Showing posts with label Mexíkóskt. Show all posts
Showing posts with label Mexíkóskt. Show all posts

Wednesday, October 5, 2016

Súper gott kjúklinga Enchiladas með Mexíkó osti





Kjúklinga Enchiladas með Mexíkó osti 
  • Ólífuolía
  • 1 rauðlaukur
  • 1/2 rautt chili
  • 1 rauð paprika
  • 1 græn paprika
  • 2 hvítlauksrif 
  • salt og pipar
  • 2 kjúklingabringur 
  • 1 dós niðursoðnir tómatar 
  • 1 msk tómatpúrra
  • 1 mexíkóostur 
  • 1 dl vatn
  • Kóríander 
  • Tortilla kökur
  • Rifinn mozzarella
  • Sýrður rjómi 
  • Salsa 
Aðferð: 

  1.  Hitið olíu á pönnu, skerið niður grænmetið. 
  2.  Steikið laukinn í smá stund, bætið paprikum og chili út á pönnuna. 
  3. Pressið hvítlauksrif og bætið þeim einnig út á pönnuna. 
  4. Steikið kjúklingabringurnar á annarri pönnu eða eldið í ofni við 180°C í 20 mínútur. Kryddið bringurnar með kjúklingakryddi. Rífið bringurnar niður og bætið út á pönnuna. 
  5. Hellið tómötum og tómatmauki saman við. 
  6. Kryddið til með salti, pipar og smátt söxuðum kóríander. 
  7. Skerið mexíkó ostinn í litla bita eða rífið niður, setjið ostinn á pönnuna og hrærið. 
  8. Bætið smávegis af vatni saman við og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur.
  9. Setjið tortillakökur í eldfast mót, fyllið þær með kjúklingablöndunni og rúllið upp. 
  10. Sáldrið rifnum mozzarella osti yfir, ég reif einnig niður eina stóra mozzarella kúlu yfir. Það kom mjög vel út.
  11. Bakið við 180°C í ca. 20 - 25 mínútur eða þar osturinn er gullinbrúnn. 
  12. Berið fram með sýrðum rjóma, salsa, ferskum kóríander og gjarnan nachos flögum. 



Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

Friday, February 26, 2016

Bragðmikið og bráðhollt fiskitakkós úr Matargleði Evu

Fiskitakkós er algjör snilld til þess að fá fjölskylduna til að borða meira af fisk og grænmeti. Ég elska þessa uppskrift og geri hana mjög oft hér heima fyrir, það tekur enga stund að búa til þennan rétt og það er lygilega einfalt að baka sínar eigin tortillavefjur. Á föstudögum er hefð á mörgum heimilum að gera vel við sig og ég skora á ykkur að prófa þessa uppskrift, ég veit að þið eigið eftir að slá í gegn. 

Fiski takkós


Hveititortillur
  • 100 g heilhveiti
  • 60 g vatn
  • smá sjávarsalt

Aðferð:

Blandið öllum hráefnum saman í skál, hnoðið í nokkrar mínútur á hveitistráðu borði. Setjið deigið í hreina skál og viskastykki yfir, leyfið deiginu að hefast í 30-60 mínútur eða þegar deigið hefur tvöfaldast að stærð. Eftir þann tíma fletjið þá deigið út í litlar pönnukökur og steikið á pönnu í mínútu á hvorri hlið. Setjið viskastykki yfir kökurnar svo þær verði ekki of þurrar. 

Mangósalsa

  • 1 mangó 
  • 1 lárpera 
  • handfylli af kóríander 
  • 1 rauð paprika 
  • 1/2 rauðlaukur 
  • ólífuolía 
  • límónusafi 
  • salt og pipar 
  • 1 ananas
  • 1 tómatur 
Aðferð: Skerið hráefnin afar smátt niður og blandið vel saman í skál. Best er að geyma salsa inn í ísskáp í hálftíma áður en þið ætlið að bera það fram. 


Fiskurinn

  • 700 - 800 g fiskur, þorskur eða ýsa 
  • salt og pipar
  • 1 1/2 tsk paprikukrydd
  • 1 tsk cumin krydd 
  • ólífuolía 
Aðferð: Hitið olíu á pönnu, skeri fiskinn í jafn stóra bita og kryddið með salti, pipar, paprikukryddi og cumin kryddi. Veltið fiskinum vel upp úr kryddinu og steikið á pönnu í  2 - 3 mínútur á hvorri hlið. Berið strax fram í heilhveitivefjum með fersku mangósalsa og grísku jógúrti. 



Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld á Stöð 2. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 


Friday, January 29, 2016

Mexíkóskt salat í tortillaskál



Í fyrsta þætti af Matargleði Evu útbjó ég þetta ljúffenga mexíkóska salat í tortillaskál með lárperusósu. Ég elska mexíkóskan mat og þetta salat er tilvalið núna um helgina, stökkur kjúklingur með góðu grænmeti og gómsæt sósa sem setur punktinn yfir i-ið. Algjör veisla fyrir bragðlaukana :) 

Mexíkóskt salat í tortillaskál

Salatskálar

  • Tortillahveitikökur
  • Ólífuolía
Aðferð: Setjið smá ólífuolíu í pott, skál eða form sem þolir að fara inn í ofn. Setjið eina tortillahveitiköku í formið og mótið skál. Bakið við 180°C í 10–15 mínútur eða þar til kakan er orðin stökk. 

Lárperusósa:
  • 1 lárpera
  • 2 hvítlauksrif
  • 4–5 msk. grískt jógúrt
  • Safinn úr 1/2 límónu
  • Skvetta af hunangi
  • Salt og pipar
Aðferð: Setjið allt í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota, smakkið ykkur  til með salti og pipar. Best er að geyma sósuna í ísskápnum í smá stund áður en þið berið hana fram. 

Salatið:

  • 800 g kjúklingakjöt, helst kjúklingalæri með skinni
  • Salt og pipar
  • 1/2 tsk. kumminkrydd
  • 1 tsk. Bezt á allt-krydd
  • 1 askja kirsuberjatómatar
  • 1 laukur
  • Handfylli kóríander
  • 1 mangó
  • Ólífuolía
  • Límónusafi
  • Gott kál, t.d. lambhagasalat og klettasalat
  • Fetaostkubbur
Aðferð: Steikið kjúklinginn upp úr olíu, kryddið skinnhliðina með salti og steikið á þeirri hlið í tíu mínútur. Kryddið hina hliðina með salti, pipar, kumminkryddi og Bezt á allt-kryddblöndunni. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er gott að setja hann inn í heitann ofn á meðan salatið er útbúið.

Skerið allt grænmetið fremur smátt, blandið salsanu vel saman og bætið saman við lambhagasalatið og klettasalatið í lokin. Fyllið hverja tortillaskál með salati og skerið kjúklinginn í bita og raðið yfir. Setjið væna skeið af lárperusósu yfir og myljið fetaost rétt í lokin yfir allt salatið. 






Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2 klukkan 19:25. 

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Öll hráefni sem voru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 



Wednesday, September 30, 2015

Mexíkósk pizza með djúsí ostasósu á örfáum mínútum


Mexíkóskur matur er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og fæ aldrei leið á þessum góða mat, möguleikarnir eru líka svo margir sem gerir þessa matargerð enn betri. Ég sá sérstakar pizza tortillur út í búð um daginn og var ekki lengi að grípa þær með mér ásamt öðru góðu hráefni. Ég útbjó mjög einfalda pizzu og það var frekar fínt að sleppa við að baka venjulegan pizzabotn, stundum er maður einfaldlega ekki í stuði fyrir mikið tilstand í eldhúsinu. Botninn var þunnur og stökkur en þannig finnst mér pizzabotnar bestir. Pizzan var einstaklega ljúffeng og þið ættuð að prófa þessa uppskrift.





Mexíkósk pizza með kjúkling og djúsí ostasósu 

  • 2 tortilla pizzakökur
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 1 mexíkóostur, rifinn
  • salt og nýmalaður pipar
  • 500 – 600 g kjúklingakjöt t.d. úrbeinuð kjúklingalæri
  • 2 msk. Mexíkósk kryddblanda
  • 1 rauð paprika, smátt skorin
  • Salt og nýmalaður pipar

Tillögur að áleggi; lárpera, salsa sósa, sýrður rjómi og smátt saxaður kóríander.

Aðferð:

  1. Leggið kjúklingalæri eða annað kjúklingakjöt í eldfast mót og kryddið til með bragðmikilli kryddblöndu. Eldið í ofni við 180°C í 20 mínútur. (fer auðvitað eftir þykktinni á kjúklingakjötinu) 
  2. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum blandið þið sýrða rjómanum og nýrifnum mexíkóosti  saman í skál og kryddið til með salti og pipar.
  3. Smyrjið tortillakökur með ostasósunni (ég keypti sérstakar pizza tortillur í Hagkaup, þær eru aðeins þykkari).
  4. Skerið papriku og kjúklingakjöt í litla bita og dreifið yfir ostasósuna.
  5. Bakið í ofni við 180°C í ca. 5 – 7 mínútur. Þegar pizzan er tilbúin er gott að skera niður avókadó, tómata, ferskt kóríander og dreifa yfir. Einnig finnst mér algjört æði að mylja niður Nachos flögur og sáldra yfir. Einföld og stórgóð máltíð sem öllum í fjölskyldunni þykir góð. 




Mæli svo sannarlega með að þið prófið þessa, hún er mjöööög góð.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Friday, July 24, 2015

Mexíkóskur hamborgari með guacamole og nachos flögum


Ég elska góða og matarmikla hamborgara, þessi djúsí borgari er með mexíkósku ívafi og er einn af mínum uppáhalds. Það er leikur einn að útbúa hamborgara og ég mæli hiklaust með því. Ég er búin að borða hamborgara ansi oft núna í sumar og fæ ekki leið, það er auðvitað skemmtilegt við hamborgara að þeir eru aldrei eins. Bjóðið upp á þessa um helgina og þið sláið í gegn, ég segi það satt.


 Mexíkóskur hamborgari með guacamole og nachos flögum
  • 600 g nautahakk
  • 1 meðalstór rauðlaukur, smátt skorin
  • 1/2 rautt chilialdin, fræhreinsað og smátt skorið 
  • 2 dl steikt smátt skorið beikon
  • handfylli ferskt kóríander, smátt skorið (það má líka vera steinselja)
  • 1 egg
  • brauðrasp, magn eftir smekk 
  • 150 g rifinn mexíkóostur 
  • salt og pipar
Tillögur að meðlæti:
  • Ostur 
  • Salsa 
  • Guacamole  (besta sem ég veit, stundum svindla ég og kaupi það tilbúið út í Hagkaup um helgar en þá er hægt að kaupa ljúffengt og ferskt guacamole)
  • Jalepeno
  • Kál
  • Tómatar
  • Agúrka
  • Nachos flögur 

Aðferð: 
  1. Blandið öllum hráefnum saman í skál. Brauðrasp eða hveiti bindur deigið betur saman en notið eins mikið og ykkur finnst þið þurfa. Best er að nota hendurnar til verksins!
  2. Mótið fjóra til fimm hamborgara, ég keypti mér ágæta hamborgarapressu frá Weber í Hagkaup um daginn og mér finnst hún alveg frábær. Kostar tæplega 2000 kr. Kjarakaup!
  3. Grillið hamborgarana í þrjár mínútur á lokuðu grilli, snúið þeim við og bætið osti að eigin vali ofan á og grillið áfram í 4 – 6 mínútur.
  4. Það er gott að setja hamborgarabrauðin á grillið rétt í lokin.
  5. Berið borgarann fram með góðu meðlæti, hér fyrir ofan sjáið þið nokkrar tillögur. 
  6. Sætar kartöflufranskar eru ótrúlega góðar og ég ber þær yfirleitt fram með borgurum. Ég skar niður nokkrar sætar kartöflur í lengjur. Velti þeim upp úr olíu og kryddaði til með salti, pipar og paprikukryddi. Bakaði við 180°C í 35 – 40 mínútur. Voila! 

 Þetta er afar ljúffengt, ég segi það og skrifa. 

Mæli með að þið prófið núna um helgina. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 


Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.