Wednesday, November 18, 2015

Bragðmiklar kjúklinganúðlur sem allir ættu að prófa


Ég fékk svo hrikalega góðan kjúklinganúðlurétt hjá góðum vinum um daginn og fékk leyfi til þess að birta uppskriftina hér. Þetta er einn af þessum réttum sem þið hættið ekki að hugsa um og viljið helst sleika diskinn, hann er það góður. Ég held mikið upp á einfaldar, fljótlegar og bragðgóðar uppskriftir og það má með sanni segja að þetta sé ein af þeim. Bragmikill kjúklingur með fersku grænmeti, góðri sósu og stökkum wasabi hnetum... allt í einum bita! Ég er að segja ykkur það, þið verðið að prófa þennan rétt. 

Njótið vel.

Kjúklinganúðlur með wasabi sósu 

  • 800 g kjúklingakjöt (ég notað úrbeinuð læri)
  • 2 dl sojasósa
  • 2 dl sweet chili sósa
  • 200 g núðlur
  • 1 rautt chili
  • 1 agúrka
  • 1 rauð paprika
  • 2 stilkar vorlaukur
  • kóríander
  • límóna
  • salt og pipar 
  • Wasabi hnetur

Aðferð:
  1. Blandið sojasósu og sweet chili sósunni saman.
  2. Leggið kjúklingakjötið í eldfast mót og hellið sósunum yfir. Gott er að leyfa kjúklingnum að marinerast í 1 – 2 klst. Þess þarf ekki en kjúklingurinn verður bragðbetri. Kryddið til með salti og pipar. 
  3. Eldið kjúklinginn við 180°C í 25 – 30 mínútur.
  4. Skerið agúrku, papriku og vorlauk mjög smátt.
  5. Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
  6. Skerið kjúklinginn í munnbita þegar hann er klár og blandið honum saman við núðlurnar og grænmetið. Það ætti að vera sósa í fatinu sem er frábær út á núðlurnar.
  7. Berið núðlurnar fram með kóríander, límónu, bragðmikilli wasabi sósu og hnetum.

Bragðmikil sósa með wasabi og límónu 

  • 1 dós sýrður rjómi 10% t.d. frá MS 
  • 3 – 4 msk majónes
  • Wasabi paste, magn eftir smekk
  • Safinn úr hálfri límónu
  • 1 tsk hunang
  • Salt og pipar

Aðferð:
  1. Blandið öllu saman í skál, best er að byrja að setja minna en meira af wasabi þar sem það er afar sterkt. Gott er að geyma sósuna í kæli í 30 mínútur áður en hún er borin fram. Það gildir með allar kaldar sósur.



Ég vona að þið eigið gott miðvikudagskvöld framundan. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

Thursday, November 12, 2015

Jólamúslí með grísku jógúrti og hindberjum


Sæl verið þið kæru lesendur, þennan morguninn langar mig að deila með ykkur uppskrift að ómótstæðilegum morgunmat já eða millimáli... reyndar má líka bjóða upp á hann sem hollari eftirrétt. Ó jæja, semsagt möguleikarnir eru margir og þið ættuð svo sannarlega að prófa að útbúa þetta heimalagaða múslí með örlitlum jólakeim. Fyrr í vikunni bakaði ég nokkrar jólakökur og það var svo notalegt, ég er að segja ykkur það. Það má alveg byrja þennan jólabakstur og njóta hans fram í desember. 

Þið getið að minnsta kosti byrjað á þessu kanil- og engifermúslí sem er alveg frábært með grísku jógúrti og ferskum berjum t.d. hindberjum. Það er líka gott að eiga múslíið í krukku á eldhúsborðinu en þá er svo auðvelt að grípa í smá og smá sem millimál. Hér kemur uppskriftin sem er bæði sáraeinföld og fljótleg. Njótið vel. 


Kanil- og engifermúslí 

  • 5 dl tröllahafrar
  • 1 dl hörfræ
  • 2 dl sólblómafræ
  • 1 dl saxaðar kasjúhnetur
  • 1 dl eplasafi
  • 1 dl kókosolía
  • 1 msk hlynsíróp (eða önnur sæta t.d. hunang)
  • ½ tsk malað engifer
  • 1 tsk kanill

Aðferð: 
  1. Hitið ofninn í 180°C. 
  2. Blandið öllum hráefnum saman í skál og hrærið. 
  3. Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír og dreifið múslíinu á plötuna. 
  4. Bakið í ca. 30 mínútur eða lengur. Fylgist vel með og hrærið nokkrum sinnum í blöndunni á meðan bökunartíma stendur.  
  5. Kælið vel áður en þið berið fram. Bætið t.d. þurrkuðum berjum eða kókosflögum við múslíið þegar það kemur út úr ofninum.







Ég vona að þið eigið góðan dag framundan. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir



Öll hráefni sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 

Saturday, November 7, 2015

Besta skyrkakan

Í vikunni kom nýtt skyr á markað með súkkulaðibitum og það gladdi mig einstaklega mikið. Ég ákvað að útbúa ljúffenga súkkulaðiskyrköku sem er ótrúlega góð og ég þori að veðja að þið eigið eftir að gera hana aftur og aftur. Skyrkökur eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér eins og ég hef svo oft komið að hér á blogginu og ég verð að segja að þessi hér er sú besta já sú besta.  

Skyr, rjómi og súkkulaði.... sannkölluð sæla.


Súkkulaðiskyrkaka með stökkum botni 


Botn
  • 200 g Digestive kexkökur
  • 150 g brætt smjör 

Aðferð:
  1. Bræðið smjör, myljið kexið og blandið því vel saman. 
  2. Þrýstið kexblöndunni í form. (Ég notaði hringlaga smelluform 20x20)
Mér finnst langbest að nota smelluform eða lausbotna form þegar ég er að gera skyrköku en þá er auðveldara að ná kökunni upp úr forminu. 


Fylling
  • 300 g súkkulaðiskyr 
  • 250 ml rjómi
  • 2 msk flórsykur
  • 1 tsk vanilluduft eða dropar 
  • 100 g dökkt súkkulaði

Aðferð:
  1. Hrærið skyrinu, flórsykrinum og vanillu saman. 
  2. Þeytið rjóma og saxið niður dökkt súkkulaði, blandið saman við með sleikju. 
  3. Hellið blöndunni ofan á kexblönduna og kælið í 1 - 2 klst. (Best finnst mér að geyma kökuna í kæli yfir nótt en þá verður kakan stífari)
  4. Skreytið kökuna gjarnan berjum og dökku súkkulaði. 






Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 


Friday, November 6, 2015

Matargleði á prenti


Matargleði er fylgirit Fréttablaðsins í dag. Ég fékk þá hugmynd fyrir nokkrum vikum að setja uppskriftir saman í fallegt blað ásamt viðtölum við sannkallaða sælkera og nú er hugmyndin orðin að veruleika. Ég er ekkert smá ánægð með blaðið og enn glaðari að tilheyra þessum flotta hópi á forsíðunni. Hér getið þið skoðað blaðið á netinu. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Thursday, October 29, 2015

Ofnbakaðir þorskhnakkar í paprikusósu



Ofnbakaður fiskur er alltaf í miklu uppáhaldi, þó það þurfi ekki að hafa mikið fyrir góðu hráefni þá er virkilega gott að gera djúsí fiskrétti af og til. Ég elska þá að minnsta kosti og ég hef tekið eftir því hér á síðunni að lesendur mínir eru sammála. Ég eldaði þennan góða rétt í vikunni, ég tók bara það sem ég átti til inn í ísskáp og útkoman var mjög góð. Svo góð að ég borðaði yfir mig og gott betur en það. Mæli með þið prófið fiskréttinn og ég vona að þið njótið vel. 




Ofnbakaðir þorskhnakkar með paprikuosti


  • 1 msk ólífuolía eða smjör 
  • 1 laukur, smátt saxaður
  • 4 gulrætur, smátt skornar 
  • 1 rauð paprika, smátt skorin
  • 1/2 blómkálshöfuð, smátt skorið
  • 1/2 spergilkálshöfuð, smátt skorið
  • 700 g þorskhnakkar 
  • 3/4 paprikuostur eða heill, smátt skorinn
  • 250 ml rjómi 
  • Salt og nýmalaður pipar 
  • 100 g rifinn ostur 
Aðferð: 

  1. Steikið grænmetið upp úr olíu eða smjöri í nokkrar mínútur eða þar til grænmetið fer að mýkjast. 
  2. Bætið ostinum og rjómanum saman við, leyfið grænmetisblöndunni að malla í smá stund og kryddið til með salti og pipar. Þegar osturinn er allur bráðinn er blandan tilbúin. 
  3. Skerið þorskhnakkana í bita og leggið í eldfast mót, kryddið til með salti og pipar. Hellið grænmetiðsblöndunni og rifnum osti yfir og bakið við 180°C í 25 - 30 mínútur. 
  4. Berið fram með fersku salati og hrísgrjónum.  



Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 



Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.



Súkkulaði Panna Cotta úr Matargleði Evu

Súkkulaðibúðingur með heitri berjasósu


500 ml rjómi
150 g suðusúkkulaði
2 msk sykur
fræin úr 1 vanillustöng
2 plötur matarlím

Aðferð: 

Leggið matarlímsblöð í kalt vatn í 4 – 6 mínútur.
Á meðan hitið þið rjóma að suðu og bætið súkkulaði saman og bræðið í rólegheitum.
Hrærið í á meðan og þegar súkkulaðið er bráðnað bætið þið sykri og vanillu saman við,  í lokin kreistið þið vökvann frá matarlímsblöðum og hrærið út í vanillublönduna.
Hellið í skálar og geymið í kæli að minnsta kosti í tvær til þrjár klukkustundir, best  yfir nótt. 

Heit berjasósa með vanillu

3 dl bláber
3 dl hindber
2 dl sykur
safinn og börkur af hálfri appelsínu
½ tsk kanill
fræin úr 1 vanillustöng  

Aðferð:

Setjið öll hráefnin í pott og náið upp suðu, leyfið sósunni að malla í 3 – 5 mínútur. Berið fram með súkkulaðibúðingnum og njótið vel.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.