Glútenlausar og gómsætar bláberjapönnukökur
- 5 dl Finax fínt mjöl
- 4 msk brætt smjör
- 1 tsk. Vínsteinslyftiduft
- Salt á hnífsoddi
- 2 tsk. Góð vanilla (vanilla extract eða vanillusykur)
- 2 dl mjólk
- 1 ½ dl AB mjólk (eða önnur hrein súrmjólk)
- 1 – 2 msk sykur
- 2 – 3 dl bláber (fersk eða frosin)
Aðferð:
- Sigtið saman hveiti, lyftiduft og salt.
- Bræðið smjör, leggið til hliðar og kælið.
- Pískið eitt egg og mjólk saman.
- Næsta skref er að blanda öllum hráefnum vel saman í skál með sleif. Bætið bláberjum saman við deigið í lokin með sleif.
- Leyfið deiginu að standa í 30 - 60 mínútur áður en þið steikið pönnukökurnar.
- Hitið smjör á pönnukökupönnu og steikið pönnukökurnar í ca. mínútu eða tvær á hvorri hlið. Þær eru tilbúnar þegar þær eru gullinbrúnar.
Berið pönnukökurnar fram með ljúffengu sírópi og ferskum berjum.
No comments:
Post a Comment