Thursday, February 9, 2012

Babyshower


Í gær þá héldum við nokkur babyshower handa yndislegu vinkonu okkar henni Öglu.

Þetta var óskaplega skemmtilegt og amerískt. Við borðuðum á okkur gat, dáðumst að bumbunni og höfðum það gaman saman. 

Ég prufaði að laga sykurmassa í fyrsta sinn og skreytti kökuna í hvítum,bleikum og bláum lit.
Rúsínan í pylsuendanum var sú að ég fékk að lita kremið inn í kökunni í þeim lit sem að sagði til um kynið á barninu. Það var krúttlegt og skemmtilegt. 


 Ég hengdi upp gömul föt af mér og bjó til bleyjuskreytingar. 


 Fríða bakaði og skreytti þessar ljómandi fínu bollakökur.


 Agla að skera kökuna og spennan var mikil.

Hamingjusamir vinir.


 A baby boy! 
Hlökkum mikið til þess að fá prinsinn í heiminn.

 Tilvonandi móðirin sveif um úr hamingju

Fyrsta barn bíóklúbbsins og verður því heiðursfélagi. 
Klikkuðum alveg á því að taka myndir af öllum hópnum saman, við klikkum ekki á því í næsta hitting. 

Dásamlegt kvöld og tilhlökkunin mikil, fáeinar vikur í prinsinn. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, February 7, 2012

Nautalund og besta kartöflugratínið.



Nautalund 
Nautalund ca. 200 - 250 g á mann
smjör 
salt og pipar

Aðferð:

Hitið smjör á pönnu við vægan hita, sáldrið smá salti á pönnuna og setjið steikurnar á pönnuna og steikið í 2 - 3 mínútur á hvorri hlið. Saltið og piprið duglega á meðan. 

Hitið ofninn í 200°C. Setjið steikurnar á eldfast mót og inn í ofn í 12 - 14 mínútur. Þá er steikin medium/rare. Persónulega finnst mér hún best þannig. 

Meðlætið var mjög einfalt enda er steikin svo ótrúlega góð. Góð sósa, í raun hentar hvaða sósa sem er með steikinni. Ferskt salat, gratínerað spergilkál (spergilkál soðið í 7 mínútur og síðan sett í eldfast mót og rifinn ostur settur yfir, inn í ofn í 5 - 7 mínútur) Kartöflugratínið hennar mömmu er það besta sem ég fæ með steikum og ég verð að deila uppskriftinni með ykkur. 

 Kartöflugratínið hennar mömmu

1 kg. Kartöflur
1 Peli rjómi
1 dós niðursoðnir sveppir (líka hægt að smjörsteikja ferska sveppi, mér finnst þó sveppir í dós ljómandi góðir) Við notum sveppina og vökvann.
1 Kjúklingateningur
2 - 3 msk. Smjör
1 tsk. Salt
1 tsk. Pipar
1 - 2 msk. kjúklingakrydd

Kartöflurnar eru skornar smátt og öllu er blandað vel saman í stóru eldföstu móti. 

Inn í ofn við 180°C í 50 - 55 mínútur. 


 Með matnum drukkum við Montes Cabernet Sauvignon Carmenere. Kirsuberjarautt, fremur þurrt en afskaplega bragðmikið og gott. Hentaði mjög vel með nautalundinni.

xxx
Eva Laufey Kjaran

Monday, February 6, 2012

Happiness in a bowl


Vanilluís og frosin hindber á góðu mánudagskvöldi

xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, February 5, 2012

Mexíkósk matargerð og yndislegir vinir.


Ó hvað það var gaman í gærkvöldi. Nokkrar vinkonur mínar komu til mín og makar þeirra. Við elduðum saman og höfðum það virkilega huggulegt. Mexíkósk matargerð og skemmtilegheit einkenndu kvöldið.
Ég og Agla vinkona mín vorum búnar að horfa á svo marga gómsæta matreiðsluþætti um mexíkóska matargerð að við urðum að prufa. 

Heimalagaðar Tortillur

500 gr. Hveiti
3 1/2 dl. Heitt vatn
1 1/2 tsk. Salt
5 msk. Olía

Blandið öllum hráefnum saman, vatninu er bætt smám saman við. Hnoðið vel í 5 - 8 mínútur.
Deigið er tilbúið þegar að það er mjúkt viðkomu. 
Svo er bara að rúlla deiginu í lengju og skera í 12 bita.
Stráum hveiti á borðið og fletjum bitana út þar til þeir verða í laginu eins og tortillakökur. 

Setjum kökurnar til hliðar og byrjum á Enchilada réttinum.

Ég myndi mæla með því að byrja á tortilla kökunum, fremur tímafrek vinna en svo sannarlega þess virði. 


Enchilada Sósa
Þessi uppskrift miðast fyrir 6- 8 manns. 

3 Græn Chili
1 1/2 Laukur
4 Hvítlauksgeirar
1 tsk. Oreganó
1/2 tsk. Chili 
1/2 tsk. Kúmin
2 Dósir saxaðir tómatar

Allt sett í matvinnsluvél þar til þetta verður orðið að góðu mauki. 
Hellum þessu svo á pönnu og látum malla í smá stund. 
Bætum  tveimur dósum af sýrðum rjóma saman við, sósan er svakalega sterk á þessum tímapunkti en á eftir að vera fullkomin með hakkinu seinna meir. 



Þá ætlum við að steikja hakk og grænmeti.

Ca. 1 kg. Nautahakk (Líka hægt að nota kjúkling eða fisk t.d.)
2 Rauðar paprikur
1 Græn paprika
1 Dós gular baunir
1 Rauðlaukur
500 gr. Cheddar ostur

Skerum grænmetið í litla bita.
Setjum smá oliu á pönnu og byrjum á því að steikja grænmetið.
Eftir 2 - 3 mínútur bætum við hakkinu út í. Sáldrum smá salti og pipar yfir  og blöndum þessu vel saman.
Á meðan að hakkið er að steikjast þá getum við farið að steikja tortilla kökurnar.

Við ætlum að þurrsteikja tortillurnar. Um leið og það myndast loftbólur í deigið á pönnunni þá á að snúa þeim við, þær eru ótrúlega fljótar að steikjast, eiga rétt að brúnast.
Geymið tortillurnar undir röku viskustykki svo þær harðni ekki.

Sósan, hakkið og tortillurnar tilbúnar. Þá eigum við bara eftir að rífa niður cheddar ostinn og setja í form. 

Við þurfum stórt eldfast mót.

Setjum sósu í botninn. Tökum eina og eina tortillu í einu, byrjum á því að bleyta kökurnar í sósunni og setjum þær síðan í eldfasta mótið. Setjum hakk, ost og sósu inn í hverja tortillu og rúllum þeim upp.
Við gerðum átta fylltar tortillur. Hellum síðan restinni af sósunni yfir og þekjum réttinn með úrvals cheddar osti.

Inn í ofn við 180°C í 35 - 40 mín.




Guacamole

2 Mjúkar lárperur
Safi af 1 súraldni
1 Rautt chili (Fræhreinsað)
Handfylli af ferskum Kóríander, saxaður.
2 Hvítlauksgeirar
1 Rauðlaukur
3 Tómatar


Notið teskeið til að taka kjötið úr lárperunni og setjum í matvinnsluvélina ásamt rauðu chili, hvítlauknum og lime safanum. Blönduð þessu mjög vel saman, þegar að þetta er orðið að fínu lárperumauki þá bætum við kóríander saman við og blöndum í 1 mínútu til viðbótar.
Söltum og piprum eftir smekk.

  Færum maukið í aðra skál og bætum söxuðum lauk og tómötum saman við. Það er auðvitað líka hægt að setja tómatana og laukinn í matvinnsluvélina en mér finnst betra þegar að það er svolítið gróft.
Hrærið aftur með sleif þar til allt hefur blandast vel. 



Eva og Fríða yndislegu.

Cheddar osturinn gómsæti.






Ferskt salsa

3 Tómatar
1/2 Rautt chili (Fræhreinsað) 
1/2 Laukur
1 msk. Sítrónusafi
1 msk. Ferskt saxað kóríander
Dass af Tabasco sósu og salti. 

Grænmetið skorið smátt niður og þessu blandað vel saman. 


Nachos 

Tortillakökur
Sólblómaolía
Salt

Skerið hverja tortillaköku í sex bita. Setjum síðan olíu í pott og hitum vel. Við getum athugað hvort að olían sé tilbúin með því að setja smá tortillubita út í,  ef bitinn flýtur og kraumar í olíunni þá er olían tilbúin.
Setjum nokkra bita í einu, mjög varlega.
Snúum þeim við, þær verða gylltar og stökkar eftir smá stund svo maður þarf að vera ansi fljótur. 

Setjum þær svo á eldhúspappír og stráum maldon salti yfir. 

Stökkar og dásamlegar. 



Skvísurnar mínar klárar með fordrykk sem að Agla gerði handa okkur, ótrúlega góður.




Bragðmikið og dásamlegt!



Djúpsteiktir bananar og djúpsteiktur ís með mars sósu.

Þetta er svo sannarlega uppáhaldið mitt af kvöldinu. Jeremías eini hvað þetta kom mér á óvart, með því svakalegra sem ég hef smakkað. Þvílík dásemd!!
Uppskrift kemur í vikunni. 




Mjög ánægjuleg kvöldstund með bíóklúbbnum, vantaði að vísu hann Stefán okkar. En hann bætir okkur það upp með Ítalskri veislu á Baróns við fyrsta tækifæri. 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Friday, February 3, 2012

Hér líður mér vel.


 Ég gæti eytt öllum heimsins tíma í að fletta í gegnum matarbækur og matarblöð. Ég er búin að skoða allar þær bækur sem ég á ótrúlega oft en ég fæ aldrei nóg af þeim. Í dag er ég búin að vera svolítið þreytt, stalst í höfuðborgina í gær. Síðasti kosningadagurinn og ég varð að vera með, vel þess virði. Þannig að ég er búin að vera ósköp róleg hér heima við í dag, fékk ömmu mína og Silju í kaffi í morgun sem var ansi ljúft. 

Veðrið er búið að vera sérlega fallegt í dag og ég stefni að því að fara í smá göngutúr um helgina ef veðrið helst svona fínt. Ég lofaði sjálfri mér því fyrir viku þegar að ég lá inni á spítalanum að ég ætlaði að njóta næstu helgar mun betur og ég verð nú að standa við það. Þessi helgi fer í huggulegheit og matargerð. Á morgun verður mexíkönsk matargerð, ætla m.a. að prufa að laga tortillur frá grunni svo það verður skemmtilegt að prufa. Ætla sömuleiðis að prufa að elda nautalundir í fyrsta sinn, ég verð með móður mína í beinni svo mikið er víst. Þannig það verða eflaust margar mataruppfærslur á þessu bloggi um helgina. 

Ég vona að þið njótið helgarinnar og hafið það sem allra best. 



xxx

Eva Laufey Kjaran

Thursday, February 2, 2012

Vökusigur 2012



Það var mögnuð stund þegar að úrslit voru tilkynnt fyrr í kvöld, við í Vöku höfðum tryggt okkur meirihluta í Stúdentaráði við Háskóla Íslands.
Ég er ótrúlega spennt fyrir því að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni sem að bíða okkar í stúdentaráði.
 Ég hlakka til að vinna með þessu stórkostlega fólki sem ég hef kynnst undanfarnar vikur. 
Vökuliðar eiga mikið lof og hrós skilið fyrir mikinn dugnað. 
Til hamingju Vaka og þúsund þakkir fyrir stuðninginn 

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, February 1, 2012

Grænmetissúpa sem á alltaf vel við.


Mér finnst dásamlegt að vakna þegar að sólin skín og veðrið er gott. Það er merkilegt hvað veðrið hefur mikil áhrif á skapgerðina. Það verður allt svo mikið betra þegar að dagurinn verður lengri og birtan fær að njóta sín. 

Ég verð betri með hverjum deginum sem að líður svo þetta er á góðri leið. 

Allan litli bróðir kom heim í dag og mikil ósköp var gott að sjá hann. Sá er sætur og góður!

Ég eldaði súpu í kvöldmat. Ég er ótrúlega mikil súpukerling og finnst fátt betra en góð súpa. Þessi er ótrúlega einföld, ódýr og voðalega góð. 
Það er hægt að setja hvað sem er í þessa grænmetissúpu. Ég nota aldrei það sama, bara það sem ég á hverju sinni inn í ísskáp. Stundum bæti ég pasta eða kjúkling saman við og það er rosalega gott. 

Í dag notaði ég. 

1,5 L vatn.
1 1/2 Sellerí stöng.
5 Gulrætur.
1/4 Spergilkálshaus.
1/2 Laukur.
1/2 Sæt kartafla. 
1 Dós Saxaðir tómatar.
3 msk. Rjómi
100 gr. Heilhveiti spaghetti.
1 Kjúklingateningur.
1/2 Grænmetisteningur.
1 1/2 tsk. Karrý.
Salt&pipar eftir smekk.

 Grænmetið fallega. Litirnir eru augnyndi!
 Skolum það vel. 
 Ég tók til fremur stóran pott, lét 1 msk. Olíu og steikti grænmetið í 2 mínútur. 
Bætti síðan vatninu saman við og lét suðuna koma upp. 
Þegar að suðan kom upp þá lækkaði ég, miðlungshiti. Bætti þá öllu nema spaghettíinu saman við og blandaði vel saman. Lét þetta malla í um það bil 20 mínútur. 
 Eftir 20 mínútur þá bætti ég spaghettíinu saman við og lét malla í 15 mínútur til viðbótar. 
Svo er bara að smakka sig til. Endalausir möguleikar. 
Svakalega gott að setja rjómaost í staðinn fyrir rjómann, eða sleppa rjómanum alveg.
 Ég átti rjóma sem var alveg að verða búinn og mér finnst sérlega leiðinlegt þegar að matur skemmist hjá mér þannig ég ákvað að nota hann. 
 Súpan stendur alltaf fyrir sínu.
 Ég sáldra alltaf smá osti yfir súpuna, mér finnst það sérlega gott. 
Gott að bera súpuna fram með góðu brauði og t.d. fersku salati. 
Bragðmikil og fljótleg máltíð.
 Sem betur fer á ég afgang, því súpan er enn betri daginn eftir.

xxx

Eva Laufey Kjaran