Friday, February 26, 2016

Humarsúpan úr Matargleði Evu


Í síðasta þætti lagði ég sérstaka áherslu á sjávarfang og eldaði meðal annars þessa ljúffengu humarsúpu sem er mjög vinsæl í minni fjölskyldu. Ef það er ferming, skírn eða önnur stór veisla í fjölskyldunni er þessi súpa undantekningarlaust á boðstólnum, og alltaf er hún jafn vinsæl. Uppskriftin kemur frá mömmu minn og þykir mér mjög vænt um þessa uppskrift. Ég lofa ykkur að þið eigið eftir að elda súpuna aftur og aftur. 


Lúxus humarsúpa 

Humarsoð
  • Smjör
  • 600-700 g humarskeljar
  • 2 stilkar sellerí
  • 3 gulrætur
  • 1 laukur
  • 2-3 lárviðarlauf
  • 3-4 hvítlauksrif
  • 3-4 tímían greinar
  • 1 tsk eftirlæti hafmeyjunnar
  • 1 tsk Ítölsk sjávarréttakryddblanda
  • 1 l fiskisoð (soðið vatn + 2 fiskikraftsteningar)
  • 1 glas hvítvín (ca 3 dl)
  • Salt og pipar


Aðferð: Skolið humarinn mjög vel og takið humarhalana upp úr skelinni. Leggið halana til hliðar. Skerið sellerí, gulrætur og lauk gróft. Steikið upp úr smjöri ásamt humarskeljum. Hellið fiskisoði og hvítvíni yfir, kryddið til með þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan. Leyfið soðinu að malla við vægan hita í rúmlega klukkstund, því lengur sem soðið fær að malla því betri verður súpan. Eftir þann tíma sigtið þá skeljarnar og grænmetið frá.

Súpan
  • 2 msk hveiti
  • 2 msk smjör
  • Humarsoðið
  • Smjör
  • Humarhalar
  • 1 hvítlauksrif
  • ½ tsk eftirlæti hafmeyjunnar
  • ½ ítölsk sjávarréttarblanda
  • 500 ml rjómi
  • salt og pipar
  • fersk steinselja 

Aðferð: Búið þið til smjörbollu með því að bræða smjör og blanda hveiti saman við, hellið síðan soðinu út í pottinn og hrærið. Á annarri pönnu hitið smjör, steikið humarhala og kryddið til með eftirlæti hafmeyjunnar, sjávarréttakryddi, salti, pipar og hvítlauk. Steikið humarinn í 2 – 3 mínútur. Hellið rjómanum út á pönnuna og blandið öllu vel saman, hellið rjómablöndunni út í pottinn með soðinu og leyfið súpunni að malla í smá stund áður en þið berið hana fram. Saxið niður ferska steinselju og sáldrið yfir rétt áður en þið berið súpuna fram.


Njótið vel kæru vinir. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefni sem eru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 


Monday, February 22, 2016

Vikumatseðill


Vá hvað það var yndislegt að fara út í daginn í morgun um níuleytið og finna fyrir sólinni, dagurinn er að lengjast og það gleður mig. Mjög góð byrjun á vikunni myndi ég segja og orkan er tífalt meiri, ég er að segja ykkur það satt. Ég ákvað að því tilefni já eða bara afþví bara að skella í vikuseðil og með honum vona ég að þið fáið hugmyndir að kvöldmat út vikuna, 

Best finnst mér að byrja vikuna á góðum fisk og get ég lofað ykkur því að þessi einfalda og bragðgóða uppskrift á eftir að slá í gegn, virkilega góður lax með blómkálsmauki. 

Matarmikil og ljúffeng brokkólísúpa sem yljar að innan verður á boðstólnum á þriðjudaginn. 

Á miðvikudaginn er tilvalið að skella í þetta æðislega mexíkóska salat með stökkum kjúkling og lárperusósu. 

Þessi ljómandi fíni mangó fiskréttur er einn af mínum eftirlætis fiskréttum, djúsí og ferlega góður.

Föstudagar eru pizzadagar í mínum bókum og ekkert er betra en mexíkósk pizza með þunnum og stökkum botni. Namm!
Um helgar er nauðsynlegt að gera vel við sig í mat og drykk, nautalund með bernaise eða piparostasósu er ávallt uppskrift að hamingju.

Helgarbaksturinn er möndlukakan hennar mömmu sem ég elska og fæ ekki nóg af. 

Ég vona að þið hafið fengið hugmyndir að vikumatseðlinum og ég vona að þið eigið stórgóða viku framundan. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni sem eru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 




Sunday, February 21, 2016

Kanilkaka sem ég fæ ekki nóg af



Við fjölskyldan erum í góðu yfirlæti á Hvolsvelli og njótum þess að liggja í leti. Eitt af því sem mér þykir skemmtilegast er að baka góða köku á sunnudögum – að vísu finnst mér gaman að baka alla daga en það veitir mér enn meiri ánægju á sunnudögum og ekki veit ég afhverju það er. Í morgun ákvað ég baka ljúffenga kanilköku eða ‘monkey bread’ eins og kakan heitir á ensku. Ég hef legið yfir myndum og uppskriftum að þessari köku í langan tíma en hún er vægast sagt girnileg og mamma mía hvað hún er góð! Kanilsnúðar og kökur eiga vel við sunnudaga einhverra hluta vegna, heimilið verður svo hlýlegt með góðum kanilkeim. Eitt af því góða við þessa uppskrift er að þið þurfið ekki mörg hráefni og þið þurfið ekki hrærivél, svo þið ættuð að geta gert þessa köku hvenær og hvar sem er. Tilvalið að baka þessa í sumarbústað til dæmis. 


Kanilkaka með glassúr

*1 bolli = 2,5 dl

Deigið
  • 1 bolli nýmjólk
  • 1/3 bolli vatn
  • 3 msk smjör
  • 2 ½ tsk þurrger
  • ¼ bolli sykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 3 ¼ bolli Kornax hveiti
  • salt á hnífsoddi
  • 1 egg

Kanilsykurblanda
  • 120 g brætt smjör
  • 1 ½ bolli sykur eða púðursykur
  • 3 tsk kanill

Aðferð:
  1. Hitið mjólk, vatn og smjör í potti við vægan hita. Leggið til hliðar og leyfið blöndunni að kólna í smá stund.
  2. Blandið þurrefnum saman í skál. Pískið eggið saman við mjólkina og hellið síðan vökvanum ásamt vanillu og vatni saman við, hrærið með sleif í smá stund, ef ykkur finnst deigið of blautt þá bætið þið smávegis af hveiti við.
  3. Leggið deigið á hveitistráð borð og hnoðið í nokkrar mínútur (með höndum eða í hrærivél ef þið viljið). Setjið deigið í hreina skál og leggið viskastykki eða plastfilmu yfir skálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund eða þar til deigið hefur tvöfaldast.
  4. Þegar deigið er tilbúið skiptið þið því niður í jafn stóra bita og rúllið upp í kúlur sem þið veltið upp úr bræddu smjöri og síðan kanilsykrinum, því meira af kanilsykri því betri verða kúlurnar.
  5. Smyrjið hringlaga form (helst með gati í miðjunni en þess þarf auðvitað ekki). Raðið kúlunum ofan í formið og sáldrið síðan smávegis af kanilsykri yfir. Leyfið deiginu að hefa sig í 15 mínútur til viðbótar.
  6. Hitið ofninn í 180°C og bakið kökuna í 18 – 22 mínútur.
 *Á meðan kakan er í ofninum er gott að útbúa glassúrinn.

Vanilluglassúr
  • 1 bolli flórsykur
  • 2 msk mjólk
  • 1 tsk vanilla
Aðferð:
  1. Blandið öllum hráefnum saman í skál og hrærið þar til kremið verður silkimjúkt, þegar kakan hefur kólnað hellið þið vel af glassúr yfir og njótið strax.








Njótið dagsins og gleðilegan konudag <3 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.