Ingibjörg Rósa dundaði sér á meðan móðirin bakaði þennan sunnudagsmorguninn. |
Sænsk kladdkaka, súkkulaðibotninn.
100 smjör, brætt
2 Brúnegg
2,5 dl sykur
1,5 dl Kornax hveiti
2 tsk
vanillusykur
3 msk gott kakó
½ tsk salt
Aðferð: Hitið
ofninn í 175°C (blástur). Bræðið smjör í potti við vægan hita. Þeytið saman
sykur og egg í smá stund eða þar til blandan verður létt og ljós. Blandið hinum
hráefnunum saman við og hrærið í smá stund eða þar til deigið verður
silkimjúkt. Smyrjið bökunarform (mér finnst best að nota smelluform en þá er
mikið þægilegra að ná kökunni úr forminu).
Hellið deiginu í formið og bakið við 175°C í 20 mínútur. Kælið kökuna
mjög vel áður en þið takið hana upp úr forminu og bætið súkkulaðimúsina ofan á
botninn.
*Formið sem ég
nota er 20cm að stærð.
*Mér finnst best
að baka þennan botn við blástur en ef þið notið yfir-og undirhita þá þurfið þið
að hafa hærri hita t.d. 200°C.
Himnesk súkkulaðimús
25 g smjör
150 g súkkulaði
3 Brúnegg,
aðskilinn
2 msk sykur
2,5 dl rjómi
Aðferð: Bræðið
smjör og súkkulaði við vægan hita í potti, þegar súkkulaðið er bráðnað hellið
því í skál og leyfið að kólna. Þeytið rjóma og leggið til hliðar. Stífþeytið
eggjahvítur, um leið og það byrjar að freyða í eggjahvítunum bætið þið sykrinum
smám saman við. Eggjahvíturnar eru tilbúnar þegar þær eru stífar og þið getið
hvolft skálinni án þess að þær hreyfast.
Blandið
eggjarauðum saman við súkkulaðið, það er mjög mikilvægt að súkkulaðið sé kalt
(annars gæti þetta orði að súkkulaði-eggjahræru). Blandið súkkulaði-eggja
blöndunni út í marensinn og blandið rólega saman með sleif. Í lokin blandið þið
rjómanum saman við með sleif.
Þá er súkkulaðimúsin klár.
Þessi kaka er ómótstæðilega góð og sérstalega með ferskum jarðarberjum, ég ætla að bjóða upp á þessa köku í kvöld sem eftirrétt en hún mamma er búin að bjóða okkur í humarsúpuna sína sem er alltaf svo góð, ég þarf endilega að koma þeirri uppskrift hingað inn á bloggið.
Fallegi diskurinn sem þið sjáið á myndinni er frá cupcompany.is. |
Ég vona að þið
njótið vel og eigið góðan sunnudag framundan.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
No comments:
Post a Comment