Sunday, September 1, 2013

Ljúffeng bananakaka með pekanhnetum

Ef ég er í fríi á laugardögum þá þykir mér svo gaman að baka eitthvað gott, bakstursilmurinn gerir líka heimilið enn notalegra. Ég átti banana sem voru á síðasta snúning og ætlaði að búa til bananabrauð, en svo datt mér í hug að prófa að búa til bananaköku fyrst mig langaði í almennilega köku með kremi. Ég er yfir mig hrifin af pekan hnetum og þær gegna lykil hlutverki í kökunni að mínu mati, auðvitað getið þið sleppt hnetunum ef þið eruð ekki hrifin af þeim. Ég mæli alla vega með að þið prófið. 


Bananakaka með pekanhnetum 

Fyrir fjóra til sex

Uppskrift

2 egg
3 dl sykur
2 þroskaðir bananar
60 g smjör
3 1/5 dl hveiti 
1 tsk vanillu extract (eða vanillusykur)
1/2 dl mjólk
2 tsk lyftiduft
½ tsk kanil
50 g pekanhnetur

Aðferð:

Hrærið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bræðið smjörið við vægan hita og leggið til hliðar. Sigtið saman hveiti og lyftiduft a.m.k. tvisvar sinnum saman og blandið saman við eggjablönduna. Merjið banana og bætið saman við ásamt mjólkinni, vanillu og smjörinu. Blandið öllu vel saman, saxið hneturnar smátt og bætið saman við í lokin.

Smyrjið form og hellið deiginu í formið. Bakið við  við 180°C í 45 - 50 mínútur.

Kælið kökuna mjög vel áður en þið setjið á hana kremið góða.

Rjómaostakremið dásamlega

100 g hreinn rjómaostur
100 g smjör
200 – 250 g flórsykur
1 tsk vanillusykur
50 g brætt hvítt súkkulaði
Ristaðar pekanhnetur, magn eftir smekk
karamellusósa

Hrærið saman rjómaostinum og smjörinu í tvær til þrjár mínútur, bætið flórsykrinum smám saman við og vanillu. Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði og bætið út í kremið í lokin. Hrærið vel í blöndunni eða þar til kremið verður ljóst og létt.

 Dreifið kreminu yfir bananakökuna og sáldrið ristuðum pekanhnetum yfir. (ristið hneturnar í smá stund á þurri pönnu.) Fyrst við erum hvort sem er búin að setja ljúffengt krem á kökuna þá er alveg eins gott að fara alla leið og setja smávegis af karamellusósu yfir. Sósan setur punktinn yfir i-ið. Berið kökuna fram með þeyttum rjóma og njótið.



 Ég vona að þið hafið átt góða helgi kæru vinir og að ný vika verði ykkur enn betri. Það er alltaf tími fyrir kökur svo ég mæli með að þið prófið þessa köku einn daginn, ég vona að þið njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran

6 comments:

  1. Hvaða stærð af formi notarðu fyrir kökuna?

    ReplyDelete
  2. Usss... þessi er í ruglinu hvað hún er góð! :) Kv. Katrín Rós

    ReplyDelete
  3. væri líka til í að vita með formið ertu bara með sandkökuform?

    ReplyDelete
  4. Væri líka til í að fá að vita hvernig karmellusósa þetta er ? er þetta svona íssósa ? Annars rugl girnileg kaka.. hlakka til að prófa hana! :)

    Kv. Ragna

    ReplyDelete
  5. Gerði þessa fyrir föstudagskaffið í vinnunni um daginn, sló í gegn. Notaði karmellu kremið sem ég setti á rice crispies kökuna sem er frá þér líka:-) Góa karmellur nammi nammi. En var líklega með of stutt form hún varð svo há hjá mér .. ætla að nota lengra krem næst. Takk kv. Ísey

    ReplyDelete
  6. Ég nota bara sandkökuform. Það er auðvitað best að útbúa sína eigin karamellu en annars er hægt að kaupa góðar karamellusósur út í búð. ;)

    ReplyDelete