Showing posts with label Hvítt súkkulaði. Show all posts
Showing posts with label Hvítt súkkulaði. Show all posts

Thursday, April 28, 2016

Vanillu- og sítrónukaka úr Matargleði Evu

Í lokaþætti Matargleðinnar var sérstakt sítrónuþema (mögulega tileinkað Beyoncé). Ég bakaði meðal annars þessa æðislegu vanillu- og sítrónuköku sem er í miklu uppáhaldi. Mjög sumarleg og sæt - mæli með að þið prófið hana. 

Vanillu-og sítrónukaka með ferskum berjum


  • Bakstur 
  • Áætlaður tími frá byrjun til enda: 2 tímar 
  • Fyrir 8-10 einstaklinga

  • 200 g smjör
  • 200 g sykur
  • 4 egg
  • 300 g hveiti
  • 2 tsk vanillusykur 
  • 2 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 5 msk ferskur sítrónusafi
  • börkur af hálfri sítrónu
Aðferð:

  1. Stillið ofninn í 180°C (blástur)
  2. Þeytið saman sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós.
  3. Bætjum eggjum saman við, einu í einu.
  4. Blandið þurrefnum saman í skál og bætið síðan við eggjablönduna, ásamt sítrónusafa og sítrónuberki. 
  5. Hrærið deigið þar til það verður silkimjúkt.
  6. Skiptið deiginu niður í tvö smurð form og bakið við 180°C í 22-25 mínútur.
  7. Kælið botnanna mjög vel áður en þið setjið á þá krem!

Ljúffengt sítrónusmjörkrem

  • 250 g mjúkt smjör
  • 500 g flórsykur
  • 3 msk sítrónusafi
  • 1 tsk sítrónubörkur, eða minna
  • 1 msk rjómi
  • 100 g hvítt súkkulaði
Aðferð:

  1. Þeytið saman smjör og flórsykur í 2 – 3 mínútur.
  2. Bætið sítrónusafanum, sítrónuberki, rjóma og bræddu hvítu súkkulaði saman við og þeytið áfram í 4 – 5 mínútur. Því lengur sem þið þeytið kremið því léttara og betra verður það.
  3. Smyrjið kreminu á milli botnanna og skreytið með allskyns ferskum berjum. Sigtið gjarnan smá flórsykri yfir kökuna í lokin.




Njótið vel.
xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups

Tuesday, October 13, 2015

Súkkulaðibúðingur með ástaraldin


Ég er algjör nautnaseggur og elska að útbúa gómsæta eftirrétti, það er alltaf pláss fyrir smá eftirrétt eftir góða máltíð. Ítalskur vanillubúðingur með hvítu súkkulaði og ástaraldin er einfaldur og virkilega bragðgóður eftirréttur sem ég útbý reglulega. Hvítt súkkulaði, vanilla og ástaraldin passa svo vel saman og þetta er algjör veisla fyrir bragðlaukana. Að minnsta kosti fæ ég ekki nóg af þessum eftirrétt og mæli hiklaust með að þið prófið. 

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

Tuesday, August 18, 2015

Brúðkaupsterta



Anna Margrét vinkona mín giftist unnusta sínum honum Einari um síðustu helgi og fékk ég þann heiður að baka brúðkaupstertuna. Þetta er í annað sinn sem ég baka brúðkaupstertu en ég hef áður bakað fyrir systur mína. Mikil ósköp finnst mér þetta skemmtilegt og auðvitað pínu stressandi á sama tíma þ.e.a.s. vegna þess að ég vill auðvitað senda frá mér eins góða köku og möguleiki er á. Ég ákvað að baka góða súkkulaðiköku og skreyta hana með hvítu súkkulaðikremi, það er ávísun á glaða gesti. Undanfarið hef ég verið með æði fyrir blómaskreytingum og marengsskrauti, og útkoman var eins og þið sjáið á myndinni fyrir ofan. Falleg blóm setja ótrúlega fallegan svip á kökuna.



Súkkulaðibotnar 

Ég geri þessa súkkulaðibotna mjög oft og ég er alltaf jafn ánægð, þeir eru fremur dökkir og lyfta sér mjög vel. Fékk þessa uppskrift hjá Eddu systur minni fyrir nokkrum árum. 

Þetta er tvöföld uppskrift og miðast við fjögur jafn stór form (best er að gera hana í tveimur pörtum en þið sjáið hér að neðan hvaða og hversu mikið af hráefni þið þurfið) 

6 bollar Kornax hveiti (Amerísk mæling, 1 bolli = 2,4 dl)
4 bollar sykur
6 Brúnegg
4 bollar AB mjólk
2 bollar bragðdauf olía
10 msk kakó
4 tsk lyftiduft
2 tsk matarsódi
4 tsk vanilludropar eða sykur

Aðferð:

Blandið öllum hráefnum saman í skál, hrærið í nokkrar mínútur eða þar til deigið verður slétt og fínt. Hellið deiginu í smurð bökunarform og bakið við 180°C í 25 - 30 mínútur. Það er gott ráð að stinga hníf í kökuna eftir 25 mínútur og ef hnífurinn kemur hreinn upp úr er kakan klár en annars þarf hún lengri tíma. Ofnar eru auðvitað eins misjafnir eins og þeir eru margir.

Það er mikilvægt að leyfa kökunni að kólna alveg áður en hún er skreytt með kreminu.

Hvítt súkkulaðikrem

600 g smjör (mikilvægt að nota smjör en ekki smjörlíki) 
2 pk. flórsykur (hver pakki er 500 g) 
4 msk rjómi 
2 msk vanilla extract eða sykur 
400 g hvítt súkkulaði, brætt

Aðferð:

1. Þeytið smjörið í smá stund eða þar til það er orðið mjúkt og fínt. 
2. Bætið flórsykrinum saman við og tveimur matskeiðum af rjóma, þeytið mjög vel og stoppið að minnsta kosti tvisvar og skafið meðfram hliðum og haldið áfram að þeyta. 
3. Eftir nokkrar mínútur bætið þið vanillu saman við og hvíta súkkulaðinu sem þið bræðið yfir vatnsbaði. Þeytið áfram þar til kremið verður silkimjúkt og fallega hvítt. 

Eins og þið sjáið hér að ofan þá er þetta fremur stór uppskrift að kremi svo það er best að gera hana í tvennu lagi, en ég geri það sama og með kökuna hér að ofan ég tel upp þau hráefni og hversu mikið þið þurfið af þeim svo þið vitið nákvæmlega hvað þarf í kökuna. 

Smyrjið kreminu á milli botnanna og skreytið hana síðan með kreminu. Eins og þið sjáið þá er einn hlutinn aðeins minni en ég einfaldlega skar meðfram kökunni og þannig varð hún minni, sumir eiga form sem eru minni og þá er tilvalið að nota þau. Best er að skreyta kökurnar í sitthvoru lagi og leggja síðan minni hlutann ofan á þann stærri. Skreytið svo kökuna gjarnan með fallegum blómum og marengshnöppum. 




Ég var afar ánægð með útkomuna og brúðhjónin voru það sem betur fer líka, sem var nú fyrir öllu. 
Brúðkaupið þeirra var dásamlegt og ég hef sjaldan skemmt mér eins vel. 

Ég vona að þið njótið vel og sjáið hvað það er einfalt að setja saman fallega brúðartertu.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups



Friday, May 15, 2015

Djúsí pizzur á þrjá vegu


Einfalt og gott pizzadeig sem hefur reynst mér mjög vel, það tekur enga stund að gera deigið en það þarf smá tíma til að lyfta sér. Á meðan deigið er að lyfta sér er gott að nýta tímann til góðra verka t.d. að útbúa áleggið sem fer ofan á pizzurnar. Ég elska góðar pizzur og þessar þrjár eru algjört lostæti, ég segi það satt. Vinkonur mínar komu í mat í síðustu viku og mér fannst tilvalið að bjóða þeim upp á pizzu, þær voru ánægðar með matinn og áttum við einstaklega skemmtilegt kvöld saman.  

Pizzadeig 

  • 2 1/2 dl volgt vatn 
  • 25 g þurrger 
  • 2 tsk hunang 
  • 2 msk ólífuolía 
  • 350 - 400 g brauðhveiti frá Kornax
Aðferð: Leysið gerið upp í volgu vatni og það er afar mikilvægt að gerið sé volgt. Bætið hunangi saman við og hrærið vel í. Þegar byrjar að freyða í skálinni er gerið klárt. Blandið olíu og hveitinu saman við í hrærivélaskál. Þið getið auðvitað hnoðað deigið í höndunum en mér finnst langbest að nota hnoðarann á hrærivélinni, það ferli tekur um það bil 4 - 6 mínútur. Deigið er tilbúið þegar það er orðið að kúlu og klístrast ekki við hrærivélaskálina. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefa sig í klukkustund. 




Pizza með hráskinku

  • 1 pizzadeig
  • 1 skammtur pizzasósa (mér finnst líka gott að setja tómata passata)
  • Rifinn ostur 
  • 1 bréf hráskinka ca. 8 sneiðar
  • Klettasalat, magn eftir smekk
  • Hægeldaðir tómatar (Skerið kirsuberjatómata í tvennt og leggið þá í eldfast mót, hellið smávegis af olíu yfir og kryddið til með salti og pipar. Bakið í ofni við 150°C í 1,5 - 2  klst. Því lengur sem þeir eru í ofninum því betri verða þeir)
  • Parmesan ostur 
  • Salt og nýmalaður pipar 
Aðferð: Fletjið út pizzadeigið og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið botninn með sósunni og dreifið rifnum osti yfir. Setjið hráskinku yfir og bakið við 220°C í 10 - 12 mínútur. !Ofnar eru auðvitað misjafnir og það gæti verið að þið þurfið að baka hana lengur en pizzan er klár þegar pizzan er gullinbrún og hráskinkan stökk. 





Pizza með forsteiktu beikoni og rjómaosti 

  • 1 pizzadeig 
  • 1 skammtur pizzasósa (mér finnst gott að nota tómata passata)
  • Rifinn ostur 
  • 100 g forsteikt beikon 
  • Rauð paprika, smátt skorin 
  • Hreinn rjómaostur, magn eftir smekk 
  • Salt og nýmalaður pipar
  • Fersk basilíka
Aðferð: Fletjið út pizzadeigið og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið botninn með sósunni og dreifið rifnum osti yfir. Steikið beikon og þerrið á eldhúspappír, raðið því á pizzuna og dreifið paprikunni yfir. Setjið nokkrar matskeiðar af rjómaosti á pizzuna og verið ekkert að spara hann. Bakið við 220°C í 10 - 12 mínútur. !Ofnar eru auðvitað misjafnir og það gæti verið að þið þurfið að baka hana lengur en pizzan er klár þegar pizzan er gullinbrún. Þegar pizzan er komin út úr ofninum er gott að setja nokkur fersk basilíkulauf yfir. 



Vinsælasta pizzan í boðinu

  • Einn skammtur pizzadeig
  • 1 dós sýrður rjómi 
  • 1 villisveppaostur
  • 1 hvítlauksrif
  • Salt og nýmalaður pipar
  • 200 g sveppir steiktir upp úr smjöri og hvítlauk
  • Hægeldaðir tómatar
  • Smátt söxuð steinselja
Aðferð: Fletjið út pizzadeigið og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Rífið niður villisveppaostinn og hrærið saman við sýrða rjómann, pressið hvítlauksrifið og blandið saman við. Kryddið til með salti og pipar. Smyrjið ostablöndunni á botninn.

Steikið sveppina upp úr smjöri og pressið eitt hvítlauksrif út í pottinn, þerrið sveppina vel áður en þið setjið þá á pizzuna. Bakið við 220°C í 10 - 12 mínútur. !Ofnar eru auðvitað misjafnir og það gæti verið að þið þurfið að baka hana lengur en pizzan er klár þegarr hún er gullinbrún. Það er mjög gott að setja hægeldaða tómata og smátt saxaða steinselju yfir pizzuna í lokin.  









Það þarf alltaf að vera eftiréttur, ljúffengt vanillu pannacotta með hvítu súkkulaði. 

Ég mæli með að þið prófið þessar pizzur og njótið, helst í góðra vina hópi. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir