Saturday, February 20, 2016

Syndsamlega góður Doritos kjúklingur


Í kvöld er komið að úrslitakeppni Eurovision og veljum við okkar framlag sem keppir síðan í Stokkhólmi í vor. Er ég spennt? Já. Enda forfallin Eurovision aðdáandi og auðvitað ætlum við að horfa á keppnina í kvöld, þá er tilvalið að skella í eitthvað gott og borða á meðan keppninni stendur. Ég ætla að gera þennan stökka og góða kjúkling í Doritos hjúp, ég hef áður gert svipaða uppskrift og notað Kornflex en svei mér þá ef þessi er ekki betri - kjúklingurinn er mikið stökkari og þetta er algjört sælgæti. Laugardagsmatur þegar maður vill fá sér eitthvað svolítið gott.  Uppskriftin er líka afar einföld og það þarf ekki að kaupa mörg hráefni, semsagt einfalt og þægilegt. 

Njótið vel og eigið gott laugardagskvöld framundan. 

Doritos kjúklingur 

  • 700 g kjúklingakjöt, ég notaði lundir 
  • 6 msk sýrður rjómi 
  • 1 tsk papriku krydd
  • 1 tsk mexíkósk kryddblanda 
  • salt og pipar 
  • 1 poki appelsínugulur Doritos 
  • ólífuolía
Sósa:
  • 1 dós sýrður rjómi 
  • 5 - 6 msk salsa sósa 
Aðferð: 

  1. Skerið kjúklingabitana í jafn stóra bita. 
  2. Blandið saman í skál sýrða rjómanum, paprikukryddi, mexíkóskri kryddblöndu, salti og pipar og hrærið vel saman. Þekjið kjúklingabitana með sósunni og geymið í kæli í 30 mínútur. 
  3. Myljið snakkið í matvinnsluvél en ef þið eigið ekki matvinnsluvél þá getið þið barið á snakkið með t.d. kökukefli. 
  4. Veltið kjúklingabitunum upp úr snakkinu og leggið síðan á pappírsklædda ofnplötu. Sáldrið smávegis af ólífuolíu yfir og eldið við 180°C í 20 - 25 mínútur. 
  5. Berið fram með léttri salsasósu og fersku salati. 
Sósan aðferð:
  1. Blandið sýrða rjómanum og salsasósu saman í skál og berið fram með kjúklingabitunum. 





Litlir puttar að læðast inn á myndina á meðan mamman tekur myndir. haha :) 


Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefni sem eru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 

Thursday, February 18, 2016

Súper einfaldar bláberjabollakökur


Í þætti kvöldsins lagði ég sérstaka áherslu á brönsrétti og bakaði meðal annars þessar súper einföldu og bragðgóðu bláberjabollakökur. Það tekur enga stund að skella í þessar og þær eru algjört æði með morgunkaffinu. Þið getið bæði notað fersk eða frosin ber, það skiptir ekki öllu máli. 


Bláberjabollakökur af einföldustu gerð 

12 – 14 bollakökur
  • 8 msk smjör, brætt
  • 150 ml mjólk
  • 2 egg
  • 300 g hveiti
  • 120 g sykur
  • 1 tsk vanilla
  • 2 tsk lyftiduft
  • 2 – 2 ½ bolli bláber, fersk eða frosin
Haframjölsmulningur 
  • 50 g hveiti
  • 35 g smjör
  • 25 g haframjöl
  • 30 g púðursykur

Aðferð: Setjið allt saman í skál og blandið þessu vel saman með höndunum, þar til þetta verður að fíngerðu deigi 

Bollakökudeigið: 

Aðferð: 
  1. Stillið ofninn í 180°C. 
  2. Hrærið saman eggjum, bræddu smjöri, mjólk og vanillu. 
  3. Hellið blöndunni við þurrefnin og blandið vel saman. 
  4. Veltið bláberjum upp úr svolitlu hveiti og hrærið þeim saman við deigið með sleif.
  5. Skiptið deiginu jafnt niður í bollakökuform og setjið eina matskeið af haframjölsblöndunni yfir. 
  6. Bakið kökurnar við 180°C í 18 – 22 mínútur.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2. 

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefni sem notuð voru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups. 



Egg Benedict - vinsælasti brönsréttur í heimi


Þáttur kvöldsins var tileinkaður djúsí brönsréttur og ég varð auðvitað að gera einn af vinsælustu brönsréttum í heimi, egg Benedict. Fyrir mér er hann algjörlega fullkominn, sameinar allt sem mér þykir gott. Brauð, góð skinka, egg og ljúffeng sósa. Ég mæli svo sannarlega með að þið prófið þennan rétt um helgina og ég þori að lofa að þið eigið eftir að njóta vel. 

Egg Benedict 

  • 4 egg
  • 2 L vatn
  • 1 tsk. edik (má sleppa) 
  • Salt
  • 6 sneiðar af góðri hráskinku 
  • Tvær þykkar sneiðar af grófu brauði (ég notaði gróft súrdeigsbrauð)
  • Spínat steikt upp úr smjöri, magn eftir smekk
  • 3 - 4 msk. Hollandaise sósa (sjá uppskrift fyrir neðan)
  • Salt og nýmalaður pipar
  • Smátt söxuð steinselja 
  • Basilíka, eftir smekk

Aðferð: Það er best að byrja á sósunni og þið finnið uppskriftina hér fyrir neðan. Næsta skref er að skera súrdeigsbrauðið í þykkar sneiðar, setjið brauðsneiðarnar á pappírsklædda ofnskúffu og sáldrið smávegis af olíu yfir og hitið í ofni í 5 - 7 mínútur við 180°C.
Hleypt egg eru linsoðin án skurnar. Það er mikilvægt að eggin séu fersk. Setjið vatn í pott, bætið edikinu út í vatnið og látið suðuna koma upp, lækkið þá undir pottinum en látið hann samt halda vægri suðu. 

Brjótið egg í bolla og hellið egginu mjög varlega út í vatnið. Sjóðið eggin í þrjár mínútur, þá ætti eggjahvítan að vera umvafin eggjarauðunni og þegar skorið er í eggið ætti rauðan að leka fallega út.  Takið eggið varlega upp úr pottinum, mér finnst best að nota fiskispaða og setjið á eldhúspappír og þerrið.

Snöggsteikið spínat upp úr smjöri og steikið hráskinkuna í smá stund á pönnu eða þar til hún er orðin stökk og fín. 
Setjið brauðsneiðarnar á diska á raðið í eftirfarandi röð, brauð, hráskinka, spínat, egg, tvær matskeiðar af sósu, salt, pipar og smátt söxuð steinselja. 
Þetta er vægast sagt ljúfengur réttur sem allir ættu að prófa. 

Hollandaise sósa 

  • 2 eggjarauður 
  • 1 tsk kalt vatn
  • 1 tsk sítrónusafi 
  • 200 g brætt smjör
  • salt og nýmalaður pipar

Aðferð: 

Setjið eggjarauður, vatn og sítrónusafa í ílat sem töfrasprotinn kemst ofan í. Það verður að vera svipað og sést á þessu myndbandi sem ég fylgdi. Bræðið smjörið og passið að það sé enn heitt þegar þið hellið því saman við eggjarauðurnar. Þeytið eggjarauður, vatn og sítrónusafa með töfrasprotanum í eina til tvær mínútur eða þar til það er komin ljós og létt froða sem hefur margfaldast, hellið smjörinu í mjórri bunu saman við sósuna þar til hún er tilbúin. Ef sósan verður of þykk þá má þeyta svolitlu volgu vatni saman við. Að lokum er sósan smökkuð til með salti, pipar og svolitlum sítrónusafa. 


Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2 klukkan 19:25. 

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 

Öll hráefni sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.


Sunday, February 14, 2016

Skúffukakan sem allir elska



Þetta er litli gríslingurinn minn á öskudaginn, hún Ingibjörg Rósa var svo dásamleg í þessum kjól með þessi krúttlegu eyru að mamman átti ekki orð. Þessa dagana eru grísir í miklu uppáhaldi og búningurinn vakti mikla lukku hjá dömunni minni. Hún er orðin eins og hálfs árs og gleður alla í kringum sig á hverjum degi, við Haddi erum einstaklega heppin. Á morgun byrjar hún svo í leikskóla sem verður ekkert smá skemmtilegt, að vísu finnst mér tíminn alltof fljótur að líða og ég finn að maður þarf svo sannarlega að njóta stundarinnar núna. 

Að því sögðu langar mig að deila með ykkur uppskrift að æðislegri súkkulaðiköku sem allir elska, einföld skúffukaka sem tekur enga stund að búa til og tilvalið að baka í dag á sjálfum valentínusardeginum. Ég hef gaman af öllum dögum sem minna okkur á að veita fólkinu okkar sérstaka athygli. Það er brjálað að gera hjá öllum á hverjum degi og stundum gleymast einfaldir hlutir eins og bara það að vera til með fólkinu okkar núna, þá er ég að meina að slökkva á tölvu, síma og sjónvarpi og setjast við borðstofuborðið og fá sér köku. Ég vona svo sannarlega að þið eigið eftir að eiga góðan dag, veðrið er æði og ég vildi gjarnan eyða deginum með fólkinu mínu en ég er að fara í hagfræði lokapróf á morgun og mun þess vegna eyða honum innandyra við lestur. 

Skúffukakan sem allir elska 


*1 bolli = 2 1/2 dl
  • 3 bollar Kornax hveiti
  • 2 bollar sykur
  • 3 egg       
  • 2 bollar hreint jógúrt 
  • 1 bolli ljós og bragðlítið olía
  • 5 msk kakó 
  • 2 tsk lyftiduft 
  • 1 tsk matarsódi
  • 2 tsk vanillusykur eða dropar 
Aðferð: Hitið ofninn í 180°C (blástur). Blandið öllum hráefnum saman og hrærið í nokkrar mínútur eða þar til deigið er orðið silkimjúkt. Smyrjið ofnskúffu og hellið deiginu í skúffuna. Bakið við180°C í 20 - 25 mínútur. Tíminn fer auðvitað eftir ofnum, eins og alltaf. Gott er að athuga baksturinn með því að stinga prjóni í kökuna, prjóninn á að koma hreinn út og þá er kakan klár. Leyfið kökunni að kólna áður en þið setjið á hana kremið. 

Krem 

  • 200 g suðusúkkulaði
  • 100 g smarties súkkulaði (eða annað gott, þetta var það súkkulaði sem ég átti til)
  • 40 g smjör 
Kókosmjöl til skrauts 

Aðferð: Bræðið súkkulaði og smjör saman við vægan hita, hellið yfir kökuna og sáldrið síðan kókosmjöli yfir. Skerið kökuna í litla bita og berið fram. 





Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.


Saturday, February 13, 2016

Tikka Masala kjúklingur

Í síðasta þætti af Matargleði Evu fékk ég til mín góða gesti í indverska veislu með öllu tilheyrandi. Indverskur matur er brjálæðislega góður og fullkominn matur til að deila með góðum vinum. Aðalréttur kvöldsins var Tikka Masala kjúklingur sem við erum svo hrifnar af. Berið kjúklingaréttinn fram með raita sósu, hrísgrjónum og góðu naan brauði. 

Tikka masala kjúklingur

  • 3 hvítlauksrif
  • 1 msk rifið ferskt engifer
  • 3 msk sítrónusafi
  • 1 dl hrein jógúrt
  • 3 msk sítrónusafi
  • 1 tsk salti
  • ½ rautt chilialdin
  • 1 tsk kóríanderfræ
  • Handfylli saxað kóríander
  • 3 tsk garam masala 
  • 700 g kjúklingakjöt, skorið í litla bita

Aðferð: Blandið öllum hráefnum saman og skerið kjúklingakjötið í litla bita. Setjið allt í plastpoka og inn í kæli í 2 – 3 klukkstundir, best yfir nótt. Eftir þann tíma er kjúklingurinn steiktur á pönnu í 2 – 3 mínútur og síðan fært yfir í pottinn með sósunni og látið malla í 15 – 20 mínútur.

Sósan:
  • 2 – 3 msk ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk rifið engifer
  • ½ rautt chilialdin
  • 1 tsk túrmerik
  • 1 tsk cumin 
  • 1 tsk múskat
  • 2 msk tómatpúrra
  • 200 g hakkaðir tómatar
  • 3 msk sýrður rjómi
  • 3 msk hrein jógúrt
  • 1 dl rjómi
  • handfylli ferskur kóríander

Aðferð: Hitið olíu á pönnu og steikið hvítlauk, engifer og chili. Bætið kryddunum út á pönnuna og hrærið. Því næst fara hakkaðir tómatar, tómatpúrra, sýrður rjómi, rjómi og hrein jógúrt saman við. Leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur og steikið kjúklinginn á meðan. Setjið kjúklinginn út í pottinn og leyfið sósunni að malla í 20 mínútur. Smakkið ykkur til með salti og pipar.


Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2. 

Njótið vel. 

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í Hagkaup. 




Friday, February 5, 2016

Fiskibollurnar hennar ömmu með asísku twisti


Maturinn og uppskriftirnar hennar ömmu eru mér mjög mikilvægar og passa ég mikið upp á þær. Ég hef áður deilt með ykkur uppskrift að fiskibollunum hennar ömmu Stínu sem allir ættu að prófa. Í síðasta þætti af Matargleði ákvað ég að styðjast við þá uppskrift en breyta henni örlítið og setja asískan twist á hana, það kom ansi vel út og ég mæli svo sannarlega með að þið prófið þessar bollur á bolludaginn. Bragðmiklar, einfaldar og fljótlegar! Akkúrat eins og þetta á að vera. 


Fiskibollurnar hennar ömmu 

14 - 16 bollur
  • 800 fiskhakk
  • 1 meðalstór laukur
  • 1/2 rautt chilialdin 
  • handfylli kóríander 
  • 1 egg 
  • 2 msk hveiti 
  • salt og pipar 
  • Ólífuolía 
  • Smjör 
Aðferð: 
  1. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél og maukið þar til blandan verður silkimjúk. Ef þið eigið ekki matvinnsluvél þá er fínsaxið þið laukinn, chilialdin og kóríander og blandið öllu vel saman. 
  2. Hitið ólífuolíu og smjör á pönnu, steikið bollurnar á öllum hliðum í ca. mínútu á hlið. Setjið bollurnar í eldfast mót og inn í ofn í 15 - 20 mínútur við 180°C. Á meðan bollurnar eru í ofninum útbúið þið einfalt meðlæti t.d. ferskt salat, hrísgrjón og létta sósu. 

Létt jógúrtsósa með Wasabi

  • 1 dós grískt jógúrt 
  • 1 hvítlauksrif 
  • safi úr hálfri límónu 
  • Wasabi paste, magn eftir smekk
  • Salt og pipar 
Aðferð: 

  1. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Smakkið ykkur til og kryddið með salti og pipar. Gott að geyma sósuna í kæli áður en þið berið fram. 

Hrásalat

  • Rauðkál 
  • Kínakál 
  • Safinn úr hálfri límónu 
  • 1 gulrót 
  • 1/2 rautt chilialdin 
  • Salt og pipar 
  • Handfylli kóríander 
Aðferð:

  1. Skerið grænmetið í þunnar sneiðar og blandið vel saman í skál, kreistið safa úr hálfri límónu yfir og kryddið til með salti, pipar og ferskum kóríander.


Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2. 

Njótið vel. 

xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir


Öll hráefnin sem voru notuð í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.