Showing posts with label Brauð. Show all posts
Showing posts with label Brauð. Show all posts

Tuesday, June 21, 2016

Heilhveitibrauð með sólblómafræjum

Í gær eldaði ég grænmetissúpu og bakaði einnig einfalt heilhveitibrauð með sólblómafræjum sem ég var svo ánægð með að ég verð að deila uppskriftinni með ykkur. Ég nota heilhveiti talsvert mikið í bakstur en heilhveiti er malað með kími og klíði og því mun næringarríkara en hvítt hveiti. Heilhveitið hentar vel til brauðgerðar en deig úr því er þó aðeins þyngra í sér en brauð úr hvítu hveiti, svo ef þið eigið uppskriftir þar sem eingöngu hvítt hveiti er notað þá er ágætt að setja minna af heilhveiti, alltaf að setja minna en meira en þá er svo auðvelt að bæta við ef þess þarf.

Fullkomið brauð fyrir útileiguna í sumar, tilvalið að skera það niður og setja gott álegg á milli og skella sér út í náttúruna. Einfaldara verður það ekki og ég hvet ykkur til þess að prófa þessa uppskrift.


Heilhveitibrauð með sólblómafræjum

  • 100 g brætt smjör
  • 4 dl nýmjólk
  • 1 bréf þurrger (12 g bréfið)
  • 1 msk hunang
  • 1 tsk salt
  • 400 g kotasæla
  • ca. 750-800 KORNAX heilhveiti (+ aðeins meira ef þarf) 
  • 1 egg 
  • Sólblómafræ

Aðferð:

  1. Bræðið smjör í potti, bætið mjólkinni, þurrgerinu og hunanginu saman við og hrærið vel saman.
  2. Hellið blöndunni í hrærivélaskál ásamt saltinu, kotasælunni og hveitinu.
  3. Hnoðið deigið í hrærivélinni í um það bil 8 mínútur. (Það tekur aðeins lengri tíma að gera það í höndunum)
  4. Stráið hveiti á borðflöt og hnoðið deigið í smá stund með höndunum og mótið eina stóra kúlu.
  5. Færið kúluna yfir í hreina skál og leggið viskastykki yfir skálina. Leyfið deiginu að hefast í rúmlega klukkustund eða þar deigið hefur tvöfaldast að stærð.
  6. Hitið ofninn í 200°C (blástur)
  7. Skiptið deiginu niður í jafn stóra bita og mótið kúlur.
  8. Raðið kúlunum á pappírsklædda ofnplötu, þétt upp við hvor aðra. 
  9. Penslið brauðið með eggi og sáldrið sólblómafræjum yfir. 
  10. Bakið við 200°C í 15-20 mínútur. 



Njótið vel. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Sunday, May 22, 2016

Æðisleg fyllt snittubrauð


Fyllt snittubrauð með pestófyllingu og hvítlauksfyllingu eru afar ljúffeng og einföld í gerð. Ég elska þessi brauð og geri þau mjög oft, þau eru frábær með súpu eða þá ein og sér. Það þarf alls ekki að vera flókið að baka sitt eigið brauð og mér finnst það alltaf svo gaman, sérstaklega vegna þess að þá veit ég nákvæmlega hvað fer í brauðið. Uppskriftin er mjög einföld og það tekur ekki langa stund að útbúa þessi brauð, þið getið svo auðvitað bætt öllu því sem þið viljið í brauðin og um að gera að prófa sig áfram. Ég mæli með að þið prófið þessa uppskrift um páskana og ég vona að þið njótið vel. 


Snittubrauð 

  • 500 g brauðhveiti frá Kornax
  • 320 ml volgt vatn
  • 1 msk hunang
  • 15 g ger
  • 1 tsk salt
  • 2  msk ólífuolía
  • Handfylli rifinn mozzarella ostur
Pestófylling
  • 5-6 msk rautt pestó (ég notaði pestó frá merkinu Ítalía, fæst í Hagkaup)
  • 2 msk fetaostur + smávegis af olíu
  • Salt og pipar
Ólífubrauð
  • 12-14 grænar ólífur
  • 2 – 3 hvítlauksrif
  • 2 msk ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 1 tsk. Ítölsk kryddblanda
Aðferð:
  1. Blandið þurrgeri, volgu vatni og hunangi saman. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið gerinu að vakna í rólegheitum, það tekur 6 - 8 mínútur. Þegar byrjar að freyða í blöndunni er hún tilbúin. 
  2. Blandið gerblöndunni, hveiti, salti og olíu saman og hnoðið í nokkrar mínútur eða þar til deigið verður mjúkt. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund. 
  3. Búið til tvær lengjur úr deiginu og  skerið létt í brauðin eftir endilöngu.
  4. Látið hefast á ný í 20 – 30 mínútur.
  5. Hitið ofninn í 230°C.
  6. Útbúið fyllingarnar og smyrjið ofan á brauðin, sáldrið rifnum osti yfir og bakið við 220 – 230°C í 10-12 mínútur eða þar til osturinn verður gullinbrúnn.

Einfalt og hriklega góð uppskrift. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 

Wednesday, April 6, 2016

Skinkuhorn með mexíkóskum blæ

Með hækkandi sól finn ég sumarþrána læðast yfir mig. Eruð þið ekki sammála? Það er svo mikill munur að vakna á morgnana í góðu veðri og fara út í daginn með bros á vör. Og afþví sumarþráin er farin að segja til sín þá bakaði ég þessi ljúffengu skinkuhorn í gær en þau minna mig á sumarið. Ég bakaði síðast skinkuhorn rétt áður en ég átti Ingibjörgu Rósu (sem er 21 mánaða í dag). Það var þess vegna tími til kominn fyrir skinkuhornabakstur!

 Ég borðaði ófá horn þegar þau komu út úr ofninum í gær, þau eru auðvitað langbest nýbökuð en svo finnst mér frábært að frysta helminginn af uppskriftinni og grípa í eitt og eitt úr frystinum. Þá er sniðugt að hita þau aðeins upp í ofninum áður en þið berið þau fram. Uppskriftin gefur ca.40 horn en það fer auðvitað eftir stærðinni. Mæli með þessum hornum og sniðugt að bjóða upp á þau í stærri veislum til dæmis. 

Skinkuhorn með mexíkóskum blæ 

ca. 40 meðalstórn skinkuhorn
  • 900 g. Kornax hveiti
  • 60 g. Sykur
  • ½ tsk. Salt
  • 100 g. Smjör
  • ½ l mjólk
  • 1 pakki þurrger

Ofan á:
  • 1 egg
  • Smá mjólk
  • t.d. rifinn ostur eða korn

Aðferð:
  1. Hitið mjólkina í potti við vægan hita (mjólkin á að vera volg). 
  2. Bætið þurrgerinu út í mjólkina og látið standa í 4 – 5 mínútur. 
  3. Bræðið smjörið við vægan hita. 
  4. Blandið öllu saman og hnoðið deigið vel saman eða þar til deigið er slétt og samfellt.
  5.  Leyfið deiginu að lyfta sér í 40 – 50 mínútur. Þá hnoðið þið deigið einu sinni enn og leyfið því að lyfta sér í 30 mínútur til viðbótar.
  6. Á meðan deigið er að lyfta sér þá er gott að undirbúa fyllinguna. Þið getið auðvitað fyllt deigið með allskyns góðgæti en í dag erum við að búa til skinkuhorn og þá er skinka auðvitað aðalatriðið.

Hér er innihaldið í þessa einföldu og stórgóðu fyllingu.
  • 1 pakki skinka ca. 250 g
  • 1 askja Tex Mex smurostur
  • 1 askja Paprikuostur
  • ½ rauð paprika
  • Rifinn ostur, magn eftir smekk

Aðferð:
  1. Skerið skinkuna í litla bita og blandið henni saman við smurostinn. 
  2. Þegar deigið er tilbúið þá er því skipt niður í fimm einingar. (um 300 – 330 g hver eining)
  3. Fletjið út hverja einingu í hring og skerið hverja einingu í átta þríhyrninga (mér finnst gott að nota pízzahníf).
  4.  Setjið fyllingu í hvern þríhyrning og dreifið smá osti yfir.
  5.  Rúllið deiginu frá breiðari endanum þegar þið lokið hornunum.
  6.  Pískið eitt egg og smá mjólk saman og penslið yfir hornin.
  7.  Gott er að sáldra rifnum osti eða kornum yfir hornin áður en þau fara inn í ofn.
  8. Bakið hornin við 200°C í 10 – 12 mínútur. (Fylgist vel með hornunum því ofnar eru auðvitað misjafnir)




Njótið vel. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.


Tuesday, March 29, 2016

Vikuseðill

Gleðilega vinnuviku allir saman! Ég vona að þið hafið haft það einstaklega gott um páskana. Sjálf átti ég frábæra páska með fólkinu mínu og kom endurnærð til vinnu í morgun. Markmið vikunnar er að minnka súkkulaðiát haha og þá er tilvalið að hefja vikuna á þessum græna og fína drykk sem þið sjáið hér að ofan, æðislegur avókadó drykkur með sítrónu. Hér fyrir neðan finnið svo tillögur að kvöldmat út vikuna og ég vona að þið fáið nóg af hugmyndum.

Njótið vel.

Einföld grænmetisbaka með fetaosti er alltaf góð hugmynd eftir veisluhöld í marga daga. Það er upplagt að nota afganga í þessa böku t.d. kjöt eða kjúkling. 

Fiski takkós er frábær leið til þess að fá alla fjölskylduna til þess að borða meira af fisk og grænmeti. Ljúffengur réttur sem slær alltaf í gegn. 

Góðar og matarmiklar súpur eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér og gúllassúpan hennar mömmu er ein af þessum súpum sem ég fæ ekki nóg af. Það er líka tilvalið að elda hana í vikunni þar sem veðurspáin er heldur köld og þá er nú ekkert betra en matur sem yljar að innan. 

Kjúklinganúðlur með bragðmikilli sósu er frábær föstudagsmatur og réttur sem allir í fjölskyldunni ættu að elda. Algjört sælgæti!

Hví ekki að skella í Indverska veislu um helgina? Tikka Masala kjúklingur er náttúrlega himneskur og ég mæli með honum á laugardaginn. 

Helgarbaksturinn er súkkulaðiskyrkaka með jarðarberjum. En ekki hvað? Við þurfum öll okkar súkkulaði. 

Öll hráefnin í þessar uppskriftir fást í verslunum Hagkaups. 

Friday, January 29, 2016

Pottabrauð og æðislegt pestó úr öðrum þætti af Matargleði Evu


Í þætti gærkvöldsins bakaði ég þetta ofur einfalda brauð og gerði æðislegt pestó með sem tekur enga stund að búa til. Ég geri mjög oft pestó og það er lygilega einfalt, nota yfirleitt bara það sem ég á til hverju sinni og útkoman verður alltaf góð. Það er aðalatriði að eiga góða basilíku, hnetur, parmesan og ólífuolíu. Svo er hægt að bæta öðrum hráefnum við, það fer bara eftir stuðinu í manni :) 


Rósmarín-og hvítlauksbrauð með æðislegu pestói 

  • 470 g brauðhveiti
  • 370 ml volgt vatn
  • 1 tsk salt
  • 1/4 tsk þurrger
  • 1 msk ferskt rósmarín
  • 2 hvítlauksrif

Aðferð: 
  1. Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið vatni saman við. Setjið plastfilmu yfir skálina og geymið við stofuhita í að minnsta kosti tólf klukkustundir. 
  2. Hellið deiginu á hveitistráðborð og stráið smá hveiti yfir deigið. Saxið rósmarín og hvítlauk mjög smátt og blandið við deigið. 
  3. Hnoðið deigið rétt aðeins í höndunum og brjótið það saman þannig að það myndi kúlu. 
  4. Smyrjið ofnpott með olíu og setjið pottinn inn í ofn við 230°C. 
  5. Takið pottinn út úr ofninum, setjið brauðið í pottinn og inn í ofn í 30 mínútur. Þegar 30 mínútur eru liðnar takið þið lokið af pottinum og bakið áfram í 10 - 15 mínútur.  

Pestó með sólþurrkuðum tómötum og sólkysstum tómötum 

  • 1 búnt basilíka
  • 1 krukka sólþurrkaðir tómatar ca. 3 dl
  • 1 krukka sólkysstir tómatar ca. 3 dl
  • 100 g ristaðar furuhnetur
  • 50 g parmesan
  • salt og pipar
  • 2 msk sítrónusafi
  • 1 dl ólífuolía


Aðferð: Setjið allt í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Berið með með ljúffengu brauði.

Þið kannski sjáið það ekki en ég þarf að standa á tám til þess að ná upp í þessa hillu, ég er ekkert mjög hávaxin haha :) 

Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld á Stöð 2 klukkan 19:25.

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefni sem eru notuð í þessar uppskriftir fást í verslunum Hagkaups.