Sunday, March 13, 2016

Æðislegar súkkulaði- og lakkrísbollakökur.




Í gærkvöldi var mér boðið í ævintýralega lakkrísveislu á Kolabrautinni. Réttirnir voru fimm talsins og innihéldu allir lakkrís frá heimsþekkta fyrirtækinu Lakrids By Johan Bülow. Eftir þessa veislu og gott spjall við Johan er ég enn hrifnari af lakkrísnum hans og ákvað strax í morgun að hefja þennan sunnudaginn á súkkulaðibakstri með góðum lakkrís.

 Það tekur enga stund að baka kökurnar og lakkrísinn setur punktinn yfir i-ið en súkkulaði og lakkrís fara mjög vel saman, vægt til orða tekið. Nú ætla ég hins vegar að hætta þessu blaðri og deila uppskriftinn með ykkur, ég mæli með að þið prófið hana... strax í dag :)  

Súkkulaði- og lakkrísbollakökur 


Súkkulaðideig:

  • 3 bollar Kornax hveiti (Amerísk mæling, 1 bolli = 2,4 dl)
  • 2 bollar sykur
  • 2 bollar AB mjólk
  • 1 bolli ljós olía
  • 5 msk kakó
  • 2 tsk matarsódi
  • 2 tsk lyftiduft 
  • 4 egg
  • 2 tsk vanilludropar
  • 150 g saxað suðusúkkulaði
  • 1 tsk lakkrísduft frá Johan Bülow
Aðferð:

  1. Stillið ofninn í 180°C. (blástur) 
  2. Blandið öllum hráefnum saman í hrærivél og hrærið í nokkrar mínútur þar til deigið verður slétt og fínt. 
  3. Skiptið deiginu niður í bollakökuform og inn í ofn við 180°C í 15 - 18 mínútur. 
  4. Kælið kökurnar mjög vel áður en þið setjið á þær krem. 
Himneskt súkkulaðikrem 
  • 200 g smjör 
  • 500 g flórsykur 
  • 1 msk rjómi (eða mjólk)
  • 150 g brætt suðusúkkulaði
  • 2 tsk vanilludropar
  • 2 msk kakó 
  • 1 tsk lakkrísduft frá Johan Bülow 
  • 1 egg (má sleppa en mér finnst kremið betra með egginu)
Aðferð:
  1. Þeytið saman smjör og flórsykur þar til blandan verður létt og ljós, það er mikilvægt að smjörið sé við stofuhita. 
  2. Bætið rjómanum og súkkulaðinu saman við ásamt kakó og vanillu. Ég setti eitt egg út í kremið til þess að gera það enn betra og mýkra, þess þarf ekki en það er betra.
  3. Setjið lakkrísduftið út í lokin og smakkið ykkur til, þið viljið jafnvel setja meira af duftinu. 
  4. Sprautið kreminu á kökurnar og skreytið með lakkrískúlum. Ég var með hindberja- og súkkulaðikúlur sem mér finnst algjört æði. Þær koma í bleikum umbúðum og á þeim stendur Love. 














Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefnin fyrir utan lakkrísinn fást í verslunum Hagkaups en lakkrísinn fæst í verslunum Epal. 


Volg súkkulaðikaka og kaffiís úr Matargleði Evu


Volg súkkulaðikaka með kaffiís

Eftirréttur sem sameinar súkkulaði og kaffi er fullkomin fyrir mér.  Í síðasta þætti útbjó ég þessa ljúffengu súkkulaði brownie og gerði einfaldasta ís í heimi, kaffiís sem passar mjög vel með nýbakaðri köku. 
Brownies uppskrift:

  • 150 g smjör
  • 250 g súkkulaði t.d. suðusúkkulaði 
  • 200 g sykur 
  • 2 stór egg 
  • 100 g hveiti
  • 1 tsk vanillusykur 
  • 2 msk kakó
  • 70 g hnetur/möndlur
  • 70 súkkulaðibitar/dropar

Aðferð: 

  1. Hitið ofninn í 170°C (blástur).
  2. Bræðið smjör við vægan hita, saxið súkkulaðið og bætið því við smjörið og leyfið því að bráðna í smjörinu. Takið pottinn af hellunni og leyfið súkkulaðiblöndunni að kólna. 
  3. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið vanillu, hveiti og kakó saman við og hrærið þar til deigið er silkimjúkt. Hellið súkkulaðiblöndunni varlega saman við og setjið saxaðar möndlur/hnetur og súkkulaðibita saman við með sleikju.  
  4. Hellið deiginu í pappírsklætt form (20x20. Bakið við 170°C í 30 mínútur. Berið strax fram og njótið.
Kaffiís

  • 5 eggjarauður
  • 10  msk sykur
  • 400 ml rjómi
  • 3 msk kaffiduft (ég notaði cappuccino duft)
  • 150 g súkkulaði, smátt saxað
  • 1 tsk vanilludropar

Aðferð: 

  1. Þeytið saman eggjarauður og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
  2. Hrærið léttþeyttum rjóma saman við með sleikju. 
  3. Bætið kaffidufti, söxuðu súkkulaði og vanilludropum við og balndið vel saman. Hellið ísblöndunni í skál og inn í frysti í nokkrar klukkustundir. Berið fram með kökunni. 



Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2. 

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 

Thursday, March 10, 2016

Risotto með ferskum aspas og stökku beikoni

Risotto er guðdómlegur hrísgrjónaréttur sem sameinar allt það sem mér þykir gott. Hægt er að útfæra réttinn á marga vegu og í þætti gærkvöldsins eldaði ég Risotto með ferskum aspas, stökku beikoni og sveppum. Einfalt og brjálæðislega gott með miklum parmesan. Ég pantaði mér Risotto á veitingahúsi í London fyrir nokkrum árum og kolféll fyrir honum, silkimjúkur og ómótstæðilega góður...  

Risotto með ferskum aspas og stökku beikoni


  • 1 msk ólífuolía + klípa smjör
  • 1 laukur
  • 1 sellerí stilkur
  • 2 hvítlauksrif
  • 4 dl arborio hrísgrjón
  • 250 g smátt skorinn aspas
  • 8 sveppir, smátt skornir
  • 8 dl kjúklingasoð
  • 2 dl hvítvín
  • Salt og pipar
  • 60-80 g parmesan ostur
  • 2 msk smjör

Ofan á:
  • 100 g beikon
  • 100 g aspas
  • 100 g sveppir

Aðferð:
  1. Hitið ólífuolíu í potti og steikið laukinn, sellerí og hvítlauk í 2-3 mínútur. Bætið smátt söxuðum aspas og smátt söxuðum sveppum út í pottinn og steikið, bætið því næst arborio grjónum út í og hrærið stöðugt. 
  2. Hellið hvítvíninu saman við og leyfið því að sjóða niður, bætið næst kjúklingasoðinu smám saman viðog hrærið mjög vel á milli.
  3. Bætið parmesan ostinum og smjörinu saman við í lokin og kryddið til með salti og pipar. Steikið beikon, aspas og sveppi á pönnu þar til hráefnin eru vel stökk. Setjið Risotto á disk og skreytið með stökku beikoni, aspas og sveppum. Rífið gjarnan niður meiri parmesan og stráið yfir réttinn í lokin. 

Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2.

Njótið vel.

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Entrecôte með chili bernaise og frönskum kartöflum


Í þætti kvöldsins lagði ég áherslu á lúxus matseðil og setti saman þrjá ljúffenga rétti sem tilvalið er elda þegar þið viljið gera vel við ykkur. Nautasteik með öllu tilheyrandi er eitt af því besta sem ég get hugsað mér og ef ég ætla að elda eitthvað gott handa okkur Hadda þá verður þessi réttur yfirleitt fyrir valinu. Að vísu geri ég þá tvær sósu, annars vegar piparostasósu og hins vegar þessa ómótstæðilegu chili bernaise sósu sem ég fæ hreinlega ekki nóg af og gæti borðað hana eina og sér. Hún er algjört æði! Þið vitið hvernig þetta er, ef smjörið er í aðalhlutverki þá er bókað mál að rétturinn sé góður.

Entrecôte með chili bernaise og ljúffengum kartöflum

  • 5 eggjarauður
  • 250 g smjör, skorið í teninga
  • 1 msk Bernaise Essence
  • 2 – 3 tsk. Fáfnisgras, smátt saxað
  • Salt og nýmalaður pipar

Bernaise Essence
  • 1 dl hvítvínsedik
  • 8 svört piparkorn
  • 2 tsk fáfnisgras
  • 3 skallottulaukar, smátt saxaðir
  • ½ rautt chili, smátt skorið

Aðferð:
  1. Útbúið Bernaise Essence, setjið hvítvínsedik, skallottulauk, fáfnisgras, chili og svört piparkorn í pott og sjóðið saman þar til 1 msk af vökva er eftir. Sigtið vökvann og geymið til hliðar.
  2. Þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði og bætið smjörinu smám saman við, þetta er smá handavinna en er vel þess virði. Ef skálin er of heit takið þið hana af vatnsbaðinu og kælið, en haldið alltaf áfram að hræra. Það er mjög mikilvægt að skálin sé ekki of heit en annars eldast eggjarauðurnar.
  3. Bragðbætið með Bernaise Essence, salti og pipar.
  4. Gott er saxa niður ferskt fáfnisgras og chili og sáldra yfir sósuna rétt í lokin.

Franskar kartöflur
  • Bökunarkartöflur
  • Ólífuolía
  • Salt

Aðferð:
  1. Skerið bökunarkartöflurnar í jafn þykka strimla og leggið í ískalt vatn í nokkrar mínútur. Þerrið kartöflurnar mjög vel og leggið í eldfast mót eða á pappírsklædda ofnplötu.
  2.  Bakið við 180°C í 30 - 35 mínútur eða þar til kartöflurnar eru gullinbrúnar. Snúið kartöflunum einu sinni til tvisvar á meðan þær eru í ofninum.

Nautakjöt
  • Ólífuolía
  • 2 entrecôte steikur (ca. 1 steik eða  200-250 g á mann)
  • Salt og nýmalaður pipar
  • Rósmarín grein
  • 1 Hvítlaukur

Aðferð:
  1. Hitið ólífuolíu á pönnu, steikið kjötið við háan hita í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Kryddið til með salti og pipar. 
  2. Gott er að setja rósmarín grein og hvítlauksrif út á pönnuna rétt í lokin ásamt smjörklípu. Leyfið kjötinu að hvíla í 5 mínútur áður en þið berið það fram.
Missið ekki af Matargleði Evu á fimmtudagskvöldum á Stöð 2 klukkan 19:25.

Njótið vel.

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Sunday, March 6, 2016

Brjálæðislega góð Oreo ostakökubrownie


Á sunnudögum er tilvalið að gera vel sig og baka góða köku, eins og þið hafið eflaust tekið eftir hér á blogginu þá leiðist mér ekki að baka og mig langar að deila með ykkur uppskrift að ómótstæðilegri köku sem ég bakaði um síðustu helgi. Hún er algjört sælgæti og ég á eftir að baka hana mjög oft. Ég elska súkkulaðikökur og ég elska ostakökur, sú ást minnkaði ekkert þegar þeim er blandan saman í eina köku sem ég þori að veðja að þið eigið eftir að elska. Nú er um að gera að hendast út í búð eftir nokkrum hráefnum og baka Oreo ostaköku fyrir fjölskylduna á þessum fína sunnudegi.


Oreo ostakökubrownies


Brownies uppskrift:
  • 150 g smjör
  • 250 g súkkulaði t.d. suðusúkkulaði 
  • 200 g sykur 
  • 2 stór egg 
  • 100 g KORNAX hveiti
  • 1 tsk vanillusykur 
  • 2 msk kakó
  • 6 - 8 Oreo kexkökur 
Karamellufylling
  • 700 g rjómaostur (1 1/2 askja frá MS)
  • 2 msk rjómi 
  • 2 msk flórsykur 
  • 12 OREO kexkökur 
Súkkulaðikrem ofan á:

250 g suðusúkkulaði
Aðferð: 
  • Hitið ofninn í 170°C (blástur).
  • Bræðið smjör við vægan hita, saxið súkkulaðið og bætið því við smjörið og leyfið því að bráðna í smjörinu. Takið pottinn af hellunni og leyfið súkkulaðiblöndunni að kólna. 
  • Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið vanillu, hveiti og kakó saman við og hrærið þar til deigið er silkimjúkt. Í lokin hellið þið súkkulaðiblöndunni við og blandið vel saman. 
  • Hellið deiginu í pappírsklætt form (20x20), brjótið Oreo kökurnar eða setjið þær í heilu lagi ofan í deigið. Bakið við 170°C í 30 mínútur. Það er mjög mikilvægt að leyfa kökunni að kólna alveg í forminu. (best að setja hana í kæli)
  • Á meðan kakan er í kæli hrærið þið saman rjómaosti, rjóma og flórsykri. Það er gott að hafa rjómaostinn við stofuhita en þá er þægilegra að hræra hann. Þegar blandan verður létt saxið þið niður OREO kökur og blandið við með sleikju. Dreifið blöndunni yfir kalda brownies köku og inn í ísskáp á ný. Ostaköku blandan þarf að vera köld og stíf er súkkulaðikremið fer yfir. 
  • Bræðið mjólkursúkkulaði yfir vatnsbaði og hellið yfir kökuna í lokin. Kælið og þegar súkkulaðið er orðið hart þá er kakan tilbúin, skerið hana í bita og berið strax fram.  
















Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 



Öll hráefnin sem voru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 

Friday, March 4, 2016

Spínat- og ostafyllt pasta sem bráðnar í munni

Ef ég ætti að velja minn uppáhalds pastarétt þá væri það án efa þessa hér, hann sameinar allt það sem mér þykir gott. Pasta, nóg af osti, góða sósu og spínat. Mjög djúsí og góður réttur sem þið ættuð endilega að prófa. 

Cannelloni

fyrir þrjá til fjóra

  •      Ólífuolía
  •      1 laukur 
  •      3 hvítlauksrif 
  •      2 dósir hakkaðir tómatar 
  •      Salt og nýmalaður pipar 
  •      Handfylli basilíka 
  •      1 lárviðarlauf
  •      ½ kjúklingateningur
  •      500 g spínat
  •      ½ tsk múskat 
  •      Börkur af hálfri sítrónu 
  •      500 g kotasæla 
  •      1 egg 
  •      4 msk nýrifinn parmesan ostur
  •      200 g cannelloni pasta 
  •      150 mozzarella ostur 
  •      Rifinn ostur 

Aðferð:

1. Stillið ofninn í 180°C. Steikið spínatið upp úr ólífuolíu á pönnu við vægan hita, þegar spínatið er orðið mjög mjúkt færið það yfir skurðbrettið og saxið mjög smátt.
2. Hitið ólífuolíu í potti og steikið smátt saxaðan lauk þar til hann verður glær og mjúkur í gegn, pressið hvítlauksrif og bætið út í pottinn ásamt hökkuðum tómötum, lárviðarlaufi og hálfum kjúklingatening. Kryddið til með salti og pipar og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur við vægan hita.
3. Í skál blandið saman söxuðu spínati, kotasælu, eggi, parmesan osti, nýrifnu múskati, salti, pipar og basilíkulaufum
4. Fyllið cannelloni pastarörin með ljúffengu ostafyllingunni, gott er að nota sprautupoka en annars má fylla rörin með skeiðum. 
5. Setjið sósu í eldfast mót og raðið pastarörum yfir. Hellið sósunni yfir og dreifið vel af rifnum osti og ferskum mozzarella yfir. Í lokin er gott að rífa vel af parmesan yfir.
6. Bakið við 180°C í 30-35 mínútur. Ef osturinn er orðinn mjög brúnn of fljótt er gott ráð að leggja bökunarappír yfir. 
7.  Berið fram með fersku salati.

Njótið vel. 

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2. 

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 


Thursday, March 3, 2016

Rjómalagað kjúklingapasta úr Matargleði Evu


Í þætti kvöldsins var sérstakt pasta þema og eldaði ég nokkra af mínum eftirlætis pastaréttum. Ég lagði mikla áherslu á einfalda rétti sem allir geta leikið eftir og tekur ekki langa stund að búa til. Þessi lúxus kjúklingapastaréttur er til dæmis einn af þeim og hann er svo góður að þið verðið að prófa hann. Ég mæli að minnsta kosti hiklaust með honum um helgina. Kjúklingur, beikon, pasta og rjómi saman í eitt. Orð eru óþörf :)

Rjómalagað kjúklingapasta með beikoni og kryddjurtum

Fyrir 3 - 4 manns. 

  • 2 msk ólífuolía
  • 4 kjúklingabringur
  • 200 g gott beikon
  • 8 - 10 sveppir, skornir
  • 2 msk fersk steinselja, smátt söxuð
  • 2 msk ferskt timjan, smátt saxað
  • 1/2 kjúklingateningur
  • 350 ml matreiðslurjómi 
  • salt og pipar eftir smekk
  • 300 g tagliatelle pasta 

Aðferð:
  1. Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið kjúklingabringurnar í 1 - 2 mínútur á hvorri hlið, kryddið til með salti og pipar. Setjið bringurnar í eldfast mót og leggið þær til hliðar. 
  2. Steikið sveppi og beikon upp úr olíu þar til beikonið verður stökkt. 
  3. Saxið niður ferskar kryddjurtir og bætið þeim út á pönnunni, hellið rjómanum einnig út á pönnuna og bætið hálfum kjúklingatening saman við. Leyfið sósunni að malla í 2 - 3 mínútur. Kryddið til með salt og pipar. 
  4. Hellið sósunni yfir kjúklinginn og inn í ofn við 180°C í 30 - 35 mínútur.
  5. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
  6. Setjið pasta á disk og kjúklinginn yfir ásamt sósunni, dreifið gjarnan ferskri steinselju yfir í lokin. 


Njótið vel. 

Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld klukkan19:25 á Stöð 2. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.