Saturday, September 24, 2011

Bröns

 Fékk til mín sætar vinkonur. Laugardagsbröns.

 Nóg af kræsingum.. þannig á það að vera 

 Öglu snilldin. Djúpsteiktur kornflex húðaður camenbert, dásamlega gott með góðri sultu. 

 Grænmetisbakan 

 Hekla María í sínum fyrsta vinkonu brönsi. 

 Fallegar mæðgur 

 Heklu leið vel hjá Öglu sinni. 

 Fallegust 

 Æ hún er eitthvað svo lítil og mikil rófa. 


Oreo- ostakakan hennar Helenu var í dessert. Ótrúlega góð!

Svona eiga laugardagar að vera - nú er ég afvelta og ætla að kíkja í skólabækurnar. Bubba-tónleikar í kvöld og rólegheit. 

xxx

Thursday, September 22, 2011

 ...Dimmt úti, kalt úti, heitt inni,  kertaljós, vinkonur, lærdómur og heitt kakó.
Uppskrift að huggulegu kvöldi.





Wednesday, September 21, 2011

That's whats cooking my friend!


Fish-fajita
Ég ákvað að gera vel við mig í kvöld og fá mér eitthvað ótrúlega gott að borða, fiski fajita er eitt af því sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. 
Ég byrja á því að marinera ýsu. Set olíu í plastpoka (svona nestispoka) bæti síðan við salt, pipar, basiliku, steinselju, rósmarín, nokkrir dropar af tabasco sósu og kirsuberjatómatar. Reyni að skera þá smátt og kreista vökvann úr þeim, gerir þetta ansi djúsí. Ýsan er skorin í litla bita og sett ofan í pokann. Svo hristi ég pokann til og læt þetta blandast vel saman. Inn í ísskáp í nokkrar klst. 

Grænmeti steikt á pönnu, hver og einn ræður sínum skammti. Ég steikti rauðlauk, sveppi og paprikku í smástund uppúr olíu. Því næst steikti ég fiskinn góða. 
Reif niður jöklasalat, skar tómata og grænar ólívur. 
Salsa sósa og ab-mjólkur sósan mín. (ab-mjólk, hvítlauksgeirar, agúrka, salt og pipar) 

Semsé heilhveititortilla, salsa sósa, jöklasalat, tómatar, steikt grænmeti, ólívur, fiskurinn og nokkrir bitar af fetaosti og ab-sósan. 

Ég er að segja ykkur það að þetta er ótrúlega gott og endilega prufið þetta næst þegar að þið eruð með ýsuflak fyrir framan ykkur og viljið prufa eitthvað nýtt.



xxx

Vellíðan.

Kannist þið ekki við tilfinninguna þegar að þið hafið ekki komist út til þess að hreyfa ykkur hvað allt getur verið ómögulegt? Þannig er mér búið að líða undanfarna daga. Þreyta, leti og ómögulegheit. Mikil ósköp, ég veit ég hef sagt það ansi oft en ótrúlegt hvað hreyfing gerir gott fyrir sálina. Líka mjög fínt að vera þreytt fyrir miðnætti í stað þess að næturhrafnast fram eftir öllu og detta úr rútínu. 

En í kvöld fór ég loksins í zúmba. Hálsinn orðinn fínn og þá er allt einsog það á að vera. 

Hreyfing getur öllu breytt. Sagði mér líka ein sniðug kona að besta ráðið við fýlu og pirring er að fara út í göngutúr, ómögulegt að vera í fýlu í göngutúr í fallegu veðri. Tala nú ekki um ef maður nær göngutúr með góðri vinkonu. Það er gott ráð við ómöguleika - að reima skóna og skunda út. Það geri ég iðulega, sérlega þegar að ég er komin í strand við lærdóminn. Þá er ekkert betra en að henda heilanum í göngutúr. 

Ég veit hvað myndagæðin eru stórkostleg, ég er svo flink á kameruna eða hitt og heldur. En norðurljósin eru loksins komin og þau eru svo ótrúlega falleg. Love it!

xxx

Tuesday, September 20, 2011

Fimmkornabananaspeltbrauð Evu :)

Ég veit ég veit, ein önnur matar/baksturfærslan. Þið megið endilega láta mig vita ef ég er að mat-kæfa ykkur kæru lesendur. 
Í dag bakaði ég þetta ágæta bananabrauð, ansi indælt að hafa eitthvað í ofninum á meðan að maður les skólabækurnar. Virkilega huggulegt að taka sér kaffipásu og fá sér eitthvað gott með kaffinu. I love it. 
Nýbakað brauð með góðum osti og góðum kaffibolla? Dásemd. 


1 egg 
2-3 msk Agavesíróp (fer eftir smekk)
2 þroskaðir bananar 
250 g spelt ( 125 fínmalað spelt og 125 grófmalað spelt)
1/2 tsk matarsódi 
1 tsk salt
1 dl fimmkorna blanda

Þeytið eggið og bætið sírópínu saman við. Þeytið það vel saman, því næst stappið þið banana og bætið þeim saman við. Sigtið saman hveiti, matarsóda og salt og hrærið léttilega saman við bananablönduna með sleif. Síðast en ekki síst þá er 1 dl af fimmkorna blöndu bætt varlega saman við, sömuleiðis strái ég vel af kornum á toppinn.  

Setjið í form (ég nota alltaf bökunarpappír undir, það kemur í veg fyrir að brauðið festist í forminu) en auðvitað er hægt að smyrja formið vel áður líka. Bakið í 180°c en 160°c með blæstri í heitum ofni í 45 mín.




Líka skemmtilegt að gefa í gjöf. Nýbakað brauð í fallegri öskju, myndi nú slá í gegn í bröns-boði til að mynda. :-) 



xxx

Monday, September 19, 2011

Fatlafól



Ég vaknaði í morgun. Klukkan var að ganga sjö, vakti Hadda og brosti vegna þess að gat lúrað örlítið lengur þar sem ég átti ekki að byrja í tíma fyrr en um hádegi. Well ó well, fór svo loksins frammúr eftir baráttu við snoozið - merkilegt hvað það  getur verið gott að sofa! og fékk mér morgunkaffið og dreif mig í sturtu.. ég er brussa og snéri mér voðalega vitlaust, þar til  hálsinn festist. Svei ó svei, verkurinn eftir því. Ég á svo góða vinkonu hana Öglu sem fór með mig til læknis og sá um að hjúkra fatlafólinu sínu fram eftir degi. Þannig ég komst ekki í skólann og er búin að vera á einni hlið í dag, stundum að vera brussa. 


Smoothie og tortilla - Agla Sigríður er ekki lengi að galdra fram veitingar. Hún er svo góð hjúkka.
Svo skoðuðum við matartímarit og horfðum á matreiðsluþætti, plönuðum nokkur matarboð í huganum og borðuðum mat. Þá sjaldan! Gleymdi verkjunum næstum því á meðan, en það var þó ekki hægt vegna þess að ég vorkenni mér mikið.  En alltaf gott að eiga yndislega vini og mann - fyndinn dagur :)


Friday, September 16, 2011

Kjúklingasalat, rauðvín og góður félagsskapur. 
Ansi huggulegt








xxx

Tuesday, September 13, 2011

 


Lærdómurinn verður mun skemmtilegri með góðri vinkonu og súkkulaðihjúpuðum jarðaberjum. Maður má nú lyfta sér upp svona í tilefni þriðjudags.. 



Monday, September 12, 2011

Hárið


 Haustfílingur. Í dag fór ég í klippingu og litun hjá mínum ástkæra Svavari.
Aðeins að hressa uppá  hárið fyrir haustið - ég er ansi ánægð með útkomuna og get ekki hætt að þefa af hárinu.

Ég elska hvað hárið er fínt og vel lyktandi eftir góða sjæningu.






xxxx

Jómfrúin


 Ég held mikið upp á jómfrúnna. Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að fara þangað í lunch - þar fer ég reglulega með einhverjum úr famelíunni í lunch. Ég er vanaföst og fæ mér alltaf það sama. 1/2 sneið með lambakjöti og 1/2 með camenbert, beikoni og allskyns góðgæti.  Delish! Ef þið hafið ekki nú þegar prufað jómfrúnna þá mæli ég eindregið með því að þið skellið ykkur.



 Uppáhalds. 

 Mamma og eggin hennar. 

 Ég og amman mín, yndislegasta manneskjan í mínu lífi. 

....ásamt mömmunni minni. Þær eru langbestar.



xxx

Saturday, September 10, 2011

Laugardagur

...ekkert betra en að vakna á fallegum laugardegi.

Uppáhalds dagurinn minn í vikunni er laugardagur. Hefur verið það frá því að ég var yngri, laugardagsveðrið (logn, sól en samt pínu kalt) stendur oftast nær fyrir sínu.
 Ég man þegar  að ég vaknaði alltaf á laugardögum við það að mamma stóð í helgarþrifum og við "neyddumst" til þess að taka til hjá okkur.
Laugardagsnammi - skemmtilegheit yfir daginn og  partý heima á kvöldin. Partý í þeim skilningi að leigð var spóla og keypt var enn meira sælgæti.
Svo sofnuðum við í sykursæluvímu.

Ég vaknaði í morgun og henti í tvær kökur, yndislegi Kristían Mar Kjaran  heldur upp á afmælið sitt á eftir og hann var búinn að leggja inn kökupantanir hjá Eyju sinni. Þannig í morgun um níuleytið þá rann morgunkaffið ljúflega niður með smá rjóma og rice krispís.

Í dag er fullkomið laugardagsveður og ég er að hugsa um að drífa helgarþrifin af og setja sængurfötin út á snúru.
Ooo kannist þið ekki við tilfinninguna þegar að þið leggist upp í rúm þegar að sængurfötin eru nýþrifin og búin að vera út á snúru? Lyktin er sú allra besta.
 Þá sofna ég um leið í sæluvímu alveg eins og ég gerði hér í denn út frá sykursæluvímunni.

En njótið helgarinnar og geri eitthvað skemmtilegt. Því helgarnar eru nú einu sinni til þess :-)


 Músin á afmælinu sínu í fyrra. Verður 4 ára þann 12.september.
Elsku ástin mín.

Friday, September 9, 2011

Mexíkóskt Lasagna

Bíóklúbburinn ákvað að gera vel við sig í gær. Við elduðum dýrindis lasagne. Mexican - style.
 Ótrúlega gott, Agla Sigríður kom okkur á lagið með þennan dýrindis rétt.  

Mikil ósköp sem það var ljúft! 

xxx


Uppskrift: 

Fyrir 6 manns. 

1 pakki kjúklingabringur
1 x rauðlaukur
1x askja af sveppum
1x paprika
1x dós af söxuðum tómötum
1x krukka af salsasósu
1x lítil krukka af gulum baunum
1 x poki rifinn ostur
3 - 4 msk rjómaostur
1x pakki af hveititortillum 
Dass af salt og pipar.. 

Grænmetið er skorið niður og steikt á pönnu við vægan hita í smá stund. 
Kjúklingabringurnar eru sömuleiðis skornar smátt niður og steiktar á pönnu. 

Á meðan að hlutirnir eru að gerast á pönnunni þá er dregin fram stærsti pottur heimilsins, eða svona hér um bil. Tómatar og salsasósan fara þangað, gulu baunirnar fá líka að fljóta með. Svo er kjúklingabringunum og grænmetinu bætt saman við. Þessu er blandað vel saman við vægan hita. Við settum smá rjómaost með, til þess að hafa þetta örlítið meira djúsí. En það má sleppa honum. 
Næsta skref er að sækja fallegt form og byrja að raða þessu saman. Fyrst nokkrar skeiðar af innihaldinu og svo nokkrar tortillur.. og ostur. Alveg eins og við venjulega lasagne gerð. 

Rúmlega 20 mín í ofninum við 180°. Um leið og osturinn ofan á er farinn að verða brúnn þá er þetta tilbúið. 

Ótrúlega gott að bera þetta fram með fersku salati og sýrðum rjóma. 

Gómsætt 

xxx Njótið!












Wednesday, September 7, 2011






Haustveður. Það er þannig veður í dag að manni langar einna helst að liggja undir teppi. En það er líka kósí að kveikja á nokkrum kertum, drekka gott kaffi og lesa.

xxx

Tuesday, September 6, 2011

Pönnukökur með eplum

Mig langar svo hrikalega oft í eitthvað gott þegar að ég kem heim úr skólanum en vil þó ekki detta í brauðsukkerí.. og því eru þessar pönnsur hrikalega góðar. Einfaldar - fljótlegar. Allt sem að svöng skólabörn elska. Og var ég búin að minnast á það hvað þær eru í hollari kantinum?


Uppskrift.

1x bolli Haframjöl
1x bolli létt AB-mjólk
1x eggjahvíta
1/4 x bolli af speltmjöli
2.msk af olíu (kókos)
1. tsk Vínsteinslyftiduft
og margar tsk. af kanil 

Þessu er blandað vel saman og svo beint á pönnuna, ég nota kókosolíu til þess að steikja þær.

Ég skar niður epli og lét þau í skál. Bætti við 1 tsk af kanil og 1 tsk af agavesírópí. Lét eplin síðan á pönnu ásamt nokkrum kókosflögum. Ansi bragðgott og ljúft með pönnukökunum.

Mjög fín orka fyrir lærdóminn :)

Sunday, September 4, 2011

 Það er rosa gott að drekka nokkra svona kokteila eftir góða kokteiladrykkju um helgina. Algjör bjargvættur fyrir þá ryðguðu :-)

Helgin er búin að vera ótrúlega skemmtileg. Jiminn hvað ég er heppin að eiga svona yndislega vini, maður segir það víst aldrei of oft. Þau eru það skemmtilegasta sem ég á. Það var mikið hlegið og mikið gaman um helgina.

Svo er  veðrið búið að vera það dásamlegasta um helgina og hvað er þá annað hægt að gera en að smæla? Ég bara spyr. 

xxx