orkan verður meiri. 

Ég vona að þið eigið góðan dag 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, August 1, 2012

Summerlovin


Ég hitti þessi uppáhöld í dag á veitingastaðnum Snaps. Ótrúlega skemmtilegur staður og maturinn ljúffengur. Mæli innilega með því að þið skellið ykkur! 

 Skál, fyrir miðvikudegi.

 Cesar salatið girnilega
 Smörrbröð einsog þau gerast best, dásamlegt! 
 Svo fórum við upp á þak í sólbað, Eva Laufey Ingibjörg var í stuði. 

Það er allt sko gaman þegar að sólin skín! Sumardagar eru hreinlega bestir þá sér í lagi með góðu fólki.

xxx

Eva Laufey Kjaran