Ég er svo ótrúlega rík að hafa átt tvo pabba í mínu lífi. Þann fjórða júní kvaddi þessi einstaki maður þennan heim, alltof snemma. Fjörið var rétt að byrja hjá okkur. Ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman sem var einstaklega ljúfur. Minningarnar um yndislegan mann sem ég á eftir að sakna óskaplega mikið lifa að eilífu.
Mig langar svo að þakka ykkur vinum mínum og lesendum fyrir fallegar kveðjur. Ég met þess mikils og kveðjurnar ylja svo sannarlega hjartað.
Risaknús tilbaka á ykkur öll.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Samhryggist þér kæra Eva Layfey með fráfall pabba þíns. Ég þekkti hann vel og hann talaði falleg um þig við mig. Vona að ég fái að vinna með þér í sumar mín kæra.
ReplyDeleteFlott síða hjá þér sem ég á örugglega eftir að nota mikið.
Kærleikskveðja,
Brynja Nordquist
Mínar innilegustu samúðarkveðjur til þín kæra Eva Laufey.
ReplyDeleteSamhryggist þér innilega.
ReplyDeleteKv. dyggur lesandi.
Samhryggist þér og fjölskyldu þinni innilega.
ReplyDeleteKær kveðja,
Katrín
Það eru ekki margir, sem voru slíkur gleðigjafar eins og Hermann Gunnarsson. Kannske enginn, sem ég man eftir á síðustu áratugum. Innilegar samúðarkeveðjur.
ReplyDelete