Saturday, May 28, 2011


Ótrúlega ferskur og bragðgóður safi.
Innihald: Jarðaber, spínat, bananar, vatnsmelóna, engifer og trópí.
Delish.




Engifer

Trópí
Jarðaber

Spínat


Morgunstund gefur gull í mund

Það skiptir ótrúlega miklu máli hvernig við förum af stað á morgnana, það segir nánast alveg til um dagsformið hjá okkur. Ég elska morgna þegar að ég þarf ekki að borða,klæða, sjæna mig í hvelli. Þá verð ég hrikalega stressuð og tek stressið með mér út í daginn.

Að vakna of seint.. er það leiðinlegasta sem kemur fyrir mig. Dagurinn verður öfugsnúinn, sérlega ef maður sefur yfir sig í vinnu, tíma osfv. Hræðilega pirrandi.

Ég ELSKA dúllu morgna, þegar að ég get borðað hafragrautinn minn í ró og næði, lesið blöðin, drukkið góðan safa og gott kaffi og dúllerast fram eftir öllu.

Ég fékk fyrstu flugskrána í gær fyrir júnímánuð. Fer m.a. til New York og Seattle. Gisti þar og fæ loksins að fara til Bandaríkjanna. Hef aldrei komið þangað, þannig það verður mikil upplifun.
Ég er allavega mjög spennt fyrir sumrinu. Hef góða tilfinningu fyrir þessu. :o)

Njótið helgarinnar - því það ætla ég svo sannarlega að gera.







Thursday, May 26, 2011

A lövlí day


Ég fór með Öglu Sigríði yndislegu vinkonu minni á Súfistan í gær, fengum okkur gott að borða, drukkum gott kaffi, skoðuðum slúðurblöð og áttum ansi ljúfa stund saman.

Capp!

Beautiful

Beygla, hummus, salat og huggulegheit.

Vandræðileg stúlka

Enn vandræðalegri stúlka

Statement dagsins

Þegar að ég kom heim beið mín þessi fallegi maður, ég er svo heppin að eiga hann.
 

Breytt hugarfar er það sem dugir.


Ég er í hlaup-átaki.  Mig langar agalega til þess að hlaupa mér til skemmtunar, jafnvel ef vel gengur að taka þátt í maraþoni einn góðan veðurdag. Þannig ég er að safna kílómetrum á hverjum degi, þegar að ég segi hverjum degi þá meina ég á hverjum degi frá því á mánudaginn. Þannig ég er nýbyrjuð í þessu átaki.

Það er svo gott að hlaupa - með góða músík er allt hægt.
Að vísu kann ég betur að meta hlaupin þegar að þau eru búin, ekki aaalveg á meðan á þeim stendur. Stundum er ég löt - stundum ekki. En allt er gott eftir á :o)

Ég var að grúska í gömlum myndum og fann þá mynd af mér síðan 2009. Ég er kjáni og bar saman mynd frá því þá og nú. Ég ákvað að deila þeim myndum með ykkur. 

Á þessum tveimur árum frá því að vera í engu formi og í það að komast í ágætt form, þá munar það svo sérdeilis miklu fyrir andlega vellíðan. Þetta er klisja, en þetta spilar svo ótrúlega mikið saman. Ef manni líður ekki vel í eigin skinni þá líður manni ekki vel.

Ég er ekki að segja að maður þurfi að vera ótrúlega mjór til þess að líða vel, það er ekki mín hugmynd um vellíðan heldur að vera í góðu formi líkamlega til þess að andlega hliðin fúnkeri vel.

Ég hef prufað misjafnar aðferðir til þess að komast í form. Hef prufað marga skyndikúra en þeir virka svo sannarlega ekki til lengri tíma litið.

Hugarfarið er það eina sem að kemur manni þangað sem maður vill. Það stjórnar öllu, það þýðir ekkert að hætta að borða nammi, brauð, hveiti o.s.frv. því einn daginn þá áttu eftir að detta í það.
Í stað þess að borða bara það sem að þú vilt, allt er náttúrlega gott í hófi og hreyfa sig reglulega. Fjölbreytt matarræði skiptir miklu máli.

Ef maður fer  t.d. á hverjum degi í bakarí og kaupir sér snúð þá verður ekki eins gaman að fara í bakarí og kaupa sér snúð. (Hljómar undarlega en ég vona að þið skiljið mig.)

Ég veit að ég var ekkert skelfileg árið 2009 og þetta var ekkert stórmál. En fyrir andlegu hliðina á mér var þetta stórmál, skyndikúrar gerðu illt verr.

 Sjálfsöryggið tapast og óánægja með sjálfan sig er ósköp erfitt að takast á við.

Breytt hugarfar er það sem dugir.

Ég er sátt og sæl með mig í dag.  Ég borða það sem ég vil og ég hreyfi mig daglega, mér líður vel í eigin skinni.

Það er það mikilvægasta - því ef við fúnkerum ekki sem skyldi þá fúnkerar lítið í kringum okkur.




xxx

Eva Laufey Kjaran
Heimalagaður andlitsmaski sem kostar eina tölu.

Ég prufaði þessa uppskrift og mér finnst maskinn virka vel á mína húð, ég á líka voða fínan andlitsmaska sem kostaði grilljón og hann er alls ekkert betri. Þannig maður getur verið voða fínn með því sem maður á í ísskápnum. :o)
Ég þarf meiri raka í mína húð og því fann ég uppskrift sem að passar fyrir það.
Semsé..

- 1/2 Avókadó
- 2 Matskeiðar af hunangi
- Haframjöl, ég setti ca. eina lúku

Þessu blandað vel saman. Voila!


Þetta er snilld, því þetta tekur í burtu dauðar húðfrumur og gefur húðinni aukin raka.
Áður en að maskinn er settur á þá er gott að skola andlitið í volgu vatni og svo er maskinn látinn standa á í 10 mín. og þá er maskinn skolaður af uppúr volgu vatni.






Einfaldara og ódýrara verður það ekki


Tuesday, May 24, 2011

Til þess að ég komist almennilega í gang á morgnana þá þarf ég hafragrautinn minn með kanil og ferskum bláberjum, trópí-in minn og svart kaffi.



Saturday, May 21, 2011

Nude skór. To buy list..

One fine day in the capital

Ljúfur lunch á austurvelli. Marsý og Stefán sæt í sólinni!

Þessi var spenntari en spennt

Listamennirnir að listast á sviðið

Þetta var svolítið magnað


Mamman mín kom








Þessi elskar sólina