Sunday, January 24, 2016

Gróf rúnstykki með sólblómafræjum


Um helgar finnst mér tilvalið að baka brauðbollur á morgnana, fylla heimilið af dásamlegri baksturslykt. Ég ætla að gefa ykkur uppskrift að grófum brauðbollum með sólblómafræjum sem eru mjög einfaldar og ekki tímafrekar. Það er oft sem mig langar að baka brauð en stundum finnst mér brauð uppskriftir svolítið tímafrekar og þá skýst ég frekar út í bakarí og kaupi nokkur rúnstykki. Það er þó miklu skemmtilegra að baka sitt eigið brauð og þess vegna hvet ég ykkur til þess að prófa uppskriftina. Ég hef meira að segja sleppt að láta bollurnar hefast í klukkstund, lét þær eingöngu hefast í 15 mínútur á pappírsklæddu ofnplötunni. Það kom ekki niður á bragðinu - svo ef þið viljið svindla eins og ég geri stundum þá ætti það að vera í góðu lagi. 

Nýbakaðar brauðbollur með miklu smjöri, osti og agúrku...Namm.. það slær enginn hendinni á móti því. 


Brauðbollur með sólblómafræjum
ca. 16 - 18 bollur 

  • 7 dl volg mjólk
  • 2 tsk þurrger
  • 1 tsk sykur
  • 1 tsk salt
  • 1 kg KORNAX heilhveiti
  • 2 msk ljós olía

Ofan á:

1 egg
Fræ að eigin vali

Aðferð: 

  1. Hellið volgri mjólk í hrærivélaskálina, bætið þurrgeri og sykri saman við. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið gerinu að vakna í rólegheitum. Þetta ferli tekur um það bil fimm mínútur, um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerblandan tilbúin.
  2. Bætið þá saltinu, heilhveitinu og olíunni saman við og hnoðið í hrærivélinni í 8 – 10 mínútur. Auðvitað er hægt að hnoða með höndunum líka – ég kýs að nota hnoðarann fyrst ég á hann til (of löt til þess að hnoða sjálf, haha)
  3. Þegar deigið er orðið þétt og fínt takið það upp úr skálinni og hnoðið það smávegis með höndunum. Leggið þið aftur í hreina skál og leyfið því að hefast í um það bil klukkustund á heitum stað.
  4. Skiptið deiginu í litla bita og mótið bollur. Leggið á pappírsklædda ofnplötu, leyfið bollunum að hefast í tíu mínútur til viðbótar.
  5. Pískið eitt egg og penslið yfir. Sáldrið gjarnan fræjum yfir og bakið við 200°C í 12 – 15 mínútur, eða þar til bollurnar eru gullinbrúnar.



Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 


Thursday, January 21, 2016

Matargleði Evu hefst í kvöld á Stöð 2 klukkan 19:25


Í kvöld er fyrsti þáttur í nýrri þáttaröð af Matargleði á Stöð 2. Þátturinn byrjar klukkan 19:25 og ég vona að þið eigið eftir að hafa gaman af. Mig langar að gefa einum lesanda áskrift af Stöð 2 í 2 mánuði, fallega bolla frá Royal Copenhagen, Matargleði matreiðslubókina mína og veglega gjafakörfu frá MS. Það eina sem þú lesandi góður þarft að gera er að skrifa nafn og netfang í athugasemdir og ég dreg út heppinn lesanda um helgina :) 

Risarjómaknús til ykkar allra 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Hollara bananabrauð


Í gær bakaði ég þetta gómsæta bananabrauð sem ég verð að deila með ykkur, ég skipti út hvíta hveitinu og notaði heilhveiti. Þetta var meira brauð, mér finnst bananabrauð oft svo sæt en þetta er brauðlegra. Það tekur enga stund að skella í þessa uppskrift og þið þurfið eingöngu örfá hráefni sem er alltaf kostur. Að vísu var brauðið aðeins dekkra hjá mér, ég var með það of lengi í ofninum en þannig var að Ingibjörg Rósa mín er búin að vera lasin og það tók aðeins lengri tíma að svæfa hana í lúrnum í gærdag og það hvarflaði ekki að mér að rjúka niður og taka brauðið út þegar sú litla var alveg sofna, ég náði þó að bjarga brauðinu áður en það brann haha :) 

Njótið vel. 

 Bananabrauð 


  • 2 egg
  • 2 þroskaðir bananar
  • 60 g smjör
  • 1 dl hlynsíróp
  • 3 1/5 dl Kornax Heilhveiti
  • 1 tsk vanillu extract (eða vanillusykur)
  • 1 dl mjólk 
  • 2 tsk lyftiduft 
Aðferð: 
  1. Hitið ofninn í 180°C (blástur) Þeytið saman egg og hlynsíróp þar til blandan verður létt og ljós. 
  2. Bræðið smjör við vægan hita og leggið til hliðar. 
  3. Blandið hveiti og lyftidufti saman og blandið við eggjablönduna. 
  4. Merjið banana og bætið út í blönduna ásamt mjólkinni og smjörinu. 
  5. Smyrjið form og hellið deiginu í formið, ég sáldraði smávegis af haframjöli yfir og skar niður 1/2 banana og lagði bita ofan á deigið. 
  6. Bakið brauðið við 180°C í 45 - 50 mínútur.







Kaffi, nýbakað bananabrauð og vinna. Gerist nú ekki huggulegra:) 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefnið sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 


Sunday, January 17, 2016

Æðisleg gulrótarkaka með rjómaostakremi



Góð helgi að líða undir lok og mig langar að deila með ykkur uppskrift að gulrótarköku sem mamma bakaði svo oft þegar við vorum yngri. Ég elska góðar gulrótarkökur með miklu kremi, já miklu kremi segi ég og undirstrika mikilvægi þess að vera með gott krem. Rjómaostakrem er mitt uppáhald og það fór nóg af kremi á kökuna hjá mér fyrr í dag. 

Helgin hefur verið fljót að líða og við fjölskyldan höfum haft það rosa gott hér heima fyrir, ég ætlaði að vísu að vera búin að sortera alla skápa í íbúðinni en hef ekki komist í það... ójæja, það kemur alltaf önnur helgi ;) Miklu mikilvægara að eyða tímanum í bakstur og notalegheit. Ég vona að þið hafið haft það fínt um helgina, veðrið hefur verið dásamlegt og ekki yfir neinu að kvarta. Ég ætla að fara að huga að sunnudagsmatnum, fæ til mín góða gesti og það er þess vegna ekkert svo galið að byrja að elda. Hér fyrir neðan er uppskriftin að kökunni góðu sem ég vona að þið prófið og njótið vel. 


Gulrótarkaka með ómótstæðilegu rjómaostakremi


 Botnar:

4 egg
2 bollar púðursykur (eða 5 dl)
3 bollar rifnar gulrætur
1 lítil dós kurlaður ananas
2 bollar KORNAX hveiti (eða 5 dl)
2 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
1 tsk vanilla
1 1/2 bolli bragðdauf olía
1 1/2 Bolli matarolía (eða ca. 3,25 dl)

Aðferð:

1. Þeytið saman sykur og egg þar til blandan verður ljósbrún.
2. Rífið niður gulrætur og bætið þeim út í, hrærið í smá stund.
3. Bætið öðru hráefni saman við og hrærið í 2 - 3 mínútur eða þar til deigið hefur blandast vel saman.
4. Smyrjið tvö hringlaga form og skiptið deiginu jafnt í formin. Bakið við 180°C í 35 - 40 mínútur.

*Það er gott að stinga prjóni eða endanum á gaffal í kökuna eftir ca. 35 mínútur, ef kakan er enn blaut þarf hún aðeins lengri tíma.

*Kælið kökubotnana mjög vel áður en þið setjið á þá krem






Ómótstæðilegt rjómaostakrem

300 g smjör, við stofuhita
400 g hreinn rjómaostur frá MS, við stofuhita
500 g flórsykur
1 - 2 tsk vanilludropar eða sykur
1 tsk sítrónusafi
1 - 2 msk rjómi

Aðferð:

1. Þeytið smjör og rjómaost saman þar til blandan verður létt.
2. Bætið flórsykri og vanillu saman við og hrærið, bragðbætið með sítrónusafa og hellið rjómanum saman við í lokin og þeytið þar til kremið verður silkimjúkt.

Smyrjið kreminu á milli botnanna og þekjið svo kökuna með kreminu. Ristið gjarnan möndluflögur og skreytið.








Njótið vel og ég vona að þið eigið gott sunnudagskvöld framundan. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefni sem notað var í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 


Thursday, January 14, 2016

Tryllingslega gott grænmetislasagna


Ég deildi þessari uppskrift með áhorfendum Stöðvar 2 í þættinum mínum Matargleði á síðasta ári, einhverra hluta vegna rataði uppskriftin ekki hingað inn og nú bætum við úr því. Það er svo sannarlega alltaf staður og stund fyrir gott lasagna og ég mæli með að þið prófið þessa uppskrift. Gott grænmeti, pasta og góður ostur. Þurfum við nokkuð eitthvað meira? Ég þori að lofa ykkur að þið eigið eftir að elda uppskriftina aftur og aftur - hún er sáraeinföld og þið getið auðvitað notað það grænmetið sem þið eigið til í ísskápnum hverju sinni. 


Grænmetislasagna með pestókartöflum


Grænmetislasagna


Ólífuolía
1 laukur
4 hvítlauksrif
2 gulrætur
2 sellerístangir 
1 rauð paprika
1 græn paprika
½ kúrbítur
150 g spergilkál
1 dós niðursoðnir tómatar með basilíku
2 msk tómatmauk eða tómatpúrra
600 ml grænmetissoð (soðið vatn + grænmetisteningur)
salt og pipar
Handfylli fersk basilíkulauf
Handfylli fersk steinselja
1 dós kotasæla
1 dós sýrður rjómi
Parmesan ostur, magn eftir smekk
Salt og nýmalaður pipar
Lasagneplötur, ferskar eða soðnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkanunm.
Rifinn Mozzarella ostur, magn eftir smekk

Aðferð: 

  1. Hitið olíu á pönnu. Skerið grænmetið smátt og steikið við vægan hita í nokkrar mínútur eða þar til grænmetið er farið að mýkjast. Bætið pressuðum hvítlauk út pönnuna í lokin og steikið í smá stund. Gott er að setja smá klípu af smjöri.

  2. Bætið niðursoðnum tómötum, tómatmauki, ferskri basilíku, grænmetissoðinu á pönnuna og látið sjóða í 30 mínútur við vægan hita. Kryddið til með salti og pipar.

  3. Á meðan grænmetið mallar á pönnunni búið þið til hvítu sósuna en þið blandið saman kotasælu, sýrðum rjóma, 50 g af rifnum parmesan, salti og pipar. Blandið vel saman.

  4. Setjið grænmetisblöndu í botninn á eldföstu móti,  því næst lasagnaplötur, hvítu sósuna, aftur grænmetisblönduna og endurtakið leikinn einu sinni til tvisvar.

  5. Dreifið vel af rifnum mozzarella osti yfir og nýrifnum parmesan.

  6. Bakið í ofni við 180°C í 40 – 45 mínútur.

Kartöflur með kasjú- og klettasalatpestói

Kartöflur
150 g kasjúhnetur
Handfylli fersk basilíkulauf
Handfylli klettasalat
50 g parmesan ostur
Nóg af olífuolíu (smekksatriði hvað þið viljið hafa pestóið þykkt)
Salt og pipar
Skvetta af sítrónusafa 

Aðferð:

  1. Sjóðið kartöflur með hýðinu, saltið vel.

  2. Maukið saman kasjúhnetur, basilíku, klettasalat, parmesan ost, ólífuolía, salt, pipar og sítrónusafa með töfrasprota eða matvinnsluvél.

  3. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar þá hellið þið vatninu af þeim og blandið þeim saman við pestóið. 


Njótið vel kæru vinir. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Allt hráefnið sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

Tuesday, January 12, 2016

Matargleði Evu. Bakvið tjöldin :)



Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur og takk fyrir það gamla. Tíminn hefur svo sannarlega flogið áfram á nýju ári og ég ætlaði auðvitað að vera löngu búin að stinga nefinu hingað inn. Bæði skólinn og vinnan komin á gott skrið eftir dásamlegt jólafrí. 

 Í dag byrjaði ég á nýrri þáttaröð en þann 21.janúar fer þriðja þáttaröðin af Matargleði Evu í loftið. Ég vona að þið eigið eftir að njóta vel. Þetta verður eins og í fyrri þáttaröðum blanda af hollum, rjómalöguðum, fljótlegum, einföldum og svo aðeins flóknari uppskriftum. Eitthvað fyrir alla. Ég kem til með að deila myndum með ykkur og þið getið auðvitað fylgst með stöðunni á Snapchat en þið finnið mig undir evalaufeykjaran. Nú er klukkan hins vegar að ganga tíu og konur sem vakna klukkan sex eru löngu farnar að geispa... mig langaði bara rétt að kíkja hingað inn og heilsa ykkur. 











Mjög mikilvægt að pósa duglega haha :-)

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir