Showing posts with label Svínakjöt. Show all posts
Showing posts with label Svínakjöt. Show all posts

Friday, April 15, 2016

Pulled Pork í ljúffengri bbq sósu


Pulled Pork í bbq sósu

  • 700-800 g úrbeinaður svínahnakki
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1 tsk cumin krydd
  • 1 tsk bezt á allt krydd
  • Salt og pipar
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk ólífuolía

Aðferð:
  1. Kryddið kjötið með þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan. 
  2. Brúnið kjötið á öllum hliðum upp úr ólífuolíu í víðum potti sem má fara inn í ofn. 
  3. Skerið niður einn lauk og bætið honum út í pottinn ásamt tveimur hvítlaukrifjum.
  4. Leyfið kjötinu að malla í pottinum við vægan hita á meðan þið útbúið bbq sósuna.

BBQ sósa
  • 1 msk ólífuolía
  • 1 laukur
  • 1 ½ dl tómatasósa
  • 1-2 msk balsamikgljái
  • 1 msk hunang
  • Salt og pipar
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1 tsk cumin krydd

Aðferð: 
  1. Saxið niður laukinn og steikið upp úr olíunni í eina til tvær mínútur. Bætið því næst hinum hráefnunum saman við og leyfið sósunni að malla í smá stund. 
  2. Hellið síðan sósunni yfir svínakjötið og setjið lokið á pottinn og inn í ofn við 110°C í 6-8 klst.
  3. Berið svínakjötið fram í góðu brauði, með salati og pikkluðum rauðlauk.

Pikklaður rauðlaukur
  • 1 rauðlaukur
  • 1 dl hvítvínsedik
  • 1 msk sykur

Aðferð:
  1. Skerið rauðlauk í jafn stórar sneiðar, setjið í krukku eða skál og hellið hvítvínsediki og sykri saman við. 
  2. Blandið vel saman og geymið í kæli í lágmark klukkstund.

Án ef minn uppáhalds skyndibiti! 

Njótið vel. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups

Friday, April 1, 2016

Klístruð og ómótstæðileg rif

Klístruð og ómótstæðileg rif 


Svínarif
  • 1 tsk Bezt á allt kryddblanda
  • 1 tsk paprika
  • 1 tsk cumin krydd
  • 1 tsk kanill
  • 1 dl Hoisin sósa
  • 1 dl Soya sósa
  • 1 msk hunang
  • Salt og pipar
  • ½ rautt chili
  • 1 stilkur vorlaukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 msk fersk nýrifið engifer
  • 1 dl púðursykur
Aðferð: 
  1. Saxið chili og vorlauk, blandið öllum hráefnum saman í skál og leggið svínarif í form. 
  2. Hellið sósunni yfir og geymið í kæli. Best er að leyfa kjötinu að liggja í sósunni í nokkrar klukkustundir. 
  3. Pakkið kjötinu inn í álpappír og bakið við 110°C í 2,5-3 klukkustundir. Eftir þann tíma stillið þið ofninn á grillhita og opnið álpappírinn, steikið kjötið á þeim hita í 10-15 mínútur.
  4. Dreifið ristuðum sesamfræin yfir kjötið áður en þið berið það fram.

Ferskt hrásalat

  • ½ höfuð rauðkál
  • ½ höfuð hvítkál
  • ½ rautt chili aldin
  • 2 stilkar vorlaukur
  • Safi úr hálfri límónu
  • Safi úr hálfri appelsínu
  • Handfylli kóríander
  • Salt
 Aðferð:
  1. Skerið grænmetið smátt og blandið saman í skál. 
  2. Kreistið safann úr límónu og appelsínu yfir salatið og kryddið til með salti og pipar. Gott er að leyfa salatinu að standa í hálftíma í kæli áður en þið berið það fram. 


Njótið vel.

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.