Ég hóf smá jólastússerí í dag eftir heimsókn í Ikea í gær. Í staðinn fyrir að eyða tíma á facebook í læripásum þá var ég aðeins að dúllerast í staðinn.
Ég keypti mér ósköp venjulegt rautt kerti á 295.kr, en skreytti það með rauðu skrauti sem ég keypti líka í Ikea, minnir að rúllan hafi kostað um 100 kr. Og útkoman var ansi krúttleg.
Þessi gamli kertastjaki sem ég nota aldrei,fékk smá upplyftingu. Rauð kerti og litla jólapakka.
Svo var eitt ansi sniðugt í Ikea í gær, sumsé skreyttir púðar! Ég prófaði, vitaskuld er þetta ekki eins fínt og það var í Ikea. En mér finnst þetta krúttlegt og rúmið fær líka jólaskraut.
Keypti mér nokkur svona, 395.kr stk.
En nújæja! Önnur jólafærslan. Ég skal fara varlega - kem ekki með aðra strax.
Pretty pretty
ReplyDeletekemur manni í smá jólastuð!
En krúttlegt! þú ert dúlla Eva :)
ReplyDeleteþú ert nú meira krúttið.. Evan kann þetta :*
ReplyDeleteEn fallega jólalegt hjá þér elskuleg !
ReplyDelete