Showing posts with label Oreo. Show all posts
Showing posts with label Oreo. Show all posts

Sunday, March 6, 2016

Brjálæðislega góð Oreo ostakökubrownie


Á sunnudögum er tilvalið að gera vel sig og baka góða köku, eins og þið hafið eflaust tekið eftir hér á blogginu þá leiðist mér ekki að baka og mig langar að deila með ykkur uppskrift að ómótstæðilegri köku sem ég bakaði um síðustu helgi. Hún er algjört sælgæti og ég á eftir að baka hana mjög oft. Ég elska súkkulaðikökur og ég elska ostakökur, sú ást minnkaði ekkert þegar þeim er blandan saman í eina köku sem ég þori að veðja að þið eigið eftir að elska. Nú er um að gera að hendast út í búð eftir nokkrum hráefnum og baka Oreo ostaköku fyrir fjölskylduna á þessum fína sunnudegi.


Oreo ostakökubrownies


Brownies uppskrift:
  • 150 g smjör
  • 250 g súkkulaði t.d. suðusúkkulaði 
  • 200 g sykur 
  • 2 stór egg 
  • 100 g KORNAX hveiti
  • 1 tsk vanillusykur 
  • 2 msk kakó
  • 6 - 8 Oreo kexkökur 
Karamellufylling
  • 700 g rjómaostur (1 1/2 askja frá MS)
  • 2 msk rjómi 
  • 2 msk flórsykur 
  • 12 OREO kexkökur 
Súkkulaðikrem ofan á:

250 g suðusúkkulaði
Aðferð: 
  • Hitið ofninn í 170°C (blástur).
  • Bræðið smjör við vægan hita, saxið súkkulaðið og bætið því við smjörið og leyfið því að bráðna í smjörinu. Takið pottinn af hellunni og leyfið súkkulaðiblöndunni að kólna. 
  • Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið vanillu, hveiti og kakó saman við og hrærið þar til deigið er silkimjúkt. Í lokin hellið þið súkkulaðiblöndunni við og blandið vel saman. 
  • Hellið deiginu í pappírsklætt form (20x20), brjótið Oreo kökurnar eða setjið þær í heilu lagi ofan í deigið. Bakið við 170°C í 30 mínútur. Það er mjög mikilvægt að leyfa kökunni að kólna alveg í forminu. (best að setja hana í kæli)
  • Á meðan kakan er í kæli hrærið þið saman rjómaosti, rjóma og flórsykri. Það er gott að hafa rjómaostinn við stofuhita en þá er þægilegra að hræra hann. Þegar blandan verður létt saxið þið niður OREO kökur og blandið við með sleikju. Dreifið blöndunni yfir kalda brownies köku og inn í ísskáp á ný. Ostaköku blandan þarf að vera köld og stíf er súkkulaðikremið fer yfir. 
  • Bræðið mjólkursúkkulaði yfir vatnsbaði og hellið yfir kökuna í lokin. Kælið og þegar súkkulaðið er orðið hart þá er kakan tilbúin, skerið hana í bita og berið strax fram.  
















Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 



Öll hráefnin sem voru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 

Sunday, October 18, 2015

Oreo brownies sem bráðna í munni


Vinkonur mínar komu til mín í sunnudagskaffi og bauð ég þeim meðal annars upp á þessa sjúklega góðu Oreo súkkulaðiköku sem bráðnar í munni. Þegar súkkulaði og Oreo koma saman er veisla, svo mikið er víst. Mér finnst brownies eða brúnkur alltaf svo góðar, stökkar að utan og mjúkar að innan. Það má svo líka leika sér með þessa uppskrift, skipta Oreo út fyrir annað góðgæti. Allt er nú hægt! Ég þori að lofa ykkur því að þið eigið eftir að baka þessa aftur og aftur... hún er það góð. 


Oreo brownie

  • 170 g smjör
  • 190 g súkkulaði 
  • 3 Brúnegg + 2 eggjarauður
  • 160 g púðursykur
  • 1 tsk lyftiduft 
  • salt á hnífsoddi
  • 1 msk kakó 
  • 3 msk Kornax hveiti 
  • 160 g Oreo kexkökur 
  • súkkulaðisósa að eigin vali 



Aðferð:
  1. Hitið ofninn í 180°C. (blástur)Bræðið saman smjör og súkkulaði við vægan hita í potti. 
  2. Þeytið egg, eggjarauður og púðursykur saman þar til eggjablandan verður létt og ljós. 
  3. Hellið súkkulaðiblöndunni í mjórri bunu við eggjablönduna og hrærið vel saman. 
  4. Bætið lyftidufti, salti, kakó,hveiti og smátt söxuðu Oreo út í deigið og blandið varlega saman með sleif. 
  5. Hellið deiginu í smurt form (ég notaði 20 cm ferkantað kökuform) og bakið við 180°C í 25 – 30 mínútur. Leyfið kökunni að kólna alveg áður en þið takið hana úr forminu. Berið fram með rjóma eða ís og súkkulaðisósu sem þið sáldrið yfir. 








Nú ætla ég að skottast fram í eldhús og næla mér í aðra sneið, það er heppilegt að það var svolítill afgangur í dag haha. Ég ætla síðan að koma mér vel fyrir framan sjónvarpið. 
Svona eiga sunnudagskvöld að vera.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

Tuesday, June 16, 2015

Sjúklega góður Oreo mjólkurhristingur


Í nýjasta tölublaði Gestgjafans er að finna þátt sem  tileinkaður er mjólkurhristingum, ég kolféll fyrir þessum hugmyndum og bjó til einn ljúffengan með Oreo. Það er einmitt þess vegna sem ég er áskrifandi af Gestgjafanum, það er svo gaman að fá góðar hugmyndir. Netið er auðvitað þægilegt en mér þykir svo gaman að fletta í gegnum tímarit og bækur. Ég bíð með eftirvæntingu eftir blaðini í hverjum mánuði. Ég var lausapenni um tíma hjá Gestgjafanum og það var mjög skemmtilegt, allt sem viðkemur mat er auðvitað af hinu góða. En nóg um það, nú að Oreo mjólkurhristingnum sem þið verðið að prófa...ekki seinna en í dag.

Oreo mjólkurhristingur

  • 1/2 L eða 4 dl súkkulaðiís (ég notaði ís með súkkulaðibitum)
  • 2 dl nýmjólk 
  • Oreo kexkökur, magn eftir smekk 
  • rjómi 


Aðferð: 

  1. Setjið allt í blandarann og maukið þar til ísblandan verður silkimjúk. Þið stjórnið þykktinni að sjálfsögðu með mjólkinni. 
  2. Þeytið rjóma eða það sem betra er notið rjómasprautu og sprautið smá rjóma yfir í lokin. 







Ég eignaðist rjómasprautu um daginn og er ég vandræðilega spennt fyrir henni. Það er auðvitað lykilatriði í hverju eldhúsi að eiga góða rjómasprautu, haha :) 




Einstaklega ljúffengur mjólkurhristingur sem bætir og kætir. 

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.


Sunday, December 7, 2014

Ómótstæðilegar Oreo smákökur




Þessar kökur slógu heldur betur í gegn á heimilinu mínu en þær kláruðust hratt og örugglega. Þannig á það vera, þá get ég bakað þessar kökur aftur. Ég notaði glútenfrítt hveiti en þið getið auðvitað notað venjulegt hveiti, þið þurfið aðeins minna af því svo byrjið bara að setja 200 g af hveiti og bætið svo í ef ykkur finnst deigið of blautt. Ég þori að lofa ykkur því að þið eigið eftir að baka þessar kökur aftur og aftur.. ekki bara um jólin heldur allt árið um kring. 

Njótið vel. 

Oreo smákökur 
  • 110 g smjör 
  • 100 g hreinn rjómaostur
  • 200 g syk­ur
  • 1 egg
  • 250 g Finax glútenfrítt hveiti
  • 1 tsk vínsteinslyftiduft
  • 150 g súkkulaði
  • 1 tsk vanilla extract
  • 1 pakki Oreo kexkökur
  • 100 g hvítt súkkulaði











Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Þeytið smjör og rjómaost saman þar til blandan verður létt og ljós, bætið sykrinum saman við og einu eggi. Blandið hveitinu og lyftidufti út í og hrærið í 2 – 3 mínútur. Í lokin bætið þið vanillu og smátt söxuðu súkkulaði saman við og hrærið í smá stund. Geymið deigið í ísskáp í 10 – 15 mínútur. Mótið litlar kúlur með teskeið og veltið kúlunum upp úr muldu Oreo kexi. Setjið kúlurnar á pappírsklædda ofnskúffu og inn í ofn við 10 – 12 mínútur við 180°C. Það er afar gott að bræða hvítt súkkulaði og sáldra yfir kökurnar þegar þær koma út úr ofninum.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir