Friday, September 21, 2012

Lasagne


Lasagne er einn af mínum uppáhalds réttum. Þetta er réttur sem klikkar sjaldan og hann er í raun aldrei eins. Það eiga flestir sínar eigin útgáfur af lasagne. Ég hef verið að prufa mig áfram með mína útgáfu af lasagne og ég er orðin býsna ánægð með réttinn. Að þessu sinni þá gerði ég ekki Bechamel sósuna vegna þess að ég var með svo mikið af ostum. Bechamel sósan er þó ansi ljúffeng í lasagne. 

Lasagne er alltaf gott og sannkallaður fjölskylduréttur. Ég veit ekki um marga sem myndu slá hendinni á móti góðu lasagne. Er nokkuð til betri leið en að hefja góða helgi en að hóa til sín fjölskyldunni og bjóða þeim upp á ljúffengt lasagne? Þannig eiga föstdagskvöld að vera að mínu mati, að byrja kvöldið á góðum mat og borða á sig gat, ég geri það nú einum of oft þegar lasagne á við sögu. Færa sig því næst upp í sófa, horfa á góða mynd og spjalla við fólkið sitt. Svo um leið og súkkulaðiþörfin kemur þá er fyllt á nammiskálina, það má allt á föstudögum. Ég er nú hrædd um það. 

En nóg um nammi og sófakúr, ég ætla að deila með ykkur uppskrift af mínu lasagne. 
Ég vona að þið eigið eftir að njóta vel. 

Lasagne

Fyrir um það bil 6 - 8 manns

2 msk ólífuolía 
1 kg nautahakk
1 stór stilkur sellerí, smátt skorinn
1 rauðlaukur, smátt skorinn
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
nokkrir sveppir ca. 8 - 9 , smátt skornir
1 tsk. steinselja, þurrkuð
spínat, magn eftir smekk
kotasæla, lítill dós
rifinn mozzarella ostur, magn eftir smekk
parmesan ostur, magn eftir smekk
1 pakki lasagne pasta
salt og nýmalaður pipar


Sósan

1 dós hakkaðir tómatar
1 dós Ítalía tómata passata
1/2 handfylli af ferskum basillaufum
2 - 3 msk tómatpúrra
3 dl vatn
1 kjúklingateningur
salt og nýmalaður pipar

                                   

Hitið olíuna í potti og steikið hvítlaukinn, því næst bætið þið rauðlauknum, selleríinu og sveppum saman við. Steikið við vægan hita í 1 - 2 mínútur. 

Færið grænmetið í skál og setjið nautahakkið á pönnuna og steikið vel. Kryddið nautahakkið ansi vel með salti, pipar og steinselju. 

Því næst náið þið ykkur í pott, setjið hakkið og grænmetið út í og byrjið á sósunni. Setjið allt út í sem ég nefndi hér að ofan, hrærið vel í þessu og leyfið þessu að malla við vægan hita í 15 - 20 mín. Ég læt stundum nokkur lárviðarlauf saman við blönduna og leyfið laufunum að malla með. Mér finnst þó fátt huggulegra en að dúllast í þessu, taka mér góðan tíma og leyfa sósunni að malla lengi. Kryddið kjötblönduna vel með salti og pipar, það er nauðsynlegt að smakka sig til því mér finnst alltaf eitthvað vanta. Meiri salt, meiri pipar, meiri basilika... það veit nú enginn nema við sjálf og þess vegna er algjör nauðsyn að smakka sig til. 


Hitið ofninn í 180°C. Setjið 1/3 af kjötblöndunni á botninn í eldföstu móti og setjið mozzarellaost, parmesan og spínat yfir. Raðið lasagne blöðum yfir og endurtakið leikinn, þetta lasagne var í þremur lögum. Ég lét kotasæluna aðeins yfir eitt lag. 



Mér finnst best að nota þessar lasagne plötur. 


Að mínu mati er virkilega gott að hafa kotasælu i lasagne. Rétturinn verður svolítið djúsí fyrir vikið og það líkar mér. Það er fátt betra en að fá sér bita af ljúffengu lasagne þar sem osturinn ræður ríkjum. 


Að lokum þá stráið þið mozzarella osti og parmesan osti yfir, mér finnst líka gott að setja smá salt og pipar efst. Bakið í ofninum í 35 - 40 mínútur. 


Það er virkilega gott að leyfa réttinum að kæla sig í allavega  10 mínútur áður en þið berið hann fram, hann er svakalega heitur og það er ekkert gott að borða of  heitan mat, þá borðar maður gjarnan matinn alltof hratt eða skolar honum niður með of miklu vatni því hann er sjóðandi heitur. Takið ykkur góðan tíma þegar rétturinn er tilbúin, leggið á borð, skálið í rauðvín eða í pepsí. Skiptir ekki máli hvað er í glasinu, allavega skálið. Það er að koma helgi.




Ég veit ekki með ykkur en svona og nákvæmlega svona vil ég hafa mitt lasagne, það nánast kemur á móti mér. Safaríkt og ljúffengt. Fangar augað mitt og þá er ekki aftur snúið. Það skemmtilega við réttinn er að hver og einn getur gert hann að sínum, ég nota oftast bara það sem ég á til inn í ísskáp hverju sinni. 



Berið lasagne fram með fersku salati og ef till vill hvítlauksbrauði. Rífið duglega af parmesan osti yfir og njótið, hver biti er dásemd. Það er skylda að setjast niður og njóta matarins, helst í góðum félagsskap. 

Ég vona að þið eigið dásamlega helgi framundan kæru lesendur

xxx

Eva Laufey Kjaran

Klúbbablaðið


Klúbbablaðið, nýjasta tölublað Gestgjafans er virkilega girnilegt. Það er fátt huggulegra en að fletta í gegnum girnileg matreiðslublöð og enn huggulegra að prufa uppskriftirnar. Allar uppskriftirnar sem eru að finna í þessu tölublaði eru að mínu mati einfaldar og þæginlegar. 

Ég og vinkonur mínar héldum Babyshower handa Evu vinkonu sem er núna orðin móðir, lítil falleg stúlka kom í heiminn fyrir nokkrum dögum. Babyshowerið tókst vel til og var ansi skemmtilegt. Mini-ostakökur, mini-samlokur, sítrónubitar, kökupinnar, límonaði og meira til. Þetta var frábær dagur með elsku vinkonum mínum.

Ég mæli eindregið með klúbbablaðinu. Bætir og kætir. 



xxx

Eva Laufey Kjaran

Monday, September 17, 2012

Smurbrauð og notalegheit


Ég hef nú margoft tekið myndir af fallega matnum á Jómfrúnni og sagt ykkur frá því að við mamma og amma förum reglulega þangað þegar mamma er á landinu. Systir mín hún Maren kemur líka með okkur þegar að hún er heima, verst að hún var ekki með okkur í þetta sinn. Það hefði verið reglulega huggulegt.

Við fáum ekki nóg af þessum ljúffenga mat á Jómfrúnni og dönsku stemmningunni sem ríkir þar. Virkilega huggulegt og mæli ég innilega með því að þið farið þangað og smakkið dásamlegu smurbrauðin.

Ég reyni að vera dugleg að hitta fjölskylduna mína og vini í hádeginu. Það brýtur svo sannarlega upp daginn. Suma daga hefur maður ekki mikinn tíma en það þarf ekki að vera mikill tími til að knúsast, blaðra og fá sér eitthvað gott!

Smá blaður, góður matur og góður félagsskapur, bætir og kætir! 


Góður kaffibolli eftir góða máltíð er nauðsyn.. og já einn súkkulaðibiti eða svo. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, September 16, 2012

Sunnudagur til sælu


Sit hér í rólegheitum í stofunni að drekka kaffi á nákvæmlega sama stað og ég drakk morgunkaffið mitt fyrir klukkan níu í morgun, að fletta í gegnum sömu matarblöðin, fæ aldrei nóg af girnilegum matarblöðum.

 Þessi helgi er búin að vera svo fljót að líða. Það hefur verið nóg að gera þessa helgina. Á föstudaginn þá steig ég algjörlega út úr þægindarammanum, var búin að vera svolítið stressuð en fann svo að lokum hvað það er nú gott að stíga út úr þægindarammanum. Ég er staðráðin í því að við lærum mest á því. Það er líka svo gaman þegar að maður fylgir því sem manni finnst gaman að gera og allt verður miklu skemmtilegra, þó svo að því fylgi stress og annað slíkt. Þá er það bara af hinu góða. 

Helgin er líka búin að vera sérlega hugguleg þar sem mamma mín er á landinu. Það er heimsins best. Himneskt að fá mömmumat, ég sit einmitt virkilega södd og sæl eftir sunnudagslambið hjá mömmu. Það er eitthvað svo sjarmerandi að fá læri eða hrygg á sunnudögum, skemmtileg fjölskylduhefð.

Lærdómur kallar og ég verð víst að leggja frá mér tölvuna og blessuð matarblöðin.
Ný vika að hefjast á morgun og ansi margt skemmtilegt á döfinni. 
Ég vona að hafið haft það einstaklega gott um helgina og fengið ykkur eitthvað svakalega gott að borða. 

Góða nótt

xxx

Eva Laufey Kjaran

Saturday, September 15, 2012

Hamborgaragleði


Það er fátt betra en matarmikill hamborgari. Hamborgarinn getur verið algjört lostæti, í mínum huga er hann ekki skyndibitafæði. Mér finnst hamborgarar geta verið holl og góð máltíð. Það er hægt að bera hamborgarann fram á marga vegu, hægt er að hafa með honum óteljandi sósur og meðlæti. 

Hamborgarar úr kjúklingakjöti eða fisk eru líka dásamlega góðir. Hægt er að bera hamborgarann fram í allskyns brauðum, ég var með að þessu sinni týpískt hamborgarabrauð sem ég keypti. En það er virkilega skemmtilegt að baka sitt eigið brauð, prufa eitthvað nýtt og spennandi. Það er náttúrlega dásemdin við matargerð, maður er alltaf að prufa og læra eitthvað nýtt. Möguleikarnir eru miklir og endalaust hægt að fikra sig áfram. 


Hamborgari - fyrir fjóra 

400 g nautahakk
1 egg 
1 msk brauðrasp
1/2 rauðlaukur, smátt saxaður
1 msk fersk steinselja (ég átti ekki ferska steinselju svo ég notaði steinseljukrydd)
1 tsk ítalskt krydd 
salt og nýmalaður pipar


Hnoðið öllu vel saman og mótið hamborgarana. Hitið olíu á pönnu og steikið hamborgarana í um 2 mínútur á hvorri hlið. (kryddið vel með salti og pipar) 
Stillið ofninn í 180°C, setjið hamborgarana á hamborgarabrauð. Skerið mozzarella ostinn í sneiðar, ég vil helst hafa þær svolítið þykkar. Setjið ostinn á hvern borgara og inn í ofn ásamt hamborgarabrauðinu í 1 - 2 mín, eða þar til osturinn er bráðnaður. 




Hægt er að bera hamborgara fram með mörgum sósum, mér finnst gamla góða hamborgarasósan alltaf góð en svo finnst mér ansi gott að breyta til. Að þessu sinni gerði ég gríska jógúrtsósu, sem mér finnst alltaf góð. Hægt er að bera þessa sósu með mörgum réttum. Ég læt ansi vel af hvítlauk í sósuna en það er náttúrlega bara smekksatriði. Ég dassa mig alltaf til þegar ég bý til þessa sósu og ég mæli með því að þið gerið slíkt hið sama. Þannig verður útkoman best og allir sælir með sósuna.

Grísk jógúrtsósa


Grískt jógúrt
Hvítlaukur
Sítrónusafi, nokkrir dropar af góðum sítrónusafa
Agúrka, afhýdd og smátt söxuð
Salt og pipar að vild

Þessu er öllu blandað saman í skál. Ljúffeng sósa sem passar svo sannarlega við hamborgarann.






Sætar kartöflur eru ansi bragðgóðar. Þær passa við hvaða máltíð sem er, þær innihalda minni sykur en venjulegar kartöflur og eru stútfullar af C vítamíni og trefjum. Mér finnst gott að sjóða þær, steikja þær, grilla þær og baka þær í ofni. Semsé, góðar kartöflur að mínu mati :) 

Ofnbakaðar sætar kartöflur 

Sætar kartöflur, tvær - þrjár stórar
Olía
Maldon salt

Afhýðið og skerið kartöflurnar í langa bita. Setjið þær í eldfast mót, dreifið olíu yfir og inn í ofn við 180°C í 30 - 35 mínútur. Sáldrið maldon salti yfir ljúffengu kartöflurnar þegar þær koma út úr ofninum. 


Ég skar niður klettasalat, tómata og agúrku. Blandaði því vel saman í skál, sáldraði pínu af salt og pipar yfir og leyfði þessu að vera inn í kæli í í 15 - 20 mín. Lét salatblönduna á hamborgarann og notaði salatið sömuleiðis sem meðlæti. 

Það er hægt að nota hvaða grænmeti sem er á hamborgara, skemmtilegt er að hafa mikið úrval svo hver og einn geti búið til sinn eigin hamborgara og borðað af bestu lyst. 


Þessi hamborgari var ansi góður og matarmikill. Alveg eins og ég vil hafa hann. 
Ég vona að þið njótið vel og jafnvel prufið þessa uppskrift. 


Góður bjór með góðum hamborgara, það er nú ansi gott combó.

Ég vona að þið eigið ansi góða helgi 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, September 11, 2012

Súkkulaði cupcakes með súkkulaðikremi


..... a piece of happiness



 Fyrir fimm árum þá fæddist dásamlegur prins hann Kristían Mar Kjaran, systursonur minn. Hann er mikið afmælisbarn og ég hefði óskað þess að eyða með honum afmælisdeginum. Það er agalega erfitt að prinsarnir mínir búi í Noregi. Þeir eru þrír prinsar í Noregi, ólíkir og skemmtilegir bræður sem gjörsamlega bræða frænku sína. Þeir eru miklir sælkerar, sérlega Kristían.
 Okkur finnst fátt skemmtilegra en að baka saman, þeir setja á sig svuntu og vilja taka þátt í bakstrinum. 

Súkkulaðikökur eiga svo sannarlega við á afmælisdögum, skreyttar súkkulaðikökur í öllum regnbogans litum. Kökurnar fanga augað og eru svo sannarlega hamingjukökur. 


Þessar kökur eru einfaldar og vissulega ljúffengar. 
Ég fékk tólf kökur úr uppskriftinni, þetta voru frekar stórar bollakökur hjá mér í þetta sinn.


 Súkkulaði cupcakes 


2 egg
115 g smjör, við stofuhita
180 g hveiti 
200 g sykur 
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
2 tsk vanilla extract
60 g kakó
240 ml uppáhellt kaffi (sterkt)

Aðferð 

Vinnið sykur og smjör vel saman þar til létt er og ljóst. Setjið eggin saman við eitt í einu og vinnið vel saman á milli. Blandið uppáhelltu kaffi og kakóinu saman í skál, setjið það til hliðar og kælið vel áður en þið blandið því saman við eggjablönduna. 
Setjið þurrefnin og vanilludropana saman við eggjablönduna og vinnið rólega í ca. tvær mínútur.  Að lokum bætið þið súkkulaðiblöndunni saman við, í tveimur pörtum. 
Vinnið rólega saman þar til gott deig er komið. 
Skiptið deiginu niður í tólf kökuform. Bakið við 180°C í 18 - 20 mínútur. 

Kælið kökurnar í lágmark 30 mínútur áður en þið skreytið þær með súkkulaðikremi 
(ég svindla stundum og læt þær í frysti í smá stund.. bara ef ég er að flýta mér) Annars er alltaf best að baka í huggulegheitum og vera ekkert í neinu stressi. 


Flestar súkkulaðikökur eru langbestar með góðu súkkulaðikremi, helst bara þessu klassíska smjörkremi sem við þekkjum nú langflest. 

Súkkulaðikrem 

200 g smjör, við stofuhita
3 1/2 dl flórsykur 
2 - 3 msk uppáhellt kaffi, vel sterkt og kalt 
1 tsk vanilla extract 
50  g kakó

Aðferð 

Blandið öllu saman í kremið og vinnið í ca. 4 - 5 mín. þar til kremið fer aðeins að lýsast og verða létt. Smakkið ykkur til, ég hvet ykkur til þess. Ef ykkur finnst kremið of þykkt þá bætið þið meiri vökva t.d. meiri kaffi og ef ykkur finnst kremið of þunnt þá bætið þið meiri flórsykri saman við. 

Sprautið kreminu á kökurnar og skreytið að vild! 

 Litríkt skraut sem gleður augað 






Það er ómissandi að drekka ískalda mjólk með súkkulaðiköku. Mjólkin verður enn betri ef hún er drukkin með svona fínu röri. Þessi rör keypti ég í Magnolia Bakery í New York. Ég hef ekki séð þau hér heima fyrir en ef þið hafið rekist á þau þá megið þið endilega benda mér á. 
Mér finnst þau svo falleg og gamaldags. 




Það skiptir ekki máli á hvaða aldri við erum.. ég held að við getum flest verið sammála um að góð súkkulaðikaka er tímalaus klassíker og á alltaf vel við.
Einn biti af kökunni og einn sopi af mjólk bætir og kætir.


Prinsarnir mínir þrír. 

Daníel Mar, Kristían Mar og Steindór Mar. Ég er svo heppin að eiga þá, mínir strákar sem ég elska út af lífinu. Hlakka svo mikið til að sjá þá og knúsa, sem ég vona að verði sem allra fyrst.

Ég vona að þið eigið góðan dag kæru lesendur

xxx

Eva Laufey Kjaran