Friday, November 19, 2010
Thursday, November 18, 2010
Thursday, November 11, 2010
Andersen&lauth
Andersen&Lauth. Þessi íslenska hönnun er ein sú allra glæsilegasta að mínu mati, ég fýla hana í tætlur. Ég fékk svo fallegan kjól fyrir útskriftina mína í fyrra, liggur við að ég hafi ekki farið úr honum síðan.
Falleg hönnun
Tuesday, November 9, 2010
Jólastússerí
Ég hóf smá jólastússerí í dag eftir heimsókn í Ikea í gær. Í staðinn fyrir að eyða tíma á facebook í læripásum þá var ég aðeins að dúllerast í staðinn.
Ég keypti mér ósköp venjulegt rautt kerti á 295.kr, en skreytti það með rauðu skrauti sem ég keypti líka í Ikea, minnir að rúllan hafi kostað um 100 kr. Og útkoman var ansi krúttleg.
Þessi gamli kertastjaki sem ég nota aldrei,fékk smá upplyftingu. Rauð kerti og litla jólapakka.
Svo var eitt ansi sniðugt í Ikea í gær, sumsé skreyttir púðar! Ég prófaði, vitaskuld er þetta ekki eins fínt og það var í Ikea. En mér finnst þetta krúttlegt og rúmið fær líka jólaskraut.
Keypti mér nokkur svona, 395.kr stk.
En nújæja! Önnur jólafærslan. Ég skal fara varlega - kem ekki með aðra strax.
Wednesday, November 3, 2010
Tuesday, November 2, 2010
Jólajólajól.......
Nóvember Nóvember - mikil ósköp er tíminn fljótur að líða!
En nú er löglegt fyrir jólabarn eins og mig að fara aðeins að spegúlera í jólunum að alvöru. Um helgina tók ég smá skraut úr geymslunni, til þess að þrífa það náttúrlega .. en svo væri það synd að setja það aftur inn í geymslu svo það fékk sitt sæti á heimilinu. Og þannig verður það fram að jólum, lítt og lítt í einu. (eða lítt og lítt í nóvember) Ætla mér nú að eyða jólaprófalestrinum í kósí jólahúsi.
.. Ég ætla að skreppa í Ikea í vikunni og næla mér í eitt og annað sem ég tel brýna nauðsyn.
t.d. ætla ég að fjárfesta í þessum boxum sem ég ætla að fylla með dýrindis jólakökum. Ég og amma ætlum að byrja í næstu viku - á fyrstu sort. Setja svo auðvitað í frysti og bíða með þær til jóla.
Mér finnst þetta ansi krúttlegt jólaskraut - Úr piparkökum. (ég hlakka til að dúllast í þessu)
Það er bara svo gott að hlakka til jólanna... og allt það notalega sem að þeim fylgir.
Jæja. Fyrsta jólafærslan komin í hús og húrra fyrir því. (það koma svo sannarlega fleiri)
Sunday, October 31, 2010
Yndisleg vika.
Yndisleg vika að baki - Elskulega mamman mín kom heim frá Noregi, Maren systir mín átti afmæli, fór með ansi góðu fólki á heimildarmyndina um Ragga Bjarna sem er að mínu mati algjör snilld - og mæli með að fólk skelli sér á hana.
En náttúrlega það bestasta besta við þessa viku var að Harpa frænka mín eignaðist prinsessu s.l. fimmtudag á afmælisdaginn hennar Mæsu :)
Mamma og ég að hitta prinsessuna í fyrsta skiptið.
En jæks, nóvember á morgun! Hvert flaug tíminn eiginlega???
Subscribe to:
Posts (Atom)