Showing posts with label Karamella. Show all posts
Showing posts with label Karamella. Show all posts

Friday, January 29, 2016

Döðlukaka með dásamlegri karamellusósu


Í þætti gærkvöldsins bakaði ég döðluköku með dásamlegri karamellusósu, þessi kaka er í alvörunni svo góð að þið verðið að prófa hana. Fullkomin í alla staði, ég segi ykkur það satt. Ég smakkaði hana í fyrsta sinn þegar ég vann á litlu kaffihúsi í Oxford fyrir nokkrum árum og það var ást við fyrsta smakk. Það má til gamans segja frá því að tökuteymið mitt var tæplega fimm mínútur að klára þessa köku, aldrei áður hefur neinn réttur horfið svo fljótt. Það er þess vegna rík ástæða fyrir ykkur að prófa kökuna um helgina,  þið eigið eftir slá í gegn :) 


Döðlukaka með heimsins bestu karamellusósu

  • 5 msk sykur
  • 120 g smjör, við stofuhita
  • 2 egg
  • 100 g hveiti 
  • 210 g döðlur
  • 1 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk kanill
  • 1/2 salt
  • 1/2 vanillu extract, eða dropar
  • 1 1/2 tsk lyftiduft

 Aðferð: 
  1. Best er að byrja á því að stilla ofninn í 180°C. 
  2. Setjið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir, þegar vatnið nær suðu takið þá pottinn af hitanum og látið hann standa í 3 – 4 mínútur. Það er gott að stappa döðlurnar rétt aðeins með gaffli.
  3. Blandið matarsóda saman við döðlumaukið og blandið því vel saman. Leyfið blöndunni að standa í svolitla stund.
  4.  Næsta skref er að þeyta smjör og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós, bætið einu og einu eggi saman við og gott er að þeyta í eina mínútu á milli. 
  5. Setjið þurrefnin saman við ásamt vanillu. Þeytið í smá stund og bætið síðan döðlumaukinu saman við í þremur skömmtum.
  6.  Smyrjið hringlaga form, mér finnst best að nota smelluform og hellið deiginu í formið. Bakið við 180°C í 35 – 40 mínútur.

Heimsins besta karamellusósa


  • 120 g smjör
  • 1 1/2 dl rjómi
  • 120 g púðursykur
1. Hitið öll hráefnin í potti þar til karamellan fer að sjóða, hrærið reglulega í pottinum eða þar til þið hafið náð ágætri þykkt á karamellunni. Ég vil ekki hafa hana of þykka og ég hræri þess vegna ekki of lengi. Þessa sósu er hægt að bera fram með flestum eftirréttum, en hún er algjört lostæti. 

Berið kökuna fram með rjóma eða ís... og njótið vel <3 



Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni sem voru notuð í þessar uppskriftir fást í verslunum Hagkaups




D

Tuesday, December 29, 2015

Bomba ársins


Saltkaramella er gríðarlega vinsæl um þessa mundir og það má segja að árið 2015 hafi verið ár saltkaramellunar. Ég gjörsamlega elska þessa söltuðu karamellusósu og nota hana óspart. Mér fannst við hæfi að enda árið á alvöru súkkulaðibombu með saltkaramellusmjökremi, saltkaramellusósu og poppkorni með saltaðri karamellu. Sem sagt, saltkaramellu hinmaríki. Ég lofa ykkur að þið verðið ekki vonsvikin, hún er algjört sælgæti og passar fullkomnlega í áramótpartíið. Hún grípur augað strax og er svolítið mikil en það er nú þannig á áramótunum að allt er leyfilegt.



Sannkölluð karamellubomba


Súkkulaðibotnar
  • 3 bollar Kornax hveiti (1 bolli = 2,5 dl)
  • 2 bollar sykur
  • 3 egg       
  • 2 bollar AB mjólk
  • 1 bolli bragðlítil olía (ekki nota ólífuolíu)
  • 5-6 msk. kakó 
  • 2 tsk. Lyftiduft
  • 1 tsk. Matarsódi
  • 2 tsk. Vanillu exctract eða vanillusykur.

Aðferð: Hitið ofninn í 180°C (blástur). Blandið öllum hráefnum saman og hrærið í nokkrar mínútur eða þar til deigið er orðið silkimjúkt. Smyrjið tvö lausbotna form og skiptið deiginu niður í formin. Bakið við 180°C í 20 – 25 mínútur. Tíminn fer auðvitað eftir ofnum, eins og alltaf. Gott er að athuga baksturinn með því að stinga prjóni í kökuna, prjóninn á að koma hreinn út og þá er kakan klár. Leyfið botnunum að kólna alveg áður en þið setjið á þá krem. 

Saltkaramellukrem

  • 300 g smjör, við stofuhita
  • 500 g flórsykur
  • 4 msk karamellusósa (sjá uppskrift hér að neðan)
  • 1 - 2 tsk vanilla extract eða sykur
  • 1 - 2 msk rjómi eða mjólk 
Aðferð:  Það er mikilvægt að gefa sér tíma fyrir þetta krem. Þeytið saman smjör og flórsykur í 5 - 6 mínútur, stoppið tvisvar sinnum og skafið meðfram hliðum.Næsta skref er að bæta vanillu og rjóma/mjólk. Ég vil að kremið sé mjög mjúkt og þess vegna finnst mér frábært að nota smá rjóma en það er auðvitað hægt að nota mjólk líka. Þeytið kremið í 4 mínútur til viðbótar eða þar til þið eruð ánægð með kremið. Smyrjið kreminu á milli botnanna og yfir alla kökuna. Setjið kökuna í kæli eða inn í frysti í svona klukkustund áður en þið hellið karamellusósunni yfir, en með því að gera það þá bráðnar kremið ekki. 



Söltuð karamellusósa


Hráefni:
  • 200 g sykur
  • 2 msk smjör
  • ½  - 1 dl rjómi
  • ½ tsk sjávarsalt

Aðferð: Setjið sykurinn á pönnu og bræðið hann við vægan hita. Gott er að hafa ekki of háan hita og fara hægt af stað. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er þykk og fín. Í lokin bætið þið saltinu saman við. Leyfið sósunni að kólna alveg áður en þið hellið henni yfir kökuna. 

Skreytið kökuna með poppkorni með saltaðri karamellu, ég blandaði 1 msk af saltri karamellu við smávegis af poppkorni. 







Njótið vel kæru lesendur. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefnið sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 


Wednesday, October 14, 2015

Brjálæðislega gott karamellupopp

Popp með saltaðri karamellusósu  

Á þriðjudögum er ég með innslög í Íslandi í dag þar sem ég elda rétti sem allir ættu að geta leikið eftir. Í gær var ég til dæmis með rétti sem tilvalið er að borða þegar við horfum á sjónvarpið. Auðvitað kom popp fljótlega upp í huga þegar ég var að plana hvað ég ætti að hafa í innslagi kvöldsins. Ég held að popp sé alveg skothelt sjónvarpssnarl og hvað þá ef við ‘pimpum’ það aðeins upp með djúsí saltaðri karamellusósu. Svona í alvöru talað þá er þetta eitt það besta sem ég hef smakkað, ég fæ ekki nóg af þessu poppi og hvet ykkur til þess að prófa þessa einföldu og ljúffengu uppskrift.


Söltuð karamellusósa

100 g sykur
3 msk smjör
½ - 1 dl rjómi (má vera meira ef þið viljið þynnri sósu)
Sjávarsalt

1 poki popp eða einn meðalstór pottur af poppi

Aðferð: Setjið sykurinn á pönnu og bræðið hann við vægan hita. Gott er að hafa ekki of háan hita og fara hægt af stað. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er þykk og fín. Í lokin bætið þið saltinu saman við. 

Hellið sósunni yfir poppið, mér finnst best að gera það í skál og færið síðan poppið yfir í aðra skál sem þið ætlið að bera það fram í. Einfalt, fljótlegt og sjúklega gott.



Njótið vel kæru vinir. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.