Friday, December 23, 2011

Skötupartí

Skötuveisla hjá ömmu og afa í kvöld. Nú eru jólin að koma! Ég fæ mér alltaf skötu, ég viðurkenni að ég fæ mér hana bara til þess að vera með. Hún er þó ágæt blessunin, kannski ekkert sú besta en alls ekki sú versta. Lyktin er líka svo dásamleg að ég vil helst ekki fara í sturtu.

Ég á eftir tvær gjafir. Ég byrjaði þó á gjafakaupum í sumar, ætlaði nú aldeilis að vera sniðug og vera búin með þetta fyrir jólin. En eins og gerist nú stundum þá bíður maður með eitthvað fram að síðustu stundu, en ég þykist vita að fleiri eru í sömu sporum og ég. Það eru allavega nógu margir niðri í bæ að klára kaupin :o)
Ég ætla að klára þessar gjafir og kíkja svo aðeins á kaupfélagið með góðu fólki yfir góðum kakóbolla eða rauðvínsglasi, kannski ég fái mér bæði. Hvur veit! 


Laufabrauðin yndislegu í fallega boxinu sem afi smíðaði. 


Maren og Daníel í stuði. 

Skatan komin á borðið og lyktin var unaðsleg.

Rósa Allans með tökin á hreinu eins og venjulega.


Amma mín og ég, lyktin var pínu óbærileg svona nálægt pottunum.

Fallegar mæðgur.
Sigurrós, Sesselja Laufey og amma Stína.



xxx
Eva Laufey Kjaran

3 comments:

  1. Ég hefði verið svo mikið til í skötu og kaupfélagsbjór. Skemmtið ykkur vel.. ég hugsa til ykkar. miss og kiss

    ReplyDelete
  2. Væri nú heimsins best að hafa ykkur hér elsku Emmý mín:* Knús og kossar til ykkar í Hollandinu xxx

    ReplyDelete
  3. Sæl Eva
    Við erum þrjár ungar stúlkur að vinna verkefni í ferðamálafræði og vorum að spá hvort að við megum nota nokkrar myndir hjá þér :)
    Allt mjög girnilegt!
    Kv. Fjóla, Valdís og Jóhanna

    ReplyDelete