1 gott
snittubrauð 
ólífuolía
1
hvítlauksrif 
1 askja
kokteiltómatar
2 marin
hvítlauksrif
1 msk
ólífuolía
1 msk
balsamik edik
smátt
söxuð fersk basilíka, magn eftir smekk
½
hvítlauksostur, smátt skorinn
salt og
nýmalaður pipar 
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. Skerið snittubrauðin í sneiðar og leggið á pappírsklædda
ofnplötu, sáldrið olíu yfir brauðsneiðarnar og bakið í ofni í nokkrar mínútur.
Þegar brauðið er tilbúið og orðið stökkt nuddið sárinu á hvítlauksrifinu ofan á
hverja brauðsneið. 
Skerið
tómata í tvennt og skafið innan úr þeim, hvítlauksosturinn er skorinn í bita og
hvítlaukurinn pressaður. Blandið öllu saman ásamt basilíku, olíu, balsamik edik
og salti og nýmöluðum pipar. Setjið blönduna ofan á hverja brauðsneið og berið
strax fram. 
Njótið vel. 
xxx 
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
 
 
No comments:
Post a Comment