Showing posts with label Sænsk matargerð. Show all posts
Showing posts with label Sænsk matargerð. Show all posts

Friday, October 16, 2015

Sænskir kanilsnúðar með kardimommum

Sænskir kanilsnúðar eru vinsælir víða um heim og það er ekki að ástæðulausu, þeir eru virkilega bragðgóðir og mjúkir. Mér finnst þeir bestir nýbakaðir með ísköldu mjólkurglasi. Fullkomið á köldum vetrardögum. 

Sænskir kanilsnúðar


2 3/4 dl  volgt vatn 
2 1/2 tsk þurrger 
650 - 750 g hveiti
4 msk sykur
1/2 tsk salt
2 tsk kardimommuduft
1 3/4 dl mjólk, volg
75 g smjör, við stofuhita (verður að vera mjög mjúkt)

Fylling:

100 g smjör
50 g púðursykur
2 tsk kanill
2 msk sykur
1 tsk kardimommuduft

Ofan á:

1 egg
perlusykur

Aðferð:
  1. Fyrsta skrefið er að vekja þurrgerið í volgu vatni með 1 msk af sykri eða hunangi.  Blandið þessum hráefnum saman í skál og leggið viskastykki yfir skálina. Þetta ferli tekur um 5 - 7 mínútur. 
  2. Blandið öllu saman í skál, eins og stendur hér að ofan þá gæti verið að þið þurfið að nota meira en minna af hveiti. Best er að setja 650 grömm og síðan bætið þið meiri hveiti smám saman við. Ég hnoða deigið í hrærivélinni í 5 - 6 mínútur en auðvitað getið þið notað hendurn 
  3. Setjið viskastykki eða plastfilmu yfir skálina og leyfið deiginu að hefast í 30 - 40 mínútur.
  4. Á meðan deigið er að hefast er gott að útbúa fyllinguna. Bræðið smjör í potti og bætið púðursykri, kanil , kardimommudufti og sykri saman við og hrærið stöðugt þar til fyllingin þykknar.
  5. Þegar deigið er búið að hefast þá er það flatt út á borðflöt og það er alltaf gott að sáldra smá hveiti á borðflötin áður en þá festist deigið ekki við borðið.
  6. Fletjið deigið út og smyrjið fyllinguna á deigið, rúllið deiginu upp og skerið í jafn stóra bita. Leggið snúðana á pappírsklædda ofnplötu. Pískið eitt egg og penslið yfir snúðana, sáldrið einnig smá perlusykri yfir og bakið við 180°C í 10 – 12 mínútur.


Missið ekki af Matargleði Evu á fimmtudagskvöldum á Stöð 2. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

Sænskar kjötbollur með öllu tilheyrandi


Sænskar kjötbollur með öllu tilheyrandi

Í síðasta þætti af Matargleði var sænsk matargerð í aðalhlutverki og ég eldaði meðal annars þessar ljúffengu kjötbollur með kartöflum, brúnni sósu, góðri sultu og súrum agúrkum... virkilega gott. 

Sænskar kjötbollur

Smjör eða ólífuolía
1 stór laukur
2 msk smátt söxuð steinselja
500 g svínahakk
500 g nautahakk
3 msk sýrður rjómi
1 egg
3 – 4 msk brauðrasp
salt og nýmalaður pipar

Aðferð:

  1. Hitið smjör eða ólífuolíu á pönnu, steikið laukinn í smá stund eða þar til hann fer að mýkjast. Saxið niður steinselju og bætið út á pönnuna.
  2. Blandið öllum hráefnum saman í skál og mótið litlar bollur úr hakkblöndunni.
  3. Steikið bollurnar á pönnu, snúið reglulega og leggið í eldfast mót. Klárið að elda bollurnar í ofni við 180°C í 10 – 15 mínútur.
  4. Berið bollurnar fram með kartöflum, brúnni sósu, góðri sultu og súrum agúrkum.

 Brauðrasp

4 brauðsneiðar
ólífuolía
salt og pipar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C. Leggið brauðsneiðarnar á pappírsklædda ofnplötu og sáldrið ólífuolíu yfir brauðið, kryddið til með salti og pipar. 
  2. Bakið í ofni við 200 C í nokkrar mínútur eða þar til brauðið er orðið stökkt og gullinbrúnt.
  3. Setjið brauðið í matvinnsluvél og maukið þar til það verður að fínu brauðraspi.

Brún og gómsæt sósa

300 ml rjómi eða matreiðslurjómi
1 dl kjúklingasoð
3 msk sýrður rjómi
1 tsk góð berjasulta
salt og pipar
1 msk smátt söxuð steinselja
sósuþykkjari, magn eftir smekk


Aðferð:
  1. Blandið öllum hráefnum saman í pott og náið upp suðu. Leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.
  2. Kryddið til með salti og pipar. Gott er að saxa niður ferska steinselju og sáldra yfir sósuna rétt í lokin.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2 . 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt háefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.