Wednesday, December 7, 2011

Pönnukökur með bláberjum.

Klukkan fjögur ákvað ég nú að gera vel við mig í kaffitímanum, átti ég að hlaupa út í bakarí eða drífa mig í að henda í nokkrar pönnukökur? Ég var ekki lengi að ákveða mig, þessar pönnukökur er þrælgóðar og fljótlegar. Ég er alltaf að reyna að krydda svolítið upp á þær því þær eru vissulega hollari en "venjulegar" pönnukökur og þá er bragðið ekki það sama. En mér finnst þær góðar og í dag þá prufaði ég að útbúa smá bláberjamauk í stað þess að nota síróp, eða við skulum bara kalla það bláberjasíróp. Það hljómar ágætlega.

En hér kemur uppskriftin af einföldum pönnukökum og bláberjasírópinu einfalda, ég notaði sérlega mikið á mínar pönnsur vegna þess að ég er svo hrikalega skotin í bláberjum.

Pönnukökur:
  • 100 gr. Haframjöl
  • 150 gr. Létt AB-mjólk
  • 2 msk. Fínmalað speltmjöl
  • 2 msk. Kókos olía
  • 1/2 tsk. Lyftiduft
  • 1 1/2 - 2 tsk. Kanill
  • 1/2 tsk. Vanillu extract (Eða dropar)
  • 1 Egg
  • 1 tsk. Agave-síróp
Þessu eru öllu blandað vel saman í 2 - 3 mínútur í hrærivél.

Sírópið:
ca. 50  - 60 gr. Bláber (ég notaði í þetta skiptið frosin)
2 msk. Agave síróp
1/2 tsk. Kanill
1 1/2 msk. Rifinn sítrónubörkur

Ég byrjaði á því að skola vel bláberin vegna þess að þau voru frosin, lét svo allt saman í pott og sauð við vægan hita  í um það bil 5. mínútur og hrærði vel í á meðan þar til þetta var orðið að fallegu mauki.

Svo stráði ég nokkrum kókosflögum yfir.







Fallegar og fínar pönnsur, þær glöddu mig svo sannarlega.

xxx

Eva Laufey

2 comments: